Herjólfur - 07.06.1935, Blaðsíða 1

Herjólfur - 07.06.1935, Blaðsíða 1
HERJOLFUR I. árg. Vestmannaeyium 7. júní 1935. 1. tbl. Innilegasta þakklæti vottum við öllum, fjær og nær, er auðsýndu samúÖ og hluttekningu viÖ fráfall ástvinar okkar Sigurgeirs Jónssonar. AÖstandendur. ######################### # # # # # # # # # # # # # # # # # # Hátíðamaturinn kom með síðustu skipum svo sem: Spikfeitt, drifhvítt norðlenzkt D1LKA~ KJÖT, HÓLSFJAI.LA;HANGIKJÖT Svinakjöt, Rjúpur, Gæsir, MiÖdags- pylsur, Bjúgu. — Allskonar álegg. Búðmgar, Rabarbari, Skyr. Asparges NiÖursoÖnir Ávextir. — Eins og fyr ávalt mest og best og best úrval af ágætis mat í ÍSMÚS OiU- # # # # # # # # # # # # # # # # # # ######################### í. s. í. K. V. VOMM.ÆP)P)lkIBIIEC.ILJM I. flokks »Þórs« og »Týs« verdur hádur 9. júní (hvíta- sunnudag kl. 4 e. h. Úrslitakappleikur um vorbikarinn gefinn af K. V. 1932. ———*— Slaufur seldar á stadnum. ■ (Þróttafélagið Þór. Hlanp og göngur Ganglati og Ganglöt hétu hjii Heljar. hað hefur verið bent á það, að e. t. v. hefði lífsspeki for- feðranna ráðið nafnagiftum þeirra. Að gangletin hafi verið talin lífinu andstæð og leiddi menn yfir þröskuldinn Fallandaforað inn í sal Heljar. í sambandi við þetta hef- ur og verið bent á eitt af nöfnum Óðins, sem er Gangráður. En hvað sem þessum tiigátum líður, þá er víst um það, að íslendingar hafa jafnan iðkað hlaup og göngur og verið óganglatir menn. Enda hefur jafnan reynt mikið á þjóðina í þessu efni. Landslag og bygging landsins er með slíkum hætti, svo sem kunnugt er. Býlin á víð og dreif og illt um vegi og samgöngutæki. Það ei u ekki mörg ár siðan að menn ferðuðust mest- megnis gangandi bæja og héraða á milli. Augljóst mál er það, að þjóðir, sem byggja hrjóstrug og strálbýl lönd, þar sem illt er um samgöngur, verða að vera vel- hlaupandi og velgangandi, ef svo mætti segja. Meðan allt er með þeim hætti, að mönnum sé slík færni nauð- synleg, þá er ekki svo mikil hætta á ferðum, en nú hafa framfarir miklar orðið á sviði samgöngu- málanna — og af því stafar su hætta, að menn hætti að ganga nema það allra nauðsynlegasta. fetta er sama sagan og með róð- urinn, sem nú er að leggjast nið- ur fyrii tilverknað vélanna. Yitan- legt er þó, að róður ei einhver ágætasta íþrótt, sem völ er á. Væri illt til þess að víta, ef hann legðist niður. Nú er það svo um þorra ís- lendinga, að þeir geta vel komizt af án þess að ganga mikið, og «r þá mjög hætt við, að gángletin geri vart við sig — en þá er háski á ferðum. Hver maður, sem þess á kost, ætti að ternja sér að ganga eða hlaupa vissa vegalengd á hverjum degi, þött hann „praktiskt séð“ geti komizt hjá því. Er slíkt hin bezta þjálfun fyrir fætur og brjóst. Sé um að ræða göngufarir út í náttúruna og fjallgöngur, eru þær hveijum manni mjög hollar, og þroskandi fyrir sál og líkama. Þær sameina þjálfun vöðva og andar- dráttar og svo hina beztu skemmt- un og nautn: að njóta náttúrunn- ar, hreina loftsins og fagurrar útsjónar. Þær opna augu manna fyrir dýralífi og jurta, auka þekk- ingu manna á umhveifinu og glæða skilning og samúð með landi og þjóð, og öllu, sem skapað er. — Nú er tími til slíkra ferða, sumar og sól. — Leggið nú land undir fót og notið frístundirnar til þess áð hrista af ykkur rykið. Arni Guðmundsson,

x

Herjólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1596

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.