Herjólfur - 07.06.1935, Blaðsíða 3

Herjólfur - 07.06.1935, Blaðsíða 3
HERJÓLFUR « „Lydia hjúkraði mér aiian tím- anu, sem ég var veik, herra Mark- mann,“ svaraði Asta. Gylling. „Ég er henni svo þakklát, að ég viidi geta borið hana á höndum mör.“ „Já, getur maður skilið það, ungfiu litla? Hún er einkadóttir mín, og gæti lifað eins og blóm í eggi hérna heima hjá mér, og svo tekur hún skyndilega npp á því, að gerast hjúkrunarkona! En það er líklega að lundin hafi ekki haft nægilegt rúm innan veggja æsku- heimilisins.“ „Það er alveg rétt, herra Mark- mann,“ sagði Ásta Gylling hlæj- andi. „Lydia er einmitt á réttri hyllu. Sjuklingarnir elska hana, og þeir gleyma aldrei þeim erfiðu stundum, er hún svo að segja hreif þá úr dauðans greipum. — Látið það gleðja yður, að dóttir yðar er hinum þjáðu til svo mik- iilar blessunar." „Já, ungfrú Gylling, það gleður mig lika. En það hefir þó sín áhrif á: mig, þegar eini sólargeisli heim- ilisins yfirgefur mig. Hefði konan mín lifað, þá--------. Nei, ég ætla ekki að kvarta, ef bara litla stúlk- an mín er ánægð með starf sitt. Við gamla fólkið gengum lika okkar eigin götur á yngri árum, við megum ekki neita börnunum um sama rétt. — Jæja verið þið nú sælar, börnin góð! Komið bráð- um aftur, og gleymið ekki taisím- auum“. Teger Markmann stóð kyrr í hiiðinu og starði á eftir bifreiðinni. — Að lítil stúlka skyldi ráða við slíkt farartæki? — Rokkurinn liggur og rykfellur uppi a lofti, en önn- ur hjól taka að snúast’.--------En gera þau það kleyft að höndla gæfuna — þá gæfu, sem varir alla æfi? Bifreiðin sneri út af þjóðveg- inum og út yfir heiðina — Lydia ætlaði að koma að lindinni. — Það var undarlegt, hvað hún héit upp á þessa lind. Gömui sögn, annað var það vist ekki, sem dró hug Lydiu að lindinni. Og oftar en einu sinni hafði gamli mað- urinn tekið sér reku í hönd til að jafna lindina við jörðu, en það var alltáf eitthvað, sem lamaði hönd hans svo ekkert varð úr. Staðurinn var litlu stúlkunni hans heilagur, - og hann vissi ekki, hve mjög hún kynni að vera samrýmd þessum draumum sínum um hina hugdjörfu nunnu. Nei, í huga ungra Ógreidd þinggjöld frá árunum 1933 —1934 sem ekki er áður búið að gera lögtök fyrir verða tekin lögtaki strax eftir hYítasunnuhátíðina og hið lögtekna selt tafarlaust eftir því, sem lög standa til. SamRvœmí fyrirmcelum rdöuneyfisins. Ræjarfógetaskrifstofan i Vestmanneyjum 5. júní 1935 Kr. Linnet. handa ungum og gömlum ásamt mörgu fleira nýkomið. — Gunnar Olafsson & Co. Vanti ydur sérstaklega gott sælgæti, ávexti eða kökur alls- konar fyrir Hvítaaunn- una, þá Htið inn til mín Karl Krishnanns. Bókasafnid lánar framvegis út bsek- ur á sunnudögum kl. 5 —7 - e. h. Vestmannaeyjum i. júní 1935 Bókavörður.

x

Herjólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1596

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.