Sumardvöl - 24.04.1941, Blaðsíða 1

Sumardvöl - 24.04.1941, Blaðsíða 1
I. árgangur Úlgefandi: Sumardwaiarnefnd barna. 1. tölublað Barna- dagurinn. Undaníarin ár hefir sumardag- urinn fyrsti verið fastur barna- dagur í Reykjavík. Hafa þá farið fram fjölbreytt hátíðahöld og víð- tæk fjársöfnun til dagheimila fyrir börn. Og að þessu sinni verður hann helgaður málefnum barnanna hér á Akureyri. Bæjar- búum gefst kostur á því í dag á ýmsan hátt að styðja að því, að sem flest börn geti komizt burt úr bænum í sumar. Það er brýnni þörf á því nú en nokkru sinni áður. Að vísu er börnum alltaf óhollt að ráfa iðju- laus um götur bæjarins allt sum- arið, og njóta sumarsins að mjög litlu leyti. En við þetta bætist nú hernámið og ótti við framtíðina. Það er vel viðeigandi að helga sumardaginn fyrsta æskunni. Það starf miðar að því að fjölga sól- skinsdögunum í lífi þeirra barna, sem heizt þurfa þess með. Þess vegna á sumardagurinn fyrsti að verða fastur barnadagur hér á Akureyri. Það er prófsteinn á menningu hvers bæjar, hvernig hann býr að uppeldi barnanna, og þó einkum, hvað gert er til að hjálpa, þar sem þörfin er mest. Sumardvalarnefnd barna hér í bænum gefur bæjarbúum í dag tækifæri til að styrkja þetta málefni. Og hún væntir þess, að bæjarbúar bregðist vel við því. Það þarf mikið fé, til þess að kosta börn á barnaheimili í sumar með núverandi verðlagi á öllum nauðsynjum. Árangurinn af starfi barnadags- ins er ekki aðeins mælikvarði á fórnarvilja bæjarbúa, HELDUR MUNU HINIR OPINBERU STYRKIR FRÁ BÆ OG RÍKI VERÐA í HLUTFALLI VIÐ HINA FRJÁLSU FJÁRSÖFNUN. Vér heilsum sumri að þessu sinni með óttablöndnum fögnuði. En óskum þess af heilum hug, að það verði þjóð vorri bjart og gæfuríkt. Byrjum það með þeirri hreinustu gleði, sem þekkist — gleðinni að gleðja aðra. Gleðilegt sumar! Eiríkur Sigurðsson, Til bæjarbúa. Eins og æðimargir í þessum bæ hafa orðið varir við, höfum vér verið á ferðipni undanfarna daga og leitað styrktar bæjar- búa til sumardvalar barna í sveit. Hvar sem vér höfum komið og til hvers sem vér höfum leitað, höfum vér fengið þær ágætis- viðtökur og styrk, að vér teljum oss skylt og ljúft að votta yður hér með okkar, og annarra hlutaðeigenda, innilegustu þakkir. Vér þökkum alveg sérstaklega stjórn Nýja Bíó, sem í dag hef- ir tvær sýningar algerlega fyrir barnadaginn, öllum sem í dag verða á ferðinni með Barnadagsmerkin, Karlakór Akureyrar og konunum öllum, sem taka stórkostlegan þátt í fjársöfnuninni. „Sumardvöl“ þakkar og kærlega öllum auglýsendum. Nú vitum vér, að í dag er hver hönd framrétt með fé til þess- arar starfsemi. Vér óskum yður öllum gleðilegs sumars. Sumardvalarnefnd. Barnadagurinn 1941. í dag — á sumardaginn fyrsta — sækjast íbúar allra kaup- staða landsins til að styrkja sumardvöl barna. Á Akureyri eru góð tækifæri. 1. Merki verða boðin í hverju húsi og á götunum. 2. Nýja Bíó sýnir tvær sýningar kl. 5 og 9 e. h. (Sjá augl. í blöðunum). 3. Kaffisölu hefir kvenfélagið „Hlíf“ frá kl. 3 e. h. í Skjaldborg. Allir í eflirmlðdag'skaffi í Skjaldborg. 4. Bazar kvenfél. „Hlíf“ í Samkomuhúsi bæjarins. Byrjar kl. 2 e. h. 5. Karlakór Akui’eyrar syngur á ráðhústorgi kl. 114 e. h. 6. Blaðið „Sumardvöl“ verður selt í öllum húsum og á götun- um. Allt, sem inn ken&ur, gengur frá- dráttarlaust til styrktar starfinu. Sumardvalarnefnd barna. Akureyringar! Kaupið merki barnadagsins. Ný j a-B í ó A sumardagtnn fyrsta, kl 5 og ki. 9, verður sýnd myndin með Carole Lombard og Cary Grant í aðal- hlutverkunum. Allt, sem inn kem- ur á þessum sýn- ingum, gengur til styrktar börnum til sumardvalar ■ sveit. Uppeldið í dreifli op péiýli. Eitt af hinum alvarlegustu fyr- irbærum í þjóðlífi voru er flótti fólks úr sveitinni að sjónum. Þetta viðukenna raunar allir, og öllum hugsandi mönnum stendur stuggur af þessari ráðabreytni. En þessi breyting á ráðum fólksins á vitanlega sínar orsakir, og verða þær ekki ræddar hér. En sú hliðin sem snýr að uppeldinu á mölinni, í bæjum og þorpum, er ískyggi- legt og alvarlegt umhugsunarefni og þarfnast stöðugrar íhugunar, umræðu og viðleitni til úrbóta. Þjóð vor hefir frá upphafi búið í dreifbýli og svo að segja fram á síðustu áratugi. Bæirnir og þorpin eru því tiltölulega ný fyrirbrigði í þjóðlífinu. Mikill hluti fólksins er því að slitna úr tengslum við þá menningu, sem þjóðin hefir al- ið með sér í þúsund ár. Sú menn- ing var að vísu fábreytt og að sumu leyti fátækleg, en þjóðleg og þáttasterk, og furðu giftudrjúg til pesónulegs þroska. Á hinn bóginn hefir nýmenn- ingin í þéttbýlinu, í bæjum og þorpum, ekki fest rætur. Þar er allt laust í reipum enn, sem von- legt er, Og hin alvarlegasta hlið þess snýr að uppeldinu. í þúsund ár hafa sveitirnar, því nær eingöngu, alið þjóðina upp, í samlífi við náttúruna, við dýr og jurtir og hið gróandi líf. Börnin hafa lifað og starfað með fullorðna fólkinu og lært af því mál og siði. Þau hafa snemma orðið þátttakendur (Framh. á. 2, síðu.J. [LANDSBÓKASAFN

x

Sumardvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumardvöl
https://timarit.is/publication/1821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.