Reykjanes - 01.04.1970, Blaðsíða 1

Reykjanes - 01.04.1970, Blaðsíða 1
weykjancs Uígej.. Fulltrúaráð Sjálfstceðisfélaganna. Áb.m.: Árni Þ. Þorgrimsson ÁVARP TIL KJÚSENDfl í bloði þessu og öðrum, sem fullfrúaróð Sjólfsfæðisféloganna gefur úf vegna bæjarstjórnarkosninganna 31. maí n.k., mun verða leitazt við að kynna bæj- arbúum bæjarmólastefnuskró frambjóðenda Sjólfstæðisflokksins ó komandi kjörtímabili, ósamt því, að skýra fró því í móli og myndum, sem gert hefur verið á liðnum kjörímobilum ó vegum bæjarins, og mun þó aðeins verða hægt að sfikla á stóru, því að af mörgu er að taka. Keflavík hefur ó undanförnum óratugum vaxið úr því að vera kauptún í það, að verða einn af stærstu kaupstöðum landsins, og hefur það kostað mikið ó- tak að leysa þau verkefni, sem því hefur fylgt. Hér þurfti að reisa allt fró grunni og þó að ýmis verkefni séu enn óleyst, hefur ótrúlega miklu verið kom- ið í verk á tiitölulega skömmum tíma, og hættir ýmsum við að gleymo mörg- um framkvæmdum, sem þykja sjólfsögð í nútíma bæjarfélagi, vatnslögnum, holræsagerð, raflögnum og fleiri verkum, sem grafin eru í jörð og ekki eru daglega fyrir sjónum manna. í varanlegri gatnagerð hefur verið gerf stórótak, byggðar hofa verið ó vegum bæjarins ýmsar opinberar byggingar, glæsilegt íþrótta- svæði hefur verið tekið í notkun. ýmis opin svæði í bænum hofa verið ræktuð, skólagarðar stofnaðir, leik- vellir reistir og sfutf hefur verið við bakið ó ýmsum félagasamtökum, sem hafa menningarmól ó stefnu- skró sinni, svo nokkuð sé nefnt. Á því tímabili, sem framkvy/t!idir þessar hafa ótt sér stað, hafa Sjólfstæðismenn oftast farið með stjórn bæjarins, annað hvort einir, eða í samstarfi við aðra flokka, og verður ekki annað séð en að hlutur þeirra í uppbyggingu bæjarins sé bæði mikill og góður. Með þessar staðreyndir í huga, heitum við Sjólfstæðismenn ó ykkur, kjósendur góðir, oð þið veitið lista okkar brautargengi í komandi kosningum, og sjóið þannig til þess, að velferð bæjarins verði ófram í góð- um höndum. Vinnum ötullega að glæsilegum sigri D-listans, sunnudaginn 31. maí næstkomandi! Arni Þ. Þocrgrímsson RÆKTUN OGFEGRUN BÆ3ARLANDSINS — Melum breytt í grœnar grundir Aðkomufólk, sem komið hefur til Keflavíkur, hefur jafnan haft orð á því, hversu umhverfi Kefla víkur sé ömurlegt og flatneskju- legt. Hér sé lítið að sjá í nágrenni bæjarins annað en uppblásna mela og móa. Keflavík hefur vaxið upp á ör- fáum árum úr fámennu sjávar- þorpi í það að verða eitt af fjöl- mennustu byggðarlögum lands- ins. Áhugi manna hér áður fyrr beindist meir að fiskinum í sjón- um en fögru umhverfi. Þegar svo hinn mikli fólksfjöldi flutt- ist til bæjarins, varð hugur manna bundinn því að koma upp sæmilegu húsnæði yfir höf- uð sér. Þegar svo þessi mest að- kallandi verkefni hafa verið unn in og fólk gefið sér tíma til að líta í kringum sig og sinna um- hverfinu, hefur áhuginn vaxið fyrir fegrun umhverfisins. Margir húseigendur reyna að gera sitt bezta til að fegra lóðir sínar, enda hefur árangurinn ekki látið á sér standa. Víða er að finna, hér í bæ, mjög vel hirt- ar og snyrtilegar húslóðir. Bæjarfélagið hefur líka ekki látið sitt eftir liggja.. Til bæjar- ins var ráðinn garðyrkjumaður, sem ávallt hefur verið boðinn og búinn til aðstoðar húseig- endum, er þeir hafa til hans leit- að. Áhugi hans hefur haft mjög mikil áhrif á marga og ýtt und- ir þá til enn frekari starfa. Skrúð garður bæjarins ber þess aug- ljóst vitni, að þar er áhugasamur maður, er kann sitt verk til hlít- ar. Undir stjórn þessa garðyrkju manns bæjarins hafa Lionsfé- lagar Keflavíkur ráðist í það stórvirki að græða upp hina grýttu mela og uppblástur í landi norðan bæjarins, sem nýverið hefur verið lagt undir lögsögu hans. Hafa þeir síðastliðin tvö vor séð um áburðar- og frædreif- ingu á svæði þessu, en bæjar- sjóður lagt franr áburð, fræ og tækjakost. Þeir, sem hafa átt leið um Garðveg síðast liðin sumur, hafa orðið undrandi og hrifnir af þeim miklu stakkaskiptum, sem landsvæði þetta hefur tekið, enda hefur þetta mikla fram- tak þeirra Lionsmanna ekki að- eins vakið athygli hér syðra, heldur um allt land. Eiga þeir þakkir skilið fyrir lofsverðan á- huga og framtak, sem mætti verða öðmm gott fordæmi. LAMÖSBOKASAFN 302708 ISLANDS

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.