Norðanfari - 14.02.1942, Blaðsíða 1

Norðanfari - 14.02.1942, Blaðsíða 1
Akureyri, 14. febrúar 1942, 1. tbl. I. árg. Bæjarstjórnarkosningar þær, sem nýlega eru um garð gengnar, hafa leitt ýmislegt í Ijós, sem rjett þyk- ir að fara um fáeinum orðum. Borgaralistinn, sem fjelagið „Skjaldborg“ og ýmsir borgarar bæjarins utan þess fjelags stóðu að og veittu kjörfylgi, hlaut miklu meira fylgi en andstæðinga hans hafði órað fyrir, og hefir þó sjald- an eða aldrei hjer í bæ verið ger eins hörð hríð að nokkrum fram- bjóðendum við kosningar, eins og þeim ,er voru á E-listanum. Hverj- ir voru á móti? í fyrsta lagi Fram- sóknarmenn og miljónafyrirtækið Kea. í málgagni sínu báru þeir á forustumenn „Skjaldborgar“ og sjerstaklega á formanninn marg- háttaðan óhróður af mikilli fólsku og ódrengskap. Á ferðinni voru fyrir kosningabandalag þetta a. m. k. 50 smalar vikum saman. Það sem sjerstaklega vakti athygli bæjarbúa var persónuleg áreitni og hinar svívirðilegustu dylgjur í garð ijel. „Skjaldborg“ og forráða- manna þess. Blaðið var undir merki mannskemmdafýsnarinnar. Það hlýtur að vera slæmur mál- staður, sem þarf á slíkum vopnum að halda. En í blaði voru var eng- inn af frambjóðendum B-listans áreittur með einu einasta orði. Þetta getur hver maður sjeð, sem ber saman „Dag“ og blað vort. Jeg er stoltur af samanburðinum fyrir hönd E-listans. — En þykir þeim Jakob Fr., Árna Jóh. og Þorst. M. Jónss. fremd í slíkri bardagaað- ferð, er verið er að leita þeim kjör- fylgis? Eða blygðast þeir sín með sjálfum sjer fyrir hana? Um það get jeg ekki dæmt. Þann reikning gera þeir upp sjálfir. En af þeirri kynningu, sem jeg hefi af þeim, hjelt jeg, að þeir væri ekki stoltir af sínum ritstjórum eftir þessar kosningar. í öðru lagi barðist gegn E-list- anum sá hluti Sj álfstæðisflokksins, sem stóðu að C-listanum, og er þar ekki mörgum til að dreifa, þeim er nærri komu opinberri og harðvít- ugri baráttu, Ritstj. „ísl.“ sjálfur beitti engum ódrengskap og þeir Ölafur Thorarensen og Indriði Helgason heldur ekki. Allt öðru máli er að gegna um Axel Krist- jánsson. Hann velti sjer yfir „Skjaldborg“ og formann hennar með ódæma fólsku á C-lista fundi í Samkomuhúsinu. Fólskan og vilj- inn til að mannskemma var ríkara en andlegu kraftarnir til þess að sjá fótum sínum forráð í viðskipt- um við andstæðinginn. Blöskraði samherjum' Axels ódrengskapur hans og Skammkels-bragur allur á fundi þessum. Fer ekki á milli mála, að því lengur sem Axel tal- aði, því meir hrakaði trausti góðra drengja á honum. Mesta athygli vakti það í kosn- ingum þessum, að „Dagur“ og „ís- lendingur“ sneru mjög bökum saman (sbr. ummæli þessara blaða sjálfra) gegn E-listanum, og það leit ekki út fyrir, að neitt bæri á milli. „ísl.“ barðist eftir getu gegn Sjálfstæðismönnunum, sem voru á E-listanum og fylgdu honum, og nær einvörðungu gegn þeim. Þetta var merkilegasta fyrirbrigðið í kosningunum, og sýnir það Sjálf- stæðismönnum í bænum, hvers þeir mega vænta af „ísl.“ í hönd- um núverandi eigenda, eí þeir dirfast að óhlýðnast þessum hlut- höfum. Annað mál er það, hve hyggileg þessi pólitík er fyrir Sjálístæðisflokkinn í heild sinni. Um baráttu „Dags“ gegn Komm- únistum er það að segja, að bæði jeg og margir aðrir erum dauftrú- aðir á heilindin í henni, að feng- inni langri reynslu. Nýjasta sönn- unin um samvinnuhug Framsókn- armanna og Kommúnista og sam- tök er frá bæjar- og hreppsnefnd- arkosn. í s.l. mánuði. Á Sauðár- króki voru þessir flokkar samherj- ar, og Kratar fengu að vera meO. Fleiri dæmi mætti nefna, og jeg er reiðubúinn að nefna dæmi um kosningabandalag milli Framsókn- armanna og Kommúnista í bæjar- stjórn Akureyrar á síðasta kjör- tímabili. í þriðja lagi börðust gegn Borg- aralistanum Kommúnistarnir í bænum, Rússa-ræksnin, með öll- um þeim vopnum, sem slíkt fólk telur sjer samboðið að beita og al- þekkt eru, bæði hjer og annar- staðar, í fjórða lagi barðist Alþýðuflokk- urinn eða Kratar gegn oss eftir því, sem kraftar leyfðu, en í þetta sinn með öðrum hætti en áður, og mun þar hafa ráðið vopnaburði Erlingur Friðjónsson, og hefir hann heldur af því vaxið. En þrátt fyrir allan þennan hamslausa áróður, hælabit blaða- snatanna, rógtungurnar allar og ófrægingarnar, vantaði E-listann þó ekki nema rúml. 50 atkvæði til þess að koma tveimur fulltrúum í bæjarstjórn, í fyrsta sinni sem þessi ungu samtök blaðlausu hefja sókn hjer á opinberum vettvangi. Til samanburðar má geta þess, að fyrsta sinni, sem Frsfl. á Ak. bauð fram menn til bæjarstjórnar, einn útaf fyrir sig, fyrir tæpum 20 ár- um, fjekk hann engann kosinn. Jeg get ekki verið óánægður með niðurstöðuna. ViÖ komum sterkari út úr þessum kosningum en við vorum áður. Nú er að fylgja eftir sigrinum og stælast við, og „Sjálf- stæðið“ í bæjarstjórninni hjálpar okkur til þess með því að neita samvinnu við fulltrúa okkar í bæj- arstjórninni. Tækifæri var fyrir hendi að stofna til sjálfstæðs kosningasam- bands í bæjarstjórn meðal þeirra, er kosnir voru af E- og C-listunum, en fulltrúarnir af C kusu heldur að kjósa Framsóknarmenn og Krata í nefndir með sjer, heldur en samherja sína eina. Margir spyrja: Hvers vegna voru þessir menn ekki á einum og sama lista og Framsóknarmenn til bæjarstj.- kosninga? Barátta beggja var hjer um bil á alveg sömu „línu“ undir kosning- ar, en þó að svo væri, gerðu kjós- endur C-listans almennt ráð fyrir öðru eftir kosningar en því, að fulltrúarnir sínir neituðu samstarfi við flokksm.ann sinn við nefnda- kosningar og kysi heldur Árna og hans menn úr Framsókn og líka Erling. Haldið þið ef til vill að samvinn- an þeirra Ólafs og Indriða við Framsókn verði til þess að skerpa eggina í vopnunum undir næstu Alþingiskosningar? Nei, vissulega ekki. Fulltrúaráð Sjálfst.fjel. neitaði samvinnu við okkur um bæjar- stjórnarkosningar. Hvernig fór? Andstæðingar Framsfl. misstu fyr- ir bragðið einn mann af bæjar- stjórnarbekk og Framsókn græddi sig- Fulltrúar „Sjálfstæðisins“ tveir neituðu samvinnu við flokksmann sinn, er kosinn var af E-listanum, Akureyrar spílali. Einhver afkomandi Gleraugna- Péturs hér, — en þeir eru margir, ef dæma má af skrifum í Degi og íslendingi — gerir gys að því, að vér margir borgarar þessa bæjar teljum spítalabyggingu til stór- málanna (Dagur 20. janúar). Aít- ur er Dagur og íslendingur stöðugt að hreykja sér af íþróttahúsinu, því „Grettistaki“. Svo mundu þó Framh. á 4. síðu. um nefndarkosningar í bæjar- stjórn. Hvernig fór? Þeir misstu sjálfstæða aðstöðu til þessara kosninga. Hvernig haldið þið svo að framhaldið verði? Eigum við, sem erum í andstöðu við Frsfl. hjer í bæ, að bíða eftir fleiri skyssum frá hendi þessara manna, sem nú telja Sjlfst.fl. hjer einkafyrirtæki sitt? Nei. Nú bíðum við ekki lengur. Við sjáum, að for- ustan í flokki andstæðinga Fram- sóknar er brostin hjá C-lista mönn- unum. Hvers vegna eru ekki „Dagur“ og „íslendingur“ nú gerðir að einu hlutafjelagi, t. d. undir nafninu: „Blaðaútgáfufjelag Kea h/f.“? Það er okkar E-listamannánna, að hleypa nýju blóði í æðar hins gamla Sjálfstæðisflokks í bænum, endurnýja hann og gefa honum þann lífskraft, sem einn fær sigrað og leyst hann úr þeirri herleiðingu, sem foringjar hans nú og nokkrir aðrir þaðan eru komnir í til Baby- lonar Kea. Stefnuskrá fjelagsins „Skjald- borg“ er hin nýja herhvöt öllum sönnum Sjálfstæðismönnum og konum á Akureyri. Við unum því ekki, að allt framtak til forustu gegn „Framsóknar“-öflunum verði svæft og lamað. Okkar er að víkka verkahringinn. Við munum vaxa með stækkandi verkefnum, Hið nýja blað vort „Norðanfari" mun, trúr stefnuskrá „Skjaldborg- ar“, rata rjetta leið til vakningar og leiðsagnar um þá sjálfstæðis- stefnu, sem er í ætt við heiðríkju Norðursins V)g beinir kröftunum til starfa í þeim Sjálfstæðisflokki, sem vill ekki vera keltubarn maddömu Framsóknar. B. T.

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/1902

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.