Norðanfari - 14.02.1942, Blaðsíða 2

Norðanfari - 14.02.1942, Blaðsíða 2
2 NORÐANFARX Stelnuskrá fjelagslns MSkjaldborgM er s(eínu> skrá blaðs þessa: „Fjelagið starfar að vakningu þjóðarinnar, á þjóð- legum og kristilegum grundvelli, til samstilltra átaka um andlega og fjárhagslega viðreisn einstaklinga, sveita- og bæjarfjelaga og ríkis. Fjelagið leitast við að glæða ábyrgðartilfinningu fjelagsmanna og brýna fyr- ir þeim skyldur þeirra sem þjóðrækinna borgara. Fjelagið berst gegn Marxisma, gegn sjerrjettindum einstaklinga, stofnana, fjelaga og flokka í þjóðfjelag- inu og annarri spillingu, sem þróast í skjóli þingræðis og flokkræðis. Fjelagið heimtar jafnan rjett og jafnar skyldur til handa öllum borgurum þjóðfjelagsins, jafnrjetti milli stjetta og fulla virðingu fyrir hverju nauðsynlegu starfi, sem leyst er af hendi í þjóðfjelaginu, andlegu og líkamlegu, og telur fjelagið það æðstu skyldu hvers borgara að vinna líkamlega eða andlega að heill þjóð- arheildarinnar“. Eftirfarandi bréf fóru á milli þeirra bæjarfulltrúanna Jóns Sveinssonar og Ólafs Thorarensen og Indriða Helgasonar, áður en nýaístaðnar nefndakosningar fóru fram í bæjarstjórn Akureyrar: . «ev* „Akureyri, 28. jan. 1942. Herra bankastjóri plafur Thor- arensen og herra kaupmaður Ind- riði Helgason, Akureyri. Eins og yður er kunnugt, og álit mun vera, er fylgi það, sem C-list- inn og E-listinn hlutu hér við ný- afstaðnar bæj arstj órnarkosningar, nærri undantekningarlaust, ef ekki alveg, Sjálfstæðisflokksfylgi. Þér munuð telja yður Sjálfstæð- ismenn, og það geri eg líka, nú eins og áður um alllangt árabil, enda þótt eg sé kosinn bæjarfulltrúi af lista, sem borinn var fram af borg- urum í bænum, án þess að getið væri um, að hann væri borinn fram af hálfu sérstaks stjórnmála- flokks, eða Sjálfstæðisflokksins. Þar sem eg nú tel, að vér þessir þrír séum allir Sjálfstæðisflokks- menn, vil eg bjóða yður og mælast til, að vér vinnum saman sem slík- ir í bæjarstjórn Akureyrar, höfum bandalag með oss um nefndakosn- ingar o. s. frv. En eg tek fram, að ef þér æskið í einhverjum sérstök- um tilfellum að gera bandalag við aðra flokka í bæjarstjórninni, vil eg hér með vera algerlega óháður og óbundinn í þeim efnum. Eg bið yður að gefa mér skriflegt svar við þessu tilboði innan sólar- hrings frá móttöku þessa bréfs, er eg afhendi yður nú sjálfur, per- sónulega. Virðingarfyllst. Jón Sveinsson". „Akureyri, 30. janúar 1942. Herra fv. bæjarstj. Jón Sveinsson, cand. juris, Akureyri. Við höfum meðtekið heiðrað bréf yðar, dags. 28. þ. m., þar sem þér óskið eftir að við sem kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akureyrar göngum tii samvinnu við yður, við nefndar- kosningar o. s. frv. Samvinnan á þó að vera skilyrðisbundin frá yð- ar hálfu, að nokkru leyti. Málaleitun þessari sjáum við okkur eigi fært að verða við. Virðingarfyllst. Indriði Helgason. Ó. Thorarensen“. Eins og bréfin sýna, bauð J. Sv. hinum Sjálfstæðisflokksmönnun- um samvinnu, en þeir höfnuðu og vildu heldur samvinnu við aðra og standa að kosningu annarra en Sjálfstæðismanna, enda þótt að baki J. Sv. stæðu % hlutar Sjálf- stæðiskjósenda í bænum. Það er ekki rétt, að samvinnu- áskorun J. Sv. haíi verið skilorðs- bundin að neinu leyti, heldur gerir J. Sv. aðeins þann sjáifsagða fyrir- vara, að hann sjálíur vilji vera fyr- irfram óbundinn um samvinnu við aðra flokka í bæjarstjórninni. Hinir máttu gera það, sem þeim sýndist. Þeir I. H. og Ó. Th. hafna því af- dráttarlaust, að Sjálfstæðismenn kjósi saman.J . Sv. vildu þeir ekki kjósa í eina einustu nefnd né starfa, og er það út af fyrir sig skiljaniegt, því að Framsókn setti það upp, sem ófrávíkjanlegt skil- yrði við þessa herleiddu menn. Hitt er aftur óskiljanlegra, að þeir Indriði og Ólafur setja út úr nefndum og störfum ýmsa aðra mætustu og mikilhæfustu Sjáli- stæðismenn í bænum. J. Sv. hefir setið í skólanefnd barnaskólans síðan árið 1920. Nú var hann látinn fara. Varamaður hans var frk. Arnfinna Björns- dóttir. Hún er formaður Sjálf- stæðiskvennafélagsins „Varnar“ og hefir verið það frá stoínun félags- ins. Hún er mjög vel gefin kona og af öllum talin frábær barnakenn- ari. Hún hefir mikinn áhuga og víðtæka þekkingu á öllum skóla- málum, sérstaklega öllu því, er lýt- ur að barnafræðslu og barnaupp- eldi. Sjálfstæðismenn hér í bæ hafa löngum gumað af því, að Sjálfstæðiskvennafélagið , væri langf j ölmennasta Sj álf stæðisf élag í bænum, og m. a. s. hlutfallslega fjölmennasta Sjálfstæðisfélagið í öllum kaupstöðum landsins. Flestir Sjálfstæðismenn í bæn- um hefðu því ætlað, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn tryggðu frk. Arnfinnu sæti í skóla- nefndinni. En það varð ekki. Sum- ir vildu heldur stuðla að kosningu Framsóknarmanna í skólanefnd- ina. K. E. A. fékk 2 kosna af 4, og formaðurinn verður vafalaust Framsóknarmaður, en hann er ennþá óskipaður. Hefir K. E. A. þá meirihluta allrar skólanefndarinn- ar auk skólastjórans, en kommún- istar, kratar og Framsókn eiga h. u. b. alla barnakennarana, svo að þeim Ólafi og Indriða finnst vafa- laust vel séð fyrir barnafræðslu bæjarins. Valdemar Steffensen, læknir, hefir setið í stjórn Sjúkrasamlags Akureyrar frá því að alþýðutrygg- ingalögin gengu í gildi, ávallt kos- inn af Sjálfstæðismönnum. Nú er honum rutt úr stjórninni. Það leik- ur því eigi á tveim tungum, að eng- inn af þeim, sem í kjöri voru í Sjúkrasamlagsstjórnina, voru mik- ilhæfari og sjálfsagðari til að sitja í henni heldur en Vald. Steffensen, enda,undir öllum kringumstæðum nauðsynlegt að hafa lækni i Sj úkrasamlagsstj órninni. Og illa launa Sjálfstæðismenn Vald. Steff. hið mikla brautar- gengi, sem hann hefir ávallt veitt Sjállstæðisstefnunni hér í bæ. Hann heíir manna bezt með sínum skörpu gáfum, víðtæku þekkingu, manndómi og mælsku, bæði í ræðu og riti og í daglegri umgengni við fólk, hamlað upp á móti illum kenningum og áróðri andstæðing- anna gegn frjálsu framtaki, þjóð- legum metnaði og þjóðarhagsæld, og reynt að kenna mönnum að hugsa rétt og vilja vel. Nú er Vald. Steff. kominn á efri ár. Hann hefir dvalilð hér í bæ milli 30 og 40 ár og því eytt hér flestum sínum manndómsárum. Starfið í Sjúkrasamlagsstjórninni er launað, og munar hvern dálítið um þær tekjur. Steffensen hefir ekki safnað í kornhlöður um dag- ana, þrátt fyrir mikið og vel unnið starf, og engin eftirlaun tryggt sér, þar sem hann hefir aldrei vilj- að taka fast embætti. Vafalaust hafa flestir fylgismenn C-listans og einnig fjöldi annarra bæjarbúa ekki ætlast til af fulltrú- um sínum, að þeir launuðu hinum vinsæla og mikilhæfa manni á þenna hátt störf hans í þágu ein- staklinga og bæjarfélags. En það efu orðin eins og álög á mörgum Sjálfstæðismönnum, að launa sínum beztu mönnum verst. Spurning til „Dags“. Hvort skutu Framsóknarmenn konsúl Þormóð Eyjólfsson aftan frá eða framan, í kosningunum á Siglufirði, sbr. ummæli „Dags“ 29, f. m. um B. T., og hvernig var þessi kandidat þeirra, sem féll á Eyrarbakka, skotinn? NoyiifMi. Útgáfu blaðsins mun fyrst um sinn hagað þannig, að reynt verð- ur að fullnægja þörf bæjarbúa fyrir frjálslynt og sjálfstætt stjórnmálablað. Blaðið mun ekki að sinni binda sig við ákveðna útkomudaga, eða tölublaðafjölda, en jafnan kapp- kosta að flytja lesendum sínum sannar fréttir af þvi, sem gerist á sviði stjórnmála og bæjarmála. Blaðið kostar kr. 10,00 árgang- urinn og greiðist fyrirfram. Ein- stök blöð verða fyrst um sinn seld á 50 aura. Afgreiðslu blaðsins og inn- heimtu annast Lárus Thorarensen, Strandgötu 39, sími 212. Sömu- leiðis verður tekið á móti áskrift- um í Verzluninni „Baldurshagi", og mun blaðið einnig fást þar f lausasölu-

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/1902

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.