Tíminn - 09.09.1941, Síða 3
90. blað
TÍMIM, þrigjndagíim 9. sept. 1941
359
B Æ K.U R
ÍÞRÓTTIR
Garðyrkjuritið. Ársrit Garð-
yrkjufélags íslands. Ritstjóri
Sigurður Sveinsson. Reykja-
vík 1941. 96 bls.
í ritinu birtast eftirfarandi
greinar: Fylgt úr hlaði, eftir rit-
stjórann. Sigurður Sigurðsson
fyrrv. búnaðarmálastjóri, eftir
Kristinn Guðmundsson. Braut-
ryðjendur vermihúsaræktunar á
íslandi, eftir ritstjórann. Garð-
yrkjuskólinn á Reykjum, eftir
Ingimar Sigurðsson. Um garð-
yrkjutilraunir, eftir Sigurð I.
Sigurðsson, Jurtakvillar og jurta
lyf, eftir Ingólf Davíðsson, 111-
gresi og eyðing þess, eftir Sigurð
I. Sigurðsson, Ræktun matjurta,
eftir Ingimar Sigurðsson. Borðið
meira grænmeti, eftir Helgu Sig-
urðardóttur. Um stofublóm, eftir
Helgu Sigurðardóttur. Skrúð-
garðar, eftir Unnstein'Ólafsson.
Kirkjugarðar, eftir Ole Pedersen.
Ræktun jarðarberja, eftir M.
Simson. Um rauðrófur, eftir
Halldór M. Jónsson. Þá er skýrsla
um störf Garðyrkjufélagsins og
sölufélags garðyrkjumanna, og
fréttir.
Ennfremur birtist kvæði eftir
Jóhannes úr Kötlum og Unn-
stein Ólafsson.
Allmargar myndir eru birtar
til skýringar.
Eíns og framangreind upp-
talning ber með sér, er ritið hið
fjölbreyttasta og fróðlegasta að
efni. Ættu allir þeir, sem hafa
áhuga fyrir garðyrkju og geta
haft not af henni, að eignast
ritið, því að þar er margar gagn-
legar leiðbeiningar að finna,
enda eru höfundar greinanna
manria fróðastir um þessi mál.
Stjórn Garðyrlcjufélags fs-
lands skipa nú: Unnsteinn Ól-
afsson, formaður, Ólafur Gunn-
laugsson, féhirðir, Sigurður
Sveinsson, ritari, Ingimar Sig-
urðsson, meðstjórnandi og Jó-
hann Schröder meðstjórnandi.
Meðlimir Garðyrkjufélagsins
geta allir orðið. Árgjald er kr.
5,00, og fá meðlimirnir ársritið
ókeypis.
Freyr. Mánaðarblað um
landbúnað. September
1940.
í þessu hefti Freys birtist
glögg yfirlitsgrein um kartöflu-
verzlunina, þar sem hlutaðeig-
andi lög og framkvæmd þeirra
eru rakin. Ólafur Jónsson skrif-
ar fróðlega grein um áburðar-
tímann. Ólafur Sigurðsson
skrifar athyglisverða grein um
huridahald. Loks eru bókadóm-
ar og ýmsar fréttir.
Vinnið ötuUega fyrir
Frá I. S. 1.
í fréttabréfi frá í. S. í. segir
meðal annars: Sambandinu
hafa bætzt nokkrir nýir æfifé-
lagar. Alls eru æfifélagar í ,S.
í. nú 119 að tölu.
Golfklúbbur Vestmannaeyja
gekk nýlega í íþróttasamband
íslands. Félagar klúbbsins eru 52
að tölu, formaður Þórhallur
Gunnlaugsson Þá hefir og ný-
lega gengið í sambandið íþrótta-
félag Hvanneyringa á Hvann-
eyri. Tala félagsmanna er 55,
formaður er Jón M. Guðmunds-
son.
Stjórn í. S. í. hefir farið þess
á leit við bæjarráð Reykjavíkur,
að fá að tilnefna 2 menn til að-
stoðar bæjarverkfræðingi við að
velja land undir leikvelli (Sta-
dion).
Þessir menn hafa verið skip-
aðir formenn íþróttaráða: For-
maður íþróttaráðs Vestmanna-
eyja Jón Ólafsson, og formaður
íþróttaráðs Akraness Jón Sig-
mundsson.
íþróttadómstóllinn hefir fyrir
skömmu afgreitt kærumál Guð-
mundar Sigurðssonar knatt-
spyrnudómara á hendur Skúla
Ágústssyni í knattspyrnufélag-
inu Víkingur. Er niðurstaða
dómsins sú, að Skúla er bannað
að taka þátt í kappleikjum í eitt
ár, frá 15. ágúst 1941 að telja.
íþróttasambandið brýnir fyrir
sambandsfélögum sínum, þeim
er héldu skíðamót s. 1. vetur, að
senda fyrir 1. okt. n. k. skýrslur
um mótin. Þær skýrslur, sem síð-
ar berast, verða ekki teknar til
greina við flokkaskiptingu í
skíðáíþróttum.
Stjórn í. S. í. hefir staðfest
reglugerð um Waltersbikarinn,
en bikar þann gaf frá Helga Sig-
urösson knattspyrnufél. Víkingi
á 30 ára aímæli íelagsins, til
minningar um Walter heitinn
Sigurðsson stórkaupmann. —
Keppni um bikarinn hefst að
þessu sinni 7. sept. Það félag,
sem vinnur bikarinn þrisvar í
röð eða 5 sinnum alls, hlýtur
hann til fullrar eignar.
Stjórn í. S. í. hefir og fyrir
stuttu staðfest met í 60 metra
hlaupi á 4,4 sek, Methafar eru
Jóhann Bernhard og Sigurður
Finnsson, báðir í Knattspyrnu-
félagi Reykjavíkur.
Skrifstofa í. S. í. verður fram-
vegis opin tvisvar í viku, þriðju-
daga og fimmtudaga, kl. 8—10
síðdegis.
Ttnumn.
Auglýsið í Tímannm!
koma hrapandi niður. Maður |
og kona koma hrapandi. Það
eru hjónin, sem sveltu og börðu |
Jón í uppvextinum. Kerlingin
vorkennir hinum fordæmdu og
vildi gjarna geta hjálpað þeim.
Veit þó, að eins og sáð er, hlýt-
ur uppskeran að verða. Og
hjónin halda áfram niður á
við, en óvinurinn sjálfur gæg-
ist glottandi fram undan kletti.
Næst kemur þjófurinn hrap-
andi, hann, sem kom Jóni til
þess að hnupla fyrsta kjötlær-
inu. Böðullinn kemur á sama
hátt, og kerlingin talar um hríð
við þá báða, en Jón skýtur fram
orði og orði hvergi klökkur. Svo
hrapa þeir. Þar næst kemur
drykkjumaðurinn, þá konan,
sem Jón hrasaði með, hún, sem
elskaði — elskaði syndina. En
á eftir þeim kemur ríkisbubb-
inn, og kerlingunni verður að
orði:
„Ekki stoðar að eiga gull
sé sálin ágjörn og lastafull.“
Það var hann, ríkasti höfð-
ingi sveitarinnar, sem kærði
snauðasta kotbóndann fyrir
hnupl, hann, sem svældi undir
sig aleigu kotbændanna og
gerði þá að ánauðugum þræl-
um. Síðan bætist sýslumaður-
inn í hópinn og neitar því, að
til séu önnur lög en þau, sem
,,signeruð“ séu og staðfest af
hans hátign konunginum, neit-
ar að til séu önnur lög eða ann-
að réttlæti. Hrapar síðan í fé-
lagi við ríkisbubbann. Og á-
lengdar stendur djöfullinn og
þylur fræði sín, — sinn vítis-
óð. Þai'na kemur einnig fram
Mikael höfuðengill. Hann hvet-
ur sálirnar, sem upp leita um
klettariðin til þess að halda á-
fram ótrauðar, þó byrðarnar
séu þungar.
Þriðji þáttur fer fram í land
areign Himnaríkis, en hún tek
ur við, þegar upp fyrir fjalls-
brúnina er komið. Þar er fag
urt um að litast. Heiðblár him
inn, laufgræn skógartré til
beggja handa, og í fjarska
bjarmar fyrir bústað himna-
föðurins og hinu gullna hliði.
Þarna mætir kerlingin ýms-
um hinna sáluhólpnu. Hún
mætir prestinum og foreldrum
sínum, og það verða fagnaðar
fundir. Ekki íellur þó gömlu
konunni ummæli þeirra um
Jón hennar. Óvinurinn er hér
enn á gægjum og hefir ekki
sleppt tilkalli sinu til innihalds
skjóðunnar. — Bóndinn og
Helga koma fram, og viðræðan,
sem tekst milli þessara tveggja
sálna og kerlingarinnar, er allt
í senn, fögur, látlaus og gam
ansöm. Þau ræða um búskap
inn á himnum uppi og á jörðu
niðri. Helga er elskuleg . kona,
gáfuð og frjálslynd, eins og
þær getur beztar meðal alþýðu-
fólks. Og það kemur í ljós, að
þessum tveim er innilega hlýtt
til Jóns og þau dæma ekki brot-
legan bróöur, enda trúir nú
kerlingin þeim fyrir erindi sínu
hingaö upp. Eftir það tekur
Jón þátt í viðræðunum og er
ekki myrkur í máli frekar en
fyrri daginn. Ekki lízt honum
meira en í meðallagi á búskap-
arháttu himnabúa, þó að land-
gæðin séu mikil og fénaðurinn
vænn. Hann er vanastur því að
purfa eitthvað fyrir lífinu að
hafa. Fleiri persónur koma
parna einnig fram á sviðið.
Sungið er og dansað og leikið
á hljóðfæri.
Fjórði og síðasti þátturinn
fer fram við gullna hliðið. Kerl-
ingin reynir að fá Jón til þess
að iðrast og tala guðsbarnamál,
en án árangurs. Þarna við hlið-
ið koma þeir svo til sögunnar
Lykla-Pétur og Páll postuli og
synja báðir kerlingunni um
inngönguleyfi til handa Jóni,
enda stórmóðgar hann þá báða
með hvatskeytni sinni.
Loks nær kerlingin tali af
Maríu mey og hún lofar að tala
máli þeirra hjóna við son sinn.
Ekki virðist kerlingin þó treysta
vel málalokunum, því nú biður
hún Lykla-Pétur að opna dyrn-
ar lítið eitt, svo hún megi sjá
inn í dýrðina. Pétur verður við
þessari ósk, en þá einhendir
kerlingin skjóðunni inn í
himnaríki, enda hafði hún orð
sjálfs postulans fyrri því, að sá,
sem einu sinni væri þangað
kominn, fengi að búa þar að ei-
lífu.
Ég hefi nú rakið efni leiks-
ins í allra stærstu dráttum og
nefnt helztu persónur hans, en
enginn, sem þessa grein kann
að lesa, skyldi ætla, að hann
þekki þar með sjónleikinn,
Gullna hliðið. Bókina þarf að
lesa og lesa vandlega til þess að
skynja og skilja hinn mikla
skáldskap, sem hún inniheldur.
Ýmsir kynnu nú að ætla, að
sjónleikur þessi sé með litlum
raunveruleikablæ, þar sem þrír
þættir hans fara fram einhvers
staðar utan skynheimsins, en
flestar persónurnar eru sálir
löngu horfnar úr sínum jarð-
neska líkama.
Þessu er þó ekki þannig var-
ið. Á bak við hið æfintýralega,
þjóðsagnakennda form, býr
blákaldur raunveruleikinn full-
komlega jarðneskur, fullkom-
lega hliðstæður því, sem hann
var og er og mun verða í mann-
heimum. Efniviður leiksins er
að vísu þjóðsaga, en þess ber
að gæta, að þjóðsagan er ávallt
sönn. Hún er sönn að því leyti,
að hún er skilgetið barn þjóð-
arinnar, íklædd trú hennar og
siðum, hugsunarhætti og
þroska.
En hún er óunnin, hún er
hráefni, sem skáldið getur
unnið listaverk sitt úr. Hún
ræður að nokkru byggingar-
stílnum, atburðir hennar eru
látnir halda sér að mestu, þó
mörgum sé við bætt, og fyrst
og síðast: sannleikann geymir
hún í sér fólginn. Sannleikur
þjóðsögunnar er eins og engill-
inn, sem bjó í steininum. Hvor-
irtveggja eru í álögum, og það
er ekki á færi annara en mik-
illa listamanna að meitla utan
af þeim haminn og frelsa þá.
Athugum nú nokkru nánar,
hvernig Davíð Stefánssyni hef-
ir tekizt þetta í leikriti sínu,
Gullna hliðið. Fyrsti þáttur
liggur Ijósastur fyrir. Þar er
syndugur maður að deyja, en
maður, sem aldrei hefir drýgt
þann höfuðglæp að vera hræsn-
ari og skynhelgur, maður, sem
uppeldi og lífskjör hafa að vísu
gert ruddalegan og brotlegan
við lögin, en aldrei falsað þann-
ig, að hann komi til dyranna
öðruvísi en hann er klæddur.
Vilborg grasakona er þjóðar-
sálin sjálf holdi klædd, sam-
nefnari þeirra eiginleika, sem
ríkastir voru í fari íslenzkrar
alþýðu á þeim tíma, er kúgun-
arvald kóngs og kirkju stóð enn
föstum fótum á landi hér.
Kerlingin er ekki síður ís-
lenzk í skapi og háttum, en
sterkasti eðlisþáttur hennar er
þó alþjóðlegt fyrirbrigði, jafn
algengur austur í Kína og vest-
ur í Ameríku, sem hér hjá okk-
ur. Hún er hinn umburðar-
lyndi, staðfasti vinur, sem legg-
ur allt á sig öðrum til hjálpar,
viljinn, sem aldrei lætur bugast,
kjarkurinn, sem býður hverri
hættu byrginn. Og hinar hrap-
andi sálir í öðrum þætti leiks-
ins eru engin hugarfóstur aft-
an úr myrkri miðalda, heldur
einstaklingar, sem lifa meðal
okkar enn þann dag í dag. Það
eru margir menn og margar
konur stöðugt að hrapa, stöð-
ugt á niðurleið, og engu síður
úr hópi þeirra, sem gullið eiga
eða settir hafa verið til þess að
gæta réttar og laga. Hver eyrir,
sem vísvitandi er illa fenginn,
(Framh. á 4. síSu)
M.s. Esja
austur um í strandferð til
Siglufjarðar á morgun, mið-
vikudag.
Kemur við á öllum höfnum
í báðum leiðum.
Hestur tapast
Tapast hefir undir Eyjafjöll-
um Ijósgrár hestur, dálítið
dekkri á fax og tagl, með mön
eftir hryggnum, 5 vetra, stór,
járnaður. Mark: sneitt framan
hægra, blaðstýft framan v.
Sá, sem kynni aö verða hests-
ins var, er beðinn að gera sím-
stöðinni að Seljalandi aðvart.
Saínið
| Anglýsing
um kennslu og einkaskóla.
Berklavarnalögin mæla þannig fyrir, samkvæmt
9. gr. þeirra:
„Enginn, sem hefir smitandi berklaveiki, má fást
við kennslu í skólum, heimiliskennslu né einka-
kennslu.
Engan nemanda má taka til kennslu á heimili,
! þar sem sjúklingur með smitandi berklaveiki dvel-
| ur.“
Allir þeir, sem stunda œtla kennslu á komanda
| hausti og vetri, eru því beðnir um að senda tilskilin
j vottorð fyrir sig og nemendur sína á skrifstofu mína,
j hið allra fyrsta, og mega þau ekki vera eldri en mán-
j aðar gömul.
Þá er ennfremur svo fyrir niælt í ofangreindum
! lögum:
„Enginn má halda einkaskóla, nema hann hafi
til þess skriflegt leyfi lögreglustjóra, ög skal það leyfi
eigi veitt nema héraðslæknir telji húsnæði og að-
| búnað fullnægja heilbrigðiskröfum, enda liggi fyrir
! tilskilin læknisvottorð um að hvorki kennari eða
| aðrir á heimilinu né neinn nemendanna séu haldnir
j smitandi berklaveiki."
Þeir, sem hafa í hyggju að halda einkaskóla, eru
j því áminntir um að senda umsóknir sínar til lög-
| reglustjórans í Reykjavík hið allra fyrsta, ásamt til-
j skildum vottorðum.
Það skal tekið fram, að þetta gildir einnig um þá
! einkaskóla, smáa sem stóra, er áður hafa starfað í
bænum.
Umsóknir um slíka einkaskóla utan lögsagnar-
i umdœmis Reykjavíkur, en innan takmarka læknis-
j héraðsins, má senda á skrifstofu mína.
Héraðslæknirinn í Reykjavík, 2. september 1941.
í MAGNÚS PÉTURSSON.
vetrarforða
Minnisblað fyrir sláturtíðina:
Rúgmjöl
Haframjöl
Fjallagrös
Salt ......
Laukur
Saltpétui'
Krydd alls.
Ejdik .....
0.55 kg.
0.85 —
5.50 —
0.35 —
1.70 —
0.25 br.
0.30 —
0.80 fl.
Tilkynning
frá ríkissíjórniiiiii.
Brezka flotastjórnin hefir tilkynnt íslenzku ríkisstjórninni,
að nauðsynlegt sé, að öll íslenzk skip, 10 til 750 smál. að stærð,
fái endurnýjuð eins fljótt og hægt er, ferðaskírteini þau, sem
um ræðir í tilkynningu ríkisstjórnarinnar, dags. 7. marz 1941.
Skírteini þessi fást hjá brezku flotastjórninni í Reykjavík,
Akureyri, Seyðisfirði og Vestmannaeyjum.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið
5. september 1941.
Leskjað kalk ........ 0.60 —
Rúllupylsunálar .... 0.15 stk.
Sláturnálar ......... 0.05 —
Handíðaskólinn
Sláturgarn ......... 0.30 hsp.
Kennaradeildin: Kennsla hefst 15. okt. Umsóknir afhendist und-
irrituðum fyrir 20. þessa mánaðar. — Námskeið fyrir almenning:
Almenn teikning, meðferð lita, auglýsingateikning, tréskurður,
bókband og leðurvinna. — Kennsla hefst 15. október.
Lúðvíg Cfiióimiinlsson,
Grundarstíg 2 A. Sími 5307, kl. 4—7 síðdegis.
166 Victor Hugo:
inn, og hraða sér síðan á braut skömmu
síðar. Þegar þær voru horfnar, heyrð-
ust óp inni í herberginu, sem minntu
helzt á barnsgrát. Pakvetta hló af gleði
og hraðaði sér inn. Þar blasti óvænt og
óhugnanleg sjón við augum hennar. í
stað Agnesar litlu lá þar lítið barns-
skripi, halt, eineygt, og skreið um á
gólfinu. — Pakvetta hélt höndunum
fyrir andlit sér af angist.
Ó, hrópaði hún. Hafa galdrakvendin
breytt barninu mínu í þetta andstyggi-
lega skrípi?
Fólk hraðaði sér við að koma van-
skapning þessum burt frá henni hið
fyrsta. Hún myndi hafa misst vitið, ef
hún hefði átt að hafa það fyrir augum
sér stundu lengur. — Þetta var vanhirt
barn einhverrar Tatarakonu, sem hafði
selt djöflinum sál sína. — Það virtist
vera nær fjögurra ára að aldri og mælti
á máli, sem ekki gat talizt líkt neinni
mennskri tungu. Orð þau, er það mælti,
voru öllum óskiljanleg.
Það var einn hlutur, sem Chautefleu-
rí átti til minja um barnið sitt. Það var
litli, fallegi skórinn, sem það hafði átt.
Nú tók hún hann í faðm sér og virti
hann fyrir sér sem í draumi. Hann var
hið eina, er hún átti eftir af því, sem
hún hafði elskað heitast. Hún sat graf-
kyrr um langa hríð og mælti ekki orð
Esmeralda 167
frá vörum fremur en hún væri liðið lík.
Skyndilega greip hana ákafur skjálfti,
og hún brast í örvæntingarfullan grát,
eins og hjarta hennar myndi bresta.
Enginn, sem viðstaddur var, gat tára
bundizt.
— Ó, litla dóttir mín, hrópaði hún.
— Ó, fagra barnið mitt. Hvar ert þú?
Það var átakanlegt að hlusta á kvein-
stafi hennar. Ég tárast enn, þegar ég
minnist þess, hversu harmur hennar
var sár. Ég er sjálf móðir. Ó, Eust-
ache, fallegi drengurinn minn, ef ég
ætti nú að missa þig!
Pakvetta reis skyndilega á fætur,
hljóp gegnum borgina og hrópaði:
— Látum lögregluna handtaka Tat-
arana. Brennum galdrahyskið á báli!
En Tatararnir voru farnir veg allrar
veraldar. Það var skollin á niðdimm
nótt. Ógerlegt var að veita þeim eftir-
för. Daginn eftir fundust vegsummerki
eftir mikið bál í skóginum utan við
Rheims, miðja vega milli Gulax og Til-
loy. Þar fundust einnig slitur úr fötum,
sem barn Pakvettu hafði átt, einnig
blóðblettir og matarleifar. Bálið hafði
sýnilega verið kynnt á laugardags-
nóttunni. Það þurfti ekki að efast um,
að Tatararnir hefðu haldið hátíð sina
þarna í skóginum. Þeir höfðu etið vesa-
lings barnið í félagi við myrkrahöfð-