Tíminn - 07.09.1943, Page 1
KI'fSTJÖHI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINS30N
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
PRENTSMEÐJ AN EDDA hi.
Simar 3948 og 3720.
RITSTJÓRASKRIFSTOFOR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Simar 2353 og 4373.
AEGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Siml 2323.
27. árg
Reykjavík, þriðjndaglim 7. sept. 1943
87. blað
Þjóðin þarfnast ábvrgs og drengi-
IdKS samstarfs om atvinnumálin
Jón Jóhannesson
settur prófessor
Árnl Pálsson, prófes«or 1 sögu
við Háskóla íslands, hefir fengið
lausn frá embætti, en hann er
orðinn 65 ára. Dr. Jón Jóhann-
esson hefir verið settur til að
gegna þessu embætti.
Dr. Jón Jóhannesson er mjög
efnilegur fræðimaður. Hann
lauk stúdentsprófi við Akureyr-
arskólann 1932, kandidatsprófi
í norrænum fræðum 1937 og
varði doktorsritgerð við háskól-
ann 1941. Fjallaði hún um
gerðir Landnámu.
Landrádamál
Sakadómari hefir nýlega felt
dóm 1 máli valdstjórnarinnar
gegn Andreas J. Godtfredsen
fyrir níðgrein, er hann reit um
íslendinga í enskt blað. Var
Godtfredsen dæmdur 1 sex mán-
aða fangelsi.
Kvöldvökur ísl. stú-
denta í Kaupm.höío
Samkvæmt skýrslu, er ríkis-
stjórninni hefir borizt, hefir Fé-
lang ísl. stúdenta í Khöfn hald-
ið 13 kvöldvökur á tímabilinu
6. okt. 1942 til 17. júní 1943. Á
kvöldvökum þessum voru aðal-
lega lesið upp úr íslenzkum bók-
um, gömlum og nýjum. Til jafn-
aðar sóttu þær um 80 manns.
Stjórn þeirra annaðist Jón
Helgason prófessor og Jakob
Benediktsson bókavörður.
Þá hefir félagið gefið út söng-
bók með 145 íslenzkum kvæðum.
Jón Helgason og Jakob Bene-
diktsson önnuðust val þeirra.
Fyrstu afleiðingarnar af upplausnarstjórn
Sjálfstæðisflokksins koma í ljós
Fyrstu afleiðingarnar af upplausnarstjórn Ólafs Thors
íyrir atvinnulífið eru að koma í ljós. Bæjarstjórn Reykja-
jvíkur þykist sjá fyrir atvinnuleysi á komanda vetri og
■ hefir kjörið sérstaka nefnd til að undirbúa tillögur um
þau mál. Þegar þannig horfir meðan útvegurinn býr
við stórum hagstæðara afurðaverð en vænta má síðar
og enn er veruleg hernaðarvinna í landinu, geta menn
séð, hvert ástandið verður, þegar verðfallið kemur og
hernaðarvinnan hverfur alveg.
mgsuppbæturnar, verða að gera
sér ljóst, að þær eru fyrst og
fremst afleiðing verðbólgunnar
í stjórnartíð Ólafs Thors.
Það kemur nú alltaf betur og
betur í ljós, hvílíkt óhappaverk
Sjálfstæðisflokkurinn vann
fyrir tilverknað Ólafs Thors,
þegar hann rauf samkomulagið
um stöðvun dýrtíðarinnar vorið
1942, braut niður allar hömlur
gegn henni og varpaði þjóðinni
í upplausn tveggja kosninga.
Þótt nokkuð af þeirri upplausn,
sem þá skapaðist, megi skrifa á
reikning kommúnista, hlýtur þó
ábyrgðin fyrst og fremst að
lenda á þelrri rikisstjórn, er þá
tók völdin með þvi skilyrði fyrir
stuðningi kommúnista, að
hún stofnaði ekki til neins á-
greinings við þá, þó allra sízt í
dýrtíðarmálunum. Hver halda
menn að yrði t. d. þróun þess-
ara mála 1 Bandaríkjunum, ef
Roosevelt gerði slíkt samkomu-
lag við John Lewis? Ef ríkis-
valdið stendur ekki gegn kröf-
um ofstækismanna, er ekki
von að vel fari. Og ófarirnar eru
þá ekki fyrst og fremst sök
ofstækis þeirra, heldur lélegra
og ábyrgðarlausrar forustu rík-
isvaldsins.
Ef dýrtíðinni og kaupgjald-
inu hefði verið haldið 1 þeim
skorðum, sem það var í vorið
1942, myndi atvinnulífið vera
hér hið blómlegasta. Þá myndi
Astæðan til þess, að atvinnu-
leysið er þannig á næstu grös-.
um, er fyrst og fremst hin mikla
grunnkaupshækkun og dýrtíð-
araukning, sem varð hér í
stjórnartíð Ólafs Thors sumarið
1942. Grunnkaupið hækkaði þá
um 25—50% og dýrtíðin meira
en tvöfaldaðist. Þessi mikla
kaupaukning hlaut vitanlega
fyrr en síðar að verða atvinnu-
lífinu ofviða. Fyrstu merkin eru
byrjuð að koma í ljós, eins og
áðurgreind samþykkt bæjar-
stjórnar Reykjavikur sýnir. En
það eru aðeins fyrstu merkin,
Þungbærustu afleiðingarnar eru
enn eftir.
Margir bæjarmenn, ekki sízt í
Sjálfstæðisflokknum, látast vera
undrandi yfir því, að nú þurfi að
greiða talsverðar uppbætur á
útflutningsvörur landbúnaðar-
' ins. Þeir telja þetta merki þess,
! að landbúnaðurinn sé illa rek-
inn. En sama mætti þá segja um
: sjávarútveginn, þegar verðfallið
| kemur og hann fær ekki staðið
undir núverandi kaupgjaldi. Ef
landbúnaðarvísitalan byggðist
nú á sama kaupgjaldi og var
hér fyrir stjórnartíð Ólafs
Thors, myndu bændur ekki
þurfa hærra verð en það, að
engar eða sáralitlar útflutnings-
uppbætur þyrfti að greiða á
landbúnaðarvörur. Sjálfstæðis-
menn, sem telja eftir útflutn-
Afstaða Fontenay sendiherra
tit atburðanna í Danmörku
Sendiherra Dana hér, Fr. de Fontenay, hefir lýst yfir
ekkert atvinnuleysi vera fram-
undan og kjör verkamanna sízt
lakari, þvi að aukin dýrtíð hefir
etið upp kauphækkanir þeirra.
Hins vegar hefðu þeir tryggingu
fyrir atvinnu í stað þess, að at-
vinnuleysið bíður nú við dyr
þeirra.
því, að hann munl, meff því aff engin lögleg stjórn sé
sem stendur í Danmörku, ekki taka við neinum fyrirmælum frá
Kaupmannahöfn fyrst um sinn. Hefir hann þar með tekið ná-
kvæmlega sömu afstöffu til þess, sem gerzt hefir í heimalandi
hans, og starfsbróffir hans í Stokkhólmi, Kruse, sendiherra Dana
Yfirlýsing de Fontenay sendi-
herra hljóðar þannig orðrétt:
„Þar eð Danmörk sem stendur
hefir ekki neina löglega stjórn,
sé ég mér ekki fært að taka við
neinum fyrirmælum frá Kaup-
mannahöfn um sinn.
Meðan þetta ástand helst,
mun ég —- á svipaðan hátt og
1 samráði við starfsbræður mína
á helztu stöðum — rækja störf
mín eins og hingað til sam-
kvæmt því löglega umboði, sem
mér á sinum tíma var falið af
Hans Hátign konunginum."
Þá hefir sendiherrann sent
blöðum svohljóðandi greinar-
gerð um atburði þá, sem gerzt
hafa í Danmörku undanfarið:
„Samkvæmt upplýsingum frá
áreiðanlegum heimildum hafa
síðustu atburðir í Danmörku
verið eins og hér segir:
„Laugardaginn 28. ágúst ber
þýzka ríkisstjórnin fram þessar
kröfur:
„Stjórn Danmerkur verður
Fontenay sendiherra
þegar i stað að lýsa yfir hern-
aðarástandi um land allt. Skal
þar með banna alla fundi og
samkomur, banna verkföíl og
(Framh. ú 4. siOu)
Fr iða r spillar
gerast friðarboðar!
Það er fróðlegt að lesa for-
ustugreinar Mbl. um þessar
mundir. Þar er nú stöðugt rætt
um, að ríkisvaldið þurfi að gera
ráðstafanir gegn hinu yfirvof-
andi atvinnuleysi og allir flokk-
ar þurfi að sameinast um þær
ráðstafanir.
Hverjir eru þeir, sem hér
hrópa um ráðstafanir gegn at-
vinnuleysinu? Það eru menn-
irnir, sem tvöfölduðu dýrtíðina á
fáum mánuðum 1942, lögðu
þannig óbærilegar byrðar á at-
vinnulífið í framtíðinni og
eyddu þannig umframtekjum
ríkissjóðs í dýrtíðarbætur og út-
flutningsbætur, svo að hann
hefir lítið fé handbært til at-
vinnuframkvæmda, er hörðu
árin koma. Það eru mennirnir,
sem þannig buðu atvinnuleys-
inu heim.
Hverjir eru þeir, sem hér
hrópa á samstarf og samheldni
flokkanna? Það eru mennirnir,
sem rufu samstarfið um dýr-
tíðarráðstafanirnar voríð 1942
og unnu það til að fótumtroða
(Framh. d 4. síSu)
Engin bók, sem he/ir jjallaö um stjórnmál, hefir náð eins mikilli útbreiðslu
í Bandaríkjunum og rit Wendell Willkie, er hann nefnir: Einn heimur. í
riti þessu, sem kom út nokkru eftir áramótin, lýsir Willkie hinu mikla
ferðalam sínu í fyrra, er hann heimsótti m. a. Churchill, Stalin, Chiang
Kai Shek, Tyrklandsforseta, leiðtoga Indverja o. s. frv. Jafnframt dregur
hann a) þvi, er hann sá og heyrði i ferðalaginu, ályktanir sinar um hinn
komandi frið. Þegar hafa selst IV2 millj. eintaka af þessu riti Willkies.
Hér á myndinni sést Willkie vera að kveðja Kight flugmajór og fjölskyldu
hans, en Kight stjórnaði flugvélinni, er Willkie ferðaðist með i þessu
heimsferðalagi sínu.
Erlent yfirlit 7. sept.:
Hvað verður gert við Þjóð-
verja eítir styrjöldina?
Umiiiæli Dorothy Tliompsou og Douglas Reed.
í löndum Bandamanna er nú
rætt melra og meira um skil-
mála þá, er setja beri Þjóðverj-
um, ef þeir bíða lægra hluta í
styrjöldinni, en það þykir nú
víst. Fer fjarri því, að menn séu
þar á einu máli, en allir þeir,
sem um þetta hafa ritað, telja
sig þó miða tillögur sínar við
það, að skapazt geti varanlegur
friður.
Lengi vel fylgdu flestir þeirri
skilgreiningu, að ekki bæri að
telja þýzku nazistana og þýzku
þjóðina eitt og það sama. Þjóð-
verjar ættu því ekki almennt að
að gjalda ofbeldisstjórnar naz-
ista, þegar friður yrði saminn.
Þessi kenning sætti brátt mót-
mælum og er Robert Vansittart,
er lengi var aðalskrifstofustjóri
í brezka utanríkisráðuneytinu,
einna kunnastur þeirra, sem
hefir stimplað hana blekkingu
eina. Hann og fylgismenn hans
segja: Nazisminn er ekkert
stundarfyrirbrigði hjá Þjóðverj-
um, heldur óhjákvæmilegur
ávöxtur af skapgerð þeirra og
uppeldi. Þýzki yfirdrottnunar-
og hernaðarandinn deyr ekki,
þótt Hitler og fylgifiskum hans
sé útrýmt. Öll þýzka þjóðin er
samábyrg fyrir styrjöldinni og
verður að taka á sig réttmæta
refsingu, ef ekki eiga að vera
styrjaldir í Evrópu með nokk-
urra áratuga millibili.
Þessari síðari kenningu, að
nazisminn og þýzki þjóðarand-
inn verða ekki sundurgreindur
og friðarkostir Þjóðverja eigi að
miðast við það, virðist hafa auk-
izt fylgi I seinni tíð. í brezkum
blöðum ber stöðugt meira og
meira á því, að ekki sé talað um
ofbeldisverk nazista, eins og gert
var í stríðsbyrjun, heldur of-
beldisverk Húnanna, en svo voru
Þjóðverjar oft nefndir í fyrri
heimsstyrjöldinni. Á ársþingi
brezkra Verkamannaflokksins í
sumar bar þetta mál mjög á
góma og voru þeir þar í meira-
hluta, er hölluðust að þessari
kenningu og vildu refsa Þjóð-
verjum þunglega. Einkum voru
fulltrúar verkalýðsfélaganna á-
kveðið þeirrar skoðunar. Meðal
þeirra, er mölduðu í móinn, voru
Morrison ráðherra og Bevan
þingmaður, sem er einn aðal-
fyrirliði róttækasta hluta flokks-
ins.
Þeir, sem hafa hallazt að þess-
ari síðarnefndu skoðun, hafa
látið í veðri vaka, að Bandamenn
ættu að hernema Þýzkaland um
langan tíma, atvinnulíf landsins
ætti að vera undir eftirliti
Bandamanna, sögukennslu I
þýzkum skólum ætti að endur-
skipuleggja, og þótt málfrelsi og
stjórnmálafrelsi yrði bráðlega
leyft, ætti að setja strangar
hömlur gegn starfsemi ofstæk-
isflokka.
í ameríska tímaritinu Ame-
rican Mercury hefir einn fræg-
asti blaðritari Bandaríkjanna,
frú Dorothy Thompson, gert
þessar tillögur að umtalsefni.
Hún segir þar, að þær séu hinar
fráleitustu, ef skapa eigi varan-
legan frið. Það sé ætlazt til, að
Þjóðverjar séu beittir sömu
fantabrögðum og þeir beita nú
í hernumdu löndunum og afla
þeim nú mestra óvinsælda. Ekk-
ert skipulag annað en það, sem
hér sé rætt um', sé líklegra til
að efla hina þýzku þjóðernis-
kennd og gera Evrópu að nýju
hæli fjandskapar og sundur-
lyndis. Ef varanlegur friður eigi
að fást, verði Þjóðverjar að fá
þá hlutdeild í uppbyggingu
hinnar nýju Evrópu, er geri þá'
sæmilega ánægða með hlut sinn.
Það sé mesta bábilja, að allir
Þjóðverjar séu vondir, eða þýzka
þjóðin eitthvað verri en aðrar
þjóðir, ef aðstaðan leiði hana
ekki á villigötur.
Þess má geta, að frú Thomp-
son hefir frá fyrstu tíð verið
svarlnn andstæðingur nazista og
varaði Ameríkumenn við naz-
istahættunni sennilega meira
en nokkur annar blaðamaður.
Hinn þekkti enski blaðamað-
ur, Douglas Reed, hefir einnig
tekið þátt í þessum umræðum.
Enska blaðið „The Sunday
(Framh. d 4. siðu)
Seinustu fréttír
Brezkar og kanadiskar her-
sveitir réðust til landgöngu á
Kalabrfuskagann á Ítalíu, gegnt
Sikiiey, síffastlifflnn föstudags-
morgun. Hersveitirnar hafa
þegar tekiff nokkra bæi þar á
ströndinni. Mótstaffa möndul-
herjanna hefir en verið lítil.
Rússar halda áfram sókn
sinni á öllum suðurhluta vlg-
stöðvanna. Virðist nú, að um
skipulagt undanhald sé að ræða
hjá Þjóðverjum og er talið lík-
legt, að þeir ætli að koma sér
upp svokallaðri „vetrarlínu" við
fljótin Dnépr og Desna.
A vtðavangi
ÓLÍKAR AÐFERÐIR.
Morgunblaðið segir í seinasta
Reykjavíkurbréfi sínu, að illa
farist Framsóknarmönnum að
bregða Sjálfstæðisflokknum um
samstarf við kommúnista, þar
sem þeir hafi reynt síðastliðinn
vetur að semja við þá um stjórn-
armyndun.
Þessum útúrsnúningi Mbl. er
næsta auðvelt að svara. Fram-
sóknarmenn tóku ekki upp
neina samvinnu við kommún-
ista, heldur kynntu sér til hlít-
ar með allmörgum viðræðum,
hvort unnt myndi vera að hafa
samstarf við þá til að koma
fram ákveðnum umbótamálum.
Þar sem sýnt þótti, að slíkt væri
ókleift, kom ekki til neinnar
samvinnu.
Hinsvegar myndaði Sjálfstæð-
isflokkurinn ríkisstjórn vorið
1942, sem byggði tilveru sína á
hlutleysi kommúnista. Þetta
hlutleysi keypti Sjálfstæðis-
flokkurinn því verði, að stjórn
hans mátti ekki stofna til neins
ágreinings við kommúnista, þó
allra sízt í dýrtíðarmálunum.
Það var m. ö. 0. samið um það,
að kommúnistar fengju að ráða
stefnunni, eins og raunin lika
varð í dýrtíðarmálunum.
Á þessum tvennum aðferðum
i samneyti við kommúnista er
svo augljós munur, að hann
þarfnast ekki neinnar skýringar.
„ÁÆTLUN“ KVELDÚLFS -
KLÍKUNNAR.
Þrátt fyrir reynslu þá, sem
Sjálfstæðisflokkurinn fékk af
samstarfi við kommúnista á
fyrra ári, eru foringjar hans enn
að reyna að efna til svipaðs
samstarfs.
Ástæðan til þess, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefir sett á
oddinn, að lýðveldisstjórnar-
skráin sé samþykkt á þessu
þingi, en ekki á þinginu 1944,
þótt það sé eðlilegra, þar sem
hún á ekki að taka gildi fyrr
en 17. júní það ár, er eingöngu
sú, að flokksforustan heldur að
núverandi ríkisstjórn muni eigi
una þeim vinnubrögðum og
biðjast lausnar. Það hefir nefni-
lega fregnast, að sumir ráðherr-
anna telji rétt, að sambands-
slitin verði alveg byggð á ákvæð-
um sambandslaganna, en sam-
kvæmt þeim getur Alþingi ekki
samþykkt lýðveldisstjórnar-
'skrána fyrr en á þinginu 1944.
Ef það tækist, að koma nú-
verandi stjórn frá með þessu
móti, er það „áætlun“ Kveldúlfs-
klíkunnar, að Sjálfstæðisflokk-
urinn myndi minnihlutastjórn,
er njóti hlutleysis kommúnista.
Eiga kommúnistar að rökstyðja
hlutleysi sitt með því, að þeir
styðjí stjórnina til að koma
fram sambandsslitum. í fyrra
veittu kommúnistar hlutleysi
með þeirri afsökun, að þeir
styddu stjórnina til að koma
fram kjördæmamálinu.
Kveldúlfsklíkan væntir sér
ekki neins stuðnings frá Al-
þýðuflokknum eða Framsókn-
arflokknum, þar sem þeir flokk-
ar munu eigi styðja stjórn, án
viðtæks málefnasamnings. Hins
vegar er stuðningur kommún-
ista næsta líklegur, þar sem þeir
vilja núverandi stjórn feiga og
telja veika íhaldsstjórn líkleg-
asta til að skapa upplausnar-
ástand.
í sumar voru iðulega fundir
milli forsprakka kommúnista og
Sjálfstæðismanna um þessi mál.
Aðalsamningamennirnir voru
Sigfús Sigurhjartarson og Bjarni
Ben. Það mun bráðlega sjást,
hvort þessi mál „ganga eftir
áætluninni".
ÁSTRALSKIR VERKAMENN
OG KOMMÚNISTAR.
Þjóðviljinn upplýsif-, að það
sé rangt að Kommúnistaflokk-
urinn sé bannaður i Ástralíu.
Bannið hafi verið upphafið og
flokkurinn haft frambjóðendur
(Framh. á 4. siðu)