Tíminn - 28.10.1943, Qupperneq 4
420
TÍMIM, fimmtndagiim 28. okt. 1943
105. blað
Roííð drengskaparheít
(Framh. af 1. siSu)
Þeir svöruðu engu. Blöð Sjálf-
stæðisflokksins svöruðu heldur
engu.
18. Frásögn sú um , dreng-
skaparheitið, sem birt er í upp-
hafi þessarar skýrslu, er birt í
Tímanum hinn 6. ágúst. Það
var og rætt um málið í Alþýðu-
blaðinu og Morgunblaðinu. svo
að ekki gat farið fram hjá Ólafi
Thors. En hann svaraði engu
fyrr en nú fyrir nokkrum dög-
um, að flokksmenn hans neyddu
hann til þess með þeim hætti,
sem þegar er alþjóð kunnugt. —
Við ætlum ekki mjög að ræða
þetta mál umfram staðreyndir,
sem raktar hafa verið. Þó skulu
athuguð lauslega áðurnefnd
líkindarök Ólafs Thors fyrir því,
að ekki sé rétt frá skýrt af okk-
ar hálfu.
a) Að ekki sé sennilegt að við
höfum krafizt „borgunar" fyrir
að fresta bæjarstjórnarkosning-
um. Það getur ekki kallast borg-
un, þótt flokkar með ólíkar
skoðanir' semji um það að fresta
ágreiningsmálum. Samstarf
slíkra flokka í ríkisstjórn bygg-
ist einmitt næstum undantekn-
ingarlaust á því, — svo var um
þjóðstjórnina og þannig er það
um aðrar samstjórnir. Ef
tryggja átti samstarfið, varð að
tryggja að kjördæmamálið yrði
ekki afgreitt, án þess voru
samningarnir um kosningafrest-
un og skattamálin meiningar-
leysa. En Ólafur Thors viður-
kennir'og sjálfur, að við höfum
í'ætt um þetta mál, og Árni
Jónsson skýrir frá því, að um
þessar kröfur okkar hafi verið
haldinn hinn eftirminnilegi
næturíundur í Sjálfstæðis-
flokknum.
b) að það hafi verið svo erfitt
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
verða við þessari kröfu. Menn
athugi rökin í lið 8 og ræðu
Jakobs Möller í lið 14.
c) að ekki hefði komið til
mála, að við hefðum tekið lof-
orðið gilt, þótt gefið hefði verið.
— Það kann að vera, að það
þyki hér eftir varhugavert að
taka drengskaparloforð gild af
samstarfsmönnum í ríkisstjórn,
en fram til þessa hefði það þótt
ærumeiðandi móðgun, að neita
slíku og jafngilt því, að neita
öllu samstarfi við þá menn, er
í hlut áttu.
Ef líkindarök Ólafs Thors
væru rétt, þyrfti margt ein-
kennilegt að hafa gerzt. Við
ættum 16. janúar 1942 að hafa
komið af fundi flokksbræðra
okkar, sem höfðu gefið okkur
umboð til að semja um frestun
bæjarstjórnarkosninga og
skattamálin með því einu móti,
að samið væri um kjördæma-
málið — eina málið, sem var í
okkar þágu,— og skrifað undir
samninga um þau atriði. sem
okkar málstað var enginn hagur
í að um væri samið,en sleppt því
að semja um okkar mál. Síðan
tökum við okkur til og ritum þá
skröksögu á samninginn, að um
þetta hafi verið samið með
drengskaparheiti. Þegar það er
búið, fer Hermann Jónasson til
manns þess, sem af drengskap
hafði lofað að taka sæti í ríkis-
stjórn og skýrir honum frá, að
við höfum náð samningum um
allt, sem Framsóknarflokkurinn.
hafi lagt áherzlu á í samning-
unum. Þaðan förum við á mið-
stjórnarfund í flokk okkar,
skrökvum því upp og látum færa
til bókar, að það sé tryggt, að
kjördæmamálið verði ekki leyst.
Á fundi í miðstjórn flokks okk-
ar 14. maí birtum við svo skrök-
söguna um drengskaparheitið,
sem rofið var, og þykjumst vera
að berjast fyrir því vegna þjóð-
arinnar, að þetta sé ekki birt í
kosningum — og stöndum þar í
deilum við flokksmenn okkar til
þess að koma því fram. — Síðan
fullyrðum við (H. J.) í útvarpi,
að það hafi verið rökstudd á-
stæða til að telja það tryggt, að
kjördæmamálið yrði ekki af-
greitt. —
Allt þetta gerist sannanlega
fyrir 1—2 árum. Væri rangt
skýrt frá um drengsaparloforð-
ið, ætti þetta allt að hafa verið
gert til þess að byggja undir-
stöðu undir rógsherferð gegn
samstarfsmönnum okkar ein-
hverntíma síðar. Þetta væri ekki
lítil fyrirhyggja.
En einkennilegast væri það
þó, að það sýnist engu líkara en
þessir samstarfsmenn okkar
fyrverandi, hafi verið að styrkja
okkur í þessum ásetningi.
Þeir skýra frá því á nætur-
fundi í flokki sínum, aðfaranótt
17. janúar, að við höfum gert
þessa kröfu. Þeir afstýra því á
fundi 17. janúar, að nefnd sé
skipuð til þess að undirbúa mál-
ið, þeir reyna að afstýra Varð-
arfundi 18. janúar eftir að vitað
er, að þar á að hreyfa kjör-
dæmamálinu. Þeir neita að mót-
mæla því þegar Alþýðublaðið
segir, að samið hafi verið um
málið. Ólafur Thors viðurkenn-
ir í útvarpsræðu, að við höfum
haft rökstudda ástæðu til að
ætla, að kjördæmamálið yrði
ekki afgreitt, og þegar fullyrt
er hvað eftir annað af Jóni
Blöndal í útvarpsræðum, að
samið hafi verið, svarar Sjálf-
stæðisflokkurinn engu. Þegar
frásögn okkar er birt í Tímanum
og skýrt frá henni í Aíþýðublað-
inu og Morgunblaðinu fyrir
mörgum vikum, svarar Ólafur
Thors enn engu fyrr en hann
er neyddur til þess.
Þetta er meiri mildi en við
höfum átt að venjast, ef satt
væri, að ekki hefði verið samið
um málið.
Við orðlengjum þetta ekki
frekar. Við fáuimekki séð, að hið
sanna í málinu sé vandfundið
fyrir þá, sem vilja vita það og
líta á þær staðreyndir, er bent
hefir verið á. Það ætti þá heldur
ekki að vera mikil þraut að
skilja hverjir eiga sök á þeirri
upplausn, tortryggni og ófriði,
er ríkt hefir undanfarið og nú
ríkir í íslenzkum stjórnmálum.
Það skorti þó ekki á, að við
tækjum það oft og skýrt fram
við fyrverandi ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins, áður en þeir
Stigu umrædd skref, hvaða af-
leiðingar það hlyti að hafa,
fyrir samstarf milli flokka og
stjórnmálin í landinu, ef það
fordæmi væri gefið, að ekki
mætti einu sinni treysta loforð-
um samstarfsmanna staðfestum
með drengskaparheitum.
Reykjavík, 26. október .1943.
Eysteinn Jónsson.
Hermann Jónasson.
Kosningrar í
Stúdenfaráð
Stúdentaráðskosningar eiga að
fara fram á laugardaginn. Hafa
tveir listar komið fram og
standa Félag frjálslyndra stúd-
enda, Félag ráttækra stúdenta
og Alþýöuflokksfélag háskóla-
stúdenta að öðrum, en Vaka að
hinum, þ. e. íhaldsmenn.
jEfstir á lista hinna fyrr-
nefndu eru:
Páll S. Pálsson, stud. jur.,
Bárður Daníelsson, stud. polyt.,
Eiríkur H. Finnbogason, stud.
mag., Gunnar Vagnsson, stud.
oec., Einar Ákústsson, stud jur.,
Jóhannes Elíasson, stud. jur.,
Árni Björnsson, stud. med., Helgi
Þórarinsson, stud. jur., og
Kjartan Ólafsson, stud. med.
í fyrra voru listar tveir eins og
nú. Fengu íhaldsmenn (Vöku-
menn) þá 167 atkvæði, en hinir
154.
Október- ví sitalan
Verðlagsvísitala októbermán-
aðar hefir verið reiknuð út og
reyndist hún vera 260 stig, eða
2 stigum lægri en í síðasta mán-
uði.
Kartöfluverðið, sem hækkaði
vísitölu síðasta mánaðar, lækk-
aði hana aftur, en hins vegar
komu aðrar vörutegundir til
þess að hækka vísitöluna, t. d.
kjöt, kol, tóbaksvörur o. fl.
Rausnarleg gjöf
Nýlega veitti biskupinn við-
töku af hjónunum frú Margréti
Þ. Jensen og Thor Jensen for-
stjóra á Lágafelli í Mosfellssveit
65 þúsund króna gjöf, er verja
skal til þeirra hluta, er hér
segir:
Kr. 50.000,00 Jál stofnunar
Ekknasjóðs Staðarsveitar í Snæ-
ÚR BÆIVUM
Tveir íslendingar,
sem voru með tveimur amerískum
hermönnum í bíl uppi í Mosfellssveit
í fyrrinótt, urðu fyrir árás af hálfu
hermannanna og hlutu talsverð sár.
Málið er í rannsókn.
Gunnar Thoroddsen
hefur verið skipaður prófessor í lög-
um við Háskóla íslands frá 22. þ. m.
að telja.
Félag Suðurnesjamanna
var stofnað hér í bænum sðastlið-
inn sunnudag í Oddfellowhúsinu. Er
það stofnað í svipuðu augnamiði og
önnur héraðafélög o^ er því ætlað að
ná um Gullbringusýslu alla. Á stofn-
fundinum voru um 90 manns, en ef-
laust munu fiölmargir fleiri ganga í
félagið. Þess má geta, að aðalhátíðis-
dagur félagsins er ákveðinn 11. mar
(lokadapurinn). Formaður félagsins
var kosinn Egill Hallgrímsson kenn-
ari, og aðrir í stjórn: Jón Thoraren-
sen prestur, Tryggvi Ófeigsson skip-
stjóri, Friðrik Magnússon heildsali og
Ársæll Árnason bókbindari.
Opinber rannsókn
hefir dómsmálaráðherra skipað út
af bygp-ingu loftvarnaskýla í Reykja-
vík. Þykir sannað að minna timbur
hafi verið notað x þau en reikningar
sýna. Skýlin voru bygpð undir umsjá
loftvarnanefndar, eða formanns £enn-
ar, Jörundar Pálssonar, en verktaki
var Kristján Kristjánsson, Þórsgötu 3.
Borgarstjóri óskaði eftir rannsókn.
Nýtt blad
Nýtt blað, sem nefnist „Bónd-
inn“, kom út síðastliðinn mánu-
dag. Er það út gefið til þess að
hnekkja ýmiskonar áróðri, sér-
staklega í Reykjavík, gegn
bændum og framleiðslu þeirra.
Er blaðinu ætlað að koma út
eftir þörfum.
Ritstjóri blaðsins er Gunnar
Bjarnason ráðunautur, og ritar
hann ávarp til lesenda. Einnig
birtast athyglisverðar greinir
eftir Ólaf Bjarnason í Brautar-
holti, Ingólf Jónsson, alþingis-
mann, frá Hellu, Jón Árnason
framkvæmdastjóra og Halldór
Eiríksson, forstjóra.
Tílkynníng frá utan-
ríkísmálaráðuneyt-
inu
Tímanum hefir borizt svo-
hljóðandi tilkynning frá utan-
ríkismálaráðuneytinu:
Fyrir nokru var tilkynnt, að
ríkisstjórn íslands myndi taka
þátt í stofnun hjálpar- og
endurreisnarstofnunar hinna
sameinuðu þjóða í Washington
í næsta mánuði, og var jafn-
framt gerð grein fyrir tilgangi
þessarkr hjálparstofnunar og
fyrirkomulagi.
Nú hefir Magnús Sigurðsson
bankastjóri verið skipaður til
þess fyrir hönd ríkisstjórnar ís-
lands að undirskrifa samning-
inn um þessa stofnun og verður
það gert í Hvíta húsinu í Wash-
ington um 9. nóvember næst-
komandi. Ennfremur hefir
Magnús Sigurðsson verið skip-
aður til þess að eiga sæti í ráði
hjálparstofnunarinnar. Sem að-
stoðarmaður hans hefir Svein-
björn Finnsson » verðlagsstjóri
verið skipaður. Fara þeir héðan
bráðlega til Bandaríkjanna.
Þeir Ólafur Johnson konsúll og
Helgi Þorsteinsson verzlunar-
fulltrúi, báðir í New York, hafa
verið kvaddir til að vera ráð-
gjafar (advisers) og Henrik Sv.
Björnsson sendiráðsritari í Was-
hington til að vera vararáðs-
maður í ráði téðrar hjálpar- og
endurreisnarstofnunar.
Þess má og geta, að ríkis-
stjórnin hefir falið Magnúsi
Sigurðssyni bankastjóra að eiga
viðræður við starfsmenn í fjár-
málaráðuneytinu í Washington
um tillögur Bandaríkjastjórn-
arinnar um framkvæmdir i
gjaldeyrismálum að stríðinu
loknu, en íslandi hefir verið
boðið að taka þátt í samstarfi
um laúsn þessara mála.
fellsnessýslu, til minningar um
foreldra frú Margrétar, hjónin
Steinunni Jónsdóttur og Kristj-
án Sigurðsson, áður bónda að
Hraunhöfn í Staðarsveit, o'g kr.
15.000,00 í kirkjubyggingarsjóð
Borgarness, til þess að kaupa
fyrir hljóðfæri og altaristöflu í
fyrirhugaða kirkju í Borgarnesi.
ÞrengSngar nazista
(Framh. a1 3. sí8u)
Gestgjafar þeirra á lands-
byggðinni taka þeim fálega.
Þeim er mjög á móti skapi á-
troðningur sá og húsþrengsli, er
þeir verða fyrir. Deilur, rifrildi
og óánægja grefur um sig og fer
vaxandi.
Greinar í þýzku blöðunum, er
fjalla um þessi vandamál, bera
því vitni, hve örðug þau eru við-
fangs>
Göbbels, Göring og Hitler
sjálfur reyna að stappa stálinu
í fólk með því að heita þeim
hefndum gegn Englendingum.
Göbbels lætur þann orðróm
berast út, að Þjóðverjar eigi
leynivopn í fórum sínum, er
brátt muni gjalda Englending-
um í sömu mynt. Almenningur
lætur sér hægt um að trúa
þessu.
* * *
Þótt undarlegt kunni að
virðast, er sannleikurinn þó sá,
að þessi leynivopn eru til. Chur-
chill hefir nýlega sagt frá nýrri
tegund af sprengjum, sem not-
uð sé gegn brezkum skipum, en
„rakettubyssan" hefir varla ver-
ið nefnd á nafn.
Ég veit með vissu, að slíkar
byssur eru til, ekki aðeins fáein-
ar í tilraunaskyni, heldur eru
þær byggðar inn í varnarkerfið
Frakklands megin við Ermar-
sund í allstórum stíl.
Þetta eru risavaxnar fallbyss-
ur með 30 m löngu hlaupi. Þeim
er komið fyrir neðanjarðar í
grennd við Calais og Boulogne.
Það er sagt að þær dragi allt að
því 200 km. og eigi að gera stór-
skotahríð á Lundúnaborg í hvert
skipti sem þýzk stórborg verður
fyrir loftárás frá Bretlandi.
Skeytunum er beint hátt upp
í loftið og þau eru búin litlum
vængjum og eins konar stýri.
Enn fremur eru þau hlaðin rak-
ettum, sem veita þeim aukinn
hraða á leiðinni til skotmarks-
ins.
Lítil ástæða er þó fyrir Lund-
únabúa að óttast þessar trölla-
sögur. Reynslan hefir sýnt, að
byssuhlaupin þola ekki nema 25
—30 skot, og það tekur viku-
tíma að skipta um hlaup, þótt
það sé við hendina.
Það er ekki heldur hægt að
nota þær að næturþeli, því að
skotblossinn er svo gífurlegur,
að hann lýsir upp stór svæði í
grenndinni, svo að brezkar flug-
vélar finna byssuhreiðrin þegar
í stað.
Berlínarbúar eru þeirrar skoð-
unar, að rakettubyssan hafi
meira gildi sem áróðurstæki og
skrumáuglýsing en skotvopn
líkt og Stóra-Berta, sem Krupp
smíðaði í siðustu styrjöld.
Elzta stukan
í Reykjavík
Elzta stúkan í Reykjavík,
stúkan Verðandi nr. 9, hélt síð-
astliðinn þriðjudagskvöld, há-
tíðlegan 3000. fund sinn. Verð-
andi var stofnuð 5. júlí 1885 og
hefir starfað stöðugt síðan.
Það mun vafalaust mega full-
yrða, að ekkert annað félag hér
á landi hafi haldið jafnmarga
fundi og sennilega má víðar
leita til þess að finna hliðstætt
dæmi.
Á fundum Verðanda hafa ver-
ið rædd fjölmörg þjóðnytjamál,
þótt bindindismálið hafi jafnan
verið efst á dagskrá. Yfirleitt
hafa fundirnir verið vel sóttir.
Margir ágætismenn hafa tekið
þátt í fundunum, t. d. Björn
Jónsson ráðherra og Haraldur
Nielsson prófessor. Má óhætt
fullyrða, að þessir fundir hafa
eflt áhuga fyrir mörgum góðum
málum, og styrkt marga í þeim
ásetningi að gera það, sem betur
mætti fara.
Auk fundarhaldanna, hefir
stúkan Verðandi haldið uppi
ýmsu annarri menningarstarf-
semi, enda hefir hún jafnan ver-
ið mjög traustur og'samhentur
félagsskapur.
Einn stofnandi Verðanda sæk-
ir enn fundi hennar. Það er
Sveinn Jónsson trésmíðameist-
ari.
Askriftargjald
Timans
utan Reykjavíkux og Hafnar-
fjarðar er kr. 30.00 árgangur-
inn.
...... QAIÆLA Htúwm.i,..
Ónæðissamír
hveítíbrauds-
dagfar
Robert Montgomery
Constance Cummings
Sýnd kl. 7 og 9.
BÓFAFORINGINN.
(Bad Man).
Wallr.je Berry,
Linonel Barrymore.
Bönnuð fyrir börn innan
( 16 ára.
eg—K ÍSá. Btó ——
„Glettur((
(You’ll never get Rich).
Dans og söngvamynd með:
FRED ASTAIRE
Og
RITA HAYWORTH.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Leikfélag Reykjavíknr
„Lénharður fógeti“
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í dag.
NORRÆNA FÉLAGIÐ.
Veizlan á Sólhaugum
IVý iniisík eftir PÁL ÍSÓLFSSON,
verður sýnd í Iðnó á morgun (föstudag) kl. 8.30. — Aðgöngu-
miðar seldir í dag í Iðnó kl. 4—7 og eftir kl. 2 á morgun.
Þökkum hjartanlega félögum U. M. F. Hörpu og öör-
um sveitungum okkar fyrir ómetanlega hjálp cg marg-
háttaða aðstoð í veikindum mínum í vor og sumar.
Miðhúsum, 12./9. 1943.
KRISTÍN GUÐBJARTSDÓTTIR.
ÓLAFUR GUÐJÓNSSON.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu, skeyti og
gjafir á fimmtugsafmœH minu 25. þ. m. Sérstaklega þakka
ég starfssystkinum mínum og öðrum sem heiðruðu mig
meö heimsókn sinni, og gerðu mér daginn ógleyman-
legan.
JÓHANN EIRÍKSSON.
__________________________________^_______________
Spaðkföt
Með næstu ferðum fáum vér
úrvals spaðkjöt í heílum oghálfum tunnum
m. a. úr þessum liéruðum: Af Barðaströnd, úr
Strandasýslu, \ or ður-Þingeyj a r sýsl u, Borg-
arfirði eystra og Jökuldal, Breiðdalsvík,
Bjúpavogi og Hornafirði.
Tehið við pöntununi í símu 1080.
Æfyreitt með stuttum fyrirvura.
Samband ísl. samvínnuíélaga
Orðsending
til kaupenda Tímans-
Ef kaupendur Tímans verða fyrir van-
skilum á hlaðinu, eru fieir vinsamlcga
beðnir að snúa sér STRAX til
ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSOXAR
afgreiðslnmanns,
í síma 2322, helzt kl. 10—12 fyrir hádegi,
eða 3—5 e. h.
Þeir j^erðu garð-
inn fræ^an
sameinar það að vera fróðleg bók og skemtileg,