Tíminn - 16.03.1950, Page 1
Ritstjórt:
Þórarinn Þórarinsson
FréttaritstjórU
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur l Eddukúsinu )
Fréttasimar:
6
81Z02 og 81303
AfgreiOslusími 2323
Auglýsingasími 81300 1
PrentsmiSjan Edda
34. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 16. marz 1950
62. bla?
Gengislækkunar
. rætt á albinsi í nótt
Itreytnngartillögur konsinar frain í sasK-
ræmi við samkomulag síuðiimgsHokka
ríkisstfóniarÉiuiar
Annarri umræðu um frumvarp til laga um gengis-
skráningu, launabreytingar, stóreignaskatt, framleiðslu-1
gjöld o. fl. var haldið áfram í neðrideild í gær og nétt og j
stóðu umræðúr yfir þegar blaðið fór í pféntun. Ekki var
vitað hvort takast mundi að Ijúka umræðunni í nótt. í gær-
kveldi komu fram breytingartillögur við frumvarpið i sam-
ræmi við samkomulag stjórnarflokkanna, og er þeim lýst
að nokkru í leiðara blaðsins í dag.
í gær flutti Gylfi Þ. Gísla-
son framsöguræðu sína, en
síðan var fundi frestað til kl.
9 í gærkvöidi. í gærdag lagði
Skúli Guðmundsson fram
minnihlutaálit sitt í fjárhags
nefnd um afstöðu Framsókn
arflokksins til málsins í heild*
og var það svohljóðandi:
Eg líti svo á, að eins og nú
er komið atvinnu- og fjármál
um þjóðarinnar, sé óhjá-
kvæmilegt að breyta skráðu
gengi íslenzkrar krónu, en
um það er 1. gr. þessa frum-
varps. Verðgildi íslenzku krón
unnar hefir í raun og veru
farið sílækkandi um alllangt
skeið, þó að það hafi ekki ver
ið viðurkennt opinberlega
með breytingu á gengisskrán
ingunni. Hins vegar tel ég,
að gengisbreyting ein út af
fyrir sig sé ekki nema ein af
mörgum ráðstöfunum, sem
þarf að gera til þess að koma
fjárhags- og atvinnumálum
landsmanna á traustan grund
völl. Af öðrum aðgerðum,
sem ekki síður eru óhjákvæmi
legar, má t. d. nefna í veg
fyrir áframhaldandi greiðslu
halla hjá ríkissjóði, koma
fram umbótum í viðskipta-
málum, verðlagsmálum og
húsnæðismálum og að leggja
skatt á miklar eignir ein-
stakra manna Framsóknar-
flokkurinn hefir ætíð lagt á-
herzlu á það, að ráðstafanir
í þessum málum, sem svo
mjcg snerta hag alis almenn
ings í landinu, verði gerðar
um leið og gengisbreyting eða
niðurfærsla kemur til fram-
kvæmda. Flokkurinn mun því
vinna að umbótum í þessum
efnum, bæði með stjórnar-
framkvæmdum og með því
að beita sér fyrir lagasetn-
ingu um þau mál þegar á
þessu þingi.
Framsóknarflokkurinn legg
ur til, að í sambandi við af-
greiðslu þessa frumvarps
verði tryggð veruleg fjár-
framlög til byggingar á hóf-
legum íbúðarhúsum í sveit-
um og kaupstöðum og einnig
lánsfé til Ræktunafsjóðs.
Jafnframt hefir flokkurinn
gert tillögur um mikilsverð-
ar breytingar á ákvæðum
frumvarpsins um sérstakan
eignarskatt, m. a. um það, að
skatturinn verði stighækk-
andi upp i 25% og leggst á
allar hreinar eignir einstak
linga, eftir að þær hafa náð
vissu marki, en að eignum fé
laga sé skipt niður á eigend
ur hlutafjár og stofnfjár í fé
lögum. En vegna þess að nú
er áformað að leggja slíkan
skatt á allar eignir einstak-
linga, sem eru umfram 300
þús. kr. að verðmæti, er lagt
til, að horfið verði frá því að
leggja sérstakan skatt á eign
arauka, sem áður var ákveð
inn i lögurn, enda hefir sá
skattur ekki enn verið reikn
aður út. Þá er lagt til, að
framleiðslugjald samkv. 11.
gr. verði ráðstafað nokkuð á
annan hátt, en þó í þágu
sjávarútvegsins. Fiyt ég, á-
samt tveim öðrum nefndar-
mönnum fjárhagsnefndar,
breytingartillögur á sérstöku
þingslcjali um þessi atriði
frv., sem samkomulag hefir
orðið um milli *stuðnings-
flokka ríkisstjórnarinnar.
Þar að auki flyt ég einn
breytingartillögur á öðru þing
skj ali.
Ég legg því til, að frum-
varpið verði samþykkt með
framannefndum breyting-
um.
Klukkan 9 síðdegis var fund
ur settur að nýju og lágu þá
fyrir breytingartillögur stjórn
arflokkanna við frumvarpið,
bornar fram af fulltrúum
þeirra í Fjárhagsnefnd. Eru
þær raktar nokkuð í leiðara
blaðsins í dag eins og fyrr
segir. Eru þær allviðamikl-
ar og bætt í frumvarpið nýj-
um greinum.
Mikill afli hjá
Hornafj ar ðarbátu m
Fiá fréttaritara Tímans
í Höfn.
Undanfarna daga hefir ver
ið stundaður sjór reglulega
frá Höfn og aflazt vel. Koma
bátarnir oftast hlaðnir að
landi, einkum þegar beitt er
loðnu. í vetur genga sex bát-
ar frá Höfn og eru þeir nú
búnir að afla helmingi meira
en tvöfalt flleiri bátar höfðu
aflað á sama tíma í fyrra.
Aflinn er allur saltaður og
eru cll geymsluhús að verða
full, en saltbirgðir og kola að
þrotum komnar.
iHdirbúningur hafinn að þátt
tökii íslands í Evrópumeist-
aramótinu í frjálsíþróttum
Aíta tsl ísai íslpiidiiig'ar taídir í fremsíu
rö?S evrópískra íVjálsíjirólíainaisna
Evrópumeistaramótsnefnd, sem skipuð var af Frjáls-
íþróttasambandi íslands kvaddi blaðamenn á sinn fund í
gær og skýrði þeim frá væntanlegu meistaramóti fyrir
Evrópu í frjálsum íþróttum, sem haldið verður í Belgíu dag-
ana 23.—27. ágúst í sumar. Hefir 27 þjóðum verið boðin þátt-
taka í mótinu, og eru íslendingar þar á meðal.
Þjóðverjar munu ekki taka
þátt í móti þessu og þeir
menn einir fá að keppa þar
sem eru fæddir Evrópumenn.
Af þeim ástæðum munu
nokkrir ágætir íþróttamenn,
sem mikið hefir borið á hér
í álfu undanfarin ár ekki
koma þar fram, svo sem
kunningi okkar, McDonald
Bailey.
Á vegum frjálsíþróttasam
bandsins hafa æfingar
íþróttamanna með tilliti til
þessa móts farið fram síðan
um áramót, og hefir Bene-
dikt Jakobsson séð um þær.
í því sambandi hefir verið
sett lágmark í iþróttagrein-
um og þeim árangri þurfa í-
þróttamenn okkar helzt aö
ná til að koma til greina um
þátttöku í mótinu. Lágmörk
in í íþróttagreinunum eru
þessi, stökk og köst: Kúla 42
m., kringla 77 m. spjót, 65 m.
sleggja 52 m. langstökk 7,15
m., kringla 77 m., spjót 65 m.
stökk 4 m. hástökk 1,90.
Kvenfólk mun einnig taka
þátt í þessu móti.
Evrópumeistaramót þetta
er hið 4. í röðinni. Hið síð-
asta var háð í Osló 1946 og
kepptu íslendingar þar við
góðan orðstír eins og kunn-
ugt er. Þar varð Gunnar
Húseby Evrópumeistari í
kúluvarpi og Finnbjörn Þor
valdsson komst í úrslit í
spretthlaupi Er enginn vafi
á að sá árangur og sigrar í-
þróttamanna síðar hafa
glætt mjög áhuga á frjáls-
íþróttum hér.
í riti sem nýlega er komið
út í tilefni af hinu væntan-
lega Evrópumeistaramóti,
eru taldir upp margir beztu
íþróttamenn álfunnar sem
líklegir eru taldir til sigur-
vinninga á mótinu. Þar eru
taldir níu íslendingar, sem
taldir eru standa í fremstu
röð iþróttamanna í álfunni.
Menn þessir eru Gunnar
Huseby, Örn Clausen, Finn-
björn Þorvaldsson, Haukur
Clausen, Guðmundur Ágústs
son, Torfi Bryngeirsson, Jóel
Sigurðsson og Skúli Guð-
mundsson, og eru þeir allir
taldir líklegir til að verða
framarlega í sinuin iþrótta-
greinum.
Verið getur, að' íslenzku
þátttakendur keppi í í-
þróttum í Skotlandi á leið
sinni á mótið, en það er þó
ekki afráðið enn. Flestir þeir
menn, sem nú æfa undir
mótið eru héðan úr Reykja-
vík og nágrenni en nokkrir
utan af landi. Hafa ýmsir
þeirra samband við Benidikt
Jakobsson, sem gefur þeim
bréflegar leiðbeiningar og
æfingaskrár.
Landskeppni sú í frjálsum
íþróttum, sem fram á að fara
í sumar milli Dana og íslend
inga mun verða háð í byrjun
júli.
Lítill afli hjá Akra-
nesbátum
Frá fréttaritara Timan,1
á Akranesi.
Akranesbátar hafa róið atí
staðaldri undanfarna daga er.
afli hefir verið lítill og mjög
misjafn. Beiía þeir allir loðnc
en það virðist gefa illa raun
S.I. mánudag var afli beztui
þar sem verið hefir á þessar
vertíð, og bárust þá á lantí
um 180 sinálestir, en í fyrra-
dag var aflinn aðeins um 90
lestir. Afli þeirra báta, sem
komnir voru að í gærkvöldi
þegar blaðið átti tal við frétte
ritara sinn, var misjafn og
mjcg lítill hjá flestum.
Brúarfoss var væntanleguv
til Akraness í morgun til aí
taka hrogn til Svíþjóðar.
Lélegur línuafli, en
góður netaafli
Frá fréttaritara Tlmans
í Keflavík.
Af li Kef lavikurbáta vai
mjcg misjafn undanfarna
tvo daga. Flestir öfluðu lítið
en einstaka bátur fékk þtí
sæmilegan afla. Beita þeii
loðnu. Netabátar, sem stunc
að hafa veiðar suður í Grinds
víkursjó hafa hinsvegar afi
að allvel.
Minningarathöfn
um þá, sem fórust
með „Jóni Magn-
ússyni”
Minningarathöfn um menn
þá, sem fórust með vélbátn-
um „Jóni Magnússyni“, fór
fram í Hafnarfjarðarkirkju í
gær. Séra Garðar Þorsteins-
son flutti guðsþjónustu, en
Karlakór Hafnarfjarðar söng
Var athöfnin i alla staði hin
virðulegasta.
Kirkjan var troðfull, og
meðal kirkjugesta var biskup
inn yfir íslandi og biskqpsfrú
in. Kveðjur bárust frá séra
Jóni Guðjónssyni og séra Ei-
ríki Brynjólfssyni á Útskál-
um og söfnuðum þeirra.
Búðir voru lokaðar í Hafnar
firði og vinna féll niður í
flestum vinnustöðvum meðan
1 minningarathöfnin fór fram.
Margir hafnfirzku bátanna
reru ekki i gær vegna hennar.
Seinni hluti hand-
knattleiksmótsins
íslandsmótið í handknatt-
leik innanhúss seinni hlut
hefst í kvöld kl. 8 í íþróttahús
inu við Hálokaland. Keppi
verður í meistarafl. og 2. fl
kvenna og 1., 2. og 3. flokk
karla. Keppnin verður rnjög
spennandi í öllum flokkun.
og þá sérstaklega í meistara-
fiokki kvenna, en þar keppt
6 félcg þar á meðal Skandi-
navisk Boldklub, sem nú senc
ir kvenflokk í fyrsta sinni
keppnina. Félögin, sem taks
þátt í keppninni eru: Glímu-
félagið Ármann og Knatt-
spyrnufélagið Fram senda 5
flokka hvort félag, Knatt-
spyrnufélag Reykjavíkur 4
Haukar, I.R. og Valur 3 flokkfc
hvert, Vikingur, F. H. oc
Skandinavisk Boldklub 2 fi
hvert, samtals 29 flokkar er
það svarar til að 290 keppenc
ur séu í mótinu.
Keppnin í kvöld er sem héi
segir:
2 fl. kvenna K.R. —-•* Fram
Meistarafl. kv. Ármann —
Haukar. 3. fl. karla K.R. —
F.H. og Víkingur — Valur.
1. fl. karla Fram — Ármann.
Ferðir verða frá Ferðaskrií
stofu ríkisins.