Tíminn - 21.12.1960, Qupperneq 16
MiSvikudaginn 21 desember 1960.
289. blað.
Disney sendi áritaða
mynd í þakkarskyni
Litbrá gefur út fjölbreyttar Dis'neybækur
fyrir yngstu Iesendurna
Nú fyrir jólin sendir HTBRA
frá sér fjölbreytt skemmtiefni
fyrir yngstu börnin, sem mikla
athygli hlýtur að vekja. Þetta
er lita- leikja- og lestrarhæk
urnar með hinum þekktu
Walt Disney-myndum, mjög
vel úr garði gerðar.
Bók-
hneigður
þjófur
Það bar til tíðinda í Vest-
mannaeyjum í vikunni að
helzti bóksali staðarins fékk
bókasendingu úr Reykjavík,
og er ekki í frásögur færandi
út af fyrir sig á bókakauptíð
fyrir jólin. Bækurnar voru
sendar flugleiðis. Sú nýlunda
(Framhald á 15. síðu).
Þar eru myndir af Andrési
Önd, Plútó, Toppi og Tappa-
og Jóa frænda, sem aldrei
hugsar um annað en pening-
ana sína.
Sérstök ástæða er til þess
að geta Galdraverksins eftir
Disney. Galdraverkið, sem auk
þess að vera hin skemmtileg-
asta lita- og myndabók, hef-
ur að geyma alls kyns þrautir
fyrir unga og gamla að kljást
við. Má þar nefna Myndaleik-
in, flöskugaldra, teskeiða-
þrautir, Mikkaleikinn, eld-
spýtnaþrautina, hornabolt-
ann, orðaleiki og svo kappsund
Gosa, Rosa og Tosa.
Þess má geta til gamans,
að þeir Litbrár-menn sendu
Walt Disney nokkur eintök af
bókum sínum. Disney var
fljótur til svars og kvaðst
sjaldan hafa séð eins vel far-
ið með verk sín eins og í út-
gáfubókum Litbrár á íslandi
— og hangir nú uppi á vegg í
Litbrá, árituð teikning frá
Disney, send hingað í þakk-
arskyni.
Á horni Vitastígs og Grettisgötu rekur Vigfús Árnason rakarastofu sina.
Hann hefur nú tekið upp nýjung, sem ekki hefur áður tiðkazt hér á landi,
en verður efaiaust vinsæl. Hann lætur kúnnana hafa afgrelðslunúmer og
síðan geta þeir farið ferða sinna þangað til röðin kemur að þelm. Er nú
viðbúið að margur hyggi gott til glóðarinnar og vilji spara sér biðina.
Myndin sýnir Vigfús afhenda afgreiðslunúmer og sýnilega hefur kúnninn
hár, sem hann má missa. Spurningin er bara: Hve mikið og hvar af höfð
inu??— (Ljósm.: TÍMINN KM).
4 dagar til jóla
- Gluggagægir kemur í
Tíundi var gluggagægir.
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit Fnn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Teikning eftir Tryggva Magnússon.
Vísurnar gerði Jóhannes úr Kötlum.
Skinnbækurnar gefnar
út Ijósprentaðar
Eins og kunnugt er, byrjaði
Ejnar Munksgaard árið 1930 á
því stórvirki að gefa út Ijós-
prentanir helztu íslenzkra
skinnbóka. Corpus codicum
Islandicorum, og var Flateyj-
arbók fyrsta bindið. Alls komu
út tuttugu bindi. Þetta ritsafn
vakti mik!a athyglí og hlaut
m. a. guilverðlaun á heims-
sýningunni í París 1937. Nú
eru flest bindin uppseld fyrir
löngu og komin í geipiverð.
Núverandi eigendur útgáfufyrir-
tækis Ejnars Munksgaards byrj-
uðu fyrir sex árum útgáfu nýs
flokks Ijósprentana, Manuscripta
Islandica. í honum eru yfirleitt
i minni handrit og sum þeirra, sem
■ torlesnust eru. En þar er notuð ný
aðferð, ljósmyndun við kvarz-
ílampa, sem gerir eftirmyndirnar
jmiklu auðlesnari en frumritin, 1
| En það sýnir bezt, hvers hin
fornu íslenzku handrit eru metin
! erlendis, að enn hexur verið hafizt
■ handa um útgáfu nýs flokks ljós-
| pfentana, Early Icelandic Manu-
schripts in Facsimile. Er það út-
gáfufyrirtækið Rosenkilde og
Bagger, sem að því stendur, en
aðalritstjóri er prófessor Jón
Helgason og í útgáfunefnd prófess-
orarnir Magnus Olsen í Oslo, Dag
Strömback í Uppsölum og Sigurð-
ur Nordal í Reykjavík. Fyrirhugað
er, að í þessum flokki verði
tuttugu bindi, Öll í arkarbroti,
stærstu handritin, sem enn eru
ekki útgefin á þennan hátt, meðal
| annars Bergsbók, Tómasskinna,
! Ólafs saga Tryggvasonar hin meiri
jog Kálfalækjarbók Njálu. Út eru
| komin tvö bindi, Króksfjarðarbók
ISIurlungu, með formála eftir dr.
ÍJakob Benefliktsson og Skarðsbók,
' r,-eð formála eftir dr. Desmond
' Siay. Þessar útgáfur eru vitanlega
gerðar eftir fullkomnustu Ijós-
myndúm og óvenju vandaðar að
óilum frágangi, enda hafa þær
þegar vakið mikla athygli. Sér-
staklega þótti það tíðindum sæta,
þegar Skarðsbók kom út. Þetta
núkla og merkilega handrit. aðal-
handrit Postula sagna, ritað á 14.
öid af snúidarskrifara, var um
3700 Jl Skarðí á. Skarðsströnd og
gat Árni Magnússon ekki eigriazt
það, hvernig sero hann reyndi en
iét skrifa það upp, og eftir því
pappírshandriti voru sögurnar
gefnar út 1874. Hugðu þá allir
skinnbókina glataða. Loks 1890
fann Eiríkur Magnússon hana í
e.inkabókasafni í Englandi. Síðan
hafa menn lengi ekki haft spurnir
af henni, fyrr en Jón Helgason
skoraði á dr. Slay að leita hana
upp.i. Skarðsbók er síðasta skinn-
bókin, sem íslendingar héldu í og
varðveittu, og fyrsta skinnbókin
(Ef til vill líka sú síðasta), sem
menn um langt skeið hafa talið
alveg glataða, en kemur síðan í
leitixnar. Núverandi eigendur
hennar lánuðu hana til Hafnar til
ljósmyndunar, en óséð er enp
hvar skinnbókin sjálf lendir að
lokum.
Kaldi
Sjálfvirki maSurinn á veð-
ursfofunni segir, að I dag
verðl norðvestan kaldi,
éljaveður og hifi um eða
undir frostmarki.
Regn á rykið
Ný bók eftir Thor Vilhiálmsson
Komin er út hjá Helgafelli
ný bók eftir Thor Vilhjálms-
son og nefnist hún REGN Á
RYKH). Bókin er 410 blaðsíð-
ur og skiptist í fjóra megin-
kafla.
í fyrsta kaflanum eru þættir af
ferðum höfundar, einkum frá
Ítalíu en einnig frá Norðurlöndum.
Annar kaflinn fjallar um kvik-
myndir og kvikmyndageiðarmenn
þá, sem fremstir standa, en þar
er einnig vikið að leikhúsmálum
og minnzt komu Pekingóperunnar
til Reykjavíkur og sextugsafmælis
Leikfélags Reykjavíkur.
í þriðja kafla kennir fleiri grasa
og er þar vikið að ýmsum málum,
sem varða almenning. Fjórði og
síðasti kaflinn fjallar um skáldi
erlend og hérlend, og bókmenntir;
þar eru og Ijóð, sem þókarhöfund
ur hefur snúið úr ítölsku og er
frumtextinn birtur.
Eins og sjá má af þessari upp-
..tainingu. er þett.a æ,ði margslungin
bók og girnileg tii lestrar. Regn
á rykið er fknrota bók höfundar,
Thor Vilhjálmsson
sem er kunnur að því að segja sína
meiningu hreinskilnislega og djarf
lega. Má telja víst að þessi nýja
bók hans verði.mikið lesin og með
athygli ekki síður en hinar fjórar
fyrri.