Tíminn - 21.05.1964, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 21. maí 1964
111. tbl.
48. árg.
SYNING 200 MYNDA
ÚR FERÐUM GAIMARD
KJ-Reykjavik, 20. maí.
Um miðja næstu viku veröur
opnuð hér í Reykjavík sýning á
tvöhundruð steinprentuðum ís-
landsmyndum gerðum í Frakk-
landi. Myndir þessar eru þannig
til komnar, að árið 1842 var gerð-
ur út leiðangur til íslands og
Grænlands af hálfu frönsku stjórn
arinnar, og var leiðangurinn und-
ir stjórn Paul Gaimard. Dráttlist-
armaður leiðangursins, Auguste
Mayer, gerði myndirnar eftir Jaus-
legum uppdráttum, sem hann og
aðrir leiðangursmenn gerðu, er
þeir voru hér á landi. Myndirnar
eru allar skínandi fallegar og hafa
gert íslandi hið mesta gagn út á
við. Þær eru söguleg heimild og
menningarsögulegt gagn, þar sem
þær geyma minjar liðins tíma.
Nánar verður sagt frá hér í
blaðinu ,hvar og hvenær sýningin
verður opnuð.
Reisa símstöðvar
HF-Reykjavík, 20. maí.
Landssíniinn á nú póst- og sím-
stöðvarhús í smíðum á Siglufirði,
og á Þórshöfn, og eru þau langt
komin. Einnig er verið að hefja
byggingu húsa á Selfossi og á Fiat
eyri. Að því loknu er fyrirhugað
að byggja póst- og símstöðvarhús
í Stykkishólmi, Grafamesi, Brúar-
landi og Hveragerði. Flest eru hús
þessi af sömu stærð, eða um 100
fermetrar, og tveggja hæða.
HÓLMAVÍKURKIRKJA stendur á hárri hæ8 og gnæfir yfir þorpið fyrir neðan. Enn þá er hún turnlaus, en
á þriðjudaginn hófust 5—6 menn handa um að bæta úr því, og turninn á að vera kominn fyrir mánaðarlok.
(TÍMAmynd-FB).
Aftur hafin kirkjusmíðin á Hélmavík
FB—Reykjavík, 20. maí.
í gær hófst þriðji áfanginn í bygg-
ingu Hólmavíkurkirkju, og verður
turninn reistur að þessu sinni, eir
settur á hann og síðan hafizt lianda/
um að setja upphttunartækin í
kirkjuna og einangra hana að inn
an.
Síðustu tvö árin hefur fjár-
skortur komið í veg fyrir að hægt
hafi verið að halda áfram með
byggingu Hólmavíkurkirkju, en
hún hófst árið 1957 með því að
grunnurinn var steyptur, en
næsta ár var kirkjan steypt upp
og gerð fokheld þá um haustið.
Næsti áfangi var að ganga frá
kirkjunni að utan og járnklæða
þakið.
Það var Gunnar Ólafsson skipu-
lagsstjóri, sem gerði teikninguna
að kirkjunni, en Sveinn Kjarval
skipulagði innréttinguna. Kirkjan
á að taka 150 manns í sæti og
verður óll viðarklædd að innan.
Séra Andrés Ólafsson prófastur
tjáði okkur í dag, að ekki yrði
hægt að ljúka kirkjubyggingunni
að þessu sinni, nema eitthvað ó-
vænt kæmi fyrir. Fjárskortur
hefði tafið bygginguna að undan-
förnu, en nú yrði unnið fyrir fé,
sem fengið hefði verið að láni
hjá kirkjubyggingarsjóði og fyrir
framlag frá fólkinu sjálfu á staðn-
um.
BJARNI STEINGRÍMUR
Patreksfjörður og
nágrenni
HIN árlega skemmtun Fram-
sóknarfélags Patreksf jarðar verður
lialdin í Skjaldborg laugardaginn
23. maí og hefst kl. 9 síðd. Form.
Framsóknarfélagsins, Bjarni Her
mann Finnbogason, setur skemmt-
unina. Ræðu flytur Steingrímur
Hermannsson framkvæmdastjóri.
Þá skemmtir hinn vinsæli Baldur
Georgs. Að lokum vcrður dansað.
Havana-kvintettinn leikur og Sig-
ríður Gísladóltir syngur.
Miólkin frá
flutt til Hvammstanga?
FB—Reykjavík, 20. maí
Ti'l mála hefur komið, að bænd
ur í þiremur hreppum í Stranda-
sýslu, Kirkjubó'lshreppi, Fells-
hireppi og Óspakseyrarhreppi, fari
innan skamms að senda mjólk til
mjólkurbúsins á Hvammstanga.
Ekkert mjólkurbú eir á Hólmavík,
en aftur á móti er í ráði að reisa
þar mjólkurbú í framtíðinni. Tölu
verðir erfiðleikar eru á að koma
mjólk bændanna úr þessum þrem
ur hreppum til Hvammstanga
vegna vegalengdanna, og getur það
orðið til þess að framkvæind máls
ins tefjist.
Brynjólfur Svanbergsson mjólk-
bústjóri á Hvammstanga sagði í
dag, að rætt hefði verið um það,
að bændur í Strandasýslu færu
að senda mjólk til Hvammstanga.
Væri gert ráð fyrir, að þeir sendu
um 1000 lítra annan hvern dag,
en mjólkurbúið tekur daglega á
móti 11 til 12 þúsund lítrum mjólk
ur frá 200 framleiðendum í Vestur
Húnavatnssýslu og Bæjarhreppi í
Framhalö a 15 síðu
BÖRDUST MEÐ HNEFUM OG HNÚAJÁRNUM
EJ-Reykjavík, 20. maí.
TIL MIKILLA átaka kom
meðal æskufólks í bæjunum
Margate og Brighton á ensku
Ermasundsströndinni um hvíta
sunnuna. Voru það bæöi inn-
byrðis átök milli aðdáenda
tveggja mismunandi dægurlaga
flokka, „The Mods“ og „The
Rocks“, og einnig þustu ungl-
ingarnir um bæina í þeim cina
tilgangi að slást við íbúana og
eyðileggja verðmæti. 50 voru
handtcknir og dæmdir í allt
að þriggja mánaða fangelsi.
Ólætin voru af svipuðu tagi
og í bænum Clacton um pásk-
ana. Talið er, að um 6000 ungl
ingar hafi streymt til bæjanna
tveggja, sem nær eingöngu lifa
á ferðamönnum, og skiptust
þeir í tvo hópa, „Modsara" og
„Rokkara". „Mods“ er hið nýj-
asta innan dægurlagaheimsins,
en „Rokkararnir" halda enn
þá upp á rokkið. Þeir flykkt-
ust til bæjanna á skellinöðr-
um og mótorhjólum og óku
fyrst fram og aftur, þar til
þeir voru orðnir nægilega fjöl-
mennir. Réðust þeir þá á frið-
sama vegfarendur, eyðilögðu
innbúin á veitingahúsunum.
veltu bílum og brutu rúður.
með tómum flöskum.
Lögreglulið streymdi að frá
öðrum hlutum Suður-Englands
og urðu harðir bardagar, þeg-
ar verstu óróaseggirnir voru
handteknir. Margir reyndu að
hindra starfsemi lögreglunnar
og á sunnudaginn voru um 70
handteknir í Margate og 50
í Brighton.
Á mánudagsnóttina varð lög
reglan að nota hunda til þess
að halda unglingunum frá sam
komustöðum í bæjunum tveim
en veitingahúsaeigendur neit-
uðu að afgreiða aðra en fasta
gesti Og um morguninn hóf-
ust slagsmál meðal ungling-
anna innbyrðis og áttust þá
við „The Mods“. Notuðu þeir
byssur, hnífa, hnúajárn, stafi
og steina. Einn drengur fékk
laust skot úr startbyssu í and
litið, annar fékk hníf í bakið
og særðist illa. í Margate
hlutu þrír unglingar minni
háttar hnífstungur.
Stúlkurnar tóku einnig þátt
í slagsmálunum af hjartans
Fnmlwld é 15. sfðu
é A MYNDINNl s[áum við tvær ungar stúlkur í hörkuslagsmálum
í bænum Margate í Englandi um hvítasunnuna. Tveir lögreglu-
menn særðust í bardögunum við unglingana.