Vísir


Vísir - 17.09.1914, Qupperneq 2

Vísir - 17.09.1914, Qupperneq 2
VISIR Horínr oyslra. Iliðtal viO sjera ðlai ðlaisson. Fríkirkjupresturinn síra Ólafur Ólafsson kom heim 14. þ. m. úr frekri hálfsmánaöardvöl austur í Árnes og Rangárvalla sýslum. Hann segir tíðina þar eystra mjög erfiöa aö undanförnu og horfurnar slæmar hjá bændum al- ment, er hann fór aö austan. Flest- ir byrjuöu slátt viku til hálfsmán- aöar seinna en vant er . Svo kom rosinn fram úr miöjum ágústmán- uöi. Heyfengur manna er því iítið meira en tööurnar; meginið af öll- um útheyskap var úti, er hann fór af stað suður. En svo kom nú um síðustu helgi ofan á alt annað fádæma rigning og vatnskoma á fimtudaginn, og sökk því víða þaö alt í vatn, sem áður stóð upp úr; og svo kom á laugardaginn aftakaveður, svo við ekkert varð ráðið; urðu því viða, svo sem í Ölfusi, mjög miklir hey- skaðar. Þaö, sem var á þuru, sóp- aðist sumstaðar að mestu leyti í burtu, ýmist í Ölfusá eða út í veð- ur og vind. Hann kvaðst ekki minnast að hafa sjeð jafnmikið vatn i Ölfusi um þetta leyti árs. Ofan frá Bæjaþorpi (Kröggólfs- stöðum, Vötnum, Þúfu o. s. frv.) mátti heita einn hafsjór fram í Nauteyrar; sá viða á kollinn á sætum upp úr vatninu. Á þessu svæði eru allar aöalengjar sveit- arinnar. Honum var sagt, er hann fór úr Holtunum (8. þ. m.), að bændur kringum Safarmýri í Bjóluhverfi og Vetleifsholtshverfi á Sandhóla- ferju og víðar, væru hættir þá um stund öllum tökum við heyskap, því þar væri alt komið í vatn, bæði slegið og óslegið ; og mun það ekki hafa batnað síðan. Mætti því geta nærri, hvernig ástæður manna yrðu, er slíkt sum- ar kemur eftir vorið, sem leið, með tjóni því og hörmungum, sem því fylgdu, að minsta kosti sumstaðar. Hann sagði alla jörð orðna á- kaflega vel sprotna, hefði valla sjeð jafnmikið gras í Holtum og Flóa. Bændur sagt, að jörð væri að spretta alt fram á síðustu helgi. Mjög víða kvað hann hafa hitn- að í heyjum hjá bændum, en hon- um vitanlega ekki orðið að tjóni neinstaöar. Rjómabúin sagöi hann aö hefðu starfað alstaðar eystra i sumar — þó ekki á Landinu; en miklu minna smjör væri þó framleitt en hin fyrri sumurin; valda því mest vorharðindin, sem sálguðu lömb- unum. Heilsufar manna sagöi hann yf- irleitt gott; en þó væri lungna- bólga að stinga sjer niður til og frá. Tveir bændur i ölfusinu höfðu legið í henni, ljetst annar þeirra 10. þ. m. (Magnús Magnússon bóndi í Ósgerði), en hinn var á batavegi, Halldór Magnússon í Litlalandi, ungur og efnilegur bóndi. Þrátt fyrir alt þetta kvað hann bændur hafa verið rólega og von- góða, að úr mundi rætast að lok- um; mikið gæti lagast, ef haustið jnði gott. Væri betur, að sún von rættist. fást nú flesiar nauDsynjavörur svo sem: HVEITI, 4 teg., þar á meðal ger- hveiti og Diamanthveiti, RÚGMJÖL, BANKABYGGSMJÖL, KARTÖFLUMJÖL, SAGOMJÖL, HRÍSMJÖL, PANERMJÖL, SAGOGRJÓN, BYGGGRJÓN, stór og smá, HAFRAGRJÓN, SEMOULEGRJÓN, MANNAGRJÓN, BAUNIR, BANKABYGG. Kaíli. [xport. Sykur. Tíðræddast hafði mönnum verið um það, að meiri sparnaðar mundi þurfa að gæta í mörgum greinum heldur en títt hefði verið að und- anförnu. Allmikill bylur var á Kolviðar- hóli allan fyrri hluta mánudags- ins. Hellisheiði alsnjóa austur á mitt fjall; úrkomulaust þó í öl- fusi fram yfir hádegi, og líklega allan daginn. Sumir báru þar heim bæði sunnudag og mánudag. Á tveim bæjum í Rangárvalla- sýslu sá hann töðu á túnum, er hann fór útum sýsluna, Kvaðst hann ekki muna eftir, að hann hefði sjeð töðu úti þar eystra á þeim tíma árs í síðastliðin 30 ár. sælt 00 ösætt, allskonar fæst í NÝHOPN. yíir stærstu orustur í ueraldarsöpunni. Niðurl. í orustunni við Pompeius hafði Julius Cæsar 22 þús.; Pompeius haföi 45 þús. A11 i 1 a Húnakonungur rjeðist inn í Gallíu með 500 þús. hermenn og í Katalónsorustu (Chalons zur Marne) 451 e. Kr. tóku þátt um 1 miljón manna. 200 þús. fjellu. í hina fyrstu krossferð fóru 300 þús. Gústaf Adolf fór með 40 þús. hermenn til Þýskalands árið 1630 til að hjálpa trúbræðrum sín- um í 30 ára stríðinu. í orustunni við Lytsen (þar sem Gústaf Adolf fjell) voru um xoo þús. N a p ó 1 e o n keisari hafði í her- för sinni til Rússlands áriö 1812 600 þús. hermanna. í fólkorustunni við Leipzig voru 376 þús., og við Waterloo um 440 þúsund. í þýsk-franska stríðinu 1870—71 höfðu þjóðverjar um 1,100 þús. hermanna. í orustunni við Mukden, voru Rússar um 300 þús. og Japanar á- líka liðmargir. Þar fjellu og særð- ust 130 þús. Er það ein hin ógur- legasta orusta, er sögur fara af. En allar þessar tölur eru hverf- andi, þegar við sjáum nú (að Jap- önum frátöldum) 19,965 þúsundir hermanna vaða frarn á vígvöllinn. Þorkell Klemenz kom með Bot- níu frá útlöndum. Hann hefur ver- ið ytra eitt ár og kynt sjer fisk- þurkun víðsvegar um Norðurlönd. Ferðar hans verður nánar minst í Vísi síðar. Heiðarleg gjöf. Einn velmetinn kaupmaður hjer í bænum, sem ekki vill láta nafns síns getið, hefur gefið ekkju Þorvaldar Sigurös- sonar (þess er druknaöi á Skúla fógeta) 210 kr. „Jón forseti“ kom í gær frá Englandi, hefur verið þar til við- gerðar um nokkurn tíma. Með honum kom skipshöfnin af Skúla fógeta; enn fremur Hall- dór skipstjóri Þorsteinsson og frú hans. Vísir fjekk nýjnstu erlend blöð með þessari ferð. Ný vín óáfeng sendi vínverslun Th. Th. ritstjóra Vísis í gær. Vín- in eru bragðgóð og ekki ósvipuð þeim vínum, sem þau eru gerð eftir (Caloric og Sherry), en drykkjumönnum mundi þykja vín- in áhrifalítil. Vísir ræður mönnum til að reyna vin þessi. Kaupafólk er sem óðast að streyma til bæjarins úr sveitum. Svo rosasamt var orðið, aö marg- ir bændur ljetu kaupafólkið fara, "H nú hefur það komið sjer illa hjá þeirn þegar þerririnn kom, að vera búnir að senda það frá sjer. NÝIR DRYKKIR. CAGAO COLORIC STELLA FRIAND CURACAO ALVEG ÁFENGISLAUSIR, EN SMEKKUR OG ILMUR SEM ÁFENG VÍN............. Fást aðeins í ölkjallaranum í INGÓLFSHVOLI. Jón rithöfundur ólafsson er nú alfluttur i nýja húsið sitt á Bald- ursgötu 7. Húsið er úr steini, ram- lega gert, en þó snoturt. Her- bergjaskipun er góð og hentug. Ýms ný búsáhöld hefur Jón feng- ið sjer, t. d, pott á gassuöuvjel, sem má elda í margar matarteg- undir í einu. Öll herbergjanöfnin eru annaðhvort ramíslensk eða ný- yrði, svo sem ritskáli, málstofa, eldaskáli og búr. Iiúsið nefnir hann „Garðshorn“. FósturjörÖin (9. tbl.) er nýlega komin út. Aðalefni blaðsins er: Þjóðræði og þingræði (framh.), Fósturjörðin og fólkið og Hátt- prýði og fagfir siðir. Sr. ólafur ólafsson fríkirkju- prestur kom fyrir tveim dögum austan úr Rangárvallasýslu. nibýlifrðlleikir. FJARSÝNI. Maður sjer tvívegis glaðvakandi svip Bismarks. Maður nokkur hjer i bænum, sem er kunnur að fjarsýni, skýrir svo frá: Klukkan 7ý4 að kvöldi þess 13. þ. m. lá jeg útaf í sófa og horfði út í bláinn; þá sje jeg alt í einu óskýra rnynd fyrir framan mig; myndin skýrist þó smátt og smátt, og sje jeg brátt að það er rikis- kanslari Bismark. Hann var mjög líkur þvi sem jeg hafði sjeð hann r. mynd, nerna andlitið var lítið eitt blárra og skeggið grárra. Svip- urinn á andlitinu lýsti sárri sorg og gremju. Sýn þessa sá jeg í á að giska 2 sekúndur. Daginn eftir á sarna tíma bar fyrir mig sömu sýn, og þá sá jeg

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.