Vísir - 01.08.1915, Blaðsíða 2
V 1 S I R
VISIR
I Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 5-6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Seínlátt réttarfar.
Sumarið 1912 var myrtur mað-
ur í New York, Rosenthal að nafni,
og var einn af yfirmönnum lögregl-
unnar sakaður um morðið. Hafði
Rosenthal þessi haldið spilahús í
borginni og mútað lögreglunni til
þess að hylma yfir með sér, en ein-
hverra hluta vegna urðu lögreglu-
mennirnir hræddir um, að Rosent- j
hal mundi kæra þá, og tóku þeir
það ráð, að stytta honum aldur.
Oekst einn af yfirmönnunum fyrir
því, Becker að nafni, og fékk menn
til þess að skjóta hann úti á götu.
Mál var höfðað gegn Becker þá
um haustið og hann dæmdur af lífi
eftir mikið þjark. Becker skaut máli
sínu til æðra dóms. Var málinu
þar vísað heim til nýrra rannsókna
og dómsálagningar. Var þá komið
fram í febrúarmánuð 1914. Enn var
dómur upp kveðinn í þessu máli í ;
maímánuði 1914, og fór hann á |
sömu leið, að Becker var dæmdur
til dauða. Hann skaut enn málinu j
til ^öra dóms og krafðist nýrra |
rannsókna, og stóð í stappi um það '
þangað til í maímánuði í vor, að
yfirrétturinn neitaði um nýja rann-
sókn í málinu. Er því talið víst,
að Becker muni nú tekinn af líf, i
en Bandaríkjablöðunum þykir það
ærið seinlátt réttarfar, að ekki skuli
koma fullnaðardómur í morðmáli !
fyr en 3 árum eftir að það er höfðað.
Washburn, Crosby & Co.?
Minneapolis
Pillsbury Flour Milis Company,
Minneapolis
United Flour Mills Company,
New York
ásamt enn þá ýmsum stærri amerískum millum, hefir
A. Obenhaupt, Rvlk,
--- umboðssölu fyrir. :
------------
EN GIN N kaupmaður eða kaupfélög ættu að ákveða
sig með haust-innkaup sín á ameríkönskum mélvörum
án þess að hafa spurst fyrir hjá mér um verð og gœði. — Verðið
er hrein nettó + fragt og vátryggingu; annar kostnaður svo sem
bankakostnaður eða ómakslaun er {tefcf ekki reiknaður.
-----------
Tilboð til afgreiðsiu með Goðafossi
um miðjan október í New York kem-
ur eftir nokkra daga.
O F N A
Og
ELDAVÉLAR
"■ alls konar, ——
frá hinni alþektu verksmiðju »De forenede Jernstöberier Svendborg*.
Miklar byrgðir fyrirliggjandi
Útvega ofna af öllum gerðum og eins
0
miðstöðvar-hitavélar.
5^aAáw atmenn\ng$
»
Ofriðarskattur.
Laura Melsen.
(Joh. Hansens Enke)
Austurstræti 1.
Grein Jóns Ásbjarnarsonar yfir-
dómslögmanns í ísafold 21. þ. m
um stríðsskattinn, á mikla athygli
skylda, og þing það er nú situr
má ekki ganga svo frá störfum sín-
um í sumar, að það taki ekki till.
hans til greina í flestum eða öllum
atriðum. Mun verða vandfundin
föst rök móti þeim. Er svo vel
og ítarlega fyrir þeim mælt, sem
unt er í stuttri blaðagrein, þó margt
fieira mætti færa til, einkanlega um
það, hve tollar þeir, sem nú eru á
öllum lifsnauðsynjum koma hrapa-
lega rangt niður, og hart á kaup-
staðalýð þann, sem lifir á vinnu
sinni einni, eða launamenn. En
ekki ætla eg við að auka, enda er
þetta mál svo skýrt. að öllum má
liggja í augum uppi, og ekki get
eg ætlað bændur eða aðra fram-
leiðendur í þessu landi svo lítil-
siglda að hugsunarhætti, né svo ó-
hygna og óframsýna, að þeir vilji
skorast undan svoafar sanngjörnurn
álögum, sem þeim, er höf leggur
til að verði gerðar á svo gífurleg-
an og óvæntan tekjuauka, er engan
þeirra hefði getað dreymt um fyrir
10—14mánuðum og jafnvel skemmri
tíma. (X það hygg eg, að ef ein-
hver hefði í fyrra sumar boðið
bændum að koma ullarverðinu upp í
í 4 kr. kg., gegn því, að sá ætti
það sem hann gæti komið því fram
yfir þá upphæð, þá mundu bænd-
ur hafa tekið því boði allfúslega,
og mundi sama mega færa til dæm-
is um aðra framleiðendur, og verð-
hækkun á öðrum vö um. Þessa
gífurlegu verðhækkun má með full
um rétti líta á sem hvalreka á fjöru
hvers einasta framleiðanda í land-
inu, og væri því afar ranglátt að
sleppa svo feikilegum gjaldstofni
frá því að leggja á hann skatt til
landssjóðs. Virðasl mér tillögur
Jóns Ásbjörnsson mjög stilt í hóf
um upphæð þessara gjalda, o6 að
T I L MINNIS:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. til 11
Borgarst.skrifst. í brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 8‘/2 siðd.
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d, daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafnið opið l‘/2-2‘/2 siðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknart>mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd, fmd. 12-2
þau mælti síst Iægri vera, en öllu
fremur hæiri á sumum hlutum, svo
sem hrossum og ull.
Um það fer eg ekki fleirum orð-
um, en ætla mér að víkja að einu
alriði í þessu máli, sem hér ætti
úr að skera, ef mönnum þætti á
tvennu leika um þetta. Það atriði
er, að enginn veit hve lengi þetta
stendur, og auk þess getur vel
dunið yfir óáran hér í landi hve-
nær sem er. Bæri nú svo til, að
saman færi snögt verðfall á inn-
lendum varningi, verðhækkun enn
frekari en orðin er á útlendum vör-
um, og misæri í landi, þá tel eg
víst, að engir mundu harma, þó
hinn mikli verðauki á innlendum
vörum hefði verið notaður í ítrasta
lagi, til þess að auka tekjur lands-
sjóðs meðan hann stóð, jafnvel svo
mjög, að eitthvað talsvert yrði fram-
yfir útgjaldaþarfir á næsta fjárhags-
fímabili. Mætti þá létta gjöldum
af þjóðinni, ef út af bæri um góð-
æri og hátt verð á innlendum varn-
ingi.
Enginn veit hvenær styrjöldinni
léttir, og þó framleiðsluöfl þjóða
þeirra, er við hafa átst, verði æöi
lömuð eftir, og þarfir þeirra miklar,
þá er hætt við að kaupmögn þeirra
verði ekki síður lömuð. Má fylli-
lega búast við sem flestu illu að
ófriðnum loknum, og hnignun á
viðskiftalífi, aö minsta kosti um
sinn, og væri þá gott að geta
minst þess, að hafa »gripið gæsina
þegar hún gafst«.
Þetta ættu löggjafarnir að athuga.
Reykjavík 22. júlí 1915.
Árni Árnason.
Kaupið
Verden og Vi.
Besta vikublað á danska
tungu.
Kostar 3 kr. um ársfjórð-
unginn.
40 blaðsíður með mðrg-
um myndum.
Má panfa hjá böksöium.
"V»\
\s\.
\