Vísir - 24.12.1915, Side 1
Utgefandi
HLUTAFELAG.
Ritstj. JAKOB MOLLER
SÍMI 400.
Skrifstofa og
afgreiðsla i
Hótel Island
SIMI 400
5. árg
Föstudaginn 24. desember 1915.
380. tbi.
m tt me mmw. m $ *mm
............ gfe&'gí&feEis—..... ...—
I
H EIL Ö Gr KYRB. -<æ>
Jólaliugvekj a eftir síra Bjarna Jónsson.
Texti: Lúk. 2. 1.-14.
Jólaguðspjallið falar um breytingar á ytri
lífsvenjum. Menn yfirgáfu heimili sín og fóru
í ferðalag. Keisarinn hafði látið það boð út
ganga, að skrásetja skyldi alla heimsbygðina.
Sú skrásetning gat ekki verið framkvæmd, nema
mikið væri um að vera. Fóru þá allir til að
láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar, sumir
með tilhlökkun, aðrir með kvíða. Alt var á
ferð og flugi. Menn mættu daglega mörgum
ferðamannalestum, til borganna komu fjölmenn-
ir hópar æskulýðs og gamalmenna, víða mátti
sjá rauöar rósir á kinnum, silfurhvít hár og
hrukkur á enni. Oistihúsin voru troðfull af
fólki, þar inni var glanmur og gleði, söngur
og skraf, en þangað kómu einnig margir þreytt-
ir til þess að leita sér hvíldar, en í æöum margra
rann einnig æfintýrablóð og rík þrá bjó í hjarta.
Pað var mikið um að vera í Betlehem;
margir komu til litla bæjarins, því að fjölda-
margir voru af húsi og kynþætti Davíðs.
Qamlir kunningjar og frændur hittust og gleð-
in var björt, er vinum var fagnað. Aðrir uröu
daprir í bragði, er þeir litu fornar æskustöðv-
ar, því að margir af fornvinum voru horfnir
og þess vegna fanst þeim alt svo tómlegt.
Kaupmennirnir höfðu nóg að gera, þeir vissu,
að þeir nú gætu selt meira en vant var, gest-
gjafinn hugsaði sér að græða og vildi auðvit-
að helst hýsa þá, sem best gátu borgað. Það
voru miklar annir í gistihúsinu, þar var ekki
hægt að fá fleirí rúm, að minsta kosti var það
ókleift fyrir fátæklinga. Oott áttu þeir, sem
þektu góða vini og voru boðnir velkomnir hús
þeirra. Það hefir eflaust verið glatt á hjalla í
gistihúsinu og víðsvegar í þorpinu; kyrðin var
þar ekki.
En skamt þaðan var fjárhúsið; það kostaði
ekkert að vera þar um nóttina, þar voru fátækl-
ingar, sem gestgjafann hefir ekki langað til að
hýsa. — En í fjárhúsinu var hin heilaga kyrð.
Þar var iágt undir loft, en þar var himininn
opinn, þar sást stiginn, sem náði frá jörðu til
himins og englar guös fóru upp og niður stig-
ann. Himininn var inni í fjárhúsiuu og Drott-
inn heimsótti vini sína í heilagri kyrð, yfir þeim
skinu hinar skæru stjörnur og hin gullnu ijós
glitruðu. Fátæk móðir vafði hinn blíða helgri
í sælu að hjarta sér, og er hún horfði á barn-
ið í jötunni og leit í hin skæru barnsaugu, þá
sá hún hinar fegurstu stjörnur, og hjarta henn-
ar fyltist sælum friði, því að hún hafði tekið á
móti himneskri kveðju.
í fjárhúsinu var hin sanna, heilaga jólakyrö,
þaðan var þakkarbænin send til himins, því að
nú var guðsbarnið komið úr himnadýrð, Jesús
Kristur var kominn og með honum hin sönnu jól,
En í þeirri bygð voru fjárhirðar úti íhaga
og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Þar var
djúp og friðsæl kyrð, þar var þrá og eftirvænt-
ing, þangað náði ekki skarkali heimsins oghá-
vaði. Alt var svo kyrt, svo undurrótt, og kyr-
látir, auðmjúkir menn, höfðu sungið himninum
kveldljóð. En guð býr í kyrðinni, I hinum
blíða blæ, og hann leitar þar að mönnunum.
Alt var undir búið. Nú gátu jðlin homið. Hér
voru þeir, sem hægt var að trúa fyrir boðskap
frá himninum. Englarnir voru ekki sendir til
hallar keisarans.heldur ekki til gistihússins í Betle-
hem, menn hefðu víst ekki veitt þeim eftirtekt
þar, menn höfðu um alt annað að hugsa en
engla og himneskan boðskap, menn voru komn-
ir til þess að láta skrásetja sig, en ekki til þess
að hlusfa á englasöng. En í heilagri nætur-
kyrð voru himr.eskir sendiboðar á ferð, þar
Ijómaði dýrð Drottins og engillinn stóð hjá
þeim, það var tekið vel eftir hinni stuttu, en
fegurstu jólaprédikun: »Verið óhræddir, því
sjá, eg boða yður mikinn fögtiuð, sem veitast
mun öllurn Iýðnum; því að yður er í dag frels-
ari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg
Davíðs«.
Á þessa jólaprédikun var hlustað með at-
hygli, og himneskur fögnuður gagntók hjörtu
þeirra.
Á himni næturljósín ljóma
svo ljúft og stilt og rótt,
og unaðsraddir engla hljóma
þar uppi’ um helga nótt.
Fjárhirðarnir hafa fórnað höndum til hímíns.
»Ó, heilaga stund, ó, friðsælu augnablik, hverf-
ið ekki frá okkur, látið okkur fá að njóta hinn-
ar sælu jólakyrðar«.
Jólin voru komin og þcim var fagnað í
heilagri kyrð.
Enn einu sinni eru jólin komin. Enn er
víða skarkali og ógnarys í tímans straumi. —
Miklar jólaannir og mikill undirbúningur und-
ir hátíöina miklu. Margt er á boðstólum og
menn sækjast eftir mörgu, þegar jólrn nálgast
eykst oft hávaöinn og mikil ókyrð ríkir. Alt
er á ferð og flugi eins og á hinum fyrstujól-
um. Hátíð heimilanna er í nánd, og þá hugsa
allir heim. Þeir sem geta komið því við fara
til vina sinna, aðrir bera þrá í- hjarta: »Ó, að
eg hefði vængi, þá skyldi eg fljúga heim fyrir
jólin«. — Vinir hittast og gleðjast sameigin-
Iega, mörg umsvif skapast af þrá, menn vilja,
veita öðrúm gleði. Slík þrá er svo eðlileg. —
Er það ekki eðlilegt, að menn Iangi til að
skreyta híbýii sín, svo að þeir, sem saman vilja
vera, geti notið hátíölegra og bjartra gleði-
stunda á hinu kæra heimili? Er það ekki fag-
urt, að foreldrarnir tendra ljósin á hinu græna
jólatré? Er ekki skemtilegt að sjá, hve mikið
aðdráttarafl tréð hefir, fagurt að sjá börnin
horfa hugfangin á töfratréð?
Það getur verið, að þú hafir ekki jólatré
en þú reynir samt að vekja heimilisgleði, bera
jólabirtu til þeirra, sem þú elskar.
Margir hafa haft mikið annriki og það hef-
ir kostað mikla fyrirhöfn að undirbúa hin ytri
jól. Starfið heldur áfram þangað til kirkju-
klukkurnar kalla og jólasálmar hljóma í must-
erum Drottins, og þegar á að tendra jólaljós-
in heima, þá eru margir orðnir þreyttir. Það
hefir verið svo lftið um kyrð, en borið mikið
á truflun.
En nú koma heilagar kyrðarstundir. Þær
eru gefnar af guði, jólagjöf frá honum handa
heimili þínu. Stuðlum að því, aö heimilin
taki með gleði á móti hinni sönnu jóla-
kyrð, syngjum jólasálma, Iyftum hjörtum vorum
ti) himins og hlustum á englasöng.
Jólin eru gefin heimili þinu. En þau eru
einnig gefin þér. Þau vilja leiða sál þína inn
í kyrðina. Þau eiga sérstakt erindi til þín.
Þú heyrir óm kirkjuklukknanna. En heyrir
þú ekki til hinnar himnesku klukku? Jóla-
engill hringir þeirri klukku, það er kallað á
þína sál: »Fagna þú maður, frelsari heimsins
fæddur er«. Pér eru gefnir þessir dagar, til
þess að hjarta þitt fái hlutdeild í himneskum
gjöfum.
Leituðu kyrðarinnar á þessum jólum. í
kyrðinni getur þú fundið sjálfan þig, og í
kyrðinni getur þú fundiö guð.
Þú mátt ekki úthýsa hinni sönnustu og
hreinustu jólagleði, þegar hún knýr á dyr hjarta
þíns. Það má ekki vera komið svo margt ann-
að inn í það herbergi, að þar sé ekki rúm
fyrir hinn sælasta fögnuö.