Vísir - 03.03.1919, Qupperneq 4
Karlakór K. F. U. M.
fór inn aö Laugamesi og Kleppi
á gœr og söng þar fyrir sjúkling-
ana.
Esther
kom frá Englandi í morgun. Fór
þangaB meS ísfisk.
í
Dansleik
heldur Iþróttafélag Reykjavíkur
í ISnó á laugardaginn kemur. —
XJndanfarna vetur hafa færri kom-
íist aö en vildu á hinn árlega dans-
leik íþróttafélagsins.
Frostið eykst.
í morgun var 17 stiga frost hér
og á ísafirði, en 18 stig á Akur-
eyri, 15 á SeySisfirði, 20,5 á Gríms-
stöðum og 16,2 í Vestmannaeyjum.
Norðanáttina er atS lægja tim land
alt og á Akureyri var logn.
!
Hðfnin lögð.
í morgun var höfnin nálega öll
lögfi innan hafnargarða, og mann-
geng á stórum svæðua.
!
Hjúskapur.
Ungfrú Þórann Hafstein, dóttir
Hannesar Hafsteins og Ragnar
Kvaran cand.theol.voru gefin sam-
an í borgaralegt hjónaband í fyrra-
dag. ;
;
Dr. Alexander Jóhannesson
hélt fyrirlestur Um fegurö
í Iðnó í gær. — Áheyrendur voru
magir, þó kalt væri.
I
Gefin saman
í hjónaband s. 1. laugardag af sr.
Bjama Jónssyni dómkirkjupresti:
Kári Jón Kárason og Júlíana
■Stígsdóttir, Hverfisg. 88.
Sjóvátryggingarfélag íslands H.f.
fAusturstræti 16.^'Keykjavík.
Pósthólf B74. |§Símnefni: Insurance
Talsími 542.
Alskonar^sjó- og stríðsvátryggingar.
Skrifstofutími 10—4 siðd, — laugarðögum 10-—2.
PEVSUR
handa konum og körlum i stóru úrvali x verslun
Marteins Einarssonar &Co. Simi 315.
Branatryggingar,
Skrifstofutími kl. xo-xx og 12-Si
Bókhlööustíg 8. — Talsími 254,
A. V. T u I i n i u s.
Hjálparstöð hjúkrnnarfélagsins ,Líkn‘
fyrir berklaveika
tekur nú til starfa í Kirkjustræti 12. Opin einu sinni í viku
á þriðjudögnm frá kl. 5—7 e. li,
Tjóö
hefir víöa oröiö aö frostinu hér
i bænum, sprangiö vatnsrör og
miðstöövar og í sumum búðum
hafa sódavatns- og saftflöskur
sprangið í tugatali.
Gestamót U. M. F. í.
var haldið í G. T.-húsinu í gær-,
kvöldi, og stóð fram til kl. 4. Þar
voru menn úr flestum eða öllum
ungmennafélögum landsins. Sr,
Magnús Helgason talaöi um Sturl-
ungaöldina, og fleira var þar til
skemtvmar.
Agætar
karlraannsraillifata
pyesnr
seljast með miklum afslætti
á Langavegi3
Andrés Andrésson.
Sölatarnlnn
opimri8—11. Sími 528.
annast sendiferðir o. fl.
Bamakerra í góöu standi ósk-
ast. Uppl. i mjólkursölubúðinni £
Hverfisgötu 56. Sími 757 A. (1$
§ VINMA 1
Unglingsstúlku vil eg fá um>
tíma, til þess að gæta bama. Ólaf-
ur Daníelsson, Skólavörðustíg 18.
Stórt verkstæðispláss óskast
frá 14. maí. Sama hvar er i bæn-
um. Baldvin Bjömsson gull-
smiðiu:. Ingólfsstræti 6. Sími
668. (277/
Ftmdin húfa á Frakkastíg 25.
(19
Prímusviðgerðir eru ódýrastar í
Versl. Goðafoss, Laugav. 5. (7
Félagsprentsmiöjan
118
ætlaði hann að halda það heit. Og því skyldi
honum veitast það erfitt? Auðvitað myndi
hann alls ekki langa til stúlkunnar framar.
Honum datt ekki í hug að trúa orðum Tibby
um, að heimsóknir hans hefðu áhrif á Mínu.
Augu hennar voru saklaus eins og barns-
augu; jafn laus við ástleitni; en hvað um
það, Tibby skyldi mega reiða sig á loforð
hans, og það var ef til vill gott, að svona
fór.
En vantraustið, sem hún sýndi honum,
hrygði hann og honum sárnaði þessar
aðdróttanir hennar um hinar eigingjörnu
hvatir, sem hún áleit hafa stýrt gerðum hans.
Og þegar hann kom heim, reyndi hann að
gleyma öllu saman, með því, að vinna lengi
frameftir nóttu. Hann hætti ekki fyr en hann
var orðinn of þreyttur til þess að geta hugsað.
VIII. KAPÍTULI.
Árroði ástríSunnax.
Næsti mánudagur var þingfundarkveld.
Clive hafði farið út til að anda að sér hreinu
lofti. Hann var einn þeirra fáu, ógæfusömu
manna, sem geta ekki sofið á þingbekkjun-
um, og venjulega hlustaði hann með athygli,
jafnvel á leiðinlegustu ræðumennina, því hann
▼issi að altaf var eitthvaö að græða á því
119
sem sagt var. En þetta kveld hafði honum
orðið um megn að fylgjast með hinum hátt-
virta ræðumanni, sem var stamandi og stynj-
andi aö tala fyrir framvarpi því, sem á dag-
skrá var. Hiti var mikill í salnum og ryk;
samræðurnar voru daufar og margir blund-
uðu; hext júní-sólin stafaði geislum sínum
inn um gluggana, á þreytuleg andlitin.
Clive reikaði um strætin og hugsaði um,
hve heitt nú hlyti aö vera í Bensonssundi, og
myndn af grannvöxnu meynni með bjarta
andlitið, sem grúfði sig yfir nóturnar á hljóð-
færinu, stóð honum lifandi fyrir hugskots-
sjónum. En hvað hann sá hana ljóst í hug-
anum! — Því gat hann ekki gleyrnt þessari
stúlku? Hálfgramur i geði greikkaði hann
sporið og hélt inn í Hyde Park; svo stað-
næmdist hann við grindurnar og horfði á
vagnaraðirnar, sem fram hjá fóru, og aldrei
virtust ætla að taka enda. Af og til fóru hefð-
armeyjar fram hjá, sem heilsuðu honum ; hann
tók ofan, en kveðja hans, og brosið, sem
fylgdi, var hvorutveggja eins og hann væri
annars hugar.
Vagn einn hafði numið staðar rétt hjá hon-
um. Það var vagn Chesterleighs lávarðar og
ungfrú Edith sat í honum; í sætinu gagn-
vart henni sat Sara, fóstra hennar. Ungfrú
Edith hafði séð Clive áður en hann kom
auga á hana; hún hafði hallað sér makinda-
120
lega aftur á bak í vagninum, en þegar hún
kom auga á hann, háan og tígulegan, þaut
blóðið fram í andlit henni og ósjálfrátt hall-
aði hún sér áfram, um leið og hún dró djúpt
andann. — Sara, sem hafði ihorft á húsmóð-
ur sína, sá þegar roðann á andliti hennar og
leit hvössum augum á mann þann, sem ung-
frú Edith veitti svo nánar gætur. Þó að;
Sara liti áö eins sem snöggvast á hann, þá
vissi hún þegar að þetta myndi vera hr. Clive
Harvey, sem húsmóðir hennar hafði talað um
við hana um kveldið. Sara sá Clive taka ofan
og hún beið með öndina í hálsinum. Ungfra
Edith virtist hika við, svo benti hún honuni
aö koma. Sara beit saman vörunum og horfði
til jarðar. Clive gekk að vagninum. Roðinn
var enn þá ekki horfinn úr kinnunum á ungfrú
Edith; það var eins og hún kæmi engu orði
upp, hún, sem var svo snjöll í samræðum
samkvæmislífsins.
„Finst yður ekki of heitt nú til þess að
vera útj fótgangandi ?“ spurði hún loksins.
„Það er að minsta kosti svalara en í
þingsalnum," svaraði hann brosandi. „Eg
fór út til að fá mér frískt loft. Svo datt hon-
um alt í einu eitthvað í hug.
„Mér þykir vænt um að hitta yður, ungfrú
Edith; eg þarf að biðja yður bónar.“
Vagninn fór nú að hreyfast áfram, því