Vísir - 17.09.1921, Qupperneq 2
V. ■■ a&X
Hðfum fyrirliggjaiidi:
MAtorcylittderoiín „Rapid“.
Mótortmt.
Hritjfirn.
UoiMðapippir -■ Pappiripoka.
Símskeyt
írá fréttaritara Ylfli*,
Kaupmannahöfn 16. sept.
írar vilja Bkki semja við Breta
nema fullkomið sjálfstæði
þeirra sé fyrirfram við-
urkent.
Lloyd George frestar samninga-
ráðstefnunni.
Frá London er símað, að
svar Lloyd George til de Valera
hafi komið eins og þruma úr
heiðskíru lofti, ]>ví að hann hafi
í því lýst yfir, að hann teldi sig
neyddan til að fresta bresk-írsku
ráðstefnunni, með því að de
Valera haldi fast við kröfuna
um drottinvald írlands1. Lloyd
George kveðst þurfa að ráðfæra
sig við ráðuneyti sitt, áður en
ákvörðun sé tekin um það,
hvaða stefna skuli upp tekin í
málinu.
Blaðið Evening News segir,
að de Valera hafi í bréfi sínu til
Lloyd George lýst því yfir, að
Irai- væru fúsir til að taka þátt
i ráðstefnu þeirri, sem Bretar
höfðu boðað, „en því að eins
getum vér samið fyrir hönd
irsku þjóðarinnar, að fulltrúar
vorir geti komið fram og séu
viðurkendir sem fidltrúar óháðs
og fullvalda rikis.“
Grikkir og Tyrkir.
Grikkir hafa \rfirgefið Angora.
Ástandið i Þýskalandi.
Siglníjarðar áfengíð.
Frá Siglufirði er símað, að flutt
hafi verið þar á land úr þýska
smyglaraskipinu:
22100 litr. af hreinum spiritus og
samtals 2359 flöskur af kognaki.
Horfið hafa úr skipinu 245 kognaks
flöskur, kassarnir tómir eftir, og er
haidið, að skipverjum hafi tekist að
selja þær landsmönnum áður en upp
komsl um athæfi þeirra.
Tveir menn úr Reykjavík hafa
játað á sig að þeir hafi skift við
skipverja á síld og áfengi.
Réttarhöidum er eicki iokið enn,
og skipstjóri er illur viðureignar.
í símfregnum, sem blöðin hafa
birt, hefir verið sagt frá því, að
alvarlegar stjórnmálaóeirðir muni
vera í aSsigi í Þýskalandi. í út-
lendum blöðum eru nú komnar
nánari fregnir af þessu, og ráð-
stöfunum þeim, sem þýska stjórn-
in hefir gert' til að bæla niður
þessar óeirðir.
Það er fullyrt, að íhaldsmenn í
Þýskalandi hafi fyrirhugað stjórn-
byltingu i landinu. Einna atkvæða-
mesti forsprakki þeirra er Luden-
dorff hershöfðingi, sem hefir farið
þar víða um og haldið ræður
margar og berum orðum hvatt til
byltingar. Hefir þetta orðið til þess,
að frjálslyndari ílokkarnir hafa
tekið fastar saman höndum, til
þess að standa sem einn veggur
á móti þessari öldu. Hafa jafnvel
jafnaðaimannaflokkarnir, „hægri“
jafnaðarmenn og „óháðir", tekið
hvor annan i sátt, og búist er við
að fjórir þingtlokkarnír, miðflokk-
urinn, demokratar og jafnaðar-
mannaflokkarnir tveir, slái skjald-
borg um stjórnina.
I ávarpi til þjóðarinnar, sem
Ebert forseti birti eftir morð Erz-
bergers, segir hann, að stjórnin
hafi lengi verið áhyggjufull út af
þvi, hve siðspillingin hafi færst í
1 vöxt í ríkinu, en það verði með
hverjum deginum ljósara, að sam-
viskulausir ofstopamenn séu þess
í albúnir að kollvarpa gildandi
; stjórnskipulagi og gerist þeir nú
svo ófyrirleitnir, að þeir opinber-
lega, bæði i blöðum og á mann-
fundum, hvetji menn til ofbeldis-
og hryðjuverka, og sé það aug
ljóst, að þeir álíti, að nú sé timi
til kominn að viðurkenna þfið op-
inberlega, hvert markmið þeirra
sé. En sakir neyðarástands föð-
urlandsins sé það heilög skylda
stjórnarinnar að bæla niður und-
irróður þessara manna með harðri
! hendi. Og til þess að bæla niður
| þennan undirróður, hefir stjórnin
: á ýmsan hátt takmarkað prent-
‘ og funda-frelsi. Þannig tekur
i stjórnin sér vald til að banna út-
| gáfu hlaða í 14 daga ef þau hvetja
j til stjórnarbyltingar eða lögbrota,
eða samsinna eða lýsa velþóknun
sinni á sliku athæfi. Ef sama blað
gerist margsekt umþetta, mábanna
j útgáfu þess um þriggja mánaða
tima. Sá, sem gefur út blað eða
rit, sem bannað er að gefa út,
sætir sektum alt að % milj. marka
Jog fengelsi að auk. Fundir og als
konar samkomur, sem ætla má að
stofnað sé til í þeim tilgangi að
hvetja til uppreisnar ’gegn ríkjandi
stjórnarfyrirkomulagi, skal einnig
banna, og sæta þeir sektum, sem
til slikra funda stofna, þrátt fyrir
bannið, eða tala á þeim, alt að
Va milj. marka, og hver maður
sem sækir slikan fund, getur sætt
alt að 100 þús. marka sekt.
Samkvæmt þessum tiiskipunum
stjórnarinnar var þegar Iagt 14
daga útgáfubann 'á 3 blöðin, „Ber-
liner LokaIanzeiger,“ „Der Tag“,
og „Misbacher Anzeiger.“ Höfðu
tvö þau fyrrnefndu unnið það til
saka, að birta grein úr „Misb Anz.“
með óbóta skömmum um stjórn-
ina fyrir útgáfubannið gegn þyí
blaði.
Svo virðist nú,' sem stjórninni
ætli að takast að vinna bug á
byltingarundirróðrinum, en þó er
ástandið í Þýskalandi mjög ískyggi-
legt, og má buast við hinu versta.
Enginn vafi er-, heldur á því, að
það er einmitt þetta ástand, sem
veldur því að mestu leyti, hve
geysilega þýska markið hefir fall-
ið í verði síðustu vikur.
Frá bæjarsyórnarfandi
Niðurl.
io. Húsnæðismálið var tekið á
dagskrá að beiöni Ágústs Jósefs-
sonar og Jóns Baldvinssonar.
Báru þeir fram svolátandi tillögu í
tveim liðum:
Bæjarstjórnin ályktar aö fela
húsnæöisnefndinni:
1. Aö sjá um, að ibúðir í húseign-
um bæjarins og þær íbúöir, sem
bærinn hefir á leigu, séu, þar
sem á skortir, geröar leigufær-
ar, svo aö telja megi viðunandi,
en fólk flutt úr þeim íbúöum,
sem heilbrigðisnefnd telur 'ó-
hæfar til íbúðar; einnig láti
húsnæðisnendin til sín taka um
íbúðir einstakra manna, sem
ekki teljast leigufærar.
2. Aö taka tþ íhugunar, áöur en
fjárhagsáætlun næsta árs er
samin, hver ráö séu tiltækileg-
ust til þess aö bæta úr húsnæö-
isvandræðunum í bænum.
Bæjarstjórn Rvikur heimilar
borgarstj. aö taka og ráöstafa fyrir
hönd bæjarstjórnar auöum ibúðum,
sem teknar veröa til umráöa sam-
kvæmt lögum nr. 45, 28. nóv. 1919,
án þess það sé boriö undir bæjar-
stjóm í hvert einstakt skifti.
Jón Baldvinsson talaöi fyrir til-
lögnnni. Er hér útdráttur úr ræöu
hans: Húsnæöisvandræöin eru eitt
mesta böl bæjarins og hefir bæj-
arstjórn ýmislegt gert til að greiða
fram úr þeim, t. d. látiö reisa Pól-
ana og Selbúöir, keypt gömul hús,
styrkt Byggingarfélag Reykjavík-
ur, hjálpaö fátæklingum um hús-
næði hér og þar í bænum, reynt að
haida leigu í skefjum o. s. frv. Ráð-
stafanir þessar misjafnlega metn-
ar og sumar gera hvorki aö auka
né minka húsnæöið. Eina ráöiö til
verulegra umbóta cr að byggja ný
hús. Bæjarstjórnin veröur aö gang- ,
ast fyrir því. Málið þarf langaii
undirbúning.
Auk þeirra íbúða, sem bærinn á,
hefir hann ínargar á leigu og erú
þær misjafnar, en flestallar litlar
og margar lélegar. Fer það og
nokkuð eftir umgengni, sem sum-
staöar cr ábótavant. Sum húsiii
ekki vel gerð. Eg er ekki nákunn-
ugur þessum íbúöum, en nóg séð
til þess, aö eg veit, að ástæða «■
til að endurbæta þær fyrir vetur-
inn, svo að þær verði leigufærar.
Eg skal að eins lýsa einnj þessari
leiguíbúð, sem er hin aumasta, serrt
eg hefi séð. Veggfóðrið var rifið,
tætt og myglað, tæjurnar stóðu út
í loftið, beinharðar eins og þak-
járn; grundvöllurinn er kálgarður
og skriðu pöddur og ánamaðkar
upp rifurriar á gólfinu. Gersamlega'
óverjandi að láta þetta við gang-
ast. Verður að taka fólkið úr
svona hælum og sjá því fyrir ein-
hverju þolanlegra. Svo buið má
Steindór
A nsrgaa:
1 Þragvailnréttir
fara bifreiðar seinni
partinn og koma aftnr á
mánndag
Tii Vifiisiaðs
kl.'UVa °9 2%.
ITil Hafnarffarðar
annan tavern klt.
A fintuðag as|9
fara bifreiðar i Skeiða-
réttir og œttn menn að
tryggja sér far í tima.
Pailið far i tlna.
(Horaiö á Hafnairstræti og
Yeltusundi, móti O. John-
son & Kaaber).
Farmiðar seldir á afgr.
Símar:
I 581 og 838. B