Vísir - 30.06.1922, Blaðsíða 2
*!•*»
))Mam
Ti! leiga nt þðpr,
2 góð herbergi
929
er simanumer-
iðhjáNýjuBif-
reiðastöðinni á
L<ækjartorgi2.
Hriúgið þang-
að þegar þér
þuriíð að fá bíl
Daglegrar ferðir austur yfir
fjail. Tvipvar í yiku til Kefla-
víkur, Grindavíkur og Leiru
og Dingvaila. Niðursett verð.
Bílar fara til keflavíkur á
morgun kl. 11 f. h.
Sfmskeytf
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn 29. júni.
8 stunda vinnudagur afnuminn.
Símað er frá Bern, að sviss-
neska þingið hafi upphafið lög-
in um 8 stunda vinnu fyrst um
sinn í 3 ár.
Jarðarför Rathenaus.
Ratlienau var jarðsettur í gær
og fylg'di lionum ótölulegur
manngrúi til grafar. Alíri starf-
semi var hætt í 10 mínútur um
þvert og endilangt þýska rikið,
í virðingarskyni við minningu
hins látna ráðherra.
Einn morðinginn fundinn.
/
Lögreglan í Berlín hefir fund-
ið bifreiðina, sem morðingjar
Rathenaus voru í, og bandsam-
að einn þeirra, en sent lýsingar
á hinum út um alt. Allir eru
þeir í þjónustu „ConsuI“-félags-
ins (en svo heitir þýskt leyni-
félag, sem stofnað mun vera til
að koma lýðveldinu fyrir katt-
arnef).
Kosningarnar í írlandi.
Nýjar róstur.
Símað er frá Dublin, að kosn-
ir hafi verið 92 fríríkisþingmenn
(þ. e. fylgismenn bráðabirgða-
stjórnarinnar), en 36 óháðir
lýðveldismenn í nýafstöðnum
allsherjarkosningum til írska
þingsins.
Samkvæmt áskorun frá Lloyd
George og Churchill, liefir bráða
birgðastjórnin (þ. e. Collins,
Griffith og þeir félagar) farið
með her á hendur óháðum lýð-
veldísmönnum, sem tckið hafa
Dyflinnar-ráðhús herskildi.
Hafa þegar orðið grimmilegir
bardagar á götum borgarinnar.
SMmorð
á svertingjum í Bandaríkjunum,
Ýmsum góSum mönnum er far-
ið a'S ofbjóða áö heyra um hin
hryllilegu skrílmorö Qynchings) í
Randáríkjunum, sem einkumgánga
út yfir svertingja i suöurríkjunum;
og undirrót þeirra, hatriö milli
kynstofnanna, hins hvíta ogsvarta,
er eitt af erfiðustu úrlausnarefnum
framtíöarinnar þar vestra.
Á skömmum tíma í maí voru 8
slík morð framin. Þessi morð eru
aö visu ekki stórum fleiri, en verið
hefir áöur, en þó hafa margir
vaknaö upp viö þaö, hve ört þau
hafa rekið hvert annað. 6. maí
voru 3 svertingjar brendir lifandi
við sama staurinn, og horfði
mannfjöldi á meö sýnilegri á-
nægju. Einn þeirra haföi veriö
pyndaður þar til hann játaöi á sig,
aö hann heföi áreitt unga stúlku,
og gefiö í skyn, aö hinir heföu
veriö eitthvaö samsekir honurn. En
þeir neituöu á hverju sem gekk.
Þegar þeir voru allir dauðir, voru
líkin jóðluö í olíu og brend til
agna. Tveim dögum síöar var ann-
ar svertingi borinn líku illmæli, og
fanst hann hengdur í tré. Lögregl-
an komst á snoðir um það, hver
væri valdur að morðinu, en lét
kyrt liggja. 18. maí var svertingja-
piltur, 15 ára að aldri, gripinn og
sakaður um aö hafa rænt og
drepið stúlku. Hann var bakaöur
viö eld, og horfðu 2000 manns á
kvalir hans meö hlátrum og lófa-
ldappi. Loks lét hann undan kvöl-
unum og játaði. Var honum þá
kastað á bálið og 200 skotum
hleypt á hann. Daginn eftir skaut
annar negradrengur á hvítan
mann. Hann var bundinn aftan í
bifreiö og dreginn á eftir henni
þar til hann var dauður. En næsta
dag var svertingi sakaður um að
hafa áreitt hvíta stúlku, og var
hann bsendur opinberlega á miðju
torgi í bæ einu'm í Texas. 24. maí
var svertingi enn tekinn og átti aö
pynda hann til dauöa, en honum
tókst að hlaupast á brott. Sama
dag var svertingi, sem sakaður var
um að hafa stolið grip, laminn til
dauðs.
Að meðaltali eru 65 svertingjar
á ári myrtir þannig á hryllilegan
hátt í Bandairíkjunum. í 85 tilfell-
um af hundrað eru annað hvort
engar sakir bornar fram, eða þá
þær sem nefndar eru, eru bein-
linis fjarstæður. Stundum þarf
ckki meira en aö svertingi svari
hvítum manni fullum hálsi, hafi
grætt fé eöa á annan hátt komist
betur áfram, en þeim, hvítu mönn-
unum, þykir vel viö eiga.
Erfiðast viðfangs er það, að all-
ir sýnast vera samtaka um þessa
svívirðu, yfirvöld jafnt og aðrir.
Oft og einatt er þaö lýðum Ijóst,
hverjir eru sekir um þessi verk, en
þeir þurfa ekkert að óttast frá rétt-
vísinnar hálfu. Svertingjarnir og
þeir, sem-þeim vilja liösinna og
hjálpa til jafnréttis, eru alveg von-
lausir orðnir um, að hin einstöku
ríki taki héf í taumana og hegni
sökudólgunum. Þeir hafa því bar-
ist fyrir því, að alríkið taki þetta
mál í sínar hendur og mái þennan
blett af amerísku þjóðinni. í þeim
tilgangi hafa lög um skrílmorð
komið fyrir þingið, og er fulltrúa-
cieildin búin að samþykkja þau, en
öldungadeildin er ekki búin að
fjalla um þau.
Eftir þessum lögum verður hver
embættismaður sekur fyrir alríkis-
lögunum, sem lætur skrílmorð við-
gangast óhegnt, og verður hann
lögSóttur af alríkis yfirvöldum. Og
hver sýsla, þar sem slíkt skrílmorð
verður framið, verður að -borga
10000 dollara í sekt.
' Menn spá misjafnlega fyrir þess-
um lögum. Ýmsir telja þau fara í
bága við stjórnarskrána og rétt
einstakra ríkja. En aðrir vitna í
þau orð stjórnarskrárinnar, að
„ekkert ríkið megi neita nokkrum
þegna sinna um jafna lagavernd
við aðra“.
Suðurríkja-öldungarnir verða
vafalaust allir á móti lögunum, og
margir búast við, að þau komist
aldrei gegntim öldungadeildina. En
víst er um það, að Bandaríkin eiga
ekki fullkomlega skilið sæti meðal
siðmentaðra þjóða meðán þau
láta skrilmorðingjana vaða uppi.
I. 0. O. F. 1046308'/2. — I.
Jarðarför
frú Elísabetar Sveinsdóttur
fór fram i gær við mikið fjöl-
menni. Síra Magnús Helgason
flutti húskveðju, en síra Bjarni
Jónsson ræðu í dómkirkjunni.
Veðrið í rnorgun.
Hiti í Rvílc 8 st., Vestm.eyjum
II, Grinda\dk 10, Stykkishólmi
6, ísafirði 5, Akureyri 6, Gríms-
stöðum 2, Raufarhöfn 4, Seyð-
isfirði 7, Hólum í Hornafirði 10,
Jiórshöfn í Færeyjum 9, Kaup-
mannah. 14, Björgvin 10, Tyne-
mouth 11, Leirvik 8. Loftvog
lægst (744) yfir Finnmörk, en
hæst (770) yfir Biskayaflóa.
Hæg norlæg átt. Horfur: Kyrt
veðnr.
Eimskipafélag Islands
hefir gefið út lítinn bækling
á ensku, leiðbeiningar handa
ferðamönnum, er hingað koma,
og frásögn um skip félagsins.
pess háttar rit sjást á farþega-
skipum annara félaga úti um
allan heim og er vel, að Eim-
skipafélagið liéfir látið prentíÉ
þenna bækling. Enn fremur hef-
ir félagið keypt nokkuð af ferða-
mannahandbók þeirri, sem Snæ-
björn Jónsson hefir samið og
Steindór Gunnarsson gefið úf
(Reykjavík and its environs( og
lætur útbýta henni meðal er-
Iendra farþega, sem hingað
koma á skipum félagsins.
50 ára stúdentsafmæli
á Indriði skáld Einarsson í
dag. Átta stúdentar útskrifuðusf
1872 og eru þeir allir látnir
nema Indriði. Hann er 71 árs og
hafa menn varla séð unglegra
mann á hans aldri.
Góðar skemtanir
verða hér um helgina: Fram-
sagnarkvöld Guðm. Kamhan í
Nýja Bíó annað kvöld og söng-
skemtun Eggerts Stefánssonar
í Bárubúð á sunnudagskvöldið.
Prestastefnunni
lauk í gær. Verður skýrt frá
helstu gerðum hennar í blaðinui
innan skams.
Af veiðum
komu í gær: Ofur, Njörður*
Kári Sölmundarson og Walpolé.
Njall,
danskt seglskip, kom hingað
i gær með sement og aðrar vör-
ur til lcaupmanna hér og í
Hafnarfirði.
Skipafrégnir.
Goðafoss mun koma til
Leitli í dag, á leið til Kaupm.-
hafnar.
Gullfoss kom til Kaupm.-
hafnar síðastl. þriðjudagskvöld
og fer þaðan 7. júlí.
Bifreiðaferðir næstu daga.
Á Iaugardag:
Að þjórsá,
Á sunnudag:
Til pingvalla, Vífilsstala
og Hafnarfjarðar.
Á mánudag:
Til Ölvesár, Garðsauka
og Keflavíkur.
Ódýrust fargjöld og
bestar bifreiðar hjá
m
10
Of,
W
Símar 581—838.