Vísir - 26.10.1923, Blaðsíða 2

Vísir - 26.10.1923, Blaðsíða 2
V 1 51K Höfum fyrirliggjandi: MAGGI’8 teningar og lögnr á flösknnu, fjrirliggfandi. Matarkex „Snowflake“ Rúgmjöl Hveiti Kartöflumjöl Hrísmjöl Pappírspoka. — Sveskjur Rúsínur Döðlur „Consum“ súkkulaði „ísafold“ súkkulaði. UmMðapappír. — Seglgarn. Símskeyti Khöfn 26. okt. Frá Þýskalandi. Frá Berlín er símað. a‘S Pfalz kafi slitið sambandi við Bayern og lýst sig sjálfstætt ríki. Hefirbráða- birgðastjórn verið skipuð. Fullyrt er, að Frakkar hafi komið þessu til leiðar. Forsætisráðherrar þýsku ríkj- anna fylgja alríkisstjórninni yfir- leitt að málum, en krefjast þess, að allg.r fyrirskipanir um her- valdsstjórn og umsátursástand vérði feldar fir gildi. Lögreglan í Hamborg hefir bælt niður uppreisnartijraunina, sfem þar var gerð. Kaupgjaldsmálið og kosningarnar. Alþýðublaðið i gær tók ekkert frarn því í fyrradag. Það er enn að stagast á kaupgjaldsmálinu og lieldur þvi fram, að það sé þing- mál, hvað sem hver segi. Því til sönnunar minnir það á, að þingið ráði launakjörum emliættis- og starfsmanna Jandsins. Það er alveg rétt. En á það hefði Alþýðublaðið ekki átt að minnast nú. Að minsta Tcosti ekki um leið og ]>að hamrar á því, að Jakob Möller sé manna mest fylgjandi almennri kauplækk- un. Það vita það. sem sé líklega allir Reykvíkingar, að Jakob Möll- cr flutti á síðasta þingi tillögu um að bæta launakjör þeirra starfs- manna landsins, sem lakast eru launaðir, símafólksins. Það vita lika allir, að Jak. M. barðist einn fyrir þessari tillögu við allar um- ræður í neðri deild og í samein- uðu þingi. Jón Baldvnsson mun hins vegar ekki hafa mælt eitt orð \ henni til stuðnings, þó að hann að vísu greiddi atkvæði með henni. En það gerðu líka hinir tveir þing- menn bæjarins, þeir Jón Þorláks- son og Magnús Jónsson. Og athugi menn lika það, að þessir starfsmenn landsins leituðu einmitt aðstoðar Jak. ‘M. Þ e i r trúðu honum að minsta kosti ekki síður en Jóni Baldvinssyni, til þess að líta á mál þeirra með sann- girni og fylgja fram réttmætum kröfum þeirra. En það kaupgjaldsmál, sem Al- þýðublaðið er nú að reyna áð gera að kosningamáli, er ekkert þing-s mál, hvað lengi sem þeir „leiðtog- arnir“ lemja hausunum við stein- inn. Það kemur til þinksins kasta, einmitt á næsta þingi, að ákveða launakjör starfsmanna ríkisins. En á það mál hefir Alþbl. ekkert minst. Alment kaupgjald verka- manna í Reykjavík eða annars- staðar á landinu, kernur lxins veg- ar ekkert til þingsins kasta, og kemur kosningunum ekkert við. Um afstöðu Jak. M. til þess máls er þvx alveg óþ'arft að ræða að svo komnu. En vinnuveitendur eins og útgefendxxr „Alþýðublaðs- ins“, sem sjálfir hafa lækkað kaup sinna starfsmanna urn 25%, ættu sem minst að gera aö þvi, að brigsla honum urn, að Ixann vilji lækka kaupið. En ætti Jak. M. að sernja um kaupgjaldið fyrir hönd verka- manna, þá er það eitt vist, að hann hefði aldrei látið sér detta í hug, að gera þa& mál að æsingamáli fyrir kosningar, vitandi ]xað, að samningar ættu að fara fram eftír kosningarnar. Það atferli „leiðtog- anna“ sýnir Ijóslega, live ger- sneyddir þeir eru allri ábyrgðar- .tilfinningu og raunverulegri um- hyggju fyrir hag verkamannanna. Því að það gelta þeir sagt sér sjálfir, að þegar þeir, einmitt sömu mennirnir, sem nú eru að reyna að hefja æsingar út af kaupgjalds- málinu, þegar þeir svo eiga að fara að semja á eftir, þá muni þessar æsingatilraunir ekki hafa bætandi áhrif. Svik Héðins. —0— Skömmu eftir að Héðinn Valdi- marsson v.ar kosinn form. Dags- brúnar, þurfti félagiö að senda nefnd nxanna til þess að semja um kaup við vinnuveitendur. Iíugðu menn nú gott til að hafa mikið gagn af hinum nýkjörna formanni, og þótti mönnum Héð- inn sjálfkjörinn í slika nefnd. Von- brigðin urðu því mikil, er vara- form. Dagsbrúnar, er stýrði fundi i fjarveru Héðins, stóö upp og lýsti því yfir, að ]xað hefði „gleymst“ að geta þess’ er Héðinn bauðst til formensku i félaginu. að hann rnundi aldrci mæta sem fulltrúi félagsins við kaupsamn- ínga, og sagði varaform., Kjartan Ólafsson, seinast, að það mundi Jóh. Olafsson & Co. aðallega vera vegna þess, að Héð- ] inn „væri þar að semja við, éf j ekki sjálfan sig. þá sina húsbænd- j ur.“ Þóttust menn rnjög sviknir á i Héðni, og kvað Filippus Ámunda- ] son sterkast að urn það, en eigi ; fékst því ])ó framgengt, að Fléð- j inn tæki sæti i nefndinni. í þetta skiftið sveik Héðinn \erkamennina. Nú er Héðinn að biðja þessa sömu verkamenn að kjósa sig, og nú talar hann hæst um kaupið. Héöinn er enn reiðubúinn til að svíkja, en nú lofar hann að svíkja „ef ekki sjálfan sig, þá sína hús- bændur.“ Hver getur treyst Héðni? „Landráða flugan“. Alþbl. segir, að Sig. Egge'rz hafi sagt á fundi í Iíafnarfirði í fyrradag, að „sá verknaður, sem Jón-Bach gerði,“ varðaði ekki við lög! — Það vita allir, að Jóni tókst ekki að stöðva fisksöluna, svo að þessi vfirlýsing Sig. Egg- ei-z nær ekki til þess „verknaðar.“ Annars hefir það heyrst, að þeír „leiðtogamix-“ ætli að, kæra Jak. M. fyrir „rangar sakargiftir.“ Það er auðvitað ekkert annað en mont. „Rauöi pésinn“. Héðinn hefir skrifað pésa um landsverslun, þar sem meðal ann- ars er skýrt frá verðlagi á stein- olíu hjá landsverslun á ýmsum tírnurn. Það er nú upplýst, að verð- skýrsla þessi er röng. Það var sannað með reikningum frá Iands- verslun á fundi á Akureyri nýlega, og varð Magnús Kristjánsson að viðurkenna það. — Hvað halda menn þá um annað „innihald“ pés- ans rauða ? Bikaðar norsto linnr 3l/2 og 4 punda. Öngultaamar fyrirliggjandi ÞÓR9CB 8VEIN88<»N & CO. Kerti uiargar teg. mism. stærðúf jólakerti 5 mism. litir í V* kg' öskjum. Langtum ódýrarien alstaðar annarstaðar Spyrjið nm verð og herið það saman við heildsöiuverð ann- ara. / Versl. B. H. Bjarnason. Bolfírepr fínai og nýmóðins eru komnar aftur beint frá verk- smiðju í Þýskalandi. — Káputau við kjólbúning, rnjög ódýr, og hin marg eftirspurðu efni í telpuslög og drengjafrakka. — Alt mjög ó- dýrt. — Nokkrir karlmannafatnað- ir og vetrarfrakkar seldir fyrir rúmlega hálfvirði. Laugaveg 3. Andrés Andrésson. menn strax á þessum utanferðum: Magnús fór í þarfir einstaklings- fyrirtækis. Héðinn í þarfir „þjóö- nýtts“ fyrirtækis. Og svo er nátt- úrlega líka munur á því, hver maðurinn er. Ferðakostnaðurinn. —o— Um sama leyti og Héðinn fór í utanlandsför sína hina frægu, fór Magnús verslunarstjóri Kjaran einnig utan í verslunarerindum. Magnús skýrði frá því á fundi nýlega, að sinn ferðakostnaður hefði orðið rúnxl. 1600 kr„ og var hann þó jafn lengi í ferðalaginu og Héðinn. Eerðakostnaður Héð- ins var um 9000 kr. þrátt fyrir alla óeigingirni. Einn mun sjá Sap® Alþýðublaðið segir sögu af Laufeyju Valdimarsdóttur í gær. En það segir ekki söguna alla. Laufey sagði á Bárufundinum fræga, að hún væri ein af þeim, sem tryði því, að Jak. M. segði stundum ósatt, og hún ætlaði að horfa framan í Jakob um leið og liún sagði þetta, en þá tókst svo skringilega til, að augun rang- hvolfdust í höfði hennar, svo að hún gat það ekki, en horfði í

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.