Vísir - 30.12.1925, Qupperneq 2
VÍSIR
Höfam fyrirliggjandl:
Hveiti Cream of Man,
do. Bes! Baker,
do. Canadian Msid,
Rúgmjöl frá Aalborg og
Havnemölien,
lálfsigtimjöi do.
Það tilkjmnisí ættingjum og vinum að móðir og tengdamóð-
ir okkar, Ólöf Jónasdóttir, andaðist að Eskihlíð í gær.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Jón Daníelsson.
Símskeyti
Khöfn 28. des. FB.
Tyrkir sætta sig við úrslit Mósúl-
málsins.
Símað er frá Angora, að stjprn-
in hafi ákveöið að hefja ekki styrj-
öld út af úrskurðinum í Mösúl-'
málinu.
Þingræði ítala.
Símað er frá Rómaborg, að
f jöldi fascista-þingmanna hafi beð-
i'ð konunginn að gera Mússólíni
forsætisráðherra ævilangt.
Abd-el-Krim einmana(?)
Símað er frá París, að ástæðan
til þess, að sendiboða Abd-el-
Krims var illa tekið, hafi verið sú,
að allur fjöldinn af samherjum
hans hafi snúið við honum bakinu
og flýi óhræddir á náðir Frakka
og fái hjá þeim góðar viðtökur.
Abd-el-Krim er orðinn liðfár, að
sögn þeirra, og er talið, að vald
haris sé bráðlega úti.
Friður milli Drúsa og Frakka.
Símað er frá Berlín, að sím-
íregnir frá Jerúsalem hei-mi, að
fullvíst sé, að friður hafi verið
saminn milli Drúsa og Frakka.
Khöfn 29. des. FB.
Briand leggur fram ný fjárlaga-
frumvörp.
Simað er frá Paris, að á ráðu-
neytisfundi í dag leggi fjármála-
ráðherra fram endanlegt uppkast
að fjárlagafrumvörpum. Briand
hefir lýst þvx yfir, að þeir ráð-
herrar, er séu óánægðir, geti farið,
hann ætli að þrauka.
írakbúar fagna úrslitum Mósúl-
málsins.
Sírnað er frá London, að stjórn-
in í írak hafi sent bresku stjórn-
inni innilegt þakklætisbréf í til-
efni af úrskurðinum í Mósúlmál-
inu.
Stórbrxmi í höfuðborg Argentínu.
Símað er frá Buenos Aires, að
stórbruni geysi þar. Kviknaði í
olíugeymi. Stjórnin hefir kallað
herlið til þess að aðstoða1 við
slökkvun, sem enn hefir ekki tek-
ist.
Heimskautsflugið.
Símað er frá New lYork City, að
Hénry Ford standi á bak við hina
fj'rirhuguðu heimskautsför í mars.
Er ætlunin .að fljúga frá Alaska
til norðurheimskautsins og Spitz-
*bergen. Útbúnaður er svo góður,
að norðurfararnir geta verið án
sambands við umheiminn i 2 ár.
Skaðabótagreiðslur Þjóðverja.
Sirnað er frá Berlín, að Þýska-
land hafi borgað Bandamönnum
samtals 10 miljarða gullmörk síð-
an 1919.
Frá Yap.
Símað er frá Tokio: Örlög eyj-
unnar Yap enn þá ókunn.
Utan af landi.
- Akureyri 29. des. FB.
Fannkyngi nxikil hér norðan-
lands. Grímsstaðapóstur var hríð-
arfastur í 5 sólar.hringa í Reykja-
hlíð, og varð loks að bera póst-
flutninginn frá Reykjahlíð að
Ingjaldsstöðum í Bárðardal. Síðan
farið á skíðum hingað í kveld.
Mmmwtmmmmœammim
Bæjarstjómin skorar á kjörstjórn
að gefa K. Zimsen kjörbréf
án kosningar.
Eins og frá var skýrt hér í
blaðinu i gær, hefir K. Ziinsen
borgarstjóri krafist þess, að um-
sókn síra Ingimars Jónssonar á
Mosfelli, um borgarstjórastöðuná,
verði úrskurðuð ógild, af því, að
hann hafi ekki kjöi-gengi til henn-
ár. En gildandi lög í þessu efrii,
mæla svo fyrir, að kjörgengir séu
þeir einir, er kosningarétt hafa hér
í bæ. Og krefst borgarstjóri þess
því ennfemur, að sér verði gefið
kjörbréf sem borgarstjóra urn
næstu sex ár, án þess að kosning
fari fram, sem hinum eina löglega
umsækjanda um stöðuna. — Kjör-
stjórn vildi ekki verða við þess-
ari kröfu og skaut Zimsen því mál-
inu til bæjarstjórnar, og var það
rætt þar á aukafundi í gær.
Lítill vafi getur á því leikið, að'
síra Ingimar sé ókjörgengur hér
til þessarar kosningar. Enda var
lítt deilt um það á fundinum.
1
Boi-garstjóri og fonnaður kjöi--
stjórnar, Pétur Magnússon, deildu
aðallega um það, hvort kjörstjórn
bséri, eða henni væri heimiít, að
úrskurða um kjörgengi umsækj-
anda. Er ekkert tekið fram um
það í lögum, og má því væntan-
lega lengi um það deila. P. M.
hélt því frarn, að slíkt vald í hönd-
um kjörstjórnar, gæti orðið vara-;
samt og engu síður valdið því, að
kosning yrði ógild, ef kjörstjórn
feldi rangan úrskurð, en þó að
kósinn væri ókjörgengur urnsækj-
andi. Væri heldur ekki slíkt vald
gefið kjörstjói-num við alþingis-
kosningar, nema hlutbundnar
kosningar. Enda væri engin trygg-
ing sett fyrir því i lögum, að
kjörstjórnir væru þannig skipað-
ar. að þær væru bærar að fella
slíka úrskurði. Þá ihélt hann þvi
fram, að nauðsynlegt væi-i að láta
kosningu fara fram, svo að kjós-
endum gæfist færi á þvi, að sýna
vilja sinn, og svo að ný kosning
gæti þá farið fram, ef svo færi,
að kjósendur vildu heldur þann
ókjörgenga en hinn.
Auk borgarstjóra og formanus
kjörstjórnar töluðu: ölafur Frið-
riksson, Sigurður Jónsson, Stefán
Jóh. Stefánsson og Þórður Sveins-
son. S. J. bar fram till. þess efnis,
að bæjarstjórn lýsti því yfir, að
hún teldi það vafalaust, að síra
Ingimar skorti kjörgengisskilyrði
og kosning ætti því ekki að fara
fram, en kjörstjórn bæri að gefa
hinum eina löglega umsækjar.da
um stöðuna kjöi-bréf. — St. J. St.
bar fram aðra tillögu, þess et'nis,
að þar sem bæjarstjórn teldi sér
ekki heimilt að gefa neinum frarri-
bjóðanda kjörbréf og ekki skylt
að taka ákvörðun um kærur út af
kosningum fyrr en að kosningu
afstaðinni, þá yrði málinu frestað
að sinni. — Þórður Sveinsson Ieit
§vo á, að það væri algerlega þýð-
íngarlaust, að láta þessa kosningu
fara fram, þvi að hvernig sem at-
kvæði féllu, þá hlyti hinn eini lög-
legi umsækjandi að hreppa stöð-
una, og jafnvel þó að ihinn ókjör-
gengi umsækjandi fengi fleiri at-
kvæði við kosninguna, yrði engin
ný kosning lá'tin fara fram.
Atkvæðagreiðsla fór svo, að til-
laga Sigurðar Jónssonar var sam-
þykt með 6 atkv. gegn 5, að við-
höfðu nafnakalli.
Já sögðu: Guðmundur Ásbjörns
■ son, Gunnl. Claessen, Jónatan Þor-
steinsson, Sig. Jónsson, Þórður
BjarnaSon og Þórður Sveinsson.
Nei sögðu: Ágúst Jósefsson,
Hallbjörn Halldórsson, Héðinn
Valdimmsson, Ólafur Friðriksson
og Stefán Jóh. Stefánsson.
Borgarstjóri, Pétur Halldórsson
og Pétur Magnússon greiddu ekki
atkvæði. — Björn ólafsson og Jóri
Ólafsson voi-u ekki á fundi.
Messur á gamlárskveld.
í dómkirkjunni kl. 6 síðd. síra
Bjarni Jónssön, kl. n)4 cand.
theol. S. Á. Gíslason.
í fríkirkjunni kl. 6 síðd. sira
Árni Sigurðsson.
Dönsku silfurpeningarnir,
2 króna, 1 krónu, 25 aura og
10 aura, hafa verið innkallaðir í
Danmöi-ku, og eru ekki lengur
gjaldgengir peningar í viðskiftum
manna á milli þar i landi. í aug-
lýsingu í Lögbirtingablaðinu nú,
eru menn aðvaraðir um þetta, og
jafnframt frá því skýi-t, að bank-
arnir hér innleysi þessa peninga
þó, til 1. apr. 1926 með dönsku
gengi, A síðan sem jafngilda ís-
lenskum peningum. — I Lögb.bl.
eru einnig taldir 50 aura pening-
ar, en það mun stafa af vangá, þvi
að slíkir peningar hafa aldrei ver-
ið slegnir í Danmörku, en 50-eyr-
ingar, sem hér hafa verið í um-
ferð, og hér kunna enn að vera til,
munu aðallega vera sænskir, ög
gildir vitanlega alt annað um þá
peninga en þá dönsku. Norskir
50-eyringar kunna þó einnig að
vera hér til.
Brauðsölubúðir
verða opnar til kl. 6 á gamlárs-
kveld, én að eins kl. 9—11 árdegis
nýársdag.
Tvö innbrot
höfðu verið framin hér i bæn-
um í fyrrinótt, annað í Fatabúð-
inni i Hafnarstræti 16 og hitt í
Bókaverslun ísafoldar. Úr „Fata-
búðinni" hafa verið teknar 250 kr.
i peningum, en óvíst um annan
árangur af fyrirtáeki þessu.
✓
St. íþaka nr. 194.
Enginn fundur í kveld vegna
jólatrésskenxtunar í húsinu. - Æt.
Af veiðum
komu í gær botnvörpungurinn
Geir og Hafþór, línuveiðari. Afli
fremur rýr.
Draupnir
kom frá Englandi í morgun.
Egill Skallagrímsson
fór út á veiðar í morgun.
Fisktökuskipið La France
kom að vestan i gær og fór í
moi-gun héðan áleiðis til útlanda
með fullfermi af fiski. •
Villemoes
kom frá Englandi í 11101-gun.
Athugasemd.
Morgunblaðið o|
í gær, í frásögn