Vísir - 01.04.1927, Side 3
V t b 1K
xim miður heiðarlega aðferð í
viðskiftum. þegar um sildarsölu
er að ræða. Jafnframt er það
ákveðin ákæra á síldarmats-
mennina yfirleitt um, að þeir
ræki störf sín við síldarmatið á
mjög sviksamlegan hátt.
f>ó svo kænlega sé orðum
hagað i ákæru erindrekans, „að
tunnur með góðri ágústveiddri
síld séu áfyltar með júlí-sild og
gagnkvæmt“, þá villir það eng-
um sjónir. pað dregnr ekki úr
sviksemis aðdróttununum.
l?að er svo sem ekki verið að
heinn ásökununum til neinna
ákveðinna síldarútflytjenda. Og
það er heldur ekki verið að
ákæra neinn sérstakan sildar-
matsmann. það er ekki einu
sinni gefin bending um, að óráð-
vendnin sé fremur í einu mats-
umdæmi en öðru. Nei. það er
bara almenn sviksemi, sem á sér
stað livað síldarverkun og síld-
armat snertir hér á landi, að
áliti érindrekans.
■Útdráttur úr slcýrslu erind-
rekans, sem ofanrituð klausa er
tekin úr, kom út í einu dagblaði
Bevkjavikur, seinni lilnta júni-
mánaðar f. á. Eg hefi fulla
ástæðu til þess að halda að hún
liafi verið komin sænskum sild-
arkaupmönnum i hendur um
miðjan júlímánnð, eða rétt í
bvnrjnn síldveiðitímans.
í Morgunbl., sem út kom 14.
ágúst f. á., er mjög áburðar-
mikil grein, um viðtal, er blaðið
bafði við forseta Fiskifélags Is-
lands út af sildarmarkaðinum
og síldveiðum Norðmanna bér
við land. Hefir blaðið það eftir
forsetanum, að bann vilji sam-
kepni en ekki samkomulag við
Norðmenn um síldarmarkaðinn.
í viðtalinu er einnig komist inn
á sildarmatið bér á landi og
bvernig það sé framkvæmt af
matsmannanna liendi. Forset-
inn var nýlega kominn úr hring-
ferð kringum landið og hafði
komið við í öllum umdæmum
vfirsíldarmatsmannanna og
kynt sér framkvæmd matsins.
Lýsti hann þvi svo að það væri
fcjóðarsmán. í þeirri lýsingu er
liöfð sama aðferðin og i skýrslu
■erindreka stjörnarinnar, sem áð-
ur er getið. Ásökununum er
ekki beint að neinum ákveðnum
matsmönnum eða malsumdæm-
um; heldur talað almennt og
enginn matsmaðnr eða mats-
umdæmi á landinu undanskilið.
Mér þykir sennilegt að þessi
grein. sem nú var nefnd, hafi
borist í bendur erlendra síldar-
kaupmanna síðast i ágústmán-
uði eða um miðjan síldveiðitím-
mann, svo þeir hafi haft tíma til
■að athuga hana áður en aðal
síldaksalan fór fram.
Fg ætla mér ekki að fara hér
-að svara þeim aðdróttunum um
vanrækslu við síldarmatsstörf-
in, sem eg og aðrir síldarmats-
menn eru þar sakaðir um. Enda
Iiggur nær að gera tilraun til
þess, að fá afmáðan þann
glæpamannsstimpil, sem Björn
Ólafsson, með áðurnefndum að-
dróttunum liefir reynt að festa
við mig ogaðrasildarmatsmenn.
En hvað sem öðru líður, þá er
það óneitanlega nýstárleg að-
ferð til þess að afla islenskri
sild nýrra markaðsstaða og álits
erlendra sildarkaupenda, að
gera sildarútflytjendur undan-
tekningarlaust tortryggilega í
augum innlendra og erlencka
manna og lýsa framkvæmd síld-
armatsins svo, að ef salt reyn-
ist hlýtur hver dórriari að dæma
matsmennina æruskerta svik-
ara, eða fábjána. Og vart trúi
eg því, að ekki hefði mátt fá
svipaðan söguburð um starf-
semi okkar síldarmatsmann-
anna við matið og fram kemur
í skýrslu Björns Ólafssonar,
fyrir minna verð liér á landi, en
ferð hans kostaði til útlanda. Að
minsta kosti ber umsögn forseta
Fiskifélagsins, sem prentuð er í
Mbl. 14. ág. f. á, vott um, að
annar en Björn hafi verið fáan-
legur til þess, að gefa út nokk-
uð svipaða auglýsingu um trú-
mensku okkar síldarmats-
manna.
Annars eru hyggindin um
síldarsöluna nokkuð svipuð hjá
báðum, Birni og forsetanum.
Annar ætlar að afla síldinni
nýrra markaðsstaða og trausts
erlendra kaupenda með sögu-
burðinum. Hinn hygst að nota
hann í samkepninni við Norð-
mennina. Og Björn er svo hug-
fanginn og hrifinn af hyggind-
um sinum og hagsýni í þessu
máli, að lionum er það „sjálf-
stætt hlátursefni“, að eg hefi
sýnt nokkurn efa á þvi, að þessi
nýstárlega og frumlega aðferð
hans í síldarsölumálinu muni
koma að fullum notum, með því
að gera ráðstafanir til þess að
fá dómarana til að athuga mál-
ið lítils háttar.
Eg geri ráð fyrir, að ástæðan
tii þess að B. 0. finst svo afar
hlægilegt að eg skyldi taka
skýrslu hans til stjórnarráðsins
alvarlega, sé sú, að hann sé bú-
inn að gleyma því, að harin var
erindreki stjórnarinnar þegar
hann samdi skýrsluna sem
söguburðinn og ásakanirnar
hefir að geyma. Hefði hann ekki
verið það, get eg vel fallist á það
með honum, að það sé dálitið
broslegt við það að taka skrif
hans i þessu máli alvarlega.
Reykjavik, 30. mars 1927.
Jón E. Bergsveinsson.
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavík 0 st„ Vestm.-
eyjum 2, Isafirði 1, Akureyri 2,
Seyðisfirði 0, (engin skeyti úr
Grindavík og Raufarhöfn),
Stykkishólmi 1, Grímsstöðum
~r~ 1, Hóluin i Hornafirði 3, Fær-
eyjum 3, Angmagsalik -f- 5,
Kaupmannahöfn 2, Utsira 3,
Tynemouth 6, Hjaltland 4, Jan
Mayen 2 st. Mestur hiti hér í
gær 5 st„ minnstur 2 st. — Úr-
koma 0,2 mm. Lægð við norð-
austurland á austurleið. Logn í
Norðursjó. — Horfur: Suðvest-
urland, Faxaflói og Breiðafjörð-
ur: í dag og nótt hægur vestan.
Gott veður. Vestfirðir og Norð-
urland: I dag og nótt hægviðri.
Dimmviðri og dálitil snjókoma.
Norðausturland og Austfirðir: í
dag allhvass norðvestan. Snjó-
koma. I riótt sennilega beti'a
veður. Suðausturland: í dag og
nótt hægur vestan. Gott veður.
Á ú
I
seijum við meðal annars kápuefni frá 5 kr. pr. mtr. — Góð morgunkjólaefni á 4 kr. í
kjólinn. — Hvít léreft frá 0.55 mtr. — Hvít flónel frá 0.6S mtr. — Tvisttau frá 0.76
mtr. — Góð manchettskyrtuefni frá 1 kr. mtr. — Einlitt, bleikt og blátt í sængurver
á 0.80 mtr. Gott fiðurhelt léreft frá 1.28 mtr. Kvensokkar frá 0.60 par. og fl. eftir því.
Vegna rnjög mikillar aðsóknar viljum við biðja þá heiðruðu viðskiftamenn okkar, sem
það geta, að kontia fyrri hluta dagsins til þes3 að fá greiðari afgreiðslu.
Marteim Einarsson & Co,
,<Jt€
Leikhúsið.
Afturgöngur eftir Henrik Ib-
sen verða leiknar næstkomandi
sunnudagskveld kl. 8. Aðgöngu-
iriiðar seldir í dag og á'morgun
kl. 4—7, en á sunnudaginn kl.
10—12 og eftir kl. 2.
Sérleyfi Titans.
Á fundi Stúdentafélags Reykja-
víkur í gærkveldi var rætt um
sérleyfi til Titans. Frummæl-
andi var Jakob Möller, alþm.,
og mælti mjög eindregið gegn
sérleyfisfrv. stjórnarinriar, eins
og bann hefir áður gert við með-
ferð málsins á Alþingi. Magnús
Guðmundsson atvinnum.ráðh.
hélt einn uppi vörnum fyrir sér-
leyfis-frv. silt. Meðal andmæl-
enda má nefna Steingrím Jóns-
son rafveitustjóra, sem var
mjög eindreginn móti sérleyf-
inu, og kom með margar nýjar
upplýsingar.I fundarlok var
samþykt i einu liljóði svofeld
tillaga frá Ludvig Guðmunds-
syni:
„Fundurinn er eindregið mót-
fallinn því, að h.f. Titan verði
veitt sérleyfi til að virkja Urr-
iðafoss í þjórsá.“
Bæjarstjórn ísafjarðar
liefir keypt „Neðstakaupstað“
á ísafirði fvrir 135 þúsundir
kröna. Stjórnarráðið staðfesti
kaupin í gær. «-
75 ára afmæli
á í dag Helgi Guðmundsson
fyrrum bóndi ó Hvítanesi í Kjós.
Háskólafræðsla.
I dag kl. 6—7. Dr. Kort K.
Kortsen, æfingar í dönsku. —
Ókeypis aðgangur.
Botnia
fer héðan á morgun, kl. 6
siðd., vestur og norður um land
til Akureyrar og hingað aftur.
Óðinn
kom úr eftirlitsferð í gær.
Issay Mitnitzky,
rússneski fiðlusnillingurinn,
sem von er á með „Lyru“, er
einn af frægustu fiðluleikurum
heimsins. — það eru listamenn
af þeirri tegund, sem verulegur
fengur er í að fá, til þess að
koma liingað til íslands, og er
vonandi, að hann vanti ekki á-
heyrendur þegar hann spilar
fyrir okkur. x.
Gestamót
liefir U. M. F. Velvakandi
annað kveld í Iðnó, fyrir alla
ungmennafélaga, sem staddir
eru i bænum, og hefst það kl.
814 nieð mjög skemtilegum
sjónleik. Ennfremur flytur Lud-
vig Guðmundsson erindi um
þýsku æskulýðshreyfinguna, þá
skemtir Ríkarður Jónsson, næst
verður upplestur o. fl., en að
lokum verður dans stiginn eftir
ágætum liljóðfæraslætti (Trio).
— Mikill fjöldi félaga dvelur
nú hér í bænrim, og þar sem
gfestamótunum er jafnan vel
tekið af þeim, má búast við mik-
illi aðsókn að vanda, enda er
inngangseyrir að eins kr. 2,50.
Sala aðgöngumiða hefst í Iðnó í
dag ld. 5—8, og þar sem fjöldi
þeirra er takmarkaðri en áður,
er ráðlegast fyrir þá, sem mótið
ætla að sækja, að tryggja sér
miða í tíma, og slculu menn
sýna skírteini sín um leið, þeir
sem þau hafa. G.
St. Víkingur nr. 104,
fer skemtiferð suður á Álfta-
nes sunnudaginn 3. apríl. peir,
sem vilja taka þátt i förinni,
geri svo vel að skrifa sig á lista
í Söluturninum og hjá Jóh.
Ögm. Oddssyni. Far kostar að
eins 2 kr. báðar leiðir.
Vísir
fæst framvegis í Tóbaksbúð-
inni Laugaveg 6■og í Tóbaks-
versluninni Austurstræti 12.
Ódýpt.
Egg á 16 aura stykkið, nýkom-
in, og rjúpur á 45 aura stykkið,
hamflettar, vel geymdar i ís.
Margt fleira mætti telja ódýrt.
Von. Sími 448
(tvær línur.)
Scandia eldavélar
Flatningsvélin
þýska hefir nú verið sett i
Skallagrím og er nú verið að
reyna hana.
Af veiðum
kom Apríl í gær og Hafþór
línuveiðari í nólt. Einnig kom
franskur botnvörpungur í morg-
un.
Suðurland
kom frá Borgarncsi í gær með
póstflutning að norðan og vest-
an.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 5 kr. frá N. N.
Gjöf
til drengsins á Sauðárkróki,
afh. Vísi: 5 kr. frá Huldu og
Ing\'a.
mæla best með sér sjálfar.
Höfum 7 stærðir fyrirliggjandi.
Emallleraðar, mlslitar og
óematlleraðar.
Johs. Hansens Enke.
Laugareg 3. Sími 1550«