Vísir - 20.06.1930, Side 2
'TISIR
mm^ta,7mm,^mSiá.7iiáSnm
VELJIÐ SÁPU YÐAR
MEÐ JAFN MIKILLI
UMHYGGJU
OG ÞÉR VELJIÐ
KLÆÐI YÐAR.
eææææææææææ
Ekki munduð þér kasta út peningum fyrir föt sem þér vissuð
áður að lítið mundu endast. Látið því sömu hyggindi ráða með
val sápunnar sem þér notið, þvi útlit fata yðar er komið undir
hyggindum yðar í þessa átt.
Ef þér notið SUNLIGHT sápu, styttið þér vinnutíma yðar og
sparið fé. Þessi sápa vinnur fljótt, og föt yðar endast lengi.
Gæði SUNLIGHT sápunnar eru trygð með krónum 20,000,00
og greitt þeim sem sannað getur að hún sé skaðleg.
LIÍVER
PRÓT*i
UM TLD
Slmskeyti
—o—
London (UP) 19. júni. FB.
Stjórnarskifti í Egiptalandi.
Kaíró: Konungurinn liefir
tekið til greina lausnarheiðni
stjórnarinnar.
Bretastjórn og atvinnuleysið.
Leiðtogi íhaldsflokksins
. breska, Stanley Baldwin fyrr-
vérandi forsætisráðherra hefir
skrifað Ramsay MeDonald for-
sætisráðherra og skýrt lionum
frá því, að hann geti ekki tekið
þátt í fyrirhugaðri ráðstefnu
' um atvinnuleysismálin, þar
sem stjórnin sé fráhverf þeim
ráðum til úrlausnar í atvinnu-
leysismálunum, sem íhalds-
menn fylgi. McDonald hafði
boðið Lloyd George að taka
þátt í ráðstefnu þ'essari fyrir
hönd frjálslynda flokksins.
Richard Beck,
háskólakennari, kom á fund með
templurum í stigstúku Reykjavík-
ur á miövikudagskveldiS. Eftir
fundinn var honum haldiö kaffi-
samsæti, og hélt Ijann þar .tölu um
á^andið í Bandaríkjunum, sérstak-
lega um hro'öasögnr sem þaðan
berast um drykkjuskap unga fólks-
ins; hann sagöi sögur þær, ekki
að eins ýktar heldur aö miklu til-
hæfulausar, og færöi mörg dæmi
þessu til sönnunar. Fundinn sátu
rm ioo manns. Dr. Richard Beck
ráðgeröi að flytja ítarlegt erindi
um banniö í Bandaríkjunum fyrir
templara meöan hann dveldi hér.
P.
Samkoma
veröur haldin í Nýja Bíó á
morgun (laugardag) kl. 4 síöd., til
að fagna Vestur-íslendingunum.
— Forseti samkomunnar veröur
borgarstjórinn í Reykjavík. Verð-
ur þar margt ágætra ræðumanna,
þ. á m. Einar H. Kvaran skáld, dr.
Guömundur Finnbogason, lands-"
liókavöröur, Ágúst H. Bjarnason,
prófessor, Árni Pálsson, bókavörö-
ur o. fl. Þá má búast viö því aö
einhverjir Vestur-íslendingar taki
til máls. Söngflokkur, undir stjórn
Jóns Halldórssönar ríkisféhirðis,
annast sönginn á samkomunni. —
Allir Vestur-íslendingar, sem
hingaö eru komnir eru boönir á
samkomu þessa, og fá þeir að-
göngumiða jafnótt og til þeirra
næst. Þar næst fá aðrir aðgang,
einkum vinir og vandamenn Vest-
ur-íslendinga, sem ganga fyrir. —
Aðgangur er ókeypis, þar eð eig-
andi hússins lánar það endur-
gjaldslaust.
Öllum,
sem laka þátt í íþróttasýn-
ingunum á Þingvöllum, tilkynn-
ist, að farið verður austur á
sunnudaginn kemur ld. 8 ár-
degis frá íþróttahúsi K. R. —
Farseðlar fást á bifreiðastöð
Meyvants.
Undirbúningshefnd Alþingishá-
tíðar tilkynnir, að hún sjái sér
ekki fært að óska þess, að veislu-
gestir á Þingvöllum séu í hátíða-
búningi, en að sjálfsögðu mundi
það prýða samkomuna í góðu
veðri, ef þær konur skautuðu,
sem þess eiga kost. — Æskilegt
væri, að karlmenn yrðu dökk-
klæddir í veislunum. FB.
Fulltrúar Þýskalands
á Alþingishátíðina koma hing-
að á M.s. Dronning Alexandrine
um helgina. Fulltrúarnir eru:
Karl Hildenbrand, fyrrverandi
sendiherra Wurttemburg í Ber-
lín, Emil Berndt, borgarstjóri i
Berlin-Fridenau, Herman Hof-
man, yfirkennari, Ludwigsha-
Polonia,
ferðamannaskip frá Austur-
Asíu-félaginu, kemur hingað þ.
25. þ. m. með ca. 500 farþega,
fer íiéðan aftur þ. 28. þ. m. Á
skipinu eru margar konur úr
dansk-amerískúm félögum —
Danish American Women’s As-
sociations. (FB.).
Íslandsglíman 1930
fer fram á Iþróttavellinum
annað kveld kl. 8y2. Iíeppendur
eru um 20, og meðal þeirra eru
hestu glimumenn landsins. —
Handhafi Glímubeltis í. S. í. er
Sigurður Tliorarensen (Á), en
Stefnuhornsins: Jörgen Þor-
bérgsson (Á.).
BlaÖamannaskrifstofan
er í húsi Helga Magngússon-
ar & Co. við Hafnarstræti. Til-
gangurinn með því að hafa þessa
skrifstofu er sá, að greiða fyrir
erlendum blaðamönnum, sem hing-
aö koma nú fyrir háíðina . Er
skrifstofan höfð opin að tilhlutun
t
U ndirbúningsnef ndar Alþingsha-
tíðar, sem hefir. falið stjórn Blaða-
mannafélags íslands að hafa stjórn
stofunnar á hendi. Stjórn Blaða-
mannafélagsins skipa nú Vilhjálm-
ur Þ. Gíslason, form,., Skúli Skúla-
son ritstj. og Tryggvi forsætisráð-
herra Þórhallsson. Hafa þeir Vil-
hjáhnur og Skúli starfað að undir-
búningi undir opnun skrifstofunn-
ar, í samráði við framkvæmdar-
stjóra Undirbúningsnefndar Al-
þingishátíðarinnar. — Allmargar
greinir hafa verið teknar saman
um ýms efni og þýddar á ensku,
þýsku og dönsku. í greinum þess-
úm eiga erlendu blaðamennirnir
að fá allar nauðsynlegustu almenn-
ar upplýsingar um land og þjóð og
menning landsmanna, enda er til-
gangurinn sá, að stuðla að því, að
áreiðanlegar fregnir af landi og
þjóð berist héðan. Mun ekki af
veita, að gera alt, sem gert verður,
til þess að fræða blaðamenn um
hiö rétta, því þekking þeirra all-
flestra á íslandi er vafalaust af
skornum skamti. Þeir Vilhjálnmr
Þ. Gíslason, Skúli Skúlason og
Axel Thorsteinson verða til skiftis
á skrifstofunni, auk aðstoðarfólks.
Vilhjálmur og Skúli verða að jafn-
aði við fyrri hluta dags, annarhvor
þeirra, en Axel frá 4—7 og 8—9.
— Verður stofan vafalaust aðal-
miðstöð iblaðamanna, erlendra og
innlendra, um hátíðina. — Sími
stofunnar er 2348.
Herskipakomur.
H. M. S. Rodney er væntan-
legt liingað á þriðjudag 21.
júní að morgni með Alþingis-
hátíðarfulltrúa Bretlands, lá-
varðana Newton og Marks, Sir
R, Hamilton og Mr. Noel Baker.
(F.B.).
Búnaðarsamband Austurlands.
Aðalfundur Búnaðarsamhands
Austurlands var haldinn að Eg-
ilsstöðum dagana 29.—30. maí.
Á fundinum mættu fulltrúar
búnaðarfélaganna á Austur-
landi. Þar voru mörg búnaðar-
mál til umræðu. Hin helstu
voru: Um tilraunabú á Austur-
landi, um hygging laxastiga við
fossana í Lagarfljóti, um forða-
gæslu, um starfsemi húnaðar-
sambandsins, um jarðabóta-
mælingar o. fl.
Fundinn sóttu, auk fulltrúa,
Bjarni Ásgeirsson alþm. og Sig-
urður búnaðarmálastjóri Sig-
urðsson.
(F.B.).
Enskt flutningaskip
kom liingað inn í fyrrinótt.
Skipið var á leið frá Hvítahafs-
höfnunum í Rússlandi með
timburfarm til Ameríku, er )
skipstjórinn veiktist og varð
liann hér eftir á sjúkrahúsi.
Skipið fór héðan í gærkveldi á-
leiðis til Ameríku.
Ökuskrifstofa AlþingishátíSarinnar tilkynnir:
Reglur
um akstur á Þingvallaveginum um Alþingishátíðina.
---o----
Frá 25. júní að morgni, til 29. júní að kveldi, gilda
eftirfarandi reglur um akstur á báðum Þingvallaveg-
unum.
1. Hinn 25., 26. og 27. júní eiga allar bifreiðar að aka
austur eftir gamla veginum og suður eftir nýja
veginum. 28. og 29. júní verður þessu snúið við.
Þá verður ekið suður eftir gamla veginum, og aust-
ur eftir nýja veginum. Varðmenn verða á öllum
vegamótum til þess að sjá um að þessu verði hlýtt.
2. Fólksflutningur frá ökuskrifstofunni gengur fyrir
öllum öðrum akstri um veginn 25.—29. júní. Þess
vegna verða þeir sem ætla að annast að einhverju
leyti fólksflutning til Þingvalla úr öðrum héruð-
um þessa daga, að haga ferðum sínum í samráði
við ökuskrifstofuna.
3. Þessa daga frá kl. 6 að morgni til kl. Í2 að kveldi,
verður engum bifreiðum með vöruflutning leyft
að fara um vegina. Allur vöruflutningur fer fram
á nóttunni frá kl. 12—6. Kl. 6 að morgni má engin
vöruflutningabifreið vera á veginum.
4. Bifreiðum einstakra manna verður aðeins leyft að
fara um veginn hvern dag svo sem hér segir.
Frá Reykjavík Kl. 7—9 árd.
— — — 1—2 e. h.
— — — 6—7 e. h.
— — — 12 á miðnætti.
— Þingvöllum— 9—10 árd.
— .— — 3—4 e. h.
— — — 10—11 e. h.
Á öðrum tímum verður umferð einkabifreiða
ekki leyfð um veginn.
5. Þeir bifreiðaeigendur sem hafa hugsað sér að aka
fólki til eða frá Þingvöllum gegn gjaldi, verða að
Iáta bifreiðar sínar til umráða ökuskrifstofunnar,
að öðrum kosti verður þeim ekki heimilað að aka
um veginn.
6. Engum bifreiðum verður leyfð umferð um veginn
nema þær séu í fullkomnu standi, svo að umferð-
in verði ekki heft vegna bilana sem stafa af lélegu
ástandi bifreiðanna.
7. Engin bifreið má aka fram úr annari án þess að
sérstaklega standi á, svo sem ef bifreið bilar á veg-
inum. Bifreiðarstjórar verða að gæta hinnar ýtr-
ustu varúðar í hvívetna.
Ilaaks
Þær vörubifreiðar, sem feknar liafa verið lil fólks-
flutninga um Alþingishátíðina, eiga allar að koma li!
eftirlits
Mánudagskveld 23. þ. m. kl. 8, í Skúlagötu
(h já Völundi).
Bifreiðarnar skulu allar vera með sætaútbúnaði, með
varadekk og að öllu levti í fullu standi til aksturs.
Bifreiðarst jórar þeir, sem eiga að stýra bifreiðunum
skulu vera með þeim.
ÖKUSKRIFSTOFAN.
Ppímusap
bæði til heimanotkunar og ferðalaga.' Þetía eru sönni frægu
OPTIMUS-vélarnar og við höfum selt að undanförnu.
Helgi Magnússon & £0.
rsþing
Sambands ísl. barnakennara hefst á morgun kl. 10 f. h,
í Iðnó (uppi).
S t j ó r n i n.