Vísir - 05.04.1934, Blaðsíða 2

Vísir - 05.04.1934, Blaðsíða 2
VtStB IIM LS I M fflCQ4 BEÍ1SD0RP Bussum-Hoohmo ^Öiðjið kaupmann yðar um -G&c&ci' I BUSSUM - HOLLAND // ' Það er drýgst og best og því ódýrast. Fæst í pökkum með 1/8 og 1/4 kg. og pokum með 5 kg. HeildsSIubirgðir. Símsí 1234. MiiHairiii þó rétí og sjálfsagl, að beita liöf- Héðinn Valdimarsson er að reyna að bera það af sér i Al- þýðublaðinu í gær, að bann hafi átt nokkurn þátt í svivirðingar- greinum þeim, sem Alþýðublað- ið flutti í síðásta mánuði i sam- bandi við réttarrannsóknina út af seðlahvarfinu í Landsbank- anum. Það er nú i sjálfu sér góðra gjalda vert, að liann skuli þó að minsta kosti vilja láta lita svo út, sem hann kunni að skammast sín. En eins og áður liefir verið vakin athygli á hér i blaðinu, þá er það nú Héðinn Valdimarsson einn, sem ber á- byrgð á skrifum Alþýðublaðs- ins gagnvart lesöndum þess. Það .er hann, sem réði öllu um þá bpeytingu, sem gerð var á rit- stjórn blaðsins á s.l. hausti, og þeir andlegu kryplingar, senl hann hefir ráðið til þess, að fylla dálka blaðsins, eru ekki þess megnugir í augum almennings, að bera slíka ábyrgð. Og þess vegna er það líka, að Vísir lief- ir beint orðum sínum til Héð- ins Valdimarssonar, þegar hann hefir rætt um óþverraskrif Al- þýðublaðsins út af rannsókn- inni á Landsbankamálunum. — Og nú hefir líka þessi liöfuð- skepna Alþýðublaðsins sjálf dregið sig i dilk með öðrum sorpriturum blaðsins, fyrir allra augum, svo að ekki verður um vilst, að þar á lnin heima. Þegar Visir tók að gagnrýna tilraunir Alþýðublaðsins til að „umbæta“ islenska blaða- mensku, sérstaklega í sambandi við skrif þess um bankamálin, þá hét Alþýðublaðið þvi, að starfsemi Jakobs Möller sem bankaéftirlitsmanns skyldi verða tekin til rækilegrar at- hugunar í blaðinu. Engum duld- ist, að í þessum ummælum fólst hótun um það, að þess skvldi verða grimmilega hefnt, hvern- ig Vísir snerist við svivirðingar- skrifum Alþýðublaðsins út af bankamálunum. En svo liðu fram stundir, að engar urðu efndir á þessum hótunum, þar til loks i gær, að sjálf höfuð- skepnan, Héðinn Valdimarsson, ræðst fram á ritvöllinn, til þess að taka svari sorpritaranna, og afsakar liann drátt þann, sem orðið hafi á efndunum, með því, að hann liafi ekki komist til þess að sinna ritstörfum, fyr en á páskunum! — Með þessu er það gert uppvíst, að jafnvel þó að Alþýðublaðið verði að notast við ómerkilegri skepnur til almennra skítverka, þá þyki uðskepnunni fyrir, þegar meira liggi við, enda hún að sjálf- sögðu reiðubúin að verja bæl- ið, ef henni finst eitthvað ó- mjúkt lekið á hvolpuuum. Héðinn byrjar liugvekju sína á því, að Alþýðublaðið sé eina blaðið í Reykjavík, sem hafi upplýst, rætt og átalið yfirdrátt- arsvik þau, sem uppvíst hafi orðið um í bönkunum, og’ gert kröfu til fylstu rannsóknar þeirra, en sérstaklega hafi Vísir tekið að sér að verja svikin. — Með þessu er gefið í skyn, að það eitt liafi vakað fyrir sorp- riturum Alþbl., að upplýsa þessi mál og ganga eftir þvi, að þau yrðu rannsökuð til hlítar. En hér í blaðinu hefir verið sýnt og sannað svo áþreifanlega, að ekki verður hrakið, að Alþbl. kostaði fyrst og fremst kapps um það, að skýra þannig frá málavöxtum og rannsókn þess- ara mála, að mönnum þeim, sem við þau voru riðnir, mætti verða sem mest svívirðing að, og að í þeim tilgangi var oft og einatt skýrt algerlega rangt frá staðreyndum. Varð Alþýðu- blaðið jafnvel að éta sumar rangfærslurnar ofan í sig í sín- um eigin dálkum. Höfuðtil- gangur blaðsins með þessmn skrifum var því bersýnilega sá, og sá eini, að svívirða sem eftir- minnilegast og á hinn níðings- legasta hátt menn, sem að vísu höfðu gerst sekir um misfellur i störfum sínum, en voru jxmn- ig settir, að þeir áttu þess eng- an kost, að bera Iiönd fyrir höf- uð sér. Og það var ekki látið við þetla sitja, heldur var reyiit á allan hátt að vekja sem mest- an grun um, að sem flestir sam- starfsmenn þessara manna væri undir sömu sekt seldir og þeir, eða enn verri. Þeir menn gátu heldur ekki borið hhnd fyrir höfuð sér, Jægar af þeirri á- slæðu, að cngir voru nafn- greindir. Á þann hátt, sem hér hefir verið lýst, haga sér ekki áðrir en óþokkar, en íslenskri blaða- mensku til svívirðingar liefir einmitt slíkum óþokkum vei'ið falið það ábyrgðarmikla hlut- vei'k, að skrifa Alþýðublaðið. En yfirstjórn óþokkaverkanna lxefir Héðinn Valdimarsson haft á liendi. Auðvitað er það algerlega rangt, að Vísir eða önnur blöð hafi á nokkurn hátt „varið svik- in‘f eða reynt að telja úr því, að þessi mál yrði rannsökuð til hlitar. Vísir hefir að eins stað- lxæft, að „ávísanasvik“ þau, sem Alþýðublaðið gerði að höfuð- umtalsefni, hefði verið knnn fyrir löngu og þær sakir verið látnar falla niður. Og’ i þvi sam- bandi var vakin athygh á því, að Héðni Valdimarssyni hlyti að hafa verið kunnugt um þau þegar í nóvembermánuði s.l., en i stað þess að láta þá rannsaka málið, hefði hann, að dómi Al- þýðublaðsins nú, gerst meðsek- ur um yfirhylmingu þeirra. Héðinn segir nú í grein sinni í Alþbl. i gær, að i nóvember hafi ekld orðið uppvíst nema um eina ávisun, að upphæð 15 þús. kr., sem legið hefði i 20 daga óinnleyst lijá gjaldkera. En Alþýðublaðið hefir áður skýrt frá þvi, að samtimis hafi fundist i sjóði gjaldkerans ávis- anir fx'á sama útgefanda að upp- lxæð um 25 þús. kr. (samtals um 40 þús. kr.). Og þó að furðu- legt kunni að þykja, ]xá mun nú Alþbl. liafa sagt rétt fi'á þessu, en Héðinn er að reyna að ljúga sig út xir allri ábyrgð, með því, að skýra rangt frá. Með því gei'ir hann sér þó lítið gagn, þvi að i þessu sambandi skiftir það litlu nxáli, hvort upp- hæðin var 15 eða 40 þús. Héð- inn segii’, að það hafi ekki þurft að vera sviksemi, að þessi 15 þús. kr. ávísun lá i sjóðnum og hafði legið óinnleyst þar í 20 daga. En það er þá lika játað, að hann Iiafi ekkert um það vit- að, hvorl Hm sviksemi væri að ræða í því sambandi, en þó. láí- ið það mál niður falla órann- sakað. Og nú var þó að sjálf- sögðu ástæða til að athuga það líka, hvernig væri ástatt um liinar ávisanirnar, sem lágu í sjóðnum, þó að þær bæri það ekki með sér, að þær liefði lég- ið þar eins lengi. En á því er enginn vafi, að Héðni lxefir líka verið kunnugt unx þær ávisan- ir, þvi að i gi-ein sinni vei'ður honum á, að tala um „þessar á- visanir“, senx liafi legið i sjóðn- um, þó að áður hafi Iiann stað- liæft, að að eins lxefði verið um eina ávisun að ræða. Það er þannig alveg’ fullvíst, að í nóv- exnber i liaust, var alveg eins ástatt um þessar ávísanir, eins og í mars, og ef ástæða var lil að láta lögreglurannsókn fara fram út af þéini í mai’s, þá var lika ástæða til þess í nóvember, því að ávisanii’nar voi'u þær sömu, og frá því i nóvember er ekki kunnugt um, að neinar slíkar ávísanir hafi fundist í vörslum gjaldkerans. — Þess vegna er það, að hér er að eins um gamlar sakir að ræða, sak- ir, sem höfðu verið lálnar falla niður af bankastjórn og banka- ráði -— að meðtöldum Héðni Valdimarssyni. Og við þetta má nú bæta því, að alveg samskonar mál kom upp i Útvegsbankanum fyrir skemstu, og vakti Héðinn líka athygli á sér í sambandi við það, því að í grein í Alþbl. áfeldist hann á sinum tinxa bankastjórn bankans þunglega fyrir það, að liún hefði látið þær sakir niður falla, án þess að réttai’rannsókn færi fram. Eix i stjórn Útvegs- bankans eru senx kunnugt er ekki að eins eiixn flokksbróðir Héðins, Jón Baldvinsson, banka- stjóri og foi’seli Alþýðusanx- bands íslands, lieldur lika baiikaráðsixxaðurinn Stefán Jóh. Stefánsson. Þessir tveir mikils- metnu flokksbræður Héðins lxafa þannig líka gei-st sekir um samskonar yfirliylmingu, eins og Héðixxn sjálfur. En talsverð- ur munur er nú sarnl á þessum þremur mömxum. Þeir Jóix Bald. og Stefán Jóh. tóku þvi með kristilegri þolimxiæði, þeg- ar Héðinn var að átelja þá fyr- ir það, að láta ,yfirdráttarsvikin‘ í Útvegsbankanum falla niður. Héðinn hlaut þá að vita sig sek- an um alveg sömu vanræksluna í sinu starfi í bankaráði Lands- bankans, og er það alveg furðu- lcgt, að hann, með ]xá sektai’- meðvitund í brjósti, skyldi geta fengið sig til þess að vega þann- ig aftan að þessurn tveimur ílokksbræðrum sínum í þeirra eigin blaði. Er slikur yfii'dreps- skapur andstyggilegri en svo, að hann verði nógsamlega átalinn. Og milrið má vera það kristi- lega uinburðarlyndi, sem þeir Jón Bald. og' Slefán Jóh. eru gæddir, ef þeir hafa ekki eitt- livað svalað sér á Héðni, þegar uppvíst vai'ð unx afstöðu hans til „yfirdráttarsvikanna“ í Landsbankanum í nóvember s.l. Héðinn segir nú, að það sé ekki sitt starf, að telja sjóð gjaldkera, heldur endurskoð- enda bankans. Það kenxur auð- vilað engum á óvart, þó að nxamiskepna eins og Héðiixn Valdimarsson neyti allra bragða og jafnvel hinna tuddalegustu, til þess að firra sig ábyrgð, þeg- ar ábýrgð á að gera gildandi gegn honum. En þessi snxuga hans bak við endurskoðendur bankans er lxonum þó ónýt, af því að endurskoðendurnir höfðu í nóvember talið sjóð gjaldkera og tilkynt bankai’áðsnxannin- unx Héðni Valdimarssyni, að þeir hefði fundið í sjóðnum 15 þús. kr. ávísun úlgefna fyrir 20 dögum af Mjólkurfélaginu og ennfremur ávísanir að upp- hæð 25 þús. kr. frá sama aðila útgefnar síðar. Það verður þannig ekki betur séð, en að endurskoðendur séu úr sök. En bankaráðsmaðurinn Héðinn Valdimarsson, sem fær tilkynn- ingu um þessar misfellur í nóv- epiber, lætur þær niður falla þá um sinn, hylmir vfir þær, en byrjar svo i marsmánuði að ausa svívirðingunx yfir aðra menn út af þessum misfellum, en þvkist hvergi nærri konia sjálfur. Og jafnvel svo and- styggilega lítilmótlegur gerist hann, í tilraunum sínum lil þess að konx sér undan ámæli, að hann svífist þess ekki, að benda á undirnxenn sína, end- urskoðendur bankans, senx þá seku, þrátt fyrir það þó að þeir endur fyrir löngu hefði gert honum aðvart unx misfellurn- ar. í annan stað lýsir hann syo sökunx á hendur eftirlitsmann- inunx með bönkum og spari- sjóðum, fyrir það, að hann liafi vanrækt starf sitt, starf, sem hann (II. V.) sjálfur hefir, nieð atkvæði sínu i bankaráði Landsbankans mælst til að bankaeftirlitsmaðurinn yrði ekki látinn framkvæma og staðhæft að væri alveg óþarft að láta liann framkvænxa, vegna þess, hve tryggilega væri um alt búið af liálfu banka- ráðsins. Nei, Héðni stoðar það ekk- ert, að skríða þannig úr einu fylgsninu i annað. Hann verð- ur eltur uppi, livar sem hann reynir að fela sig. Ef þær sak- ir, sem unx er að ræða í sam- bandi við „yfirdrátt“ Mjólkur- félagsins i Landsbankanuni, eru eins þuixgar og Alþýðu- blaðið liefir viljað lála almenn- ing’ trúa, þá er sökin, sem hvíl- ir á Héðni, fyrir það að liann hefir hylnxað yfir með þvi og Papplrsvörnr og ritföng: gjaldkerum bankans, mánuð- um sanxan, lika svo þung, að hann getur ekki undir henni risið. En sekt lxans verður æ því meiri, sem hann gerir íleiri og ámátlegri tilraunir til þess að velta henni af sér yfir á aðra. Hrodalegt bifreiðarslys. Bifreið ekið á tvo drengi. Annar þeirra bíður bana. Hroðalegt bifreiöarslys varö hér innarlega á l.augavegi i gær síö- ciegis, kl. aö ganga sex. Maöíir aö nafni Magnús Jóhannessoh sjómaöur á Kára Sölmundarsyni, haföi fengiö lánaöa bifreiöina RE 932. Voru tveir félagar hans af Kára meö honunx. Bifreiðin'ni var, aö sögn. ekiö ógætilega, og þegar hún var koniin aö húsinu nr. x go viö Laugaveg, rakst hú« á steintröppur viö þaö. V'arö áreksturinn nieö svo mikluhx krafti, aö bifreiöin skemdist mikiö aö framan, beyglaöist stórkostlega og gúmmíhringarnir hrukku af framhjólunum, en bif.reiöin hentist áfram og stöðvaðist ekki fyrr en nokkrum nxetrum austar á göt- unni. Þarna voru börn að leika sér og urðu tveir drengir fyrir bifreiöinni. Meiddist annar þeirra, 10 ára gamall, svo nxjög á höfði, aö hann andaðist skömrnu siðar eöa laust fyrir kl. 7. Hafði hann verið fluttur á Landspítalatm og andaöist hann þar. Hjól bif- reiðarinnar höfðu fariö yfir höfuö drengsins og höfuökúpan brotnaö. Hann hét Þórlákur og var sonur Ara Eyjólfssonar, sem veitir for- stöðu garnahreinsunarstöö Sain- b.auds íslenskra samvinnufélaga. Hinn drenginn sakaöi lítiö. Magnús játaði fyrir rétti, aö hann heföi neytt áfengis í gær. Hinsvegar var ekki lokiö ránn- sókn á því í morgun, hvort han« var undir áhrifum vins, þeg'ár slysiö bar að hönclum. Rannsókn nxálsins stendur enn yfir. Landhelgisbrot. —o—- Varöskipið Þór kom hingað i gær með breskan botnvörpung, Welbeck (Gy — 165), sem hann hafði tekiö á rnóts við Hafnir áö veiöum í landhelgi. Hafði þessi sami botnvörpungur í gærmorguw veriö nærgöngult á rhiöunx þeirra Hafnamanna og eyöilagt veiðar- færi þeirra. Var kært til.stjórnar- ráösins, sem fyrirskipaði aö láta taka próf í málinu, en jafnframt var varðskipinu gert aðvart. Þeg- ar I>ór var á leiðinni hingaö fifá Vestmaunaeyjum meö efni til við- geröarinnar á Belgaum, sem ftutt var frá útlöndúm til Vestmanna- eyja, sá ,varöskipiö til both- vörpungs i landhelgi, og reyndist þaö sá sami, sem var á miöum þeirra Hafnanýinna. Þqr íluffci Ijótrtvörpunginn hingaö og hófö’st léttarhöld i nxorgun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.