Vísir - 02.04.1936, Blaðsíða 2
VlSIR
Svör Hitlers
birt.
Ribbentrop og formaður þýsku sendisveitar-
innar í London afhentu Anthony Eden svörin
í gær. Hitler býður nágrannaríkjunum upp á
hlutleysissamninga og heitir hinum Locarno-
ríkjunum allri aðstoð sem herafli Þýskalands
má veita, gegn samskonar aðstoð frá þeim, ef
um árás á Þýskaland sé að ræða. Hitler ætlar
ekki að auka herliðið í Rínarbygðum, né að
færa herliðið þar nær landamærum Frakk-
lands og Belgíu.
London 2. apríl.
von Ribbentrop og sendi-
nefndin þýska í London hafa nú
afhent bresku stjórninni svör
Hitlers við Lundúnatillögunum.
Fór afhendingin fram í utanrík-
isráðuneytinu og tók Anthony
Eden við svörunum og er nú
kunnugt orðið um efni þeirra.
Breska stjórnin hefir þegar
haldið fund til þess að ræða þau
og Anthony Eden átt viðræður
um þau við fulltrúa ríkisstjórn-
anna í Frakklandi og Belgíu.
f orðsendingunni býður Hitl-
er þau boð af hálfu Þjóðverja,
að nýr „Locarnosáttmáli“ verði
gerður til þess að tryggja frið-
inn í álfunni eða sáttmálar, sem
verði til meiri tryggingar því,
að friðurinn haldist en Loc-
arnosáttmálinn. Leggur Hitler
til, að samkomulag verði um
það, að gerðir verði hlutleysis-
samningar milli Þýskalands og
nágrannaríkjanna, en í þeim
verði gagnkvæm ákvæði um
loforð um aðstoð, ef á samn-
ingsaðila verði ráðist. Ennfrem-
ur býður Hitler Frakklandi,
Belgíu, Ítalíu og Bretlandi fulla
aðstoð herafla Þýskalands, ef
Þjóðverjar yrði aðnjótandi
samskcnar aðstoðar fyrr-
nefndra fjögurra ríkja, undir
sömu kringumstæðum, þ. e. tilj
þess að hrinda árás ríkis, sem
rýfur friðinn.
1 svörum sínum leggur Hitler
enn á ný áherslu á, að hann ætli
sér ekki að auka heraflann í
Rínarbygðum meira en orðið
er eða flytja það herlið, sem
þar er, nær landamærum
Frakklands og Belgíu næstu
fjóra mánuði, en í rauninni er
yfirleitt gert ráð fyrir því í
svörum Hitlers að þennan fjög-
urra mánaða tíma verði reynt
að ná samkomulagi um öll
deiluatriðin, og geri ekkert Lo-
carnoríkjanna neinar hernaðar-
legar ráðstafanir þeirra vegna
á þessum tíma, og við landa-
mæri Þýskalands annarsvegar
og Belgíu og Frakklands hins-
vegar verði alt látið sitja við
það sem er þennan tíma.
Þá leggur Hitler til, að sér-
stakur dómstólí verði skipaður
til þess að úrskurða um öll at-
riði vegna sáttmálanna, sem
deilum kunna að valda.
Loks leggur Hiíler til að not-
kun vissra tegunda hergagna
verði takmörkuð og sérstök á-
kvæði sett til þess að draga úr
hættum af loftárásum. (Uni-
ted Press—FB).
von RIBRENTROP.
Blindratrygg-
ingar í Noregi.
Oslo, 1. apríl.
Rikisstjórnin hefir lagt fram
tillögur um tryggingár fyrir
blinda og fatlaða. Útgjöld rikis-
ins vegna þessara trygginga eru
áætluð 550.000 kr. Eitt þúsund
blindir menn og 350 fatlaðir
munu fá 360 til 180 króna iár-
legan styrk. (NRP. — FB.).
Utan af landi
Afli Akranesbáta svo rýr, að
ekki svarar kostnaði að stunda
sjó.
Akranesi 1. apríl. FÚ.
Undanfarnar vikur liafa
nokkrir bátar af Akranesi róið
við og við, en fengið svo lítinn
afla, að alment þykir ekki svara
kostnaði að stunda sjó. Bátarn-
ir hafa oftast róið norður og
vestur í flóann, 30—40 kvart-
mílur á mið, sem á undanförn-
um árum hafa talist fiskisæl, en
várla orðið fiskvarir. Sá fiskur,
sem veiðist er úttroðinn af síli
og tekur varla beitu. Ýmsir sjó-
menn bafa þó von um að afli
glæðist síðar á þessari verlið, ef
sílið fer.
Slys.
1. apríl. FÚ.
Nýlega varð Pétur Þórðarson
bóndi í Hjörsey á Mýrum fyrir
því slysi að detta af hestbaki og
meiða sig innvorlis.' — Liggur
bann allþungt baldinn en lækn-
ir hefir þó von um bata.
Selveiði í Hergilsey og Flatey.
Flatey 1. april. FÚ.
Bændur úr Hergilsey og Fiat-
ey fóru nýlega í félagi á svo-
nefnt selafar. Er þá Iagt sterkt
net fyrir vog, sem selurinn ligg-
ur í og netið dregið inn eftir
voginuin uns alt svigrúm er
þrotið. — í þetta sinn veiddust
22 selir og er það talin góð veiði.
Fóðurbirgðakönnun.
er nýlokið í Flateyjarhreppi, og
voru góðar lieyástæður.
Hagsmnnir atuinnurekenda
og hagsmunir olíu-
verslananna rékast á.
Socialistap slá skjaldborg
um ólíuverslanirnar.
Sakir þeirrar óreiðu, sem
hefir verið á gjaldeyrisverslun-
inni, og m. a. hefir valdið því,
að vanskil hafa orðið á greiðsl-
um fyrir innfluttar nauðsynja-
vörur til útgerðarinnar, sem
gjaldeyrisleyfi hafa þó verið
veitt fyrir, hefir það að undan-
förnu verið vaxandi örðugleik-
um bundið, að afla þessara
nauðsynja, svo að til vandræða
hefir horft. Hafa sjálfstæðis-
menn á þingi þvi lagt það til,
að sú breyling yrði gerð á lög-
unum um gjaldeyrisverslunina,
að útgerðarmönnum skuli
heimilað að ráðstafa stundum
gjaldeyri, sem þeim fellur til,
að því leyti sem þeir þurfa hans
með til greiðslu á andvirði inn-
fluttra nauðsynja til útgerðar-
innar. Hefir fjárhagsnefnd
neðri deildar haft mál þetta til
athugunar, og í samráði við
bankana og innflutnings- og
gjaldeyrisnefnd, liefir meiri
hluti nefpdarinnar orðið sam-
mála um að lieimila útgerðar-
mönnum frjáls umráð yfir
gjaldeyri sínum, til greiðslu á
andvirði kola, salts og olíu, eins
og þörf krefur. Aðeins einn
nefndarmanna var því andvíg-
ur, að slík heimild yrði veitt, og
var ]iað soeialistinn, sem þar á
sæti, Stefán Jóh. Stefánsson. En
undir umræðum um málið i
neðri deild i gær, kom það i
ljós, að allir soeialistarnir í
deildinni mundu leggjast á móti
málinu.
Það er nú fróðlegt að athuga,
livaða rök socialistarnir færa
fvrir þessari afstöðu sinni.
Stefán Jóh. Stefánsson ber
því við, að þessi heimild til und-
anþágu frá hinni almennu reglu
gjaldeyrislaganna muni valda
svo miidum örðugleikum á
framkvæmd þeirra, að ekki sé
fært að lögleiða hana. I annan
stað telur hann heldur . ekki
þörf slíkrar heimildar, því að
næg trygging sé í gildandi lög-
um fyrir þvi, að útgerðarmenn
geti fengið erlendan gjaldeyri
til þeirra greiðslna, sem um
ræðir. Þessi rök St. Jóh. St.
virðast liinsvegar tæ])lega geta
staðist, úr því að þeir aðilar,
sem ábyrgð bera á framkvæmd
gjaldeyrislaganna, bankarnir og
gjaldeyrisnefndin, sjá sér ekki
fært að leggjast ó móti þessari
breytingu á lögunum, en eru
henni miklu fremur meðmælt-
ir. —
Héðinn Valdimarsson liélt því
fram, að þessi breyting á gjald-
eyrislögunum væri grímuldædd
tilraun til þess að fella gengi
íslenskrar krónu. En enginn
flokksmanna hans treysti sér til
að taka undir þá firru. Það er
líka auðsætt, að allar ráðstafan-
ir, sem gerðar eru til þess að
tryggja það, að staðið sé í skil-
um með áfallnar greiðslur i er-
lendum gjaldeyri, miða að því
að balda uppi gengi krónunnar.
ÖII vanskil í þeim efnum eru
hættuleg genginu.
Þriðji ræðumaður soeialista,
Finnur Jónsson, kvað þessa
undanþágu frá gjaldeyrislögun-
um ekki koma smá-útveginum
að nokkuru gagni, en gela orð-
ið honum liættulega, vegna þess
að honum mundi reynast örð-
ugra að fá erlendan gjaldeyrj til
sinna þarfa, og undruðust allir
þá lokleysu.
Það er kunnugt, að einmitt
smáútvegsmenn um land alt
hafa verið að stritast við það,
að losa sig undan einokunar-
helsi olíuverslananna, með því
að stofna til samtaka um inn-
kaup á oliu. En þær tilraunir
liafa strandað á örðugleikunum
sem verið liafa á því, að fá er-
lendan gjaldeyri til greiðslu á
andvirðinu. Það er liinsvegar
alkunnugt, að ef innflutningur
væri frjáls á olíu, og engar
liömlur á greiðslum fyrir hana,
þá mundi olíuverðið lækka að
verulegum mun. Hag smáút-
gerðarinnar mundi þvi að
tvennu leyti betur borgið með
þessari breytingu á gjaldeyris-
lögunum. Því að með henni
yrði vélbátaeigendum ekki að
eins trygður innflutningur á
olíunni, heldur einnig lægra
verð.
En það er augljóst, livar fisk-
ur liggur undir steini hjá socia-
listum. Það eru ekki örðugleik-
arnir á framkvæmd gjaldeyris-
laganna, sem þeir óttast. Það er
ekki geng'i krónunnar, sem þeir
bera fyrir brjósti. Og síst af
öllu eru það hagsmunir smá-
útgerðarinnar, sem þeir eru að
verja.
Það eru liagsmunir steinoliu-
liringsins og Héðins Yaldimars-
sonar, sem þeir eru að slá
skjalborg um. Það er gróði
Héðins á oliunni sem er í hættu,
ef veitt verður þessi undanþága
frá gjaldeyrislögunum. Frjáls
innflutningur á olíu Iilýtur að
leiða af sér verðlækkun — og
minni gróða í vasa Iléðins. Það
er þetta, sem socialistar vilja
koma í veg fyrir.
Efri deild.
1. Frv. til 1. um afnám 1. um
samþ. um herpinótaveiði. Frv.
var samþ. og visað til 3. umr.
2. Frv. til 1. um breyt. á 1.
um þingsköp Albingis. Frh. 2.
umr. Enn urðu töluverðar um-
ræður um málið, en þegar þeim
var lokið var atkv.gr. frestað,
sökum þess að svo marga vanl-
aði í deildina, en málið var ekki
lekið út af dagskrá.
3. Frv. til 1. um landsmiðju.
2. umr. Fjárhagsnefnd hafði
klofnað um málið. Meiri hlut-
inn (J. B. og B. St.) mæla með
því, að frv. vérði samþ., en eru
þó elcki alVfeg sammála, þvi að
B. St. hefir þó fyrirvara um
fylgi sitt. -— Minni hlutinn, M.
.1., kemur fram með sérstakt
nefndarálit og leggur til að frv.
verði felt. — Umræður hófust
um málið, en var ekki lokið, og
nlálið tekið út af dagskrá.
Þá var tekið fyrir 2. mál: At-
lcvæðagr. um þingsköp Alþing-
is, því stjórnarliðið hafði þá séð
svo um, að þeirra flokksmenn
væru allir viðstaddir.
Magnús Guðmundsson spurð-
ist fyrir um það, hvort ekki
væri rétt að fresta atkv.gr. þar
til allir þingmenn væru við-
staddir (það vantaði 2 sjálf-
stæðismenn á fundinn), fyrst
atkvæðagr. hefði verið frestað
áður vegna þess að nokkra
stjórnarliða liefði vantað. —
Sumir þingmenn vildu bíða í 10
mínútur, aðrir vildu bíða í 15
mínútur og nokkrir vildu fresta
fundi til kl. 9 siðd. en ekki fékst
samkomulag.
Jón Auðun skýrði frá því, að
á síðasta þingi hafi atkvæðagr.
verið frestað 6 sinnum á sömu
nóttu, meðan verið var að
smala stjórnarliðinu á fund. —
Jónas sagði að best væri að
nota 10 mínúturnar og ætlaði
að fara að tala um eitthvað, en
honum varð orðfall er allir
sjálfstæðismenn stóðu upp og
gengu af fundi.
Við þessa atburði varð lilé á
fundinum í nokkrar mínútur
þar til forseti lýsti því yfir, að
atkv.gr. færi fram, þar sem
meira en lielmingur þingmanna
deildarinnar væru á fundi.
Atkvæðagreiðslan fór síðan
fram og voru allar breytingar-
till. allslierjarnefndar samþ,
með 9 atkv., en feldar voru all-
ar breytingartillögur frá Magn-
úsi Guðmundssyni og Þorsteini
Briem, og sömuleiðis frá Þorst.
Þorsteinssyni.
Málinu var siðan vísað til 3.
umr. með sömu 9 atlcv.
Neðri deild.
Þar voru 9 mál á dagskrá, en
aðeins 2 voru afgreidd.
. 1. Frv. til 1. um sérstaka dóm-
þinghá í Djúpárhreppi í Rang-
árvallasýslu. 3. umr. Frv. var
umræðulaust samþ. og afgreitt
til e. d.
2. Frv. til 1. um löggildingu
verslunarstaðar í Hjarðardal í
Önundarfirði. 2. umr. Engar
umræður og málinu vísað til 3.
umr.
3. Frv. til 1. um breyting á 1.
um gjaldeyrisverslun. Frh. 2.
umr. — Urðu miklar umræður
uin málið og varð ekki lokið,
og málið tekið út af dagskrá,
ásamt öllum þeim málum sem
efíir voru á dagskránni.
Ný þingmál.
Frumv. til laga um vátrygg-
ingarfélög fyrir vélbáta. Frá
sjávarútvegsnefnd.
Frv. til laga um jarðakaup
ríkissjóðs. — Flm. Páll Zopli.,
Bjarni Ásgeirss., Emil Jónsson.
E m bættai?étt~
indi norskpa
kvenna.
Oslo, 1. aprih
Öðalsþingið samþykli í gær
með 64 gegn 38 atkvæðum til-
lögur dómsmálanefndarinnar
um aðgöngurétt kvenna til allra
embætta ríkisins, einnig prests-
embætta. Með tillögunum
greiddu allir alþýðuflokksmenn
deildarinnar atkvæði, 2 hægri-
menn, 8 vinstrimenn og 3
bændaflokksmenn. (NRP.
Húsavík 1. apríl. FÚ.
Snjóbíllinn
er sendur var til Húsavíkur fór
í fyrradag híaðinn fóðurmjöli
íil Bárðdælinga komst til
Lundarbrekku i gærkveldi. I
nótt hlóð enn niður mildum
snjó í Þingeyjarsýslu.
Oslo, 1. apríl.
Ný skottulækningalög í Noregi.
Ríkisstjórnin befir lagt fram
tiilögur um ný skottulækninga-
lög með allmjög þyngdurn
hegningarákvæðum og ýmsum
nýjum bannákvæðum. Jafn-
framl hafa verið lagðar frarn
tiliögur um lög, er viðuvkenna
sjúkraleikfimikennara og nudd-
lækna. (NRP. — FB.).
Leikhúsið.
Spanskflugan. Gamanleik-
ur í 3 þáttum. Eftir Arn-
old og Bach.
Leikfélag Reykjavíkur hefur
nú enn á ný að sýna Spanskflug-
una. Er sá gamanleikur Reyk-
víkingum svo vel kunnur, að ó-
þarft mun að rekja efni Iians
hér, og nægir að segja það eitt,
að liann mun vera meðal
skemtilegustu gamanleika, sem
hér liafa verið sýndir og var
Jirifning áhorfenda mjög mikil
á frumsýningunni s. 1. Burmu-
dag.
Friðfinnur Guðjónsson leikur
aðalhlutverkið, Ludvig Klinke,
sinnepsverksmiðj ueiganda, sem
áður. Fer honum meðferð þess
ágætlega úr hendi, enda er það
talið meðal þeirra hlutverka,
sem hann hefir getið sér bestan
orðstír fyrir. Mun bann hafa í
hyggju að ljúka leikstarfsemi
sinni með þessu og er það leitt.
Aliorfendur hyltu liann mjög og
færðu honum feikn blóma.
Emmu, konu Klinke, leikur
Marta Indriðadóttir. Bregður
hún upp ágætri mynd af eigin-
konunni, sem liefir mann sinn
alveg á sínu valdi og lifir og
hrærist í því, að tala um sið-
gæði eða öllu heldur siðleysi
annara, og útvega dóttur sinni
góðan eiginmánn.
Dótturina, Paulu, leikur
Magnea Sigurðsson og gerir
það snoturlega. —• Gerlach
málaflutningsmann, sem ann
henni, leikur Gestur Pálsson.
Sýnir liann vel biðilinn, og þyk-
ist viss um ástir hennar og að
reynast muni leikur einn að
öðlast samþykki foreldranna
til ráðahagsins.
Alfreð Andrésson leikur Alo-
is Wimmer, mág Emmu Kliuke,
sem er einn af aðal siðgæðis-
postulunum þar um slóðir, en
er þó ekki allskostar saklaus af
ástabralli. Leikur Alfreðs var
skemtilegur, svo sem venja er
lil lijá honum.
Brynjólfur Jóhannesson leik-
ur Anton Tiedemeyer, og bregð-
ur upp góðri mynd af karl-
garnii, sem heldur að hann sé
mesti bragðarefur, en gerir
hverja vitleysuna á fælvir ann-
ari.
Indriði Waage leikur Hinrik
Meisel, Assyriufræðing. og
„mömmudreng“, sem ætlast er
til að kvænist Paulu Klinke.
Hann er ófrámfærinn og feim-
inn við stúlkurnar, en kernst
allur á loft, þegar minst er á
Assyríu og konunga hennar.
Leikur Indriða í þessu hlutverki
er hráðskemtilegur.
, Þóra Borg er í hlutverki
Wally Burlwig, þeirrar er Meis-
el hreppir. Hlutverkið sýnir
elskulega og góða stúlku og er
vel leikið.
Föður hennar, Edward Burt-
wig, rikisþingmann, leikur Val-
ur Gíslason. Er hann góður í
þessu lilutverki, „þingmannleg-
ur“ og finst hann vera'á þing-
fundi, hvar sem hann kemur..
Emilía Indriðadóttir leikur
frú Meisel. — Vilhelm Norð-
fjörð leikur Gottlieb Meisel og
Birna Thoroddsen Maríu ráðs-
konu og fara þau öll vel með
hlutverk sín.
x+y.
Oslo, 1. apríl.
Vinnustöðvun í Rjukan vegna
vatnsskorts.
Sljórn saltpétursverksmiðj-
anna i Rjukan hefir tilkynt, að
framleiðslan verði takmörkuð
frá 15. apríl, vegna þess hve lít-
ið vatnsmagn sé fyrir hendi.
Að líkindum verður hætt að
vinna í einni verksmiðjunni af
þessum orsökum hálfs mánaðar
tíma. (NRP. — FB.).