Vísir - 14.08.1936, Side 3
Vígbfinaðor Evrópuþjðða
vísir
Olympísku leikarnir
Þegar stórveldin auka víg-
búnaðinn, dansa smáþjóð-
irnar með, nauðugar vilj-
ugar.
Erlend blöð, sem gera að um-
talsefni vígbúnaðinn í álfunni,
bera það jneð sér, að næstum
allar þjóðir álfunnar búa sig
undir styrjöld. Eins og eitt blað-
ið segir: Þegar endurvígbúnaður
Þjóðverja var kominn á skrið,
færðust hin slórveldin í aulcana
uieð vigbúnað sinn. Smáþjóð-
irnar komu á eftir. Hin nýja
v,igbúnaðaralda hófst í miðri
alfunni og hefir nú náð til nærri
allra landa hennar.
I Norður-Evrópu faraNorð-
menn einir sér hægt.
Svíar, Danir og Englending-
ar áforma auknar landvarnar-
ráðstafanir og hafa þegar hafist
handa, en Norðmenn einir fara
sér hægt, en vafalítið er, að þeír
munu einnig telja sig neydda
til að grípa til sérstakra ráð-
stafana, eins og frændþjóðir
þeirra.
I . ■*,'
Vígbúnaðaraukning smá-
þjóðanna nemur yfir 70.
000.000 sterlingspunda.
í amerísku blaði segir, að átta
tninstu nágrannaþjóðir Þjóð-
verja hafi á yfirstandandi ári
aukið vigbúnaðar útgj öld sín um
56 milj.stpd. Nokkur önnur ríki,
Ungverjaland, Finnland, Tyrk-
land, Jugoslavia og Portugal
verja 18 milj. stpd. til vigbún-
aðar, vegna ófriðarhættunnar,
í ofanálag við há útgjöld til víg-
búnaðar um langt ára skeið. Alls
eru 13 Evrópuþjóðir, sem elcki
teljast til stórveldanna, sem
verja 74 milj. stpd. til vígbún-
aðar á yfirstandandi ári — og
eru Rúmenar og Spánverjar
þar ekki með taldir.
Finnar óttast Rauða her-
inn.
Finnar eru sagðir auka mjög
vígbúnað sinn, vegna hins gífur-
lega vígbúnaðar í Rússlandi.
Þeir óttast Rauða herinn. 1 Finn-
landi hefir sérstök nefnd liaft
landvarnamálin með höndum.
í lienni áttu hermálasérfræð-
ingar sæti og fleiri fróðir menn.
Verði tillögur nefndarinnar'
samþyktar, verða finskir skatt-
greiðendur að leggja fram fé til
aukins vígbúnaðar svo nemur
7 milj. stpd. á næstu 7 árum.
Tyrkir og Dardanellasund.
Schacht og Kruppverk-
smiðjurnar.
1 Tyrklandi nemur viðbótar-
vígbúnaðaráætlunin 1.500.000
stpd. Auk þess voru i desember
veittar 3.500.000 stpd. til efling-
ar flugflotanum á næstu þremur
árurn. Tyrkir höfðu sitt fram
í Montreaux og þeir ætla að
verja livorki meira né minna
en 80 milj. stpd. til þess að víg-
girða sundið — vitanlega á
fjölda mörgum árum. Það er
ekki um að villast, að Kemal
Ataturk ætlar að gægjast í budd-
ur tyrkneskra skattrf”''’'x"”':,r>
næstu ár. — Dr. Hjalmar
Schacht, forseti þýska ríkis-
baukans, er sagður hafa lcomið
því til leiðar, aðGrikkir ogJugo-
slavar ætla að kaupa feiknin
ÖU af hergögnum frá Krupps-
verksmiðjunum i Essen. —
Grikkir áttu sem svaraði til
1.200.000 stpd. í Þýskalandi.
Það var „frosin innstæða“.
Schaclit hefir komið því til
leiðar, að fénu verður varið til
hergagnakaupa í Þýskalandi. —
Grikkir ætla líka, eins og Tjrrk-
ir, að efla flugflotann og her-
skipaflota sinn. — Þetta er til
tínt sem dæmi. Allstaðar er sami
andinn ríkjandi: Vígbúnaðinn
verður að auka. Annaðhvort
vegna áforma liernaðarsinna, er
með völd fara, svo sem á Ítalíu
og víðar, eða vegna ríkjandi ótta
við það, sem í vændum sé, t. d. í
Finnlandi.
Spárnar um næstu styrj-
öld.
Ótal spár koma iðulega fram
um næstu styrjöld — livenær
og sömuleiðis hvar — hún
muni byrja. Iðulega koma
fréttir, sem auka um allan lielm-
ing ríkjandi ótta við nýtt
lieimsstríð. En reynslan liefir
sýnt, að með nokkurri vissu!
verður ekki um slíkt spáð. Oft,
þegar útlitið er svartast, rætist
úr, en stundum verður einliver
atburður þess valdandi, eins og
1914, að styrjöld skellur á, svo
að segja eins og þruma úr lieið-
skíru lofti. En um eitt verður
ekki deilt: Vígbúnaðarkepnin
liefir aldrei verið æðisgengnari
Norðmenn og’ Þjóðverjar keptu
á nýjan leik í kappsiglingu á
átta metra snekkjum. —*Norö-
menn sigruðu. — Þjóðverjar
hafa enn hæsta stigatölu.
Oslo, 13. ágúst.
Átta melra snekkjur Þjóð-
verja og Norðmanna keptu í gær
á nýjan leik í kappsiglingum
olympisku leikanna. Norska
snekkjan Silja sigraði. Norð-
menn unnu þannig silfurmed-
alíuna fyrir þessa kap]isiglingu.
Stigatalan á olympisku leik-
unum er nú þannig: Þýskaland
451 stig (points), Randaríkin
343, Finnland 141. Noregur er
nr. 16, með 26 stig. (NRP—FR.)
Rerlín 12. ágúst. FÚ.
í leikfimiskepni kvenna á
Olympiuleikunum varð hlut-
iskarpastur hinn þýski kepp-
endahópur, sem lilaut 506,5 st.
og vann þar með gullpening-
inn fyrir fimleika. Silfurpen-
inginn lilaut tékkneskur
kvennaflokkur, en eirpening-
inn ungverskur.
I handknattleik sigraði
Þýskaland Svíþjóð með 16
mörkum. Áður hafði Austur-
ríki sigrað Ungverjaland með
15 mörkum.
Rerlín 13. ágúst. FÚ.
I liockey-kepni sigraði Ind-
land Frakkland með 10:0 og
Þýskalnd Holland með 13:0.
í basket-ball kepni unnu
Bandaríkin sigur yfir Filipseyj-
um með 56:23, Canada sigraði
Ungverjaland með 43:21 og
en nú. Og þegar svo er áfram
haldið, hlýtur að því að reka,
hvenær og með hverjum hætti
sem það svo verður, að alt fari í
bál og brand, með livaða afleið-
ingu veit enginn, — en fjöldi
manna óttast, að hún verði sú,
að alt menningarlíf lirynji í
rústir í álfunni, en aðrir, sem
\ um þessi mál skrifa, eru bjart-
sýnni og byggja aðallega vonir
sínar á því, að næsta styrjöld
slandi eigi lengi. En þvi var líka
spáð 1914. Og allir vita hvernig
sú spá rættist. (Að mestu þýtt.)
Mexico sigraði Ítalíu með
20:17.
Kaupmannaliöfn 13. ágúst.
Einkaskeyti FÚ.
í 400 metra crawl-sundi
kvenna vann dönsk sfúllca,
Ragnhild Hveger, á 5 min. 28
sek. og settti nýtt Olympiumet.
Hún er aðeins 15 ára.
Utan af landi
----o-----
13. ágúst. FÚ.
Sláttumót
ungmennasambands Dala-
manna var lialdið í Ólafsdal
síðastliðinn sunnudag. Sláttu-
skjöldinn lilaut Sigmundur Ól-
afsson frá Glerárskógum. Ræð-
ur á mótinu fluttu Friðrik Á.
Brekkan og Jón Jónsson frá
Ljárskógum.
Tún eru nú víðast alhirt í
Dalasýslu, töðufengur nær
meðallagi og er óhrakinn. Stór-
feld rigning var í dag og miklir
vatnavextir síðastliðna nótt.
Frá Keflavík.
Keflavík 13. ágúst. FÚ.
Sama og engin síld hefir
komið á land i Keflavík i dag.
Svanur fékk 8 tunnur, en aðrir
bátar hafa ekkert aflað. Veður
var óliagstaett, suðvestan hvass-
viðri.
Bifreiðaslys.
13. ágúst. FÚ.
í fyrrinótt ók bifreiðin R. 105
út af veginum við brúna, sem
er rétt neðan til við Bitru og
livolfdi bifreiðinni i Mókeldu-
læk.
Einn farþegi skarst talsvert
á liendi og var hann fluttur til
læknis á Eyrarbakka. Bifreið-
in mun liafa verið á ofmikilli
ferð til þess að ná beygjunni
þar sem ekið er upp á brúna.
Málið er í rannsókn.
I gær ld. 14,15 skall vöru-
flutningabifreiðin HF 27 á
hliðina í Kömbum við neðsta
velrarafleggjara frá aðalveg-
inum.
Talsverður halli er þarna og
mun hann liafa orsakað slysið.
Á bifreiðinni voru 18 hestar
af lieyi og sátu 2 menn ofan á
ælcinu en þar eð bifreiðin var
alveg stöðvuð gálu þeir rent
sér aftur af henni, áður en hún
fór um. Stýrishús bifreiðarinn-
ar brotnaði nokkuð en bifreið-
arstjórinn lilaut engin meiðsli.
Jón Guðmundsson,
veitingamaður á Akureyri,
andaðist í gærkveldi að heimili
sínu, eftir langa vanheilsu.
Veðrið í morgun.
1 Reykjavík 11 stig, Bolung-
arvík 9, Akureyri 10, Skála-
nesi 11, Veslmannaeyjum 10,
Sandi 9, Kvígindisdal 9, Hest-
eyri 10, Gjögri 8, Blönduósi 9,
Siglunesi 9, Grímsey 12, Rauf-
arhöfn 12, Fagradal 12, Hólum
í Hornafirði 9, SFagurhólsmýri
11, Reykjanesi 10, Mestur hiti
liér í gær 11 slig, minstur 3.
Úrkoma 8,9 mm. Sólskin 0.4 st.
Yfirlit: Lægð yfir norðaustur-
landi á hreyfingu austur eftir.
Horfur: Suðveslurland, Faxa-
flói: Minkandi norðvestan átt.
Víðast léttskýjað. Breiðafjörð-
ur, Vestfirðir: Norðan kaldi.
Víðast úrkomulaust. Norður-
land: Norðan kaldi. Rigning
öðru hverju. Norðausturland:
Suðvestan átt og bjartviðri
fram eftir deginum. Norðvest-
an kaldi og rigning í nótt.
Austfirðir, suðausturland:
Suðvestan og vestan kaldi.
Aflasölur.
Hafsteinn hefir selt 92 smá-
lestir af ísfiski í Wesermunde
fyrir Í6700 ríkismörk og Bald-
ur 87 smál. fyrir 12700 ríkis-
mörk. Bragi seldi 1249 vættir
í Grimsby fyrir 1004 stpd.
Sundhöllin.
Umsækjendur um forstjóra-
starfið við Sundhöllina eru 45
talsins.
Fákur.
Hestamannafélagið Fákur fer
í sameiginlegan reiðtúr næstk.
sunnudag. Lagt verður af stað
frá Varðarliúsinu ld. 10 árdegis.
Farið verður upp að Úlfarsfelli,
meðfram Hafravatni og Miðdal
og síðan niður að Geithálsi, þar
sem ýmislegt verður til slcemt-
unar.
Sttipafregnir.
Gullfoss er við Norðurlánd..
Goðafoss er á leið til Vest-
mannaeyja frá Hull. Dettifoss
fór héðan í gær áleiðis til út-
landa. Brúarfoss er i Kaup-
mannahöfn. Selfoss er í Dun-
kerque. Ivatla kom í gær. Lyra
fór í gær. M.s. Dronn. Alexan-
drine kom í gær frá útlöndum.
Varðskipið Ægir kom að norðan
í morgun með breska togarann
Alsey, sem er með bilað stýri,
og er fluttur hingað til viðgerð-
ar. ,4
Meðal farþega
á M.s. Dronning Alexandrine
voru: Bjarni Jónsson framkv.-
stj. og frú, frú Guðrún Ólafsson
frá Akureyri, Áslaug Einarsdótt-
ir, frú Jarþrúður Johnsen, frú
Áugusta Ólafsson og frú Jó-
hanna Hermannsson.
Meðal farþega
á Dettifossi til útlanda voru
Nanna Egilsdóttir og Elín
Einarsdóttir. Á skipinu fóru og
margt erlendra ferðamanna.
Farþegar á Lyru
til útlanda: Karl Torfason og
frú, Guðni Jónsson úrsmiður og
frú, Nikulás Friðriksson, ung-
frú Svana Hagan, Snorri Hall-
grimsson, Geirmundur Árna-
son, Jón Björnsson, Jóhann Sól-
berg Þorsteinsson. — Til Vest-
mannaeyja fór fjöldi manns.
Næturlæknir
er í nótt Alfred Gíslason,-
Holtsgötu 37. Sími 2163. —
Næturvörður í Reykjavíkur
apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Gengið í dag.
Sterlingspund .....Kr. 22.15
Dollar ............. — 4.41%
100 ríkismörk .... — 177.45
— franskir frankar — 29.12
— belgur ........... — 74.36
— svissn. frankar . — 143.83
— finsk mörk .... — 9.93
— pesetar ......... — 60.92
— gyllini ......... — 299.87
— tékkósl. krónur — 18.53
— sænskar krónur — 114.36
— norskar krónur — 111.44
— danskar krónur — 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 50,21.
Dylgjur.
Frú A. (í heimsókn hjá vin-
konu sinni, frú B. — Frú A. er
smá-stríðin og þykist eiga vin-
konu sinni grátt að gjalda): Já
— satt er það — slæmir eru
þeir!
Frú B.: Þeir — hverjir?
Frú A.: En þessir blessaðir
eiginmenn, sem maður verður
að dragast með. Eg ælti nú ann-
ars ekki að vera að æsa for-
vitni þína. Og ekki vil eg
hryggja þig, vesalingur------
Frú B.: Guð komi til' Um
livað ertu eiginlega að dylgja,
manneskja?
Frú A.: Eklcert — ckkert ...
En náttúrlega eru þeir slæmir,
Eg sný ekki aftur með það. ..
Frú B.: Þú átt við eitthvað
sérstakt —.það bregst mér ekki.
Frú A.: Og fari það hoppandi.
— Það er að segja-------
Frú B.: Já — grunaði mig
ekki — þú átt við eittbvað sér-
stakt.
Frú A.: Nei — og sei-sei-nei.
Og þó að svo væri, þá held eg
nú að eg færi ekki að lilaupa
með það.
Frú B.: Þú mátt ekki kvelja
mig svona. Ivomdu nú bara með
það-------
Frú A.: Jæja — fyrst þú
skorar á mig. —: Hvað segirðu
nú, til dæmis að taka, um ann-
að eins og það, að ung stúlka
ijúki upp um hálsinn á kvænt-
um manni úti á miðri götu og
reki að honum rembings-koss?
Frú li.: Hvað er að tarna,
manneskja. Er þá svo komið sið-
ferðinu í þessum bæ, að slíkt og
þvílíkt geti átt sér stað? — Og
það kannske um liábjartan dag-
inn!
Frú A.: Já, núna rétt áðan.
Eg horfði á það með mínum
eigin augUm. Mér varð töluvert
um það. Maður fær eins og
ónota-titring fyrir lijartað af
því að sjá annað eins og þetta.—
Frú B.: Ætli eg rengi þig um
það! — Að hugsa sér að annað
eins og þetta slculi geta átt sér
stað —- —
Frú A.: Já, þeir eru slæmir
nú á dögum, guð varðveiti mig.
Frú B.: Já, mikið er það guðs
tillag að eiga mann, sem geng-
ur sína götu', án þess að líta við
þessum sjmdarinnar fiðrildum.
Og það get eg sagt með sanni
um elsku-hjartans manninn
minn, að ekki lítur hann utan
hjá sínu ekta-vífi. — ,
Frú A.: Við vitum nú lield eg
minst um hvað gerist, konu-
myndirnar. Eg held að þeir
geti nú brallað sitt af hverju,
karlarnir okkar, án þess að við
höfum bugmynd um. — Sum-
ir þykjast vera á eilífum fund-
um, kveld eftir kveld. Maður
veit nú eins og heldur lítið um
ÖII þau fundahöld, góða mín.
Frú B.: Það kann að vera að
sumir sé slæmir. En það þori
eg að segja, að hann Jósef minn
elskulegur skrökvar ekki að
mér. — En niiklir eru þeir
kveldfundir, sem hann þarf að
sitja. Hann er líka í þeim
ósköpum af alls konar nefnd-
um og félögum.
Frú A.: Og þér liefir aldfei
dottið neitt sérstakt í hug í sam-
bandi við alla þessa fundi?
Frú B.: Mér? — O-nei, það
get eg varla sagt.
Frú A.: Jæja — auminginn.
Lifðu þá sæl í þinni trú.
Frú B.: Hvað eiga allar þess-
ar dylgjur að þýða?
Frú A.: Ekkert — ekki nokk-
urn skapaðan hlut .... En það
held eg nú samt í einfeldni
minni, að manni, sem kjrssir
unga stúlku út á miðri götu um
hábjartan dag, sé til margs trú-
andi þegar farið er að skyggja.
Frú B.: Við hvað áttu? Hver
kyssir unga stúlku úti á miðri
götu um hábjartan dag?
Frú A.: Eg gæti best trúað,
að þeir væri margir.------
Frú B.: Þú ættir að skamm-
ast þín fyrir að vcra með svona
dylgjur.------ Eg þori að segja,
að þú getur ekki nefnt einn ein-
asta.-----
Frú A.: .Tæja —-.svo að það
heldurðu. En nú skal eg segja
þér eitt: Maðurinn, sem kysti
ungu stúlkuna fyrir augunum
á mér núna rétt áðan, er eng-
inn annar en — maðurinn
þinn!
Frú B.: Hann Jósef?
Frú A.: Ójá, sá elskulegi og
siðprúði Jósef. — — Eg hefi
tugi vitna að þeim kossi.-----
Frú B.: Ja — Jesús minn góð-
ur i himna-hæð! — Tugi vitna
segirðu?
Frú A.: ,Tá — tugi vitna.
Frú B.: Já — satt er það —
lengi skal manninn reyna.-----
Frú A.: Eg segi það líka! —
Já, svona er liann nú inn við
beinið, sá heilagi Jóseppur. —
Frú B.: — Og hver — liver
var hún — þessi — þessi gleðra
— þetta — þetta andstyggilega
svín, sem rauk svona á hann?
Frú A.: Það er nú hérna og
lás fyrir. En ung var hún og
falleg. — —
Frú B.: .Tá — aldeilis.-------
Ung og falleg og full af synd-
um og lauslæti. — — Ilver var
liún — liver var liún? —■ Þú
verður að segja mér það undir
cins — bara upp á stundina —
Frú A.: Eg er alls ekki viss
um, að eg þori það — þú ert
svoddan heljar-vargur. — —
Það var svo sein ekki nóg með
það, að þau kystust. Nei — og
langt í frá! Hún liafði út úr
homun peninga. Og kysti hann
fyrir. Hinn lieilagl Jósef horfði
á hana með ást og aðdáun og
mælti: Guð fylgi þér, ljosið
mitt! Svo fór stúlkan sí^p Ieið
— veifaði til lians og brosti
yndislega. —.
Frú B.: Svona manni hefi
eg trúað og treyst! Og hann er
þá bara blygðunarlaus flag-
ari. ----
Frú A.: Ætli það sé nú ekki
fullmikið sagt-------
Frú B.: Nei — og svei mér
þá! Og þessa skepnu hefi eg
elskað eins og lifið í brjóstinu
á mér! — Og svo er nú stelpan
— þessi .... þessi hjónadjöfull.
-----Hver er hún?
Frú A.: Ekki svona æst, væna
mín. —-
Frú B. (þrífur í frú A og
hristir liana): Og nú — út með
nafnið á stelpunni — út með
það, segi eg. Þú skalt ekld
sleppa fyrr en eg veit liver hún
er. —- —
Frú A.: Þú ert nú orðin svo
æst, að eg er bara lirædd við
þig. Og þessvegna ætla eg að
fara (gengur til dyranna).
Frú B. (hleypur í vég fyrir
liana): — Þú sleppur ekki
svona. — Þú skalt verða að
segja inér það — þú skalt!
Frú A.: Láttu nú ekki eins og
óhemja (telcur opna hurðina og
snarast fram á ganginn): Eg
bið kærlega að lieilsa mannin-
um þínum — hinum lieilaga
Jóseppi. Og vertu iiú sæl!
Frú B.: — Hver var hún? —
Nafnið — nafnið — nafnið ,á
dræsunni!
Frú A.: Jæja —- ætli eg vérði
þá ekki að miskunna mig yfir
þig. — — •— Það var nú bara
hún dóttir þín! (Fer).
P-