Vísir - 18.12.1941, Qupperneq 2
VlSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 660 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmi'ðjan h.f.
Atvik
og innræti.
JP^F litlu skal marminn marka,
segir máltækið, og við þykj-
umst hafa nokkra reynslu fyrir
því, að þetta sé ekki f jarri sarini.
Það er nú einu sinni svona, að
mat okkar á náunganum fer
ekki einungis eftir hæfileikum
hans og afrekum, heldur jafn-
framt, og máske engu siður, eft-
ir þvi, hvernig hann bregst við
smáatvikum hins daglega lífs.
Ef við viljum vita full deili á
manni, spyrjum við ekki bara
hvað hann sé. Við spyrjum líka
hvernig hann sé. Við nánari
kynningu leiða smáatvikin oft-
ast í Ijós, hvernig maðurinn er,
hvort hann er vingjamlegur,
hjálpfús og greiðvikinn, eða
hvort hann er/kaldlyndur, eig-
ingjarn og meinfýsirin. Hlýtt
handtak, vingjarnlegt augnaráð,
örfandi bros, svona lítilvægir
hlutir hafa stundum reynst svo
mikilvægir, að þeir Iiafa valdið
gæfumun i lífi þess, sem fyrir
varð. Dlhryssingur og kerskni
hafa margan lamað. Við verðum
að sætta okkur við að dómur
annara um, okkur fari eftir
þeim eiginleikum, sem við sjálf-
ir birtum í daglegri umgengni
við náungann.
Við íslendingar trúum þvi um
okkur sjálfa, að við séum hjálp-
fúsir, og flestum mönnum fljót-
ari til að hlaupa undir bagga
með þeim, sem bágt eiga. Við
teljum þetta einn göfugasta
þáttinn í fari okkar. Hér er á
ári hverju safnað miklu fé til
margvíslegrar góðgerðarstaif-
semi og fáir eru svo lítilsigldir,
að þeir telji eftir, þótt þeir láti
eitthvað af hendi rakna í þessu
skyni.
Þessa dagana er verið að safna
fé til Vetrarhjálparinnar. Ein-
hverjum kynni að finnast, að
ekki væri þörf á slíkri starfsemi
á þessum miklu' uppgangs- og
gróðatímum, þegar flestir hafa
nóg að gera og fullar hendur
fjár. Þeim til leiðbeiningai’, sem
þannig kynnu að lita á málin,
má upplýsa það, að Vetrarhjálp-
inni hafa þegar borizt nokkur
hundruð beiðnir. Og til frekari
fullvissu um það, að hér sé ekki
neinn óþarfi á ferð, má benda á,
að aðeins sárfáir af þeim, sem
til Velrarhjálparinnar hafa snú-
ið sér, hafa nokkra atvinnu.
Meginþorrinn er gamlir einstæð-
ingar, sem ekkert hafa sér til
framfæris nema lítilfjörlegan
ellistyrk, og ekkjur með ung-
börn. Hver þorir að kveða upp
úr um það, að þetta fólk megi
ekki gera sér dagamun um
jólin?
Öll dagblöð bæjarins liafa lagt
Vetrarhjálpinni liðsyrði —* að
undanteknum amtmanninum.
Tíminn getur ekki á sér setið,
að reyna að spilla fyrir þessari
starfsemí. „Það getur verið rétt
og skylt að safna til Vetrarhjálp-
ar — að þýzkum sið,“ segir blað-
ið. Þetta er allur sá „jákvæði“
stuðningur, sem Timinn veitir
málefninu, og mun mörgum
þykja liðsinnið við hóf.
En svo sem til varnaðar því,
að einhver glæptist á þessu tví-
ræða liðsinni, rekur Timinn
lmiflana í forstöðumann Vetr-
arhjálparinnar. Stefán A. Páls-
son liefir unnið það til saka, að
dómi Tímans, að hann kaus ekki
séra .íakob (bróður Eysteins)
við prestskosningarnar í fyrra.
Síðan bætti Stefán gráu ofan á
svart með því að ganga í „frjáls-
lynda söfnuðinn“. Þessu má
ekki gleyma. Hitt mun Tíman-
um þykja skifta rninna máli,
þótt yfir fyrnist, að Hermann
Jónasson lýsti því yfir, að hann
teldi J>að vott um „aukinn trúar-
áhuga“, ef J>eir, sem ekki sættu
sig við skipunina í prestaem-
bættin, stofnuðu fríkirkjusöfn-
uð.
Tíminn gefur í skyn, að
ílokksmenn Stefáns liafi valið
hann til forstöðu Vetrarhjálpar-
innar í verðlaunaskyni fyrir af-
stöðu haris til prestskosning-
anna. Blaðið veit ofurvel, að
Stefán hafði veitt Vetrarhjálp-
inni forstöðu ár eftir ár áður en
prestskosningarnar komu til
skjalanna. Atti að spárka hon-
um af J>ví að hann kaus ekki
bróður Eysteins? Það er auðséð,
hvað Tímanænn hefðu gert, ef
J>eir hefðu ráðið. Þeir hefðu
látið Stefán gjalda skoðana
sinna — að J>ýzkum sið!
Annars er óþarft að bera hönd
fyrir höfuð Stefáni Pálssyni.
Allir, sem til þekkja, vita það
tvennt, að það er síður en svo,
að hann hafi sótzt eftir þessu
timafreka og erilssama auka-
starfi, og að Vetrarhjálpinni
hefir verið ]>að ómetanlegur
styrkur, að fá jafn ötulan og
vinsælan mann til forstöðu.
Hnjóð Tímans gerir Stefáni
ekkert til. Ef J>að hefir nokkur
áhrif, væri ekki um annað að
ræða en J>að, að einhverjir fleiri
en nánustu aðstandendur Tím-
ans væru svo innrættir, að þeir
vildu láta J>að bitna á gömlum
og lúnum einstæðingum og
ekkjum, að forstöðumaður
Vetrarhjálparinnar er ekki af
Jieirra pólitíska sauðaliúsi. En
sem betur fer er svo fátt slíkra
pilta, að enginn ætti að J>urfa
að verða af jólaglaðningu Jieirra
hluta vegna.
Það verður að játa, að ekki
eru auðfundin orð til að lýsa
Jæssari framkomu aðstandenda
Timans. Þegar pólitískt ofstæki
kemst á ]>að stig, að spillt er f>T-
ir ]>ví, að umkomulausir ein-
stæðingar, gamahnenni og ekkj-
ur geti gert sér einlivern daga-
mun á sjálfum jólunum, setur
menn hljóða. Smámunirnir
geta komið þeim illa, sem hag-
kvæmt er að leyna innræti sinu.
Hér hefir komizt upp um hugs-
unarhátt, sem flesta hryllir við.
Og ]>etta eru mennirnir, sem
bjóðast til að bæta lífið í Reykja-
vik. Ætli Jónas ]>ori á stað eftir
allt saman? a
Lágmark ökuhraða
f bænum,
Lögreglustjóri hefir gert til-
lögu til bæjarráðs um að ákveða
Iágmarksökuhraða bifreiða í
bænum.
Gerir lögreglustjóri það að
tillögu sinni, að bifreiðar megi
ekki aka hægai’a en með 20 km.
hraða á klst., innan bæjarins,
nema umferðin gefi tilefni til
hægari hraða. Utan bæjarins, á
veginum inn að Elliðaám, má
ekki aka hægara en með 35 km.
hraða, að tillögu lögi’eglustjói’a.
Lögreglustjóri gerir Jæssar
tillögur vegna þess, að umferð í
bænum er svo mikil og göturnar
svo mjóar, að ef bifreiðar aka
mjög hægt getur þáð valdið
nziklum töfum og truflunum.
Þá hefir lögreglustjóri lagt
til, að allt dúfnahald í bænum
verði bannað. Bæjarráð hefir
ekki tekið ákvörðun í Jæssum
málum ennþá.
VetrarhlAlpi™.
Skátasöfnunin heldur
áfram í kvöld.
í gærkveldi söfnuðu skátarn-
ir kr. 2927 í Vesturbænum fyrir
Vetrarhjálpina. í kveld halda
þeir áfram scfnuninni og fara
um Austurbæinn.
Árangurinn hefði vafalaust
orðið betri, ef veður hefði ekki
verið svo óhagstætt, sem raun
ber vitni, J>\n að skátunum
tókst ekki að heimsækja öll hús,
sem þeir áttu að fara í. Munu
]>eir að líkindum fara í þau hús
í kveld, sem J>eir komust ekki í
í gærkveldi.
Annars verður aðaláherzlan
í kveld lögð á söfnunina í Aust-
urbænum. Er heitið á bæjarbúa
þar, að bregðast vel við.
skipverji á Sviia.
í gær fór fram hátíðleg og
virðuleg minningarathöfn um
þá sjómenn, sem fórust með bv.
Sviða. Jafnframt fór fram jarð-
arför Júlíusar Hallgrímssonar,
kyndara, en lík hans er eina,
sem hefir fundizt.
Athöfnin hófst ld. 1 í Hafn-
arfjarðarkirkju og var fjöl-
menni svo mikið, að kirkjan
rúmaði ekki alla.
Báðir prestarnir í Hafnarfirði,
síra Garðar Þorsteinsson og sira
Jón Aiipðuns fluttu í’æður, en
karlakórinn Þrestir söng. Voru
sungnir sálmarnir „Á hendur
fel ]>ú honum“, „Lýs milda
ljós“ og „Eg lifi og eg veit“, en
Þórarinn Guðmundsson lék á
fiðlu „Ave verum“ eftir Mozart
og sorgargöngulag Mendelsohn.
Útgerðai’inenn „Sviða“, bæði
]>eir sem gei’ðu togarann út og
þeir sem óttu Iiann fyr, báru
kistu Júlíusar Hallgrimssonar
úr kirkju. Að gröfinni — í
Fossvogskirkjugarði — báru
ýmsir fyrri skipverjar á Sviða
kistuna.
Bátar brotna og
sökkva á Hólmavík.
Afspyrnurok var á vestan á
Hólmavík í nótt og eyðilögðust
eða skemmdust fimm bátar af
völdum veðursins.
Tveir stórir opnir vélbátar —
trillur — sukku, en auk þess rak
að minnsta kosti einn vébát á
Iand og brotnaði hann í spón.
Tveir bátar enn skemmdust eða
eyðilögðust.
Vísir talaði til Hólmavíkur í
morgun, til að spyrja um tjónið
af veðrinu, en samband var af-
arslæmt og er því ekki hægt að
birta nánari fregnir að sinni. —
Manntjón mun ekkert hafa orð-
ið af völdum J>ess og tjón á landi
litið sem ekkert.
Góð gjöf.
Vetrarhjálpinni eru nú farnar
að berast veglegar gjafir frá ein-
staklingum og fyrirtækjum, eins
og venjulega, þegar hún starfar.
í gær barst Stefáni A. Páls-
syni, framkvæmdarstjóra Vetr-
ai’hjláparinnar, bréf frá Halla
I>órarins, kaupmanni, þar sem
liann tilkynnir, að hann ætli að
gefa Vetrarhjálpinni 600 krón-
ur í vörum. í bréfinu er tekið
fram, að Jzessar vörur sé 100
kg. af hangikjöti.
Vísir hefir verið beðinn að
færa gefandanum þakkir Vetr-
arhjálparinnar og Jxeirra, sem
munu njóta gjafarinnar.
Karl Nikulásson
konsúll.
er 70 ára í dag. Hann er fæddur
hér í Reykjavík, sonur Nikulás-
ar Jafetssonar, gullsmiðs og
gestgjafa, Elinai'ssonar kaup-
manns hér um fjölda ára. Var
Einar kaupmaður föðurbróður
Sigurðar prófasts á Rafnseyri,
föður Jóns forseta, en faðir
Ingibjai’gar konu Jóns. En móð
il- Karls og kona Nikulásar var
Hildur Lýðsdóttir frá Seli hér
i bæ. Kai'l missti báða foreldra
sína á unga aldri. En Morten
Hansen skólastjóri og móðir
hans tóku sveininn að sér, ólu
hann upp og kostuðu til náms.
Karl varð stúdent 1891, og átli
]>ví 50 ára stúdentsafmæli á s.l.
sumri. Að loknu stúdenlsprófi
sigldi Karl til Kaupmannahafn-
ar og liugðist að leggja stund
á dýralækningar, en livarf frá
]>ví ráði, og stundaði upp frá
]>vi verzlunarstörf, var um skeið
verzlunarstjóri Thomsensverzl-
unar, er ]>á var stærst og um-
svifamest verzlun hér í bæ, eu
síðan gekk liann í ]>jónustu Hins
ísl. steinolíufélags og var um
mörg ár forstjóri J>ess á Akur-
eyri. Karl er bezti drengur í hví-
vetna. í skóla var hann hinn sí-
glaði og fjörugi unglingur, og
bezti félagi, er ]>rátt fyrir lífsf jör
sitt og æskugleði var ætið hinn
góði drengurinn, er öllum okk-
ur skólafélögum Jzótti svo vænl
um, og helzt það enn, þrátt fyr-
ir hin mörgu ár. Karl er hinn
fríðasti og glæsilegasti maður
á velli, og sópar allstaðar að
lionum, hvar sem maður sér
hann. Og J>rátt fyrir hin 70 ár
er hann teinréttur á velli og
virðugleiki lians i allri fram-
göngu vekur allsstaðar eftirtekt.
Gleðimaður er hann hinn mesti
og hrókur alls fagnaðar, hvort
heldur er í margmenni eða fá-
menni. Lundin erleikandioglétt
og maður hlýtur að komast í
gott skap í nærveru hans. Karl
var kvæntur Valgerði Ólafsdótt-
ur, kaupmanns í Hafnarfirði.
Var hún hin bezta kona, og hans
styrka Stoð, og var hjónaband
þeirra hið bezta og heimili
Jzeirra annálað fyrir gestrisni og
höfðingsskap. Er Valgrður dáin
fyrir nokkurn árum. Karl er
höfðingi i lund og jafnan reiðu-
búinn til að leysa hvers manns
vandræði eftir beztu getu. Hann
á nú heima á Vesturgötu 56 liér i
bæ. Hvar sem liann hefir dval-
ið, hefir hann eignazt fjölda
vina, og þeir, sem nú eru lif-
andi, óska honum á þessum
merkisdegi æfi hans sólriks og
bjarts æfikvölds, með hjartans
]>ökk fyrir liinar mörgu ánægju-
slundir liðinna ára, sem aldrei
gleymast, meðan við lifum.
Sveinn Guðmundsson.
Bϒ ar
fréttír
I.O.O.F. I = 123125872 =
E.T 1
Rakarastofurnar
verða opnar til kl. 9 síðdegis á
laugardaginn, til kl. ix á Þorláks-
ínessu og til kl. 4 síðdegis á að-
fangadag.
Jarðarför
Jónasar H. Jónssonar, fasteigna-
sala, fer fram frá dómkirkjunni kl.
10 árdegis á morgun. Minningar-
orð um hann verða l>irt síðar hér
i blaðinu.
Jólablað Fálkans
kemur út á morgun. Það er 60
hls. að stærð með litprentaðri kápu,
prentað á ágætan pappír, með ágæt-
um greinum og sögum, og prýtt
fjölda mynda. Af efni blaðsins má
m. a. nefna: „Dýrðin er Drottins"
(jólahugleiðing eftir sira Sigurbj.
Einarsson). „Norðurlönd og jólin”
og „Hugleiðingar um viðhorf Dana
á jólunum 1941“ með fjölda mynda
frá Danmörku. „Jólatréð" (saga).
„Sumardagur i Öræfum“ (brot úr
ferðasögu eftir Sk. Sk.). „Einkenni-
leg tilviljuri' (eftir Júlíus T. Júlin-
ttsson skipstjóra). „Hvernig þjóð-
söngur Frakka varð til". „Píslar-
sögu-Ieikendurnir i Oberammergau
eru tréskerar“. „Fangavarðardóttir-
in ,sem varð drottning“. „Gutenberg
og bækurnar", og auk ]>ess margar
sögur, Jxættir fyrir börn og kven-
fólk, ]>rautir, skrítlur, myndir, bóka-
fregnir o.m.fl. Blaðið er hið prýði-
legasta að efni og frágangi.
Rafmagnsnotkunin.
Fyrir nokkru síðan sendi Raf-
magnsveita Reykjavíkur hréf til raf-
magnsnotenda í Reykjavík og fór
fram á að rafmagnið væri ekki not-
að til u]>]>hitunar frá kl. ioý^-—12
f. h. Rafmagnsnotendur ættu að at-
huga það, sérstaklega nú fyrir jól-
in, að taka strauminn af öllum hit-
unarofnum á þessum tíma, svo að
full „spenna" verði á raflögnum og
rafsuðan gangi vel; einnig að nota
lengri tíma til suðunnar, svo að ekki
þurfi að hafa mikinn straum á
suðuvélinni í einu.
Spegillinn,
jólahlað, kernur út á morgun. Af-
greiðsla hans er í1 Bankastræti 11.
Næturlæknir..
Halkjór Stefánsson, Ránarg. 12,
sími 2234. Næturverðir í Ingólfs
a]x>teki og Laugavegs aj>óteki.
Útvarp á færeysku.
Þjóðverjar eru nú byrjaðir viku-
legt útvarp á færeysku. Eru teknar
til þess fimm minútur af íslenzka
tímanum á fimmtudögum, kl. 5.55
—6.00.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30
Dönskukennsla, 2. fl. 19.00 Ensku-
kennsla, 1. fl. , 19.25 Hljómplötur:
Létt sönglög. 19.35 Lesin dagskrá
næstu viku. 20.30 Minnisvérð tíð-
indi (Axel Thorsteinson). 20.50 Út-
varpshljómsveitin: Norræni laga-
flokkurinn eftir Kjerulf. 21.10
Þættir úr Heimskringlu VIII (H.
Hjv.). 21.35 Hljómplötur: Gönntl
kirkjulög.
Kylsiiir jila-
ijalir lyiir herra:
MANCHETTSSKYRTUR
BINDI
FLIBBAR
NÁTTFÖT
NÆRFÖT
SOKKAR
SKINNHANZKAR
TREFLAR
HATTAR
HÚFUR
VASAKLÚTAR
SKRAUTVASAKLÚTAR
AXLABÖND
SOKKABÖND
SEÐLAVESKI
OG BUDDUR
KJÓLHNAPPASETT
SMOKINGHNAPPASETT
ERMAHNAPPAR
BINDISNÆLUR
RAKVÉLAR
HÁRVÖTN
HÁRGREIÐUR
GJAFAKASSAR
SPIL
DARTS o. fl.
LAUGAVEGI 21.
i
1
3
rj
•1
Allar húsmæður þekkja.
Notið aldrei annað en
Matvöruverzlun
tll §ölu.
Af sérstökum ástæðum er ein af þekktustu matvöruverzlun-
um bæjarins til sölu. VörubirgSir 20—25 þús. kr. TilboS sendist
afgr. Vísis fyrir 21. J>. m. merkt: „37“.
VISIR
Jolajblðið Falkð<n§ kemnr út í fyrramálið
Sölubörn komið og seljid. — Há sölulaun. Jólabladid seldist
upp á einum degi í fyrra. - Missið ekki af Jólabladinu í ár
Vikublaðið Fálkinn
Geymsln-
p’áss
óskast, verSur aS vera rúm-
gott og rakalaust. — Uppl. í
sima 4905 eSa 4906.
Hótel
SkjaldbreiQ
vantar duglega stúlku nú
þegar. —-v- '
JólahlaS Spegilsins kemur
út á morgun og er afgreitt i
bókabúSimii Bankastræti 11.
OPIÐ
til kl. 12 ó miðnætti laugardaginn 20. des.
til kl, 6 síðdegis mánudaginn 22. des.
til kl. 12 á miðnætti á Þorláksmessu
23. des.
til kl. 4 síðdegis á Aðfangadag 24. des.
Félag
Félag
Félag
Félag
Félag
vefnaðarvörukaupmanna,
matvörukaupmanna,
búsáhaldakaupmanna,
íslenzkra skókaupmanna,
kjötverzlana.
Góð sölulaun.
Reykjar- pípur í gjafaunxbúðuni, með gæti- legu vei’ðlagi. Itristol Bankastræti 6. 1 i EGILS gosdrykkir
Confect- öikjnr eru samt sem áður í veru- legu úrvali. Verðlag svipað og fyrir jólin síðastliðið ár. ■ V ! gfleðjn bæði liörn og fnllorðna \
Bristol * Bankastræti 6. •
Flökaskór
kven og karla komnir.
Skoverzl. HECTOR
Laugaveg 17.
Góður
bifreiðarstjórf
getur fengið atvinnu við að keyra góðan fólksbíl. — A. v. á.
b.s. Hekla
Abyggilegaígreiðsla
LEIKFÖIH!
margar nýjar tegundir,
J0UBA2AH1
Veggfóður og
veggfóðurslím
pfimmNN"
Sextíu ára AFMÆLISBÓK Huldu:
Hjl Sil ig Bll
er langsamlega bezta jólabókin. -
Inniheldur sjö mjög brífandi þætti. ——
ÚTGEFANDINN.
Jola-
iiiiikaiipin
verður ávallt bezt að gera f
\erzlimiimi Tíiir
Birgðirnar eru takmarkaðar — komið sem fyrst.
vmn
Laugaveg 1. Sími 3555. — Fjölnisveg 2. Sími 2555.
Loítvarnaæfing
Loftvarnanefnd hefir ákveðiip að loftvarna-
æfing verði haldin föstudaginmi 19. desember
n.k. Er hér með brýnt fyrir mörtnum að fara
eftir gefnum leiðbeiningum og fyrirmælum,
og verða þeir, sem brjóta settar reglur, látnir
sæta ábyrgð. Sérstaklega er allvarlega brýnt
fyrir mönnum að gæta þess, a<5 toifreiðum sé
ekki lagt þannig, að umferð teppist. Verði loft-
varnamerkið gefið á þeim tíma, er Ijós skulu
vera á bifreiðum, er hér með lagt fyrir stjórn-
endur bifreiða að sjá svo um, að toifreiðar séu
ekki með Jjósum, þar sem þær standa, meðan
æfingin fer fram.
LOFTVARNANEFND.
> — . ■>
Fóstui’faðir minn, Jón Jónsson frá Skjálg, andaðist 17. þ. m. á heimili minu, Bergþóru- götu 45. —- Jarðarförin verður auglýst siðar. Fyrir hönd vina og ættingja. Erlendur Erlendsson.
Elskuleg dóttir okkar, Ólöf Jóna verður jarðsungin frá Fríkirkjunni laugardaginn 20. þ. m. Athöfnin liefst fi'á heiniili okkar, Unnarstig 6, kl. 1 y2 e. h. Guðrún Jónsdóttir. Þorgrímur Sxgurðsson.