Vísir - 30.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar I
Blaðamenn Siml:
Auglýsi«:gar 1660
Gjaldkerl 5 Unur
Afgreiðsla
33. ár.
Reykjavík, föstudaginn 30. júlí 1943.
171. tbl.
Repúblikanar gramir við ;
Roosevelt.
I
—
i
Forseti flokksins vill hefja kosningahríð. |
HARRISON R. SPANGLER, forseti republik- J
anaflokksins í Bandaríkjunum hefir tek- ;
ið ræðu Roosevelts all-óstinnt upp. Telur hann
forsetann hafa farið langt út fyrir það, sem efni stóðu
til, að hann hafi ekki haldið ávarpsræðu til þjóðarinn-
ar, heldur ])ólitíska áróðursræðu, sem beint sé ætlað að
auka fylgi hans við næstu forsetakosningar.
Mr. Spangle liefir sent ráðherrum repúblíkanaflokksins, þeim
Ilenry Stimson hermálaráðherra og Knox flotamálaráðherra
bréf, þar sem hann lcrefst þess beinlínis að kosningabaráttan
verði þegar liafin og að repúblikanar fái alla aðstoð rílcisvalds-
ins til að kynna skoðanir sínar.
Það má segja, að'ekki sé ráð, , Útnefning fer ekki fram fyrr i
nema í tíma sé tekið, þvi að for- en í júni að ári, en um áramót
á undan er venjulega tekið að
gizka á líkleg forsetaefni.
setakosningar eiga eklci að fara
fram fyrr en í nóvember að ári,
eða eftir 15 mánuði, og hefir
enda hvorugur flokkanna,
demókratar eða repúblikana út-
nefnt forsetaefni sín eða vara-
forseta.
Harrison E. Spangler
— heimtar kosríingahríð.
%
Dewev
— vinsæll „kani“ ....
Willkie
— encfinn vill hann nema al-
menningur ....
ROOSEVELT.
Verði Roosevelt i kjöri aftur
að ári, þá verður það í 4. sinn,
sem hann býður sig fram, en
enginn forseti hefir áður verið
kjörinn nema fyrir 2 kjörtínia-
bil. Var Roosevelt hinn fyrsti
forseti, sem hafði boðið sig
fram þrisvar og náð kosningu
þrisvar, þegar hann var lcosinn
5. nóvember 1940.
Ennþá hefir Roosevelt ekk-
ert sagt um þetta, en hins-
vegar er það engan veginn ó-
mogúlegt að svo fari, að hann
verði í lcjöri aftur, því að á-
standið er mjög óvenjulegt, og
vinsældir hans hafa aldrei verið
meiri. Er talið að um minni'
mótspyrnu sé nú að ræða gegn
endurframboði hans, heldur en
1940, innan flokksins.
WILLKIE EÐA DEWEY? j
Menn eru ])egar teknir að J
leiða að því getum,, hvern repú- |
blikanaflokkurinn muni bjóða |
fram til forseta gegn Roosevelt, |
ef liann verður enn í kjöri aö
ári fyrir demokrata. Einn liinna
hklegustu er talinn Thomas E.
Dewey, ríkisstjóri í New York,
og er ekki talið óhugsandi að
hann taki úlnefningu, þótt hann
mótmæli slíku harðlega í bili.
Annar mótframbjóðandi er
Wendell L. Willkie, sem reynd-
ist Roosevelt skeinuliættur í síð-
ustu kosningum og sem síðan
hefir aukið allmjög á álit sitt
með um liinni margumtöluðu
sendiför sinni og bók sinni
„Einn heimur“. Það er sagt um
Willkie í gamni og alvöru, að
„enginn vilji hann nema al-
menningur“, af því að hann
nýtur lítilla vinsælda meðal
flokksforingjanna. Þykir hann
vera of eftirgefanlegur við
Roosevelt og hafa liaft sam-
vinnu við hann í stað þess að
gagnrýna hann. Ef hann tekur
ekki upp þá stefnu að gagnrýna
Roosevelt og innanlandspólitík
lians, áður en árið er liðið, er
ekki talið líklegt að floklcurinn
útnefni liann.
Þ.á er einnig talað um Mac
Arthur hershöfðingja, lietjuna
frá Salómonsevjum. Vitað er að
hann nýtur mikilla vinsælda
sakir hreysti sinnar og her-
mennsku, og margir aðalmanna
flokksins telja mögulegt að
vinna kosningar með honum
sem frambjóðanda.
Loks er talað Um Jolm W.
Bricker, ríkisstjóra i Ohio, en
fáir telja liann mundu safna
miklu fylgi.
Það er eftirtektarvert, hversu
umtal eykst nú mjög um Dewey
Myndin sýnir geysilegan reykjarmökk yfir möndulflugvelli á
Sikiley og eina af flugvélum Suður-Afríkumanna á lofti. Svarti
strókurinn i miðju reykhafinu sýnir, að kviknað hefif i olíu. —
AMERÍSKIR SKRIÐDREKAR.
Loftárás á Sikiley
7000 smál. sprengfja
á einiii vikn.
Loftárás á Hamborg í nótt
Flngher bandamanna mi§§ir iiiiian
við 3% flngrwéla í árásnrn.' *
■ €
ANDAMENN HERÐA ENN LOFTSÓKNINA
á stöðvar Þ jóðver ja í Vestur-Evrópu, og fer nú
fjöldi flugvéla tií árása frá Bretlandi, dag og
nótt. Vikuna sem lauk í gær höfðu flugherir banda-
manna varpað saintals 7000 smálestum sprengja yfir
þýzkar borgir, eða að meðaltali 1000 smálestum á dag,
og er hér eingöngu talið það spreng jumagn, sem varp-
að hefir verið á Þýzkaland sjálft, en ekki hitt, sem
kastað hefir verið i árásum á herteknu löndin.
Flugvirki Bandaríkjámanna fóru í víðtækar árásir í gær, og
réðust þau meðal annars á kafbátastöðina i Kiel og Heinkel-
flugvélaverksmiðjurnar við Warnemunde. 10 flugvélanna komu
ekki aflur, en flugmenn töldu sig hafa skotið niður, 30 orustu-
flugvélar þýzkar. Léttar sprengjuflugvélar fóru til árása á
stöðvar í Frakklandi, við Rouen og Merville í gær og ollu miklu
tjóni. Úr öllum árásilm flugherjanna í sjö daga, hafa allar
sprengjuflugvélanna komið aftur, að undajnteknum 3 af lmndrði.
Af þeim 7000 smálestum
sprengja, sein, varpað var yfir
Þýzkaland i vikunni, varð Ham-
borg fyrir rúmum 4000' smá-
lestum og Essen fyrir rúmlega
2000 smálestum. Aðrar borgir
urðu fyrir minni árásum.
Brezkar flugvélar réðuzt á
Hambcrg í nótt. Árásin var á-
kaflega hörð. 2000 smálestum
sprengja var varpað. 28 flug-
vélar Breta týndust.
Hefir þá 9 smálestum
sprengja verið varpað á Þýzka-
land. 3 orustuflugvélar Þjóð-
verja voru skotnar niður.
þrátt l'yrir neitun hans. Willkie
náði ótrúlega miklu atkvæða-
magni móti Roosevelt í síðustu
kosningum, 22 milljónum at-
kvæða, en samt eru margir
þeirrar skoðunar, að Dewey
muni ganga betur, og jafnvel
að lionum takist að fella Roose-
velt, ef hann skyldi aftur bjóða
sig fram.
60 ára
er í dag frú Rosalinde Árnason,
kona Þorsteins Árnasonar frá
Kálfatjörn. Nú búsett á Raufar-
höfn.
Badoglio bíður
átekta....
ÞAÐ ÞYIvIR NC BERSÝNILEGT, að stjórn
Badoglios er að reyna að tef.ja tímann í þeirri
von að takast muni að komast að hagkvæmari
samningum við bandamenn um vopnahlé, þegar fram
í sækir. Mun Badoglio ætla sér að reyna að tryggja það,
að Italía geti aftur orðið hlutlaus og þurfi ekki að láta
af hendi hernaðarbækistöðvar.
I London'er á það bent, að slikar vonir séu fánýtar, þvi að
bandamenn muni halda fast við kröfu sina um algerlega upp-
-gjöf. „Times“ segir i forystugrein í morgun, að bandamönnum
beri skylda til að hraða sem mest endurlausn meginlandsins,
og megi vegna annara þjóða, sem bíða komu bandamanna,
-ekki gefa ítöluni þumlung eftir af kröfunnni um algera upp-
gjöf. Blaðið er mótfallið öllum loforðum ítölum til handa og
telur af þeiin ástæðum útvarpsávarp Eisenhowers varhugavert.
Brezka útvarpið skýrir í
morgun frá fregn, sem borizt
hefir frá Madrid um viðræður
þeirra Badoglios og von Mack-
ensens, sendiherrans þýzka.
Badoglio á að hafa sagt Macken-
sen að Ítalía væri nú svo langt
leidd, að hún yrði að biðja um
frið, nema hún fengi skjóta og
góða hjálp frá Þjóðverjum.
Þegar Mackensen hafði talað
við Berlín, skýrði hann frá því,
að Þjóðverjar væri reiðubúnir
að hjálpa og myndu þegar í stað
byrja að senda herlið á vett-
.vang. Badoglio svaraði því, að
ekki myndi nægja minna en 40
herdeildir (Vi millj. manna
her). Því svaraði Mackensen á
þann veg, að ekki yrði hægt að
senda allt þetta lið á vettvang í
einu, sakir flutningaörðugleika
og þess að annarsstaðar þyrfti
að fylla í skörðin. Bauð hann
að senda þegar í stað, svo mikið
lið, sem Þjóðvérja gæti og hitt
smám saman, eftir því sem hægt
yrði. Féllst þá Badoglio á að
halda vörn landsins áfram, unz
sdð yrði hversu mikil hjálp
Þjððverja yrði.
Meiri óeirðir.
Fáeinir verkamenn liafa tekið
aftur upp vinnu i norðurhéröð-
unum, en flestir eru enn i verk-
falli og heimta frið. Óeirðir hafa
nú einnig brotizt út i suður-
hluta Ítalíu, í borgunum Tar-
anto, Bari og Foggia. Hafa
fjöldafundir og kröfugöngur átt
sér stað í þessum borgum, sem
gllar eru mjögliervægilegar, því
að Foggia er mikilvæg járn-
brautarborg, en Taranto og
Bari eru flotastöðvar.
Badoglio þegir.
Ekkert bólar enn á svari við
áskorun Eisenliowers, þrátt fyr-
ir kröfur almennings.
Badoglio hefir vikið 21 borg-
arstjóra úr embættum og leyst
upp fasistaþingið, sem komið
var í stað hinnar fornu neðri
málsstofu, lofað því að kosn-
ingar skuli fara fram til nýrrar
neðri málsstofu, þegar að ó-
friðnum loknum og ennfremur
að barizt muni verða, meðan
nauðsynlegt er en ekki augna-
bliki lengur. Þá hefir einnig ver-
ið bannað að stofna politíska
flokka, meðan á stríðinu stehd-
ur, en með því að búið var að
leysá fasistafloklcinn upp, en
engir flokkar aðrir voru leyfðir,
þýðir þetta raunverulega, að
allir flokkar eru bannaðir.
Bandamenn hafa söldct 20
skipum Japana á Kyrraliafi, sið-
an síðasta tilkynning var gefin
út.
Sikiley:
Bandamenn tóku
5 borgir í gær.
Til viðbótar borgum þeim,
sem bandamenn tóku í gær fyr-
ir hádegi, barst eftir hádegið
fregn um að þeir hefði einnig
tekið Nicosia, sem er beint fyrir
norðan Leonforte og Enna.
Fangatalan er nú komin upp í
75.000, eftir því sem tölu hefir
verið á komið.Fluglier banda-
manna gerir harða hríð að flug-
völlum og herbækistöðvum
möndulsins. Um Nicosia er
þjóðleið milli norður- og suður-
strahdar eyjarinnar.
Ú tvarpið í Alsir gat þess í gær,
að Þjóðverjar væri teknir að
evðileggja hernaðarmannvirki
við Cataniu, en búizt væri við
lokasókn 8. liersins á hverri
stundu.
S.-Afrika:
Smuts vann
kosningarnar.
107 : 43
Talningu er nú lokið i Suður-
Afríku. — Stuðningsflokkar
Smuts hershöfðingja fengu
samtals 107 menn kosna, en
andstöðuflokkarnir aðeins 43.
Ókyxrð á Balkan-
skaga.
1 Búlgarfu liefir komið til ó-
c-irða og mannfunda á götum
úti. Hefir almenningur mótmælt
harðlega stjórnarstefnu Filof-
stjórnarinnar og samvinnu
hennar við möndulinn. Þekktir
andfasistar hafa verið hylltir.
Ungverskt blað liefir birt rit-
stjórnargrein, sem er mjög
harðorð i garð möndulveldanna
og leggur til að slitið sé sam-
vinnu við þau. „Ungverjar
þekkja aðeins eina leið — ung-
versku leiðina og aðeins einn
hugsunarhátt: ungverskan
hugsunarhátt“, segir í grein-
inni.
í Rúmeníu hefir flugritum
vcrið dreift, þar sem friður er
prédikaður og refsiaðgerðir
gagnvart Hitler.
í Grikklandi hefir Rommel
tekið forystu þýzka hersins
gegn skærhher og verkfalls-
mönnum. Riddaralið heldur
vörð á götunum.
Kaffiliúsum í Belgrad hefir
verið lokað. Kvislingastjórn
Króatíy. hefir lialdið fund, sem
stóð i heilan dag.