Vísir - 15.05.1950, Qupperneq 8
Mánudaginn 15. maí 1950
Þúsundir
félagsmót
--—4--
Hópar manna
boma ríSandl
víðsvegar ai
sækja Hestamanna-
á Þingvöllum í sumar
Mótið stesidur yfir
dagana 8.-9. júlí.
Þúsundir hestamanna
víösvegar að af landinu
munu sækja fyrsta hesta-
mannamót, sem Landssam-
band Hestamannafélaga á
íslandi efnir til á Þingvöll-
um dagana 8.—9. júlí í sum-
ar. —
Er þetta fyrsta mót sinnar
tegundar, sem haldið er hér
á landi og hugsa hestamenn
hvarvetna á landinu gott til
glóðarinnar og munu fjöl-
menna þar svo þúsundum
skiptir. Hópar ríðandi
manna víðsvegar af Norður-
landi og Akureyri munu
sækja mótið, sömuleiðis
menn úr Borgarfirði, Döl-
um, Suðurlandi og héðan úr
Reykjavík.
í sambandi við mót þetta
veröur haldin sýning á um
tuttugu tömdum stóðhest-
um, þrjátíu úrvalsgæðing-
um og úrvalshryssum. Þá
verður efnt til kapp'reiða og
munu þar reyndir sprett-
hörðustu hestar, sem til eru
hér á landi.
Hestasýningin verður vænt
anlega opnuð á hádegi laug-
ardaginn 8. júlí og mun
ijúka að kvöldi sunnudags-
ins 9. júlí.
Þaö er Landssamband
Hestamannafélaga á íslandi,
sem sér um mótið, svo sem
fyrr er greint, en það vár
stofnaö á s.l. vetri og eru
innan vébanda þess öll hesta
mannafélög á landinu' Mót-
ið er haldið í samráði viö
Búnaðarfélag íslands, en
ráðunautur þess í hrossa-
ræktarmálum er jafnframt
hrossaræktarráðunautur
sambapdsins.
Að sjálfsögðu þarfnast
mót þetta gífurlegs undir-
búnings og er hann hafinn
fyrir nokkru, en allt verður
gert sem hægt er til þess, að
mótið takizt sem bezt í hví-
vetna.
Það mun vera öllum hesta
mönnum óblandið ánægju-
efni, aö efnt skuli til móts
hestamanna af öllu landinu,
enda munu þúsundir1 þeirra
Almennar
i.
Almennar þingkosningar
fórú í gær fram í Tyrkiandi
og eru það aðrar þingkosn-
ingar þar í landi, þar sent
andstöðuflokkum stjórnar-
innar er gefin kostur á að
bjóða fram lista.
Við kosningarnar að þessu
sinni koma frant fjórir list-
ar og var kjósanda leyfilegt,
ef ltann vildi enga þeirra
kjósa, að búa til hýjan lista
með þeim mönnuin, er hann
óskaði. 1 fregnum segir, að
ekki verði úrslit kunn fyrr
en síðar í vikunni. Stjórnar-
flokkurinn hefir nú setið að
völdunum í 25 ár. Tekið er
fram að kosningarnar hafi
verði algerlega leynilcgar.
Þessi litli danski drengur,
sem er aðeins 3ja ára, á von
á því að verða crfingi mikilla
auðæfa, ef Truman forseti
fær samþykkt lög urn það,
að hann fái að setjast að í
Bandaríkjununt. Bandaríski
milljónamæringurinn Peter
Leth Nielsen og kona hans
rnissíu einkason sinn, sem
veiktist snögglega, er þau
voru stödd í Ronsted í Dan-
rnörku og ákváðu þau að
taka munaðarlausan dreng í
hans stað. Varð þessi dreng-
ur fyrir valinu og bíður nú
eftir að Iögin verði sam-
þykkt.
Blekklng éhlui-
vandia manna.
Leit að hinum týnda
brezka togara, Milford Vis-
count er nú hætt sam-
kvœmt óskum brezku flug-
málastjórnarinnar.
Telur flugmálastjórnin, að
neyöarköll þau, sem heyrð-
ust, hafi verið tilbúningur ó-
hlutvandra manna og telur
frekari leit muni verða á-
rangurslausa, þar sem óhugs
andi sé, að skipiö sé enn of-
ansjávar.
Armann Islartds-
meisfari í sosidí-
knaltleik.
Ármann varð íslandsmeist-
ai'i í sundknattleik í 10. skipt-
ið í röð.
Leikar á mótinu fóru ann-
ars þannig: Ármann vann
K.R. mcð 3 mörkum gegn 1,
K.R. vann Ægi með 4 gegn 2
og Ármann sigraði Ægi í úr-
slitaleik með G mörkuin
gegn engu. Alls hefir verið
kcp])L um sundmeistaramóts-
titilirin í handknattleik 13
sinnum, og hafa Ármenning-
ar unnið 11 smnum, en Ægir
tvisvar.
Einn kunnasti fyrirlesari
Norðmanna kemur hingaö
Próff. Francls HuBI flyfur bér
fyrlrlesira fyrir almenning.
Listdanssýning í
notfæra sér þetta tækifæri
til þess að kynnast öðrum á-
hugamönnum á sarna sviði.
I gær var haldin í Þjóð-
leikhúsinu listsýning og var
efnt til hennar af Rigmor
Hanson og nemendum henn-
ar. —
Þjóðleikhúsið var þéttskip-
að’ áhorfendum er listdans-
inn hófst. Fyrsta atriðið á
efnisskránni var spánskur
dans, er frúin dansaði og
var lionum forkunarvel tekið.
Alls voru 11 atriði á efnis-
skrá, ýmist sólódansar eða
hópdansar. öllum atriðum
var ákaflega fagnað af áhorf-
endum og urðu listdansarar
að endurtaka mörg atriðin.
Mikla eftirtekt vöktu einn-
og sólódansar Svövu S. Han-
son og Ragnheiðar Gröndal.
Hjúskapur.
S. 1. laugardag yoru gei’in
sainan í hjónaband af síra Garð-
ari Svavarssyni, uúgfrú Ingi-
björg' Árnaaóttir, Sogabletti 13
og Höröur Hafliðason járn-
snirið.u Asvallagötu 61. —
Heimili þeirra veröur að Söila-
skjóli 6.
Hingað er væntanlegur til
lands góður gestur á fimmtu
daginn kemur, prófessor
Francis Bull frá Háskólan-
um í Osló, og mun hann
flytja hér fyrirlestra, sem
opnir verða almenningi.
Þannig er háttaö um hing-
aðkomu próf. Bull, að ekki
varð yfirfært allt það fé, er
safnaðist í Noregssöfnun-
inni hér um áriö, en eftir
stríðiö var ákveðiö, að skipta
því fé, sem eftir var, milli
Rauða Kross Noregs og Nor-
egs og Norræna félagsins
norska. — í fyrra ákvaö svo
fulltrúafundur Norræna fé-
lagsins að stofna sjóð af fé
þessu, sem nemur um 100
þús. krónum íslenzkum, og
skal vöxtum af sjóðnum var-
ið til þess, að bjóða hingað
norskum vísinda- og lista-
manni og til Noregs íslenzk-
um lista- og vísindamanni.
í stjórn þessa sjóðs voru
kjörnir Guðlaugur Rósin-
kranz þjóðleikhússtjóri, for-
maður, dr. Páll ísólfsson og
Harald Grieg, formaður Nor-
ræna félagsins norska.
Var síðan ákveðið að bjóða
hingað fyrstum manna próf.
Francis Bull, einum kunn-
asta bókmenntafræðingi og
fyrirlesara Norðmanna.
Próf. Francis Bull var í
stjórn norska Þjóðleikhúss-
ins og sat, ásamt Harald
Grieg um 3 ára skeið í Grini-
fangelsi vegna þess að hann
vildi ekki efla „menningar-
áhrif“ nazista við leikhúsið.
Þar gerðist hann brátt átrún
aðargoð fanganna, flutti þar
fyrirlestra nær daglega og
hélt uppi mikilli menningar-
starfsemi í fangelsinu.
Fyrsti fyrirlestur próf.
Bull verður fluttur á föstu-
dagskvöld í hátíðasal Há-
Skólans, og mun fjalla um
norskar nútímabókmenntir
Almenningi er heimill að-
gangur meðan húsrúm
leyfir.
Pað var ekki von
á öðru.
Detroit (UP). — Frú Patr-
icia Stevens var ein margra
kvenna, sem fengu skilnað í
síðustu viku.
Qrsökin til þess, að hún
sótti um skilnað og fékk
hann, var sú, að maður
hennar kyssti alltaf hund
þeirra á morgnana, er hann
fór til vinnu, en lét sér
nægja að klappa konunni á
ki'nnina.
Þing sambanda
feerklasjúklinga
háð í Noregi.
Þing Samhanda berkla-
sjúklinga á Norðurlönclum
verður háð í Þrándheimi þann
17. júní n. k.
Tveir fulllrúar frá hverju
Norðurlandanna munu sækja
þing þetta, en á því verður
fjallað um haráttuna fyrir
útrýmingu herldaveikinnar.
Ennfremur verður þar ræít
urn á hvern hátt heppilegast
og bezt er hægt að koma því
við, að sjáklingar geti séð scr
farborða nieð vinuu sinni, en
fruinskilyrðið í þvi efni er að
koma á fól vinnulieimiLum
fyrir sjúklingana, eins og liér
á landi hefir verið gert og er
verið að gera.
Ráðgert er að tveir fulltrú-
ar héðan sæki þingið, svo
fremi, að gjaldeyrir fáist lil
fararinnar. Eru það þeir
Þórður Benediktsson og Árni
Einarsson.
Siglunes og Hvítá
fengn 25 lestir
hvor.
Togbátarnir komu flestir
inn um helgina og var afli
peirra mjög misjafn.
Mestan afla höfðu Siglu-
nesiö og Hvítá með um 25
lestir hvor, en Siglunesið var
með 5 tonn af kola. Steinunn
gamla kom fyrir helgi til
Keflavíkur af lúðuveiöum
fyrir Vesturlandi og hafði
fengið 150 lúður, um 4%
smálest. Talið er að afli
Steinunnar gömlu hefði orð
ið meiri, ef beitan hefði ver-
ið betri og útbúnaður annar
Englendingar, sem voru á
veiðum á sömu slóðurn,
veiddu talsvert betur. Stein-
unn gamla fékk nýja beitu
úr Akranesbát og er farin á
veiðar aftur.
Víðir kom í gær úr útilegu
með 15 lestir af saltfisk og
mun nú hættur veiðum.