Vísir - 31.05.1958, Blaðsíða 8

Vísir - 31.05.1958, Blaðsíða 8
E&lwrt U18 tr idýrarm i áikrift em Vfjir. Látil kaiua fœra yður fréttir aimaS lcatrarcfal htln —- áa fyrlrkmínau mf ylar kálfu. Sími 1-11-1«. wisaiB. Munið, a3 þeir, aem gerast áskrifendor Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðil ókeypi* til mánaðamóta. Siml 1-16-60. Laugardaginn 31. maí 1958 ULIU^i. Danskur leíkfiokkur á leið- inni til ísiands. Aiúii’gii’ leili.arainia ern áði!i' kaiiinii' iii’ ilÍMiwkeiiii kvikmviaaliiiia. Leiðtogar jafnaða w fund með de sátu í gærkvöldi. líanski IeEkflokkurinn frá rolketeatret, sem undanfarna daga iiefur ferðast miili liöfuð- (borga Norðurlandanna og sýnt teikritið „30 ára frestur" eftir ■Soj'a, kemur lil Reykjavíkur á rnörgun og sýnir hér tvö Uvöld í rcið, mánudag ()•<■ þriðjudag. Leikhússtjórinn, Thorvald Larsen, hóf leiklistarnárn 1918 , við Odense Teater og var svo forstjóri þess 1927 þar til 1935 að hann gerðist forstjóri fyrir Folketeatret í Kaupmannahöfn og hefur gegnt því starfi síðan. Leikför danska leikflokksins er gerð til þess að endurgjalda Iteimsóknir Norðurlanda-leikhús anna og er Reykjavík síðasta borgin sem sýnt er í áður en Ieikararnir halda heim aftur. Leikararnir sem hingað koma eru mörgum Reykvíkingum kunnir úr dönskum kvikmynd- um og eru allir góðir listamenn. Aðal hlutverkin leika þau Ebbe Rode og Blrgitte Federspiel. Ebbe Rode kom fyrst frám á Ieiksviði í Dagmarteatret 1931 og vakti feiki mikla athygli. Aðalhlutverkið á móti honum Ieikur Birgitte Federspiel. Birgitte Federspiel hefur leik- ið í mörgum dönskum kvik- myndum og hjá Folketeatret frá því 1946, að hún var ráðin þang- að til þess að leika hlutverk dótt- urinnar í leikriti Priestleys, „Ó- vænt heimsókn". Knud Heglund hefur unnið við Folketeatret um 15 ára skeið, bæði sem leikari og leiksviðs- stjóri. Vera Gebuhr kom beint úr leikskóla Konunglega leik- Iiússins til Folketeatret, þar sem hún hefur einkum leikið skap- gerðarhlutverk svo sem eins og Oliviu í „Þrettándakvöld", Betru í „En folketjende" og Hester Collyer í „Djúpið blátt". I I Leikstjúri er Björn Watt Bool- sen og er hann meöal eftirsótt- ustu ungu leikstjóra Dana. Hann hefur einnig sem leikari við Det j Ny Teater og Folketeatret skáp- að margar eftirminnilegar per- sónur. Hann er kvæntur Lis jLowert leikkonu og leika þau bæði í þessari sýningu. Leikkonan Birthe Backhausen var balletdansari, en hætti við dansinn 1949 og hefur gefið sig að leiklist siðan og starfar aðal- lega við Odense Theater. Á undan sýningunni flytur frú j Ingeborg Skov ljóð Hartvigs Æeedorffs „Svanerne fra Nord- en“. Hátíðablað sjálfstæðis- manna í Afmælisrit SVFl. I nýlega útkomnu afmælis- riti Slysavarnafélags íslands er að finna ýmislegan fróðleik um slysavarnastarfsemi á þessu tímabili. Þar er m. a. athyglisverð grein eftir Gísla Sveinsson fv. sendiherra um slysatryggingar, aðallega að því er varðar af- skipti islenzkrar löggjafar af þessum efnum frá upphafi og til þessa tíma. Er það í fyrsta skipti, að þessi mál eru þannig krufin og skýrlega fram sett. Sovétstjórnin liefur „frest- að“ láni, seni Júgóslavíu var lofað, í annað sinn, í þetta skipti um 5 ár, enda á Tító nú ekki upp á pallborðið hjá valdhöfunum í Kreml. Lánið svarar (il 260 millj bandar., dollara. Ilámar, biað Sjálfstæðis- manna, liefur koniið út í hátíðar- útgáfn í tilefni 50 ára afmælis Hafnarf.jarðarkaupstáðar nú um hejgina. Blaöið er geysivel úr hendi gerf og um 40 síður að stærð í stóru broti. Af efni hátíðnrblaðs- ins má geta greinar eftir rit- stjórann, Árna Grétar Finnsson, um Hafnarfjarðar kaupstað 50 ára. Þá er ávarp bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, ennfremur grein um sögu útgerðarmála í Hafnarfirði eftír Matthías Á. Matthíasson, mjög itarleg með fjölda mynda. Ingólfur Flyge- ring framkvæmdarstjóri ski-ifar góða grein um verzlunarsögu Hafnarfjarðar, sem einnig er prýdd mörgum myndum. Inni í blaðinu er myndaopna með myndum úr Hafnarfirði eftir Guðm. H. Garðarsson viðskipta- fræðing. Páll V. Daníelsson við- skiptafræðingur skrifar þætti úr menningarmálum Hafnarfjarð- ar og Bjarni Snæþjörnsson læknii- ítarlega grein um þróun heilbrigðismála í I-Iafnarfirði. Þessar greinar eru prýddar mörgum ágætum myndum úr Hafnarfirði. Blaðið er í hvivetna hið vand- aðasta og á forsíðu þess er skemmlileg teiknimynd af Hafn- arfirði eftir Pétur Friðrik. Coty ferseti vann í gær að þvi daglangt, að tryggja De GauHe jjingfylgi. Þrír leiðtogar jájnaðarmanna í Frakklandi, sem til þessa hafa 'verið' and'stceðingar De Gaulle, fóru í gœr til sveitarset- urs hans, til þess að rœða við hann. Þetta gerðist eftir að Coty hafði rætt mestan hluta dags um hversu tryggja mœtti De Gaulle meirihluta á þingi. Úrvalslið skipað. Úrvalslið Knattspyrnuráðs Reykjavíkur í bæjarkeppninni við Alcranes í dag kl. 5.30 á Melavellinum verður þannig skipað; Heimir Guðjónsson, K.R., Rúnar Guðmannsson, Fram, Ólafur Gíslason, K.R., Garðar Árnason, K.R., Haildór Hall- dórsson, Val, Hinrik Lárusson, Fram, Dagbjartur Grímsson, Fram, Guðmundur Óskarsson, Fram, Þórólfur Beck, K.R., Gunnar Guðmannsson, K.R. (fyrirliði) og Skúli Nieisen, Fram. Hann bauð ieiðtogum allra flokka til forsetahallarinnar, en leiðtogar kommúnista Thore og Duclot komu ekki. Þeir kváðust ekki vilja vera aðilar að fyrir- fram ákveðinni áætlun til þess að koma De Gaulle til valda. Leiðtogarnir, sem fóru á fund |De Gaulle, eru Vincent Auriol ^fyrrv. ríkisforseti, framkv.st. ^flokksins (hér verður bætt inn í í próförk). Fréttarritarar segja, að vafa- laust hafi Coty veizt erfiðast að sveigja leiðtoga jafnaðarmanna til fylgis við De Gaulle, og erfitt muni reynast að finna leið, sem allir geti sætt sig við„ og þá fyrst og fremst jafnaðarmenn, en þeir muni hinsvegar sjá, að dráttur eykur hættuna á íhlut- un hershöfðinggjanna, og bráð- lega kann því að nást samkomu- lag. . • N Verkfall. Skólakennarar um allt Frakk- land gerðu verkfall' til þess að mótmæla því, sem gert hefur verið til að hnekkja lýðveldinu, og var þátttaka sæmileg í París og alger annarsstaðar í Frakk- landi. Madagaskar. Landsstjórnin á Madagaskar hefur í skeyti lýst trausti sínu á De Gaulle, svo framt að hann fari vegu lýðræðisins. Alsír, Þar er það „mikla spurning- in“, síma fréttamenn, hvað upp- reistarherinn gerir. Hinir miklu atburðir seinustu daga hafa komið þeim algerlega óvænt og hafa án efa lamað þá. Þeir mega vænta harðrar sóknar, ef De Gaulle tekur völdin. Þeir hafa 25.000 manna lið og vafa- laust margt varamanna, en hálfrar milljónar her er að mæta, og þar með beztu her- sveitum Frakka, og vafalaust finnst hershöfðingjunum, að þeir hafi í hendi sér að „friða landið“. í Marseille var fjöldafundur í gægrkvöldi og ákveðið verkfall hafnar- verkamanna. Fréttaritarar segja, að erfitt sé að gera sér grein fyrir því, hvort því var almennt hlýtt, en vissulega hafi ekki „raunverulega margir ver- ið að vinna“. Aðsókn hefur verið góð að undaníörnu að málverkasýningu Sveins Björnssonar í sýningarsalnum við Kirkjustræti. Hafa komið þar á 7. hundrað mánns, og 24 myndir — eða ’þriðjung- nrinn — selzt. Sýningin er opin daglega klukkan 10—23. — Myndin heitir „Tveir menn við sjó og bátur“. I úrvalsliði (B-Iiði) Knatt- spyrnuráðs Reykjavíkur, sem leikur við íþróttabandalag Hafnarfjarðar í dag kl. 3.30 e. h. í Hafnarfirði, í tilefni af 50 ára afmæli kaupstaðarins, eru þessir menn: Björgvin Hermannsson, Val, Hreiðar Ársælsson, K.R., Árni Njálsson, Val (fyrirliði), Páll Aronsson, Val, Hörður Felix- son, K.R., Helgi Jónsson, K.R., Karl Bergmann, Fram, Sveinn iJónsson, K.R., Óskar Sigurðs- son, K.R., Gretar Sigurðsson, Fram, og Ellert Schram, K.R, Nemendar Ævars Kvaran í feikfor. Flokkur frá Leiklistarskóla Ævars Kvarans er að leggja af stað í leikför þessa dagana. í fyrra fór flokkurinn um Vestfirði, en hyggst nú fara víðar um land. Fyrsta sýningin verður að Logalandi, Reyk- holtsdal í kvöld. Þá er sýnt í Borgarnesi og Stykkishólmi. Föstudaginn 6. júní verður sýning á Stokkseyri, daginn eftir að Flúðum í Hrunamanna- hreppi, og í Hveragetði, sunnu- dagskvöld. ‘Eftir að hafa sýnt í Grindavík og Sandgerði heldur fiokkurinn vestur á land og sýnir þar fyrst á Patreksfirði íbstudaginn 20. jún, þá að Fagrahvammi í Örlygshöfn, og svo sem leið liggur Bíldudal, Þingeyri, Suð- ureyri, Súðavík, Bolungavík og Isafirði. Þá mun flokkurinn sýna á ýmsum stöðum norðan- og austanlands, svo sem Blöndu ósi, Húnaveri, Sauðárkróki, Dalvík, Húsavík, Skjólbrekku, Brezk herskip hittast hér í höfn. Svo vill til, að í dag eru hér í höfninni tvö ensk eftirlitsskip, HMS Hound og HMS Palliser. Hound hafði leitað sér hafn- ar vegna bilunar, og varð að flytja varahlut í vél skipsins flugleiðis til landsins, en er viðgerð var lokið, var skipið látið bíða eftir Palliser, sem á að taka við eftirlitsstörfum hér við land, svo að skipverjar gætu háð knattspyrnuleik hér. Síðdegis lætur Hound úr höfn og heldur til Bretlands. Tveir menn úr symfonisku liljómsveitinni i Varsjá hafa beðið lun liæii í V.-Þýzkalansli sein pólitískir flóttamenn. Hljóinsveitin var nýlega í Brussel og serðist svipaður atburður þar. Vopnafirði, Seyðisfirði, Nes- kaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði og Akureyri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.