Morgunblaðið - 11.11.1913, Síða 1

Morgunblaðið - 11.11.1913, Síða 1
 Talsími 500 (Ritstjórn) M0R6DNBLADID Talsími 48 (afgreiðsla) Reykjavík, n.nóvember 1913. Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja 1. árgangur, 10. tölublað I. O. O. F. 9511149 Bio Biografteater Reykjavíknr. Bio Nsf Pierrots. Sjónleikur í 3 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Frú Edith Psilander. Hr. Einar Zangenberg. Fögur og hrífandi ástarsaga. Bio-kaffifjúsið (inngangur frá Bröttugötu) mælir með sínum á la carte réttum, smurðu brauði og miðdegismat, Nokkrir raenn geta, fengið fult fæði. Jiartvig Jlielseti Talsími 349. Nýja Bíó Hraðboðinnfrá Lyon. Frakkneskur sjónleikur eftir hinni frægu skáldsögu: »Póstvagninn frá Lyon«. Keijhið Godfrey Phillips tókbak og cigarettur setn fyrir gæði sín hlaut á sýningu í Londoti 1908 sjö gullmedaiiur og tvær silfurmedaliur Fæst í tóbaksverzlun H. P. Leví. 38E Sælgætis og tóbaksbúðin LAN DSTJARNAN Skrifsfofa _ £imskipafétags Ísíancfs . Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Talsími 409. H. Benetliktsson. Umboðsverzlun. — Heildsala. j í r KnmmfnTrrrT Hvar verzla raenn helzt? Par sem vörur ern vandaðastar! Oar sem ir mestu er að velja! f’ar sem verð er bezt eftir gæðum! Hver uppfyllir bezt þessi skilyrði? óefað Vöruhúsið Reykjavík. Haínarg'erðin. Kirk verkfræðingur og forstjóri hafnarbyggingarinnar, bauð blaða- mörinum og bæjarstjórn í gær að skoða mannvirki þau, sem þar hafa verið gerð. Kl. 11 l/2 var lagt á stað frá bæjarbryggjunni, á stórum flutnings- fleka, sem notaður er við hafnar- gerðina og var mótorbát beitt fyrir. Fleki þessi vegur 15 smál. en fleyt- ir 60. Hann má taka sundur í fjóra hluta og er þá fjórir bátar. Sigldu menn nú út að Orfirisey, þangað sem hafnargarðurinn endar. Þar er fleki mikill og fallhamar, 1800 punda þungur, sem rekur nið- ur staura þá, sem brautarteinarnir hvíla á. Staurarnir eru ca. 5,5—6 stikur frá botni þar sem þeir eru hæst.r, og er garðurinn jafnhár. Neðst í þessum garði er möl og sandur, þá smjágrjót og efst gríðar- stór björg. Eru þau sum svo stór að þau vega um og yfir 10 smá- lestir. Þessir stóru steinar eru fluttir á pallvögnum sem eru svo breiðir að þeir ná út fyrir þvertré þau, sem brautarteina nir liggja á. Það er gert til þess að björgin lendi ekki á stauraendunum og sporðreisi þá. Grandagarðurinn er hlaðinn að inn- an, en ytri hliðin líkist skeri. Þeg- ar garðurinn er orðinn eins hár og þurfa þykir, verður efstu björgunum hlaðið saman eins þétt og hægt er. Til þess er notuð sérstök vél, heljar- bákn eitt mikið sem tekur upp þyngstu björgiti eins léttilega, eins og rnaður tekur sykurmola. Auk, þess eru þarna niður við höfnina enn fleiri verkfæri, sem óþarft væri upp að telja. Þó mi geta þess, að þar er vatnsmælir, sem mælir mesta flóð og minstu fjöru. Bæjarstjórnin gaf að vísu Monberg þær upplýsingar, sem hún gat þessu viðvíkjandi, en aldrei er of varlega farið. Stundu síðar kom járnbrautarlest- in, 22 vagnar talsins, hlaðnir grjóti og möl sunnan úr Öskjuhlið. Voru þeir skildir eftir niður á garðinum, en tveimur sætavögnum, sem ætlað- ir voru áhorfendum, hnýtt aftan í gufuvagninti og fengu þeir nafnið »fyrsta pláss«.. Nú var ekið á járnbrautinui suður í Öskjuhlíð. Tók sú ferð 10 mín- útur, en nú var maður bæði blaut ur og kaldur, því krapahríð var á. Suður í Öskjuhlíð er grjótnáma sú, er efni miðlar í hafnargarðana. Flefir nú þegar verið höggvið stórt skarð í hæðina, en nokkuð er þó eftir I í vinnu er nú við hafnargerðina stórt hundrað mantis, og auk þess nokkrir menn undir yfirstjórn Herm. Daníelssonar. Vinna þeir að grjót- upptöku á melunum, en eru að öðru leyti óháðir Monberg. Inni i Öskjuhlíð hittum við Einar Finnsson verkstjóra, sem meiddist um daginn, er hann var að ferma grjótvagnana. Var hann nú heill heilsu að öðru leyti en því, að hann hafði glóðarauga eigi all-lítið. Grjót- sprengingar voru undirbúnar þar syðra, gestunum til skemtunar. Var kveikt í 10 pd. af sprengitundri í einu, en sökum bleytunnar kviknaði ekki { því öllu. Þó sá maður nokkuð af því gamni. Flugu stór björg í háa ioft, og varð loftið svart af reyk og gufu. Þarna er og önnur hleðsluvél, jafnoki þeirrar sem niður frá er. Tekur hún grjótið og iegg- ur á vagnana, en mölin er tekin í stórum jámkörfum og látin í kassa- vagna. — Ofar í hlíðinni eru smá- kofar, hingað og þangað. Þar er geymdur tundurforði og sprengi- púður. Niður við Hafnarfjarðarveginn er »járnbrautarstöðin« og smiðaskálar. Þangað var nú haldið næst. Sindr- aði þar af glóandi járni á alla vegu og var maður á milli margra elda. Frú Kirk tók þar á móti gestum og leiddi þá til stofu. Var þar etið og drukkið eins og hver gat torgað. Frúin gekk sjálf um beina, og örfaði þnð listina eigi lítið. Matthías skáld, sem var elztur þeirra blaða- manna er þarna voru samankomnir, hélt gamni kryddaða ræðu fyrir minni þeirra hjóna og þakkaði skemt- unina og viðtökurnar. Klukkan var nú farin að ganga fjögur og því haldið heimleiðls. Skoðuðu menn á leiðinni möl og sandnámu, sem er norðan við Hans póst, og fóru svo hver til síns heirnæ Þessi hafnarbygging er hið mesta mannvirki sem gert hefir verið hér á landi til þessa, og eru því öll verkfæri stærri og fullkomnari en maður hefir séð áður. Gengur verk- ið skjótt fram og fyr en búist var við. Mun það góðri stjótn og ötul- um verkalýð mest að þakka. Ríkisráðsákvæðið Bréf kouungs. Þareð Vér höfum nú ákveðið að nýjar alþingiskosningar skuli fara fram, viljum Vér ekki láta hjá Hða að tilkynna kjósendum, að svo fremi að frumvarp það til stjórnarskrár er síðasta alþing samþykti, verður end- ursamþykt á næsta þingi, verðum Vér um leið og Vér undirskrifum frum- varp þetta til staðfestingar, að taka þær ákvarðanir í eitt skifti fyrir öll, viðvíkjandi 1. grein: að íslenzk lög og mikilsvarðandi stjórnarráðstafanir skuii hér eftir sem hingað til verða borin upp fyrir Oss i ríkisráðinu af ráðherra íslands. A þessu getur engin breyting orðið, nema því að eins að Vér verðum að undirskrifa lög um ríkjasamband íslands og Danmarkur, staðfest bæði af Alþingi og ríkisþingi Dana. Christian R. Símfréttir. Akranesi, mánud. kl. 6 síðd. Hlutavelta Ungmennafélagsins og Bárufélagsins var í gær i Báruhús- ínu, og gekk vel. Afli er hér dágóður; hafa menn fengið um 30—40 í hlut á opin skip. Veðrátta: milt veður og mikiil snjór. Gijt voru hér i gær Gísli Einars- son sjómaður og ungfrú Halldóra Þorsteinsdóttir. Gisli. Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Bezta svariö: Góður eiginmaður er nærgætinn við konu sína og reykir þvi að eins ágtætis vindla þá, sem fást í Landsstjörnunni á Hótel ísland. Góður eiginmaður hugsar ekki að- eins um sjálfan sig, heldur kaupir hann þar um leið sælgæti handa konunni. Þannig eiga góðir eigin- menn að vera. Sími 389. Síra Matthías 78 ára. Svei mér ef eg lýg! Slika fullyrðingu mundi þurfa, að minsta kosti við alt ókunnugt fólk sem sæi síra Matthías, ef fá ætti tii að trúa því, að hann væri 78 ára i dag. Ganghraður, snarlegur, orðglettinn og hláturmildur, gáskafenginn og spil- andi fjörugur. Svona er hinn árum aldni skáld- þulur, sem nú skilur 78 árin að baki sér. Vér Reykvíkingar erum svo hepn- ir að hafa hann meðal vor í dag, og ættum að láta hann sjá, að hann er oss meira en »núll og nichte*. í gær var Matthías i hópnum, sem boðið var að skoða hafnarvirkin — hann er einhver elzti islenzki blaða- maðurinn (næstur J. Ól.), og þótt veður væri stirt, bleytu-kafald, og vond færð, var enginn borubrattari en Matthias, nema ef vera skyldi að Tryggvi gamli hafi staðið honum þar jafnfatis Inni í Öskjuhlíð rákumst vér á skáldið, göslandi snjóinn upp að knjám«. »78 ára á morgun! Er það satt?« »Já«, svaraði skáldið, sog er það fyrsta sinni í mannsaldur eða meira sem eg á afmælisdag hér i bænum«. »Það eru orðin stakkaskifti á höf- uðstaðnuir! síðan n. nóv. fýrir meira en mannsaldri?* »Já, mikil ósköp og skelfing. Eg þekki nærri ekkert frá þeirri tið, »kvikt né dautt«. »Kunnið þér þá eigi við yður í Vik?« »JÚ, blessaðir verið þér. Hér kann eg ágætlega við mig, og að mörgu leyti væri langhentugast fyrir mig að vera hér — en —«. í því kom gamli Tryggvi og hvísl- aði einhverju að honum. Þeir hlupu báðir á stað og sáum vér það siðast til þeirra, að þeir höfðu hlaupið af sér alla hersinguna, og skutust inn um smiðjudyr hafnar- gerðarinnar, en allir hinir lafmóðir eftir árangurslausan eltingaleik við gömlu mennina!! Comes. C=1 DAGBÓÍ^IN. C Afmæli II. nóv. Álfl eiður Briem ekkjufrú. Ólafia V. Þórðardóttir. Matthias Joehumsson 78 ára. Erlendur Árnason trésmiður 6ö ára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.