Morgunblaðið - 20.01.1914, Síða 4
m
MORGUNBLAÐIÐ
r=ir=i t apað r=ir=i
Skóhlíf töpuð. Skilist á afgr.
blaðsins gegn fundarlaunum.
Vasahnífur fallegur hefir tapast.
Komið með hann í afgr. blaðsins.
Gleraugu hafa tapast í vikunni
sem leið. Skilist til Asgeirs Sigurðs-
sonar konsúls gegn fundarlaunum.
DEIGA
Góð 4— 5 herbergja íbúð
óskast á góðum stað í bænum frá
14. maí. Ritstj. visar á.
3 herbergja íbúð með eld-
búsi og góðri geymslu óskar reglu-
samur maður, i góðri stöðu, að fá
frá 14. maí. Ritstj. vísar á.
I....-IO YINNA <E==1
Ung stúlka óskast til að gæta
barna nú þegar. Uppl. Njálsg. 13 B.
Stúlka getur fengið vist 14. mai.
Uppl. hjá Morgunbl.
stúlka, dugleg og áreiðanleg,
óskast í visé frá 14. mai. Hátt kaup
í boði. Uppl. á skrifst. bl.
Kjólasaumur.
Eg undirrituð tek að mér alskon-
ar kjólasuum bæði á fullorðna
og börn.
J. Frederiksen
Kárastig xi 2. lopti.
Stúlka.
Ráðvönd og dugleg stúlka, vön
afgreiðslustörfum getur fengiðatvinnu
nú þegar. Tilboð merkt S t ú 1 k a
sendist Morgunblaðinu.
OSTAR og PYLSUR áreiðanlega
bæjarins stærstu og beztu birgðir i
Matarverzlun Tómasar Jónssonar,
Bankastræti 10. Talsimi 212.
Almanak 1914
handa islenzkum fiskimönnum, gefið
út uð tilhlutun stiórnarráðsins, fæst
hjá bóksölum.
Morgunblaðið
Það kostar að eins 65 aura
á mánuði, heimflutt, samsvar-
ar 34—35 blöðum á mánuði
(8 síður á sunnudögum), með
skemtilegu, fróðlegu og frétta-
miklu lesmáli — og myndum
betri og fleiri en nokkurt ann-
að íslenkzt blað.
Gjörist áskrifendur þegar í
dag — og lesið Morgunblað
ið um leið og þér drekkið
morgunkaffið!
Það er ómissandi!
Sími 500.
Hvítar, svartar eikarmálaðar. Líkklæði.
Líkkistaskranr. Teppi lánnð ókeypis í
kirkjnna.
Eyv Arnason.
Trésmíðaverksmiðjan Laufásveg 2.
Kaupið Morgnnblaðið.
YÁtPI^YGGINGA^
A. V. TULINIUS, Miðstræti 6,
Brunaábyrgð og lífsábyrgð
Skrifstofutimi kl. 12—3.
Carl Finsen Austurstr. 5, Reykjavík.
Brunatryggingar. Heima 6 */4—7 */*.
Talsimi 331.
. ULimcx XXI.iT.XTT.twrTiTr"
J Mannheimer vtltryggingarfélag ; C. Trollo Reykjavík ■ Landsbankannm (uppi). Tals. 235. ; Allskonar sjóvatryggingar > Lækjartorg 2. Tals. 399. ; Havari Bureau.
Vátryggið hjá:
Magdeborgar brunabótafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit
Aðalumboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber.
ELDUR! -yqi
Vátryggið í »General«. Umboðsm.
SIG. THORODDSEN
Fríkirkjuv. 3. Heima 3—5. Talsími 227.
LfÖGMENN
Sveinn Björnsson yfirdómslögtf!.
Hafnarstræti 22. Sími 202.
Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6.
Sjálfur við kl. 11—12 og 4—5.
EGGERT CLAESSEN, yfirréttarmála-
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulega heima 10—11 og 4—5. Simi 16.
Bogi Brynjólfsson, yfirréttarmála-
flutningsm. Hótel Island. (Aðalstr. 5).
Venjulega heima 12—1 og 4—6.
Talsími 384.
Rauða akurliljan.
Skáldsaga frá
37 stjórnarbyltingunni miklu
eftir
barone.y.su Orczy,
(Framh.)
Nokkrir ungir og fjörugir menn
höfðu safnast saman um Percy, sem
sem var lífið og sálin í öllum hópn-
um. Hann var að kenna þeim vísu
eftir sig er hann hafði nýort og
var hún nú í allra munni, en hver
sem heyrði hana, hló af ofurkæti.
Henni fanst þetta svo einfeldnis
legt, óttalega einfeldnislegt. Allir
töluðu um Percy og vísuna hans og
prinsinn spurði Margrétu hlæjandi
hvort hún kynni að meta skáldskap
manns síns.
— Mér hefir ekki veizt erfiðara
að yrkja þetta, heldur en setja á
mig hálsknýtið, mælti Percy.
Prinsinn var í sjöunda himni.
Hann sagði að Percy væri það
mesta gull af manni sem hann hefði
nokkru sinni þekt. Og svo tók
prinsinn hann við hönd sér og leiddi
hann að spilaborðinu.
Aðalskemtun Percy var sú að
spila áhættuspil. Og hann lét konu
sína alveg sjálfráða þess, hvort hún
vildi heldur gefa herrunum undir
fótinn, dansa eða láta sér leiðast,
meðan hann sat við spilaborðið.
Margrét var óró og æst, en það
gerði hana enn fegurri.
Karlmennirnir voru á hælunum á
henni, hvert sem hún fór. Allir
voru ásthrifnir af henni á hverjum
aldri sem þeir voru, og í hverri
stöðu.
Hún vildi ekki gefa sér tima tií
grnflana. Æskureynsla hennar hafði
gert hana að forlagatrúarmanni, hún
vissi, að atvikin mundu ráðast eins
og til væri stofnað i öndverðu, og
það væri ekki á hennar valdi að
eiga hönd í bagga með því er gerðist.
Hún vissi, að hún átti engrar vægð-
ar að vænta frá Chauvelins hendi.
Hann hafði sett skilyrðin og yrði
þeim ekki fullnægt,----------ja, hún
réði því s'álf hvort hún frelsaði
bróður sinn eða eigi.
Siðar þetta sama kvöld sá hún þá
koma, Sir Andrew Ffoulkes og
Antony Dewhurst lávarð. Og hún
sá það einnig, að Andrew Ffoulkes
ruddi sér gegnum fólksþyrpinguna
og þangað sem Súsanna de Tournay
var, og að þau gengu burt frá
glaumnum, út í eitt veggskotið, þar
sem þau gátu ræðst við i næði.
Þeir félagar voru þreytulegir og
fölir álitum. En þeir voru vel til
fara og i framkomu þeirra var ekki
að sjá, að nokkuð hefði gengið þeim
á móti. Og ógæfa sú, sem hafði
orðið á vegi þeirra, og læst þá f
læðing, virtist ekki hafa truflað sál-
arrósemi þeirra og geðprýði.
Margrét vissi, að félagar »rauðu
akurliljunnar«, voru ekki þeir menn,
að þeir gengju á bak orða sinna.
Það hafði hún heyrt Súsönnu segja.
Súsanna hafði sagt, að sér hefði
verið trúað fyrir því í einlægni, og
móður sinni hefði verið gefið loforð
um það, að de Tournay greifa skyldi
bjargað. En þegar Margrét leit í
kringum sig í sal þessum, Ijómandi
af ljÖsum og skrauti, þá gat hún
naumast að því gert, að efast um
það, að »rauða akurliljan« mundi
þar vera. Hún treysti engum þeirra
er þar voru, til þess að vera frum-
kvöðull og framkvæmandi allra þeirra
'
ísafold 1914.
Nýir kaupendur að næsta árgangi
ísafoldar (1914) fá í kaupbæti, um
leið og þeir greiða andvirði ár-
gangsins (4 kr.) 3 neðantaldar bækur:
1. Fórn Abrahams (600 bls.)
eftir Gustaf Jansson.
2. Fólkid við hafið eftir
Harry Söiberg.
3. Mýrakotssteipuna og
Guðsfriðinn eftir Selmu Lagerlöf
í þýðingu Björns heit. Jónssonar.
Nýir kaupendur utan Reykjavikur,
er óska sér sendan kaupbætirinn —
verða að greiða í burðargjald 30 au.
Ella eru menn vinsamlega beðnir
vitja kaupbætisins í afgreiðslunni.
A 11 i r viðurkenna, jafnt stjórn-
mála-andstæðingar sem aðrir, að
ísafold sé fjölbreyttasta og efnismejtt
blað landsins, pað bladið, setn cr.^
hœqt án að vera — það blað, sem
hver íslendingur verður að halda, er
fylgjast vill með í því, er gerist utan-
lands og innan í stjórnmálum, at-
vinnumálum, bókmentum og listnm.
Talsími 48.
Til hægðarauka geta menn
út um land sent andvirðið í frí-
merkjum.
ÍSAF0LD er blaða bezt.
ÍSAF0LD er fréttaflest.
ÍSAF0LD er lesin mest.
hetjuverka, sem »rauða akurliljan*
og félagar hans höfðu afrekað.
Hún lét tilfinningarnar fá vald
yfir sér. Hana langaði svo óhemju-
mikið til þess að kynnast þessum
manni, einmitt nú. Hún hafði áður
heyrt talað um dáð hans og dreng-
skap, og gat þá vel sætt sig við
það að hann færi huldu höfði. En
nú langaði hana til að kynnast hon-
um — ekki vegna Armands og því
síður vegna Chauvelins — en sjálfs
sín vegna.
Það var auðvitað að hann mundi
vera hér á dansleiknum. Annars
hefðu þeir Sir Andrew Ffoulkes og
Antony Dewhurst lávarður ekki kom-
ið þangað. Það var auðsætt, að þeir
væntu þess að hitta hann þar til skrafs
og ráðagerða.
Hún leit yfir allan hópinn og
virti fyrir sér hvern mann. Flestir
þeirra, er þar voru, voru af nor-
rænum kynstofni, engilsaxar, háir og
herðabreiðir, en Ijósir á hár og hör-
und. Nokkrir voru þar af keltnesku
kyni, bljúgir í lund og raungóðir.
Og hún velti því fyrir sér af hverj-
um þessum þjóðflokki hetjan rrtundi
vera.