Morgunblaðið - 16.09.1914, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
*4S9
B=3 DAGBÓEflN. t=
Afmæli í dag:
Elín Thorarensen, húsfrú.
Kristín Benediktsdóttir, kensluk.
Magnea Kristjánsdóttir jungfrú.
Chr. Jónasson, fyrv. kauptn.
Theodor J. Jensen, ritari.
Vilhj. J. Þorsteinsson.
P ó s t a r í dag:
Hafnarfjaröarpóstur kemur og fer.
Álftanespóstur kemur og fer.
Pústar á morgun:
Vestanpóstur fer.
Norðanpóstur fer.
Ingólfur til Borgarness.
Sterling á að koma frá útlöndum.
Sólarupprás kl. 5.53.
Sólarlag — 6.51.
H á f 1 ó ð kl. 2.36 f. h.
og 3.2 e. h.
Heinr. Marsmann’s
Yindlar
La Maravilla
eru langbeztir.
Aðalumboðsmenn á Islandi: Nathan & Olsen.
Nordmænd paa Island
bör holde
Tidens Tegn,
alsidig, lotlæst og underholdende.
Pris 96 Kr. [pr. Aar — tilsendt to gange ukentlig.
Veðrið i gœr:
Vm. n., andvari, hiti 2.7.
Rvk. logn, hiti 0.8.
ísaf. n., hvassviðri, hiti 2.2.
Ak. n.n.v., kul, hiti 3.5.
Sf. logn, hiti 1.1.
Þórsh., F. logn, hiti 8,4.
Ekkert samband við Grímsstaði á
Hálsfjöllum í gærmorgun.
Björn Björnsson bóndi á
Litla-VelH hór f bæ, dó 13. sept, varð
hann 66 ára, vel metinn dugnaðar-
maður; lætur eftir sig konu og upp-
komin börn.
Árni Árnason, tómthúsmaður á
Laugav. 46, andaðist á Landakots-
spítala í gær, 15. sept. Margir bæjar-
búar kannast við Árna sál., því að um
mörg ár var hann starfandi við dóm-
kirkjuna, hafði á hendi ræsting henn-
ar. Var hann ötull og trúr starfs-
maður. Hann var kvæntur, og er
kona hans og börn mörg á lífi.
Húsanúmerunum á Hverfis-
götu hefir verið breytt þessa dagana.'
Opinber tilkynning um það þó enn
ókomin, en hennar kvað vera von bráð-
lega. Breytingin olli töluverðum
óþægindum í gær, þeim sem erindi
áttu í einhver viss hús, en gátu ekki
fundið þau vegna breytingarinnar á
númerunum.
Þ u r k u r var um alt land í gær.
Forvextir í bönkunum eru nú
7%.
Snorri Sturluson kom frá
Bretlandi í gær.
General Gordon, brezkur
botnvörpungur, kom hingað í gær
beina leið frá Bretlandi.
N 0 r a, sfldarskip P. J. Th. & Co.
fór í gær til Vestmanneyja hlaðið síld.
Morgunblaðinu hafa borist
bíezk blöð til 10. þ. m. Mikið af
fróttunum f blaðinu í dag er úr þeim.
Meira kemur næstu daga.
F1 e b t i r kaupmenn bæjarins hafa
nú fengið töluvert af matvörum í
verzlanirnar.
Fermingarbörn dómkirkju-
safnaðarins eru beðin að koma heim til
prestanna, hvors fyrir sig, í dag kl.
4 síðd.
H i n g a ð kom í gær kaupfar frá
Grænlandi, gufuskipið Ajax. Kom það
hingað frá Ivigtut og með því tveir
farþegar, dr. Norman-Hansen, sem hór
hefir oft verið áður, og frk. Mickelsen.
Hefir hún dvalið tvö ár f Grænlandi
en læknirinn að eins verið þar í sum-
arleiðangri.
Farþegarnir komu inn á skrifstofu
vora í gær og fengu allar nýjustu
fregnir frá ófriðnum. Vissu þau lítið
um styrjöldina, en höfðu þó sóð eitt
eintak af St. Johnsblaði frá 4. ágúst,
sem komið hafði til Grænlands. Þeim
var forvitni á að heyra sem mest um
ófriðinn og fengu þau að skilnaði hjá
oss allstóran blaðastranga. Skipið
fer hóðan beina leið til Khafnar.
Earl Hereford kom hingað frá
Bretlandi U gær.
Hannes Thorsteinsson cand.
juris., kom í gær heim úr 12 daga
ferðalagi um Árnessyslu.
S n j ó r fóll mikill á Kolviðarhóli,
Hellisheiði og Svínahrauni í fyrri nótt.
Ofriðarsmælki.
Löwen. Þýzk blöð hafa nú til-
kynt að Löwen hafi ekki alveg
verið lögð i auðn eins og fyrst var
frá sagt. Ráðhúsið kvað enn vera
óskemt og Péturskirkjan ekki ver
leikin en það, að vel megi gera við
hana. En málverk borgarinnar öll
og listasöfn eru alveg óskemd.
Frá Þrándheimi. Talsmenn verka-
mannaflokksins í bæjarstjórn Þránd-
heims, leggja það til að bæjarstjórn-
in skuli sjálf annast alla kolaverzlun
meðan á stríðinu stendur og hafa
matgjafir í barnaskólunum.
Fangar berjast. í Köln á Þýzka-
landi eru geymdir rússneskir, fransk-
ir og belgiskir fangar, sem teknir
hafa verið í ófriðnum. En þeir eru
svo herskáir og illir hver í annars
garð, að menn hafa neyðst til að
stia þeim sundur og hafa hvern þjóð-
flokk sér, svo þeir yrðu ekki hverir
öðrum að bana.
Flugbann. Tyrkir hafa bannað öll-
um erlendum flugmönnum að svífa
yfir landi sínu. Hafa öll vígi þeirra
fengið stranga skipun um það, að
skjóta á hvert það loftfar er dirfist
að brjóta þetta boðorð.
Kitchener var sjálfboðaliði í her
Frakka í fransk-þýzka ófriðnum 1870
—71, tvítugur að aldri.
1 byrjun ófriðarins var talað um
það i Canada að senda 25,000 menn
til hjálpar Bretum, og skömmu síðar
var liðsmanna talan hækkuð upp í
50,000. Nú ætla Canadabúar að
safna 100,000 hermönnum og senda
þá. Fyrstu herdeildirnar voru um
það leyti að leggja af stað þann 4.
þ. m. segja ensk blöð.
2 milj. sterlingspunda hafa Bretar
skotið saman til líknar bágstöddum
meðan á ófriðnum stendur. Prins-
inn af Wales var forgangsmaður að
því að þau samskot voru hafin.
»MínnÍ8t Löwen«. Stúdentar í
Wales hafa i hyggju að mynda sveit
og ganga í herinn og hafa að bar-
dagaópi: »Minnist Löwen«.
Þýzk beitiskip kvað hafast við
skamt frá Trafalgar og hindra þar
sigiingar Breta.
Konungur á hrakningi. Þann 3.
þ. mán. yfirgaf Vilhjálmur Albaniu-
konungur ríki sitt — einu sinni enn.
ítalskt herskip flutti hann til Venedig.
Gamla Biö sýndi í gærkvöldi
mynd, sem nefnist »Maxim stúlkan*.
Myndin er óvenjulega skemtileg og
vel leikin. Margir munu án efa
kannast við myndina, því hún var
sýnd í Gamla Bíó fyrir hálfu öðru
ári, — og mun þá langa til að sji
hana aftur. En hinir eru þó fleiri
sem aldrei hafa séð hana, og fyrir
þá er myndin sama sem ný. —
Hún verður ekki sýnd oftar en í
kvöld og annað kvöld.
Aukamynd er »Járnnámur í Ertz-
-fjöllunum* mjög falieg náttúrumynd
og lærdómsrik.
X.
T v ö þ ý z k beitiskip söktu nýlega
15 brezkum botnvörpungum í Norður*
sjónum þ. 5. þ. m. Á einum þeirra
var einn íslenzkur sjómaður.
fms sölubuðargögn,
peningakassi (Kontrolkassi)
og ritvélar
fæst með tækifærisverði hjá
6. Gislason & Hay.
cfíQtjfií ýsa,
dlayRt sitóf
dZayfítur lax
fæst i
Liverpool.
Reyktóbak,
ýmsar enskar tegundir, þar á meðalr
Latakia og
Glasgow Mixture
nýkomið í tóbaksverzlun
%3t. <3*. JZavi,
og selst — þrátt fyrir stríðið — með
sama verði og áður.
Með S.s. „Botnia"
fekk eg stórar birgðir af óáfengum
öltegundum:
Krone-porter, Hafnia-porter
Krone-lager, Hafnia-lager
og fleiri öltegundir.
Alt sel eg nú fimm aurum ódýr-
ara, þar sem eg hefi komist að betri
kaupum.
Kaffl- og Matsölnhnsið Langav. 23.
K. Johnsen.