Morgunblaðið - 25.10.1914, Blaðsíða 2
1636
MORGUNBLAÐIÐ
Undirrifuð
kennir að taka mál og teikna kjóla
og »dragtir«.
Lysthaíendur geíi sig fram fyrir
1. nóvember.
Vilborg Vilf)já(msdótfir
Laugavegi 10.
Jarðarför föður míns fer fram næstkom-
andi miðvikudag 28. þ. m. og byrjar með
húskveðju kl. II1/,, á heimili minu, Strand-
götu 15 f Hafnarfirði.
Ingvar Jóelsson
lega flæmi sem barist er á. Tíðindi
þau, sem nú eru að gerast, eiga
áreiðanlega engan sinn lika í sög-
unni áður, og atburðirnir reka svo
skjótt hver annan, að það erfitt að
fylgjast með, enda þótt við fáum
miklar fregnir.
Það er enginn efi á því að banda-
menn eiga Belgum ákaflega mikið
að þakka fyrir hina hreystilegu vörn
þeirra fyrsta hálfan mánuðinn. Og
það er enginn efi á því að vörn
Belga mun stytta ófriðinn að mikl-
um mun.
Þegar Hawke sökk.
Beitiskipið Hawke var á verði i
Norðursjónum þegar þýzkur neðan-
sjávarbátur sökti því. Tundurskeyt-
ið kom á mitt skipið, varð af þvi
mikil sprenging, tók skipið þegar að
hallast. í sama mund sáu skipverj-
ar skygnisturn neðansjávarbátsins
koma upp, reyndu þeir þá að beina
fallbyssum sínum á hann en urðu
að hætta við það vegna þess hve
skipið hallaðist. Var þá reynt að
hleypa niður bátum, en vegna þess
að skipið sökk á 8 mínútum var
ekki hægt að koma nema einum
bát á flot. Skipstjóri og næst æðsti
foringi skipsins stóðu á stjórnpalli
og sögðu fyrir hvað gera ætti. Sukku
þeir báðir með skipinu.
Ánnað beitiskip brezkt, Theseus,
var þar skamt frá en hélt á brott
með því að neðansjávarbáturinn var
á sveimi kring um Hawke.
Áður en skipið sökk var fleygt út
ýmsu rekaldi og gátu menn haldið
sér uppi á því um stund. Báturinn,
sem af komst var svo hlaðinn af
fólki, að ekki var viðlit að taka
fleiri. Þeir sem i honum voru tóku
af sér björgunarbelti sin og köstuðu
til félaga sinna sem á sundi voru.
Nokkru síðar bar að norskt skip
og bjargaði það þeim sem i bátnum
voru, 49 manns. Siðan hafa 24
manns komið fram. Höfðu þeir
gert sér fleka og verið bjargað af
öðru skipi. Alls fórust liðlega soo
manns. Einn af þeim sem af komst
var á beitiskipinu Hogue þegar það
sökk.
I
1
I
V. B. Ji.
Með síöustu skipum
hafa komið miklar birgðir af
Léreftum, Dömuklæðum, Klæðum,
Rekkjuvoðirnar góökunnu, Treflum,
Borðdúkum, Divanteppum, Stúfasirzi o. m. fl.
gfr Tlú er f)ver síðasfur
að fá sér ódýrt 8JAL fyrir veturinn, þvi um
mánaðamótin verður hætt að gefa afslátt
af sjölum.
TJofið því fækifœrið.
Verzt Björn Hrisfjánsson
Síðustu símfregnir. London 24. okt. kl. 12,30 f. h.
Þjóðverjar hafa verið reknir aftur úr héraðinu við Warshaw og hafa
orðið að yfirgefa margar ramlega víggirtar aðstöður. Fjöldi þeirra hefir
verið tekinn til fanga, bæði við Warshaw og í nánd við Przemysl.
Rússar vinna stöðugt á.
Hvað viðureigninni að vestanverðu viðvikur, þá er það tilkynt að
áköf orusta standi á Norður-Frakklandi og gangi bandamönnum betur.
Sérstaklega er það tekið fram hve hreystilega Belgaherinn hafi gengið
fram. Belgar hafa barist í marga daga í skotgryfjum gegn ofurefli Þjóð-
verja. Konungur þeirra er þar sjálfur með þeim og verja þeir nú sein-
ustu milurnar af landi sínu.
Þjóðverjar leggja nú alt sitt kapp á það að ná þessu svæði-
Flotadeild veitir vinstra herarmi bandamanna lið með þvi að skjóta
á herflokka Þjóðverja á Belgíuströndum. Hafa fallbyssur skipanna unnið
Þjóðverjum ákaflegt tjón, þvi þær draga lengra en þeirra byssur.
Þjóðverjar hafa hvergi unnið á og áhlaup þeirra á hægri fylkingar-
arm bandamanna hafa mistekist.
lapanar hittu tvær hjálparsnekkjur Þjóðverja. Önnur sökti sér sjálf,
en hin var hertekin.
Það hefir vakið mikla gremju i Englandi að þangað hafa komist
þýzkir njósnarar, klæddir sem belgiskir flóttamenn.
Þýzka beitiskipið Emden hefir náð fleiri brezkum skipum i Indlandshafi.
Öllum skipum óvinanna í Súezskurði hefir stjórnin í Egyptalandi
skipað að verða á brott þaðan vegna fjandsamlegra athafna er þau hafa
haft i frammi eða hafi i hyggju, er geri siglingar um skurðin hættulegar.
Skip þessi noti skurðinn ranglega til þess að komast hjá hertekningu.
Því er lýst yfir að herlánsskuldabréfin þýzku séu ekki gjaldgeng sem
borgun frá þýzkum kaupmönnum til brezkra kaupmanna.
Opinber frönsk tilkynning kveður að mikið lið Þjóðverja hafi gert
áköf áhlaup á vinstra herarm bandamanna, einkum hjá La Basses.
Yfirleitt hafa bandamenn haldið velli og þó að þeir hafi látið undan síga
á nokkrum stöðum, hafa þeir aftur unnið á á öðrum stöðum. Þeir
hafa einkum unnið á í héraðinu við Roulers og að sumu leyti einnig
hjá Verdun og Pont á Mousson.
Þjóðverjar gera nú nýar tilraunir tii þess að vtnna á um alt orustu-
svæðið og nota nýar höfuðdeildir (corps) sem í eru nýliðar og þeir
margir mjög ungir, en aðrir gamlir, með fyrirliðum og varafyrirliðum úr
ýmsum áttum.
Það er tilkynt að Prins Max af Hessen hafi fallið þann 12. okt. i
nánd við Montereau-faut-Yonne og hafi verið grafinn þar í klausturgarði.
Það er skýrt frá að brezkir köfunarbátar séu stöðugt á verði í
Norðursjónum og talað um mörg hreystiverk einstakra manna.
Austurstræti 14.
^fofnaéarvoruéeiíé:
Léreft, 48 tegundir, viðurkend
landsins beztu.
Flönel, hvit og mislit.
Tvisttau, 145 tegundir, ódýr og
góð að vanda.
Gardinutau, mikið úrval.
Morgunkjólatau og sirts.
Fóðurtau.
Dreglar — Handklæði.
Verkmannafataefni.
Klæði — Dömuklæði.
Kjólatau.
Silki — Silkibönd.
Flauel.
Leggingar — Bróderingar.
Smávörur.
Borðdúkar, misl. Divanteppi.
Hvitir Dúkar og Serviettur,
ódýrt en vandað.
Sjöl.
Hanskar (skinn) Vetrarvetl—
ingar allsk.
Prjónavara.
Tilbúinn Sængurfatnaður.
Fiður og Dúnn, gufuhreinsað,.
lyktarlaust.
Sængurdúkar.
Fiðurheit léreft.
t 0 a *
Hinar heimsfrægu Frister og Ross-
manns Saumavélar, sem hafa
margra ára hérlenda reynslu með
miklu lofi. — Stórt og gott úrval
nýkomið, verð lágt sem fyr.
»Claés« Prjónavélar, sem hafa
26 ára hérlenda reynslu. Verð
frá kr. 95.00 til 400.00.
Nokkrar vélar fyrirliggjandi.
cTatasoíuéaiíé:
Karlmannsfatnaður frá 12.50—45.00.
Drengjafatnaður, margar gerðir og
stærðir.
Vetrarfrakkar karlm. frá 14.00—
45.00.
Drengja-vetrarfrakkar.
Stakar karlm.- og drengja-Buxur.
Nærfatnaður, Sokkar, Höfuðföt,
Slaufur og Slifsi,
Erfiðisföt, haldgóð og ódýr
o. m. m. fl.
Munið að þessar verzlanir leggja
alla áherzluna á að selja sem vand-
aðasta vöru með eins lágu verði og
unt er.
Th. Thorsteinssonr
Austurstræti 14.