Morgunblaðið - 03.07.1917, Qupperneq 1
I»riðjudag:
4. árgangr
3.
júlí 1917
fllORGDNBLABID
238.
tðlublað
Ritstjórnarsírni nr. 500
Ritstjóri: Vilhj.tlmur Finsen
ísifoldarprentsmiója
Afgreiðslnsimi nr. 500
Gamla Bio
Þegar
Chaplin
Sék
fyrstu kvikmyndina
verður
vegna fjöldra áskorana
sýnd aftur i kvöld
og annað kvöld
i síðasta sinn.
I»etta er sú bezta Chap-
lins-mynd sem hér
hefir sézt.
Jarðarför Einars séluga Sveinssonar fer
fram fimtudaginn 5. júlf n. k. og hefst með
húskveðju kl. 12 á hádegi frá heimili hins
iátna, Hverfisgötu 74.
Kona og börn hins látna.
Jarðarför konunnar minnar sál. Katrfnar
Einarsdóttur fer fram miðvikudaginn 4.
júli kl. II1/, f. h. og hefst með húskveðju
frá heimili sonar hennar, Grettisgötu 2.
Guðbrandur Guðbrandsson.
Hér með tilkynnist vinum og ættingjum
nær og fjær, að AsgrimurValdemar Oddsson,
(Bói), sonur Sveins Oddssonar fyrv. bif-
reiðarstjóra hér i bæ og Margrétar Odds-
son, andaðist f Wynyard Sask. 29. april
sfðastl. á heimili foreldra sinna, úr hjarta-
slagi.
Frændfólk hins látna.
Það tilkynnist hér með vinum og vanda-
mönnum, að Jón Sigurðsson fyrv. bóndi f
Syðstumörk, andaðist á heimili sinu f
Hafnarfirði kl. II e. h. 30. júni.
Mikið árval af
n
nýkominir í verzl. Goðafoss.
laugaveg 5. Simi 436.
Hafnarfjaröarbíllinn nr. 6
gengur daglega milli Hafnarfjarðar og Reykjavikur. Einnig fæst hann i
lengri og skemmri ferðir.
, Afgreiðsla er i Kaupfélagi Hafnarfjarðar, talsími 8 og Litlu búðinni
í Reykjavik, talsími 529.
——*------------------------------------
Bræðslufélagil Keflavfk
hefir til sölu
ca. 130 tunnur af pokagrút
frá gufubræðslu.
Tilboð sendist fyrir t$. júlí
Ol. V. Oíeigresyni, Keflavík.
Erl. simfregnir.
Frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl.
K.höfn 1. júlí.
Kússar hafa haflð ákafa
stórskotahríð hjáLemberg,
Brody, Koniucksy og Tuzk.
Jbjóðverjar sækja á hjá
Morthomme.
I»jóðverjar lýsa því yfir
aðsprengjubirgðirnar, sera
fundust í Kristiania, hafl
eigi verið aendar þangað
til þess að skaða hagsmuni
Norðmanna.
Alþingi sett.
Setningarathöfnin hófst kl. 12 á
hádegi með guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni. Allir þingmenn voru þar
viðstaddir og höfðn þeir tekið sæti
á fremstu stólaröðunum. Auk þeirra
var fjöldi fólks viðstaddur svo sem
venja er þingsetningardaginn, mest
aðkomumenn.
Síra Friðrik Friðriksson hélt stól-
ræðuna, hvatti þingmenn til sjálfs-
afneitunar ng trúmenskn í starfi
þeirra. »Þjóðin sér ekki hjörtu þeirra
— þess vegna eru þeir komnir í
guðshús til þess að staðfesta þau
heit, sem þeir hvor um sig hafa
gefið þjóðinni.*......... »Það er
krafist af yður trygðar, að þér ekki
látið flokksfylgi sitja i fyrirrúmi fyr-
ir heill þjóðarinnai«, o. s. frv. Tók
hann loks í munn sér orð Roose-
velts fyrv. Bandarikjaforseta i ávarpi
hans til ameríksku þjóðarinnar:
»Ottastu guð, og gerðu pinn hluta«
Að ræðunni lokinni var sunginn
sálmurinn: »Faðir andanna* og
gengu þingmenn siðan, með ráð-
heirunum i fararbroddi, yfir í þing-
húsið.
Múgur og margmenm var þar
saman komið. En inn í húsið var
engum hleypt fyr en nokkru eftir
að þingmenn voru komnir í sæti
sin. Er þetta ný ráðstöfun og má
svo heita að alþingi 1917 hafi verið
sett fyrir luktnm dyrum. Þegar fólk
kom upp á pallana hafði Jón Magnús-
son forsætisráðherra þegar lesið upp
konungsboðskapinn. Vér komum
þangað alveg mátulega til þess að
heyra hrdpað nífalt húrra fyrir kon-
ungi vorum — en boðskapinn heyrð-
um vér ekki.
Ólafur Briem aldursforseti mintist
Magnúsar Stephensens fyrv. lands-
höfðingja. Lýsti æfiferli hans i fá-
um orðum og bað síðan þingmenn
nýnnast þessa ágætismanns með því
að standa upp.
Var siðan gengið til kosninga.
Forseti sameinaðs þings var kosinn
síra Kristinn Daníelsson með 20 atkv.
H. Hafstein fékk 2 atkv. en 18 seðl-
ar voru auðir. Munu heimastjórnar-
menn hafa ált þá flesta.
Varaforseti sam. þings var kosinn
Sig. Eggerz með 17 atkv.
í N.-deild var kosinn forseti Ól.
Briem með r8 atkv. Fyrsti varafor-
seti Ben. Sveinsson með 13 atkv. og
annar varaforseti Bjarni Tónsson með
9 atkv. Skrifarar voru kosnir með
hlntf.kbsningu Gísi Sveinsson og Þor-
steinn M. Jónsson.
í E.-deiId kjörinn forseti Guðm.
Björnson með 12 atkv., x. varafor-
seti Guðj. Guðlaugsson með hlutk.
milli hans og Magnúsar Torfasonar,
2. varaforseti Magnús Kristjánsson.
Skrifarar Eggert Pálsson og Hjörtur
Snorrason.
774/777 BÍÓ
mn
prógram
í kvötd!
Munið
að þurrasti bletturinn
á sjó og landi
er undir
Olíufötunum
frá Sigurjóni
notið þau eingöngu.
„Escondido“ sðkt.
Stjórnarráðinu barst í gærmorgun
skeyti um það, að leiguskip lands-
sjóðs, »Escondidot hefði verið skot-
ið I kaf skamt frá St. Kilda-eyjum.
Menn björguðusl allir. Skeytið var
sent frá Stornoway, og mun skipið
að likindum hafa verið skotið á laug-
ardaginn.
»Escondido« fór héðan fyrir nál.
hálfum máDuði norðnr um land og
var förinni heitið til Englands. Atti
það að sækja þangað kolafarm.
St. Kilda-eyjarnar teljast til Suður-
eyja og eru þær skamt frá hinum
illræmda kletti, Rockall.
Bifreið rænt.
í fyrrakvöld var rænt bifreið Magn-
úsar Skaftfélds bifreiðarstjóra þar
sem hún stóð á götu. Var hennar
þó bráðlega saknað, og fékk Skaft-
féld þá tvær bifrdðar til þess að leita
að þeirri sem hvarf. Náðu þeir henni
inni hjá Miðdal. Hafði bifreiðin orð-
ið að staðnæmast þar til þess að fá