Morgunblaðið - 11.10.1917, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
........i-zi........ :
óánægju sinni yfir gerðutn lands-
símastjórans í þessu efni og er í
því falin bein áskorun til stjórnar-
innar um það að kippa því í lag,
sem miður þykir fara í símamálun-
nm. Er auðvitað mál, að stjórnin
getur eigi þagað við slíku, enda er
mi komið á daginn, að hún hefir
látið það til sín taka.
Áður en »forgangs-hraðsamtölin«
með tífalda gjaldinu, eru numin úr
gildi, þykkir stjórninni réttast aðkrefj-
ast skýjslu hjá landssímastjóra um
hve mikið »forgangs-hraðsamtöl«
hafi verið notuð og millihvaðastöðva.
Þegar sú skýrsla er komin frá lands-
símastjóranum, tekur landsstjórnin
ákvörðun í málinu. —
Sú ákvörðun getur eigi verið nema
á einn veg. Hún lætur landssíma-
stjórann tilkynna að »forgangs-hrað-
samtölin* séu numin úr gildi.
Frá Rússlandi.
Yfirlit.
Það var n. marz 1917 að keis-
arinn var neyddur til þess að leggja
niður völd. Aðalástæðan til þess var
sú, að hann hafði gefið út skipun um
það að uppleysa dúmuna og ríkis-
ráðið. Þegar stjórnarbyltingin hafði
geisað i þrjá daga, hafði framkvæmda-
nefndin, sem skipuð var í flaustri,
náð bæði töglum og höldum í land-
inu og hin fyrsta byltingastjórn var
skipuð og Lvov fursta fengin for-
menska hennar. Var Kerensky þá
gerður að dómsmálaráðherra.
Um leið og hin nýja frelsistíð gekk
i garð, fékk alþýðan lausar hendur;
stjórnmáladeilur risu meðal hermann-
anna og þá byrjaði einnig bræðralag
(fraternisering) þeirra við Þjóðverja.
pjöldi manna, sem hafði verið í út-
legð, sneri nú heim aftur og allir
vildu leggja hönd í bagga með það
að skapa hið nýja Rússland. Sam-
komur voru haldnar um land alt og
ræður fluttar. Og i lok marzmán-
aðar var þegar svo komið, að alþýð-
an stóð á öndverðum meið við borg-
arana, og horfði til vandræða. Vegna
ófrávikjanlegrar kröfu alþýðunnar
urðu Rússar að hætta við allar land-
vinningafyrirætlanir og friðarkröfurn-
ar urðu æ háværari. En jafnhliða
reyndu keisarasinnar að koma gömlu
stjórninni að aftur, þótt það tækist
eigi.
Hvað eftir annað gerðist Kerensky
formælandi friðar, en hann vildi þó
ekki sérfrið.
Um miðjan maimánuð hafði óein-
drægnin, bændaóspektirnar, liðhlaup-
in og stjórnleysið í landinu náð há-
marki sínu. Miljukow og Gutschkow
urðu að fara frá og nú var skipað
samsteypuráðaneyti. í því átti Ker-
ensky sæti sem hermálaráðherra.
En þessi stjórn fullnægði þó eigi
kröfum jafnaðarmanna og var eigi
heldur bandamönnum Rússa að skapi,
------------„-----------------------
enda þótt af öðrum ástæðum væri.
Menn geta bezt dæmt um það hve
Rússland var nú illa statt með því
að athuga ummæli Tseretellis ráð-
herra á þingi hermanna og verka-
mannaráðsins í júní. Hann sagði þá:
Vér reynum allar þær leiðir, sem
hugsanlegar eru, til þess að banda-
menn vorir geti aðhylst stefnuskrá
vora, þannig að vér komumst hjá
því að til friðslita leiði við þá.
Hinn 17. júli varð hermannaupp-
reistin í Petrograd og fjórum dög-
um síðar varð Kerensky íormaður
nýs ráðuneytis. Uppreist þessi var
eins og menn muna kölluð Bolsjevika-
uppreistin og var hún hafin sem
mótmæli gegn sókn þeirri er Rússar
höfðu hafið að áeggjan bandamanna,
en endaði þannig, að þeir mistu alla
Galizíu.
Svo kom Korniloff til sögunnar
og átti að endurskapa heragann. En
það tókst eigi. •
Hinn 6, ágúst myndaði Kerensky
nýtt ráðuneyti og þá var það sýnt
að gagnbylting mundi hafin. Rúss-
nesku blöðin héldu þvi jafn vel fram
að Bretar styddu gagnbyltinguna.
Hermanna- og verkamanna-ráðið
heimtaði að dúman skyldi uppleyst,
því að hún væri stjórninni til bölv-
unar, en sú krafa náði eigi fram að
ganga. Fjöldi manna gekk nú í lið
við borgaraflokkinn og fylkti sér um
herforingjana og liðsforingjaflokkinn.
Hið mikla samsæri, sem ljóstað var
upp um á ráðstefnunni í Moskva,
var eigi þungamiðja gagnbyltiugar-
innar. Hún átti sér dýpri rætur.
Allir afturhaldsmenn hafa nú tekið
saman höndum gegn Kerensky.
Gagnbyltingín.
Eins og að framan er getið komst
Kerensky á snoðir um það á ráð-
stefnunni í Moskva, að stórkostlegt
samsæri hefði verið gert til þess að
koma á gagnbyltingu i Rússlandi.
Kerensky kvaddi þá Stahl rikismál-
flytjanda í Moskva á sinn fund og
fól honum að berja niður samsærið.
Var Stahl fengið fullkomið einræði
til þess og vegna þess að maðurinn
er ófyrirleitinn, tók hann fast í taum-
ana. Var nú fjölda manna varpað í
fangelsi, þar á meðal bræðrum keis-
arans, þeim stórfurstunum Michael,
Paul og Dmitriev Alexandrovitch og
fjölda herforingja. Ogennfremur þeim
Lovo, fyrsta stjórnarformanni og Gut-
sckoff fyrv. hermálaráðh. Húsleit var
hafin hjá öllum þeim er grunur féll á í
stórborgunum og hundruðum saman
voru menn teknir fastir. Þóttist
Kerensky á skömmum tíma hafa unn-
ið bug á uppreistarmönnum.
Uppreist Korniloffs.
En þá kom Korniloff yfirhers-
höfðingi iil sögunnar. Hann og
fleiri herforingjar höfðu krafist þess,
að hermanna- og verkamannaráðið
yrði lagt niður og hermönnunum
bannað að halda fundi. En sjálfsagt
hafa kröfur Korniloffs verið fleiri,
þvi að Kerensky rak hann þá frá
herstjórn, en tók hana i sínar hend-
ur. Korniloff varð þó eigi bylt, en
stefndi því liði, er honum vildi fylgja,
til Petrograd og hugði að taka
borgina og steypa Kerensky frá
völdum. Þessi ráðabreytni hans
mælt'St víðast hvar mjög illa fyrir
og jafnvel menn hans tóku að efast
um hvað málstaður hans væri góð-
ur. Gengu þeir Kerensky á vald
hópum saman og svo fór að lok-
um, að Korniloff varð að gefast
upp áður en hann komst til Petro-
grad.
Astandið i Petrograd.
Hinar ótrúlegustu sögur eru sagð-
ar frá Petrograd. Þíátt fyrir það þótt
hungursneyð sé yfirvofandi og alt
gangi á tréfótum og óvinirnir séu
á næstu grösum, þá er þar hið ógur-
legasta sukk og skemtanafýsn borgar-
búa hefir fengií svo lausan tauminn
að ekkert hóf er á. Óteljandi vin-
sölustaðir og skemtistaðir eru opnir
allan sólarhringinn og kampavínið
flýtur þar í stríðum straumum.
Eftir því sem horfurnar verða
ískyggilegri bæði inn á við og út á
við, því meira eykst gjálifið. Liðs-
foringjar, sem komnir eru heim frá
vigstöðvunum og menn sem stjórnar-
byltingin hefir skotið úr kafi, lifa
i óstjórnlegu nætursvalli og allar sið-
ferðisreglur eru troðnar undir fót-
um. En yfirvöldin þora ekki að taka
í taumana. — Og þetta gerist i
höfuðborg bannlandsins miklal
i______RA G B O K
Loftskeytastöðin kvað vera langt
komin. Búist við því, að hún geti
tekið til starfa síðast í þessum mán-
uði, eða byrjun næsta.
Ingólfur fór í gær til Borgarness
með norðan og vestanpóst. Kemur aftur
í dag.
Guilfoss ætti að geta komið hingað
í dag. Hann fór 3. þm. frá Halifax.
Smásagna-safn eftir Axel Thorstein-
son kemur út í þessum mánuði, 7
arkir að stærð. Hefir ein þeirra verið
prentuð áður, f Eimreiðinni. Titill bók-
arinnar er: Sex sögur. — Guð
mundur Gamalíelsson gefur út.
Dýrtíð. Það er nú víst óþarfi að
hampa þessu orði, þvf að fólk er far-
ið að skilja það alt of vel. En það er
alveg furða hvað dýrtíðin er vfðtæk.
Manni lá á því í gær að fá hálm
keyptan og fer til verzlunar, sem hann
vissi að átti nóg af þeirri vöru. Jú,
hálmurinn var falur, en pundlð kost-
aði 15 aura! Hugsið ykkur — 15
aura fyrir eitt pund af hálmi! Nel, þá
fer skörin að færast upp í bekkinn.
íslenzk taða ko3tar þó ekki nema 10
aura pundið — og þykir dýr. En úr-
vals úthey kostar 7 og 8 aura og má
nota það f umbúðir eigi síður en hálm.
SfBustu simfregnir
frá fréttar. Isafoldar og Morgunbl.
K.höfn 9. okt.
I gær voru hiirðar deil-
ur á þingifjóðverja. Micha-
elis riki-kanzlari endurtók
það, að Þjóðverjir mundu
eigi láta nein þau lönd af
höndum, er þeir hafa tekið.
Cipelle lýsti yfir því,
að mjög alvarlegur upp-
reistarhngnr væri í sjó-
liðinu þýzka. Hann ásak-
aði minni hluta jafnaðar-
manna, þá Haase, Vogtherr
og Dittmann, fyf ir það, að
styðja meiri hluta jafnað-
armennina átta og að þeir
fylgi stjórninni að öllum
málum.
Bretar og Frakkar hafa
gert árás á stóru svæöi
norðaustur af Ypres, þrátt
fyrir vont veður. "
í ráðuneyti Kerenskys
eru 5 jainaðarmenn og
12 aðrir.
Jafnaðarmenn hafaorðið
í meiri hluta við kosning-
arnar í Finnlandi.
Líklegt er að frjálslynd
stjórn verði skipuð i Sví--
þjóð.
Meðal siglingamanna er
talaö um það að ónýta
tundurdufl sem eru á reki,«
með rafmagnsbylgjum.
Kartöflurnar.
Stjórnarráðið tók vel og greiðlega;
í beiðni matvælanefndar um að taka
kartöflubirgðirkaupmanna eignarnámL
Var bréfinu því svarað samstundis
og heimild veitt til eignarnámstök-
unnar. I gærmorgun lét bæjarfógeti
telja upp kartöflubirgðarnar og kotn
þá i ljós að í bænum voru um 200
pokar af kartöflum hjá kaupmönnum.
Svíar eru að hugsa um að koma
á póstflutningi milli Svíðþjóðar og.
Danmerkur og Svíþjóðar og Þýzka-
lands með flugvélum. Félag hefir
verið myndað í þeim tilgangi og er
hlutaféð þegar innborgað, 4 miljónir
króna.