Morgunblaðið - 12.01.1918, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
aðkomumaður eins og þeir, en sé
búinn að útvega mér gistingu. Eg
hafði herbergi með einu rúmi og
sófa, og eg vorkendi þeim svo,
að eg læt þá, 3, hafa þetta herbergi,
sem eg hafði, og fór svo frá þeim.
Leið mér hálf illa það sem eftir var
næturinnar.
Eg vildi að þetta þyrfti ekki að
koroa fyrir aftur. Það er svo skamm-
arlegt fyrir bæinn, þegar ókunnir
menn koma hingað og verða að liggja
úti. Eg vonast til að hlutaðeigendur
athugi þetta.
En komi það fyrir oftar, þetta
sem eg hefi minst á, þá vildi eg
óska þess að hver sem hittir ókunna
menn vildi hjálpa þeim á einhvern
hátt, því að skeð getur að við kom-
um einhverntíma í al-ókunnugt land
og þá verðum við fegnir að fá hjálp.
Það getur hver farið í sjálfs síns
barm með það.
Ferðamaður.
ísland og Danmörk.
Vér bittum hér í blaðinu, 10. þ.
m., útdrátt úr »Kronik« er prófessor
Finnur Jónsson reit í »Politiken«,
og svargrein frá Aage Berléme stór-
kaupmanni. Grein Berlémes svaraði
Finnur Jónsson svo aftur í »Po!i-
tiken«, en þá grein höfum vér því
miður ekki séð. En 4. des. kemur
Berlémi enn fram á ritvöllinn með
svargrein til Finns og er hún þannig
rituð, að íslendingar hafa gott af að
kynnast henni.
Berléme segir:
— Hr. prófessor Finnur Jónsson
eegir í >Politiben< í dag (3. des.) að
honura sé vel kunnugt ura það, hvern-
ig samgöngurnar hafi verið milli ís-
lands og Danmerkur síðan í júlí og
fram til þessa tfraa.
Prófessorinn veit þá alt
um samgöngurnar milli Danmerkur
og íslands, einnig mánuðina júlí,
ágúst, september, október og nóvem-
ber 1917 (því miður má eg eigi taka
sbýrara til orða, vegna laga sem nú
eru f gildi). Prófessorinn veit
þ á, að á þessu tfmabili hefir Dan-
mörk veitt útflutningsleyfi á hverjum
þúsund smálestunum á aftir öðrum
af matvælum og nauðsynjavöru. —
Prófessorinn veit þáaðís-
land hefir á þessu tfmabili fengið
send ógrynni öll af matvælum og öðr-
um vörum frá Danmörk. Og þó segir
hannaðf nær hálft ár »hafi ver-
ið stöðvaðar allar Bigling-
ar og innflutningur frá
Danmörki. Hvað á að segja um
það? Prófessorinn veit hvernig alt
er, en segir þveröfugt frá f grein
sinni. það er alveg furðulegt.
Til skýringar fyrir þá danska les-
endur, sem eigi þekkja neitt til þess
er Finnur Jónsson prófessor talar
um, skal eg endurtaka það, að Dan-
mörk befir birgt íslendinga fullkom-
lega að vörum (forsynet Islænderne
rigeligt med Varer) seinasta missirið.
f>á skortir eigi nokkurn skapaðan
hlut. Hvert einasta rúgbrauð sem
íslendingar éta, er búið til úr rúg-
mjöli frá Danmörk. Allar matfanga-
vonir íslendinga byggjast á aðflutn-
ingum frá Danmörku, einnig f fram-
tíðinni og ekkert bendir til þess, að
Danmörk rauni eigí framvegis geta
alið önn fyrir íslandi.
Svo mörg eru þessi oið. En 8.
desember flytur »Politiken« enn grein
um þetta mál, og er hún eftir Þór-
arinn Tulinius stórkaupmann. Hann
segir svo:
— Ef herra Berléme hefði með
árás sinni á prófessor Finn Jónsson
ætlað að sýna þá »þekkingu á mál-
inu«, er hann, eftir gorgeir hans að
dæma, augsýnilega þykist hafa fram
yfír prófessorinn, þá er það gott
dæmi þess, hve lítið menn hér þekkja
til ástandsins, jafnvel þeir, sem ættu
þó að leggja eitthvað á sig til þess
að kynnast því, eins og hr. Berléme,
þótt eigi sé það af öðrum ástasðum
en þeim að hann er fslenzkur kaup-
maður.
Enginn maður, sem nokkuð þekk-
ir til, og allra sfzt prófessor Finnur
Jónsson, hefir Iátið sér til hugar
koma að segja annað en a ð D a n -
mörk hafi verið íslandi
mesti bjargvættur f stríð-
i n u.
þetta vita menn og viðurkenna,
bæði hér og á íslandi, en það virð-
ist svo sem hr. Berléme einum sé
ókunnugt um það, eftir ritsmíðum
hans að dæma.
Ummæli hans um útflutninginn
héðan, benda heldur eigi til þess að
maðurinn hafi sérlega mikla þekk-
ingu á því, því að það er sorgleg
staðreynd að síðan 1. júli í sumar
hafa útðutningar héðan til íslands
verið sáralitlir f samanburði við það
sem þeir voru t. d. í fyrra. En það
er eigi þvf að kenna, að Danir hafí
eigi verið fúsir til þess að miðla ís-
landi af birgðum sínum, heldur sigl-
nga vandræðunum.
Útflutningarnir til íslands síðan 1.
júlí — á að gizka um 5000 smálest-
ir — eru eigi nema örlítill hluti af
því sem héðan fluttist 1916. Og á
sama tíma hafa íslendingar flutt inn
þrisvar sinnum meiri vörur frá Ame-
ríbu, en það er að þakka hinum
aukna skipastól, sem Danir hafa fús-
lega hjálpað íslendingum til að boma
sér upp. Af þessu mun það sjázt, að
ummæli próf. Finns Jónssonar eru
eigi úr lausu lofti gripin.
f>au ummæli br. Berléme, að skip
Eimsbipafélagsins hafi strandað og
»sigli þvf tæplega óhindrað milli Is-
lands og Ameríku«, þykja mér harla
óviðurkvæmileg, því að hann lætur
þess eigi getið að félagið keypti þeg-
ar annað stærra skip f staðinn og
það hefir sfðan siglt milli Ameríku
og Islands.
Hr. Berléme þykist eigi ofgóður
til þess að lifa'á því að verzla við
landa mína, en hæðnisorð hans um
»hinn stóra fiskiskipaflotat íslands
og eigendur skipanna, munu þeir
kunna að meta að makleikum.
f>að er líka satt, að dönsku yfir-
völdin hafa gert alt sem f þeirra
valdi hefir staðið til þess að hægt
væri að koma fslenzkum vörum hing-
að. En það er laitt fyrir bæði Iönd-
in að það hefir eigi tekist, sérstak-
lega íyrir Danmörk, þvf að á þessum
tímum þykir meira varið f það að fá
vörur keyptar heidur en að selja
þær.
fl daobok |
Kveikt á Ijóskerum hjóla og bif-
relða kl. 4.
Gangverð erlendrar myntar.
Bankar Doll. U.S.A. &Canada 3,50 Pósthús 3,60
Frankl franskur 59,00 60.00
Sænsk króna ... 112,00 110,00
Norsk króna ... 107,00 106,50
Sterlingspund ... 15,70 16 00
Mark 67 00 62,00
Holl. Florin ... ,,, ... 1.37
AuBturr. króna .. ... .. ... 0.29
Fyrilestrar Háskólans.
Holger Wiehe sendikennari hefir
aftur byrjað æfingar sínar.
Á mánudag 14. jan., kl. 7 byrjar
hann stutta fyrirlestra röð um P o u 1
Martin Möller.
Messað á morgun í dómkirkjunni
kl. 11 árd. sfra Friðrik FriðriksBon,
kl. 5 síðd. sfra Jóhann f>orkelsson.
Vegna frostgrimdarinnar verður
ekki messað í frfkirkjunni í Reykja-
vík á morgun.
Engin messa f þjóðkirkjunni f
Hafnarfirði á morgun (sunnudag).
Trúlofun. Guðrún Árnadóttir,
HoItBgötu 2, og Kristbjörn Björns-
son skipstjóraefni, opinberuðu trú-
Iofun sina á nýársdag.
Einkennilegt var að sjá það f gær,
að það gufaði upp úr sjónum. Var
það eins og grátt teppi lægi yfir
höfninni og sézt það aldrei nema í
miklum frostum.
Ingólfur átti að fara f Borgarnes
í gær til þess að sækja norðan- og
vestanpóst, en skipið komst ekki
fyrir stormi.
Dýrafjörðnr er lagður. Hefirverið
gengið þvert yfir hann milli Núps
og Haukadals.
Dýrtíðarlán. Um 200 menn hér f
bæ hafa sótt um dýrtíðarlán. þegar
hafa verið veittar rúmlega 9 þúsund
krónur í slíkum lánum.
Dýrtíðarvinna. 235 menn eru nú
í dýrtíðarvinnu. Er unnið að grjót-
mulningi, holræsagerð og undirbún-
ingi hins nýja Hafnarfjarðarvegar.
|>essa síðustu dagana hafa þó orðið
vanhöld á verkamönnum vegna kuld-
ans. Sumir alls eigi komið til vinnu,
en aðrir farið um miðja daga og
sumir þá allmjög kaldir.
Nýársnótt á herragarðinum Ran-
drup — hin ágæta mynd, sem Gamla
Bio sýnir, er einhver hin allra besta
kvikmynd, sem bér hefir sýnd verið
— og er þá mikið sagt, þvf að bæði
kvikmyndahúsin hafa haft ágætar
myndir á efnisskránum undanfarið.
NýárBnótt — eða hefndarnóttin —
er svo átakanlega vel leikin og hún
svo viðburðamikil, að önnur eins hefir
Cigarittir
tnargar teg.
komu með Lagarfossi í v e r z 1 u n
Fr. Hafbergs
Hafnarfirði.
Nýmjólk
fæst allan daginn hjá
Sveini Hjartarsyni.
Fóðursíld til sölu 1 olíufötum.
Verð: Kr. 32.00 innihaldið.
S. Kjartansson, Laugavegi 13..
?•
Aktýgi og reiðtýgi og flest sem
þar að lýtur, ávalt fyrirliggjandi.
Gömul reiðtýgi keypt fyrir hátt verð.
Söðlasmiðabúðin Laugavegi 18B.
Simi 646. E. Kristjáns on.
Kjólföt, nærri ný, eru til sölu á
Grundarstíg 1.
Nýkomið járnmél, pískar, keyrslu-
keyri. Söðlasmíðabúðin Laugavegi
18 B. Sím 646. E. Kristjánsson^-
P sXaup&Rapm
Nýr hengilampi til sölu.
S. Kjartansson, Laugaveg 1
^ *%inna
Stólka óskast í vist nú þegar.
Þórdís Claessen, Laufásv. 20.
Dynamo til sölu.
Sérstaklega hentugur til raflýsinga
verkstæðis, vöruhúss, verzlunar e.þ.h,
8. Kjartansson,
Laugavegi 13.
Wolft & Arvé’s
Leverpostej
i V4 Og pd. dósum
er bezt — Heimtið það.
tæplega verið sýnd áður. Enda er
hún heimsfræg. f>að eru lfklega
margir, sem ekki hafa séð hanaenn,
og þeir ættu ekki að sleppa tæki-
færinu til þess að sjá verulega kvik-'
myndalist. Leikur höfundarins,
Benjam. Christensens, mun verða-
mörgum minnisstæður.