Morgunblaðið - 16.04.1918, Side 1
Þriðjudag
.6
apríl 1918
ORGUNBLABID
rrgaugr
160.
tðlublað
Ritstjórnarsirai nr. 500
Ritstjón: Vi iii.um.vsr t'msen
ÍsitOUÍ -rpient'raióvi
Afsreiðslnsimi nr. 500
mmsMaam Gamla Bió ■mi
sýnir i kiöld hina fallegu mynd
Paiadsleikhússios
(ítala Film)
Sjónleikur i 3 þáttum
Neistinn — Bálið — Askan.
Aðalhlutv. leikur:
Pina Menichelli,
fræg og falleg Itölsb leiakona, 4n efa
bú fegnrsta sem hér hefir komið á
sjónarsviðið. Mynd þessi er fádæma
spennandi og sýnir hvernig hin nnga
töfrandi greifafrn notar feguro sina,
og hve léttúðugt hún skemtir str I
sumarleyfi sínn I hinni,að<iáanlega
fallegn náttúrufegnrð I Italíu.
Tölusett sæti kosta 85 og 70 aura.
Börn innan 16 ára aldurs
fá ekki aðgang
Hringurinn
Fundur i kvöld á venjulegum stað
og tíma.
Fundarefni:
1. Lögð fram dagskrá Bandalags
kvenna.
2. Tvær konur teknar inn.
-3. Rætt um hringferðardaginn.
Allar mæti I
S T J Ó R N IN.
Erl. simfiregnir.
fri frittaritara Margunbl.).
Þriðjudag 16. kl. 8}/B.
Efni: Frásögur frá slumstarfi
Hjálpræðishersins á íslandi og öðrutn
löndum. Ókeypis aðgangur. Sam-
skot verða tekin upp til slumstatfs-
ins.
+
Friðrik Bergmann
látinn.
Sú fregn barst hingað í fyrrakvöld
f símskeyti til Jóns biskups Helga-
sonar að sira Friðrik Bergmann væri
látinn — hefði orðið bráðkvaddur.
Þar er failinn í valinn sá maður
er óhætt má telja fremstan allra
Vestur-íslendinga að andans gáfum,
skarpskygni og frjálslyndi, enda var
hann forvígismaður og frömuður
þess þjóðarbrots sem íslenzkt er vest-
an hafs. Og það er eigi aðeins að
Vestur-íslendingar eigi þar á bak
að sjá miklum manni, heldur á ís-
land einnig mikils að sakna við frá-
fall hans. Og vitum vér eigi von
þess manns þar vestra er skipað geti
sæti hans.
Hann átti marga öfundarmenn og
jafnvel óvini. Og öllum vinum sin-
um er hann harmdauði.
Khöfn. 14. apríl.
Frá Berlin er símað, að Þjóðverjar
liafi tekið Plougsteerwood og sæki
fram fyrir norðvestan Bethune.
Þýzkur floti er kominn til Helsing-
fors.
Frá London er símað, að banda-
menn hafi gert gagnáhlaup með góð-
um árangi hjá Festhubeit, Lacon og
Meiwille.
Alitsskjal írska þjóðfundarins hefir
werið birt.
Frá París er símað, að Frakkar
>hafi tekið Hangard aftur.
Alþingi.
Framhald þingsetningarfundar hófst
kl. 1 í gær. Forsætisráðherra setti
fundinn og bað aldursforseta 01.
Briem, að ganga í foisetasæti og
stýra kosningum embættismanna.
Kvaddi Ó1 Briem sér til skrifara þá
Sig. Stefánsson og Þorl. Jónsson.
Forseti bað sér síðan hljóðs og
mæltist til þess áð þingmenn mint-
ust eins merks fyrv. þingmanns,
sem látist hefði síðan þing kom
siðast saman, Tryggva Gunnarsson-
ar. Mælti hann nokkur vel valin 01 ð
um dugnað, ósérplægni og hagsýni
hins látna sæmdarmans, sem setið
hafði samtals á 16 þingum. Að
ræðunni lokinni stóðu þingmenn
upp úr sætum sinum í virðingar-
skyni við minningu Tryggva.
Nú bað forsætisráðherra sér hljóðs.
Nýja Bíó
PAX ÆTERNA
EÐ A
FRIÐUR Á JÖRÐU.
verðnr sýnd i kvöld og næsta kvöld.
Aðgöngum. má panta í síma 107 og kosta fyrstu sæti 2.00,
önnur sæti 1.50, þriðju sæti 1.30.
NB. Allar pantanir verða afhentar íNýja
B í ó frá kl. 7—8 daglega-
Leikfélag Reykjavíhur.
Frænka Chariey’s
verður leikin miðv.daginn 14. apríl kl. 8 siðdegis
TJfþýdusýning.
Aðgöngumiðar seldir i Iðnó
á þriðjudag frá kl. 4—8 síðd. með álagi, og
á miðv.dag frá kl. ro árd. með venjul. alþýðusýningaverði.
Vegna veikinda
verðnr
s“ngskcmtiin frú Lanru Finsen
frestað í nokkra daga.
Ef einhver getur þá ekki cotað sinn aðgöngumiða, getur hann skilað
honum aftur f Bókveizlun ísafoldar.
Skýrði hann þingheimi frá því, að
nokkru áður en þing kom saman, hafi
hann fengið biéf frá r. landskjörn-
um þingmanni, Hannesi Hafstein
bankastjóra, þar sem hann segist
sökum lasleika ekki geta mætt á
þessu þingi og leggur fram vottorð
frá húslækni sinum, landlækni Guðm.
Björrson, þar sem honum er ráð-
lögð alger hvíld. Þegar hann hafi
fengið bréf þetta, kvaðst forsætis-
ráðherra hafa tilkynt 1. varamanni,
Sigurjóni Friðjónssyni, þetta, og væri
hann nú mættur á þingi. Þingið
mundi nú úrskurða um setu hans.
Forseti kvað eftir 1. gr. þingskap-
anna bæri að skifta þingmönnum i
3 kjördeildir og fekk 2. kjördeild
bréf Sigurjóns til athugunar. í henni
voru Bjarni Jónsson frá Vogi, Egg-
ert Pálsson, Einar Arnórsson, Guðm.
Björnson, Hákon Kristófersson,
Hjörtur Snorrason, Kristinn Daní-
elsson, Magn. Guðmundsson, Magn-
ús Pétursson, Pétur Jónsson, Sig.
Eggerz, Sveinn Ólafsson og Þorl.
Jónsson.
Settist nefndin nú á rökstóla og
að stundarfjórðungi liðnum hafði
hún lokið störfum.
Svo sem við var að búast klofn-
aði nefndin. Það var vitanlegt áður,
að sumir þingmenn ætluðu ekki að
láta Sigurjón Friðjónsson komast
þegjandi og hljóðalaust inn í þing-
salinn. Vita menn að undirbúningur
hefir verið töluverður síðan þingið
var sett og »agitation« á báða bóga.
Enda hófust nú all-langar og á köfl-
um snarpar umræður um þingsetu
varamannsins.
Framsögumaður meiri hluta uefnd-
Kaupirðu góðan hlut
bá mundu hvar þu fekst hann.
Smurningsolía: Cyiinder- & Lager- og 0xulfeiti
eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Slgurjóni
Hafnarstræti 18.
Sími 137.