Morgunblaðið - 05.07.1918, Qupperneq 1
Föstudag
júlí 1918
H0R6DNBLADIS
5. argangr
237
tölíiblað
Ritstjórndrstmi nr. 500
Kt'j
Vi’h-
ísafoidarprentsmiðjA
Afgreiðslusimi nr. 500
IO.O.F. 100759 — O
Gftmla Bió
Trygðarof,
Falleg og áhrifamikil mynd
i 4 þáttum.
Frægasti kvikmyndaleikari
ítala,
Febo Marl,
er höfundur og leikandi
þessa leiks, Aniiu leikur
Valentina Frascaroli
fræg og falleg itölsk leikkona.
Allir, sem sjá mynd þessa,
undrast hana mikið, ogfylgja
stúlkunni með áhuga i
baráttu heunar og brösun.
Til .Vífilsstaða fer bifreið fyrst um
sinn hvern þriðju-, fimtu- ogsunuu-
dag kl. 11 frá Breiðabliki. Farseðlar
verða að kaupast þar.
(Aukaferðir venjulega ki. 2.)
St. Einarsson. Gr. Sigurðsson.
Sirni 127. Sími 581.
Erl. simfregnir.
(Fri fréttaritara Morguntil.).
Khöfn, 3. júli.
Búist er við nýrri sókn af Þjóð-
•verja hálfu á vesturvígstöðvunum þá
Og þegar.
Hungursneyð breiðist út i Rúss-
landi.
Austurríkismenn hafa látið drepa
czechiska og italska fanga. Czechar
i Siberíu hóta því að láta austur-
rikska og þýzka fanga, sem eru á
þeirra valdi, 2o þús. að tölu, sæta
sömu meðferð.
Þjóðverjar hafa farið yfir landa-
mæri Rússlands i nánd við Viborg.
ítalir sækja hægt fram hjá Asiago.
ítalskir bankar hafa verið samein-
aðir.
íslandsmðl
í sænskum blöðum.
Simskeyti frá Ritzau
Khöfn 2. júlí.
Blöðin í Stokkhólmi hafa tekið
til athugunar símskeyti sem birt var
í dðnskum blöðum, með útdrætti úr
samtali er »Morgunblaðiðc hafði átt
við Olaf Friðriksson ritstjóra og
»Stockholms Dagbladet« flytur grein
í því tilefoi með fyrirsöguinni»Dan-
mörk — ísland*. SeHr blaðið þar að
íslenzkir jafnaðarmenn hafi án efa
skilið rétt þau ummæli, er birzt hafa
í sænskum blöðum. Bæði frjálslynd
og íhaldssöm blöð hafi — jafnframt
þvi að láta i Ijós rótgrÓDa velvild
Svía til sögulandsins — af ákveð-
inni sannfæringu lagt áherzlu á þá
hættu sem öllum Norðurlöndum
stafi af ótímabærum'kröfum Islend-
inga um breint konungsssmband,
því að með því geri íslendingar í
raun og veru tilraun til þess að
slíta öli tengsl við Norðurlönd. Því
að þrátt fyrir það þótt ísland fái ef
til vill að nafninu til sjálfstæði, þá
eigi það á hættu »að verða hættulega
háð einhverju stórveldi. Þetta veikir
samheldni Norðurlanda, sem á þess-
um ófriðartímum er lifsskilyrði fyrir
allar Norðuriandaþjóðir.«
Khöfn 3. júlí
Norsku og sænsku blöðin ræða
mikið um samningana milli íslend-
inga og Dana.
»Svenska Dagbladet« segir:
Meðal allra flokka hér i landi er
það álit manna að bæði Norðnrlönd
og ísland eigi mikið í hættunni ef
sambandsslit verði með Dönum og
íslendingnm. Það er mjög erfitt að
sjá hvað Island mundi græða á því
að slíta þær festar er nú tengja is-
lenzku þjóðina traustlega við frænd-
þjóðiruar á Norðurlöndum og kom-
ast undir vernd einhverrar stórþjóð-
ar. Um afstöðu Norðurlanda er það
að segja, að það getur eigi haft nein-
ar afleiðingar íyrir Svía og auðvitað
eigi heldur fyrir Norðmenn þótt Is-
land brjóti af sér velvild Dana með
því að halda fast við það að sigla
sinn eigin sjó, án þess að taka til-
lit til þess hvað þeim hentar bezt
sjálfum og eðlilegast er.«
»Stockholms Tidningenc segir:
»Enginn Svíi mun amast við þvi,
að ísland fái framgengt lögmætum
þjóðerniskröfum sinum. En það
verður að ráða Islendingum frá því
að fara lengia { þeim kröfum heldur
en nauðsyn krefur og heppilegt er
Þrjár Norðurimdaþjóðirnar hafa í
þes u stríði lært að meta hvers virði
það er að standa sameinaðar. Ef
einhver þessara þjóða yrði verkt á
einhvern hátt, þá yrði að telja sem
þar með væri höggvið skarð í Norð-
urlandafjölskylduna og mundi síður
en svo verða til þess að vekja ánæeju
á Norðurlöndum. Það er innileg
ósk Svia, að sambandsmálinu verði
ráðið til lykta í bróðerni og að ís-
iendingar gripi eigi til þeirra ráða,
sem þeir hljóta áteiðanlega að iðrast
síðar«.
»Dagens Nyheter« segja:
»Ef íslendingum getur skilist það,
hverja ábyrgð þeir bera gagnvart
öðrum Norðurlandaþjóðum, . þá er
það bezta tryggingin fyrir þvi, að
deilan verði jöfnuð. Ef þessi skiln-
ingur getur haft áhrif á samningana
frá Islendinga hálfu jafnhliða þvi, að
Danir gangi til samninganna með
einlægum vilja til þess að fullnægja
lögmætum kröfum íslendinga og
koma i veg fyrir óþarfar deilur, þá
hlýtui það að vera hægt að komast
að samningum, er allir mega vel
við una«.
Síldarmálið.
Bjargráðanefnd Ed. ber fram frv.
til laga um það, að la'ndsstjórnin
kaupi 100 þús. tunnur af síld á
þessu sumri af innlendum framleið-
endum. Er frumvarp þetta fram-
komið vegna málaleitunar útgerðar-
manna, sem áður hefir verið frá
skýrt hér í blaðinu, en eigi treyst-
ist bjargráðanefnd til þess að ganga
svo langt, sem útgerðarmenn höfðu
viljað, að heimila stjórninni að kaupa
150 þús. tunnur. Gerir nefndin ráð
fyrir, að landssjóður gefi 60 aura
fyrir hvert kg. að meðaltali. Verði
hagnaður af kaupunum, eftir að frá
er dreginn kostnaður og vaxtatap,
skiftist hann þannig, að seljendur
fá 3/4, en landsjóður afganginn.
Nýr bæjarbragur.
Gestir, sem hingað koma og þekt
hafa Reykjavík áður, dázt mjög að
hafnargörðunum og uppfyllingunni,
sem vonlegt er. Þessar umbætur hafa
ekki að eins 3ett nýjan svip á höfn-
.Nýja Biö<
Dómarinn
Philip RandalL
Sjónleikur í 3 þáttum, leik-
inn af alheimsfélaginu Víta-
graph í Ameríku, af þeirra
alþektu góðu leikurum.
K, F. U. M.
Valur. Æfing i kvöld kl
81/*. Fjölmennið 1 — Stundvísir.
ina, heldur jafnframt skapað nýjan
bæjarbrag, hvað vinnubrögð snertir.
Uppskipunarbátarnir eru horfnir að
mestu og þar með alt það staut,
sem því var samfara að hlaða þá eða
tæma við smábryggjurnar.
Það hefir verið skemtilegt að koma
niður í uppfyllinguna undanfarna
daga. Þar hefir »Gullfoss« verið að
skipa i land varningi frá Vestur-
heimi. Þar hefir mátt sjá geysistóra
kassa, sem bifreiðar vóru i, og háa
hlaða af smærri kössum, með alls-
konar varningi, stórar breiður af
olíutunnum o. fl. o. fl. Uppskipun
virtist ganga greiðlega. Hver maður
kom með handkerru og ók að skips-
hliðinni, en neðan úr lest komu
»lykkjurnar«, með hæfilegu æki á
hverja kerru. Þeim var stýrt beint
niður á kerruna, og siðan ekið stanz-
laust af stað.
Og þó að þessar kerrur eigi það
fyrir sér, að leggjast niður fyrir öðr-
um betri tækjum, þá er þetta miklu
myndarlegri aðferð en áður tiðkast
hefir.
Menn finna þegar til þrengslanna
við uppfyllinguna og er þó lítill
aðflutningur við það, sem vænta má
á friðartímum. — Af þessu hafa
menn alment gert sér í hugarlund,
að hojnin sé ojlitil. Og þessi hættu-
legi misskilningur breiðist út um
land alt.
Eg hefi talað um þetta við nokkra
þá menn, sem hafa fullkomna þekk-
ing á því, og þeir fullyrða allir aö
höfnin sé yfrið nógu stór, en auka
þurfi uppfylling og gera fleiri bryggj-
ur innan við hafnargarðana. Samfara
þeim umbótum þarf að fá öflugri
uppskipunartæki og má þá ferma
skip og losa á miklu skemri tíma
en nú.
Þessar nmbætur verða bráðlega
ræddar i bæjarstjórn, en hvort sem
Kaupirðu góðan hlut
8>á mundu hvar þú fekst hann.
Smurningsolia: Cyiinder- & Lager- og„0xulfeiti
ent áreiðanlega ódjh-astar og beztar hjáj Sji[g,UjrJ]Ójn i
Hafnarstræti 18
Simi 137.