Morgunblaðið - 09.08.1918, Side 1

Morgunblaðið - 09.08.1918, Side 1
Fðstudag 9. ágúst 1918 5. argangr 272. tðlubmð Kits') V’1! v iir p<ri«»»rt || FrVokísrpi ent -• < Frá veldi ,hinna rauöu‘ Þjgar borg.rrastyr|öldin i Finnlandi stóð sern hæst í vetur, og frið- samir útlendir borgarar áttu það á hættu að vera tnyrtir af »hinum rauðu«, var sent skip frá Svíþjóð til Mantyluoto til þess að sækja þang- að hlutleysingja, sem voru í lifsháska. Foringi fararinnar var fríherra Aker- hjelm. — Þegar skipið nálgaðist ákvörðunarstaðinn tóku »hinir rauðu« að skjóta á það, en með snariæði og ráðkænsku týkst Akeihjelm þó að jafna málin. — Myndin hérna er tekin þá er hann (I) og foringi »hinna rauðu* (II) ráðgast við hjá skipshlið um það hver eigi að verða eiindislok hjálparskipsins. Kitstjornarsimi nr. 500 Erl. símfregnir Frá fréttaritara Morgunblaðsins. Khöfn 7. ágúst árd. Viðsjár nokkrar eru nú aftur orðn- ar með Svíum og Finnutn. Álands- eyjabúar flýja undan herskyldu Finna. Frá Berlín er símað að uppþot hafi verið gerð í Tripolis. Foch hershöfðingi er orðinn fransk- nr marskálkur. Malvy fyrverandi utanríkisráðherra Frakka hefir verið rekinn i útlegð fyrir landráð. Þjóðverjar hafa gert gagnáhlaup hjá Vesle. Skipaður hefir verið sameiginlegur hershöfðingi fyrir herlið Þjóðverja og Finna í Finnlandi. Bifhjólin. Þeim fjölgar óðum i bænum og guð má vita hversu mörg þau verða orðin að ári liðnu, ef innflutningur heldur áfram. Það er ekkert við því að segja þó menn noti farartæki þessi hér svo sem annars staðar i heiminum. Þau eru tiltölulega ódýr og hafa þann stóra kost að þau eru fljót í förum að minsta kosti þar sem vegir eru góðir. Það gefur að skilja, að eftir því sem bifhjólin og bifreiðar verða fleiti, eftír þvi eykst hættan sem stafar af akstri þeirra um götur bæj- arins. í raun og veru er það alveg ^urða að hér skuli ekki ske slys oft- ar af völdum farartækja þessara held- ur en rann er á. En það hlýtur að ske fyr eða síðar eins gálauslega og ekið er hér um göturnar. Vér höf- um þráfaldlega veitt því eftirtekt, að menn aka á bifhjólum með afskap- legum hraða jafnvel fytir götuhorn, Án þess þó að gefa merki nema rétt um leið og beygt er fyrir hornið. En af þessu stafar ætíð hætta. í reglugerð einhverri mun það vera ákveðið hve hratt bifhjól og bifreiðar meigi aka um göturnar. En þvi miður mun eftirlit iítið haft með þvi að þær reglur séu haldnar og mönnum nokkurnveginn í sjálfs- va!d set.t hversu hratt er ekið. Það er of séint að byrgja brunninn þeg- ar barnið er dottið i hann. Það verð- ur að taka i taumana og koma í veg fyrir slys, sem af þessum akstri fram og aftur nm göturnar geta leitt. Auk þessa ætti að banna bifreiða. -og bifhjóla-akstur um göturnar á nóttunni. Maigir kvarta sáran undan því hve hávaðasamt sé á götunum á nóttunni, þar sem bifreiðar þjóta i slfellu fram og aftur, blásandi í hornið og futlar af æpandi fólki. Slíkúr óþarfa akstur er hvergi leyfður, allra sizt nú á þessum tím- um. Vestmaimeyingar stofna björgnnartélag. Vestm.eyjum i gær. Fyrir nokkrum dögum boðaði Karl Einarsson sýslumaður menti á fund til Þess ?ð ræða um stofnun björg- unariélags i Eyjunum. Er ætlunin að kanpa björgUDaibát og hafa hann til aðstoðar vélbátiflota Eyjaskegga. örn 30 þúsund krónur höföu enn skrifað sig íyrir í dag, en það þarf töluvert meira fé, enda ætlunin að safna meiru. Fyrirtæki þetta er hið allra þarfasta sem stofnað hefir verið ttl hér. — Enda er vonandi að það komist i framkvæmd hið allra fyrsta. Austan úr sveitum. Maður, sem er nýkominn austan úr sýslum, segir sömu söguna það- an og sögð er annars stað tr f land- inn — grasbrest svo mikinn ið eigi munu dæmi til annars eins i 20— 30 ár. Tún, sem venjulega spretta svo vel, að taðan flekkjar sig á þeim öllum, eru nú eins og meðal út- engi í meðalári. Eu útengjar fæst- ar Ijáberandi. Sækja bændur helzt heyskap i mýrardrög og fl upp um heiðar, þar sem aldrei hefir verið heyjað áður. Fjöldi bænda sækir og heysk.ip i Safamýri. Það hefir bæzt ofan á sprettuleys- ið, r.ð eigi hefir komið þurkur í Skaftafellssýslum siðan 26. júli. Eigi hafa heldur verið rigningar þar, en molluveður, sem pilla heyjum á fáum dögum. Dagmar keisaraekkja. Hún hefir veiið, og er vist enn, fangi suður á Krimskaga, ásamt öðr- um meðlimum keisafaætíarinnar túss- nesku. Afgreiðslusimi nr. 500 í dönskum blöðum hefir mikið verið ritað um það upp á siðkastið, hvernig" þessari dönsku prinsessu, sem einu sinni var, mundi líða þar syðra undir umsjá Þjóðverja. En sá orðrómur hafði borist þangað, að Dagmar keisaraekkja gjarnan vildi flytja sig til Danmerkur og setjast þar að í höll sem hún á ásamt syst- ur sinni, Aiexöndru, ekkju [átvarð- ar Bretakonungs. En því var bætt við, að Þjóðverjar hefðu neitað keis- araekkjunni um fararleyfi til Dan- merkur. »Nationaltidende« tóku nú til bragðs að síma utanríkisráðherranum þýzka fyrirspurn nm það, hvað hæft væri í sögusögnum þessum. Fékk blaðið aftur símleiðis það svar, að ekkert væri satt í fregninni. Dag- mar hefði ekki látið uppi nokkra ósk um leyfi til þess að flytja sig til Danmerkur, og Þjóðverjar hefðu því ekki neitað um leyfi. Dönskum blöðum þykir þó lík- legt, að keisaraekkjan muni hafa hug á að komast »heim« eins fljótt og kringumstæður leyfa. d’Annuncio í hættu. Gabrielle d’Annuincio gerðist sjálf- boðaliði í flugsveit ítala. Um daginn var hann á flugi skamt frá Venedig. Féll þá vélin skyndilega til jarðar vegna mótorbilunar og mölbrotnaði. En skáldið slapp með lítil sem eng- íd meiðsl. Skip^smíði Bandaríkjanna. Siðustu mánuðina hafa Bandarlkja- menn lagt afskaplegt kapp á skipa- smíði, til þess að fylla i skörðin sem kafbátar Þjóðverjar höggva í skipastól bandamauna. Forstjóri skipasmíðanna, því stjórnin hefir ná- kvæmt efrirlit með öllum verkstæð- unum, tilkynti yl. júli, að 4. dag sama mánaðar, á frelsisdegi Ameriku- manna, jnundi hann sjá um að skip- um sem bæru samtals 480 þús. sroáiestir, vrði hleypt af stokkunum. Það átti að vera gjöf til þjóðarinnar á frelsisdegi hennar. Og það var gert. Stærsta skipið var 12 þúsund smálestir að stærð, en flest voru um 5000 smálestir. Gleðin í Bandaríkjunum var af- skapleg þennan dag. Allar borgir voru skreyttar fánum bandamanna og þektir stjórnmálamenn ávörpuðu vinnulýð skipasmíðastöðvanna og þökkuðu honum vel unnið starf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.