Morgunblaðið - 01.11.1918, Síða 1

Morgunblaðið - 01.11.1918, Síða 1
Ísaíoldirprent^miðja Afgreiðslusími nr. 500 Ritstjórnarsirm nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Fmsen H'utafðl. „Völundur“ Rsykjavik hefir nú aftur fyritlí 'gjandi miklar birgðir af allskonar unnum os; óunnum trjávið, i hús, hú t ðgn, bita ng amboð, svo sem: Margskonar lista- Hefluð og óhefluð p! egð borð: 5/s. 3A. x> jlU ‘Va” á Þykt- Óunnin borð: 5/8X4”; b/4X5” «1 7”; 1X4 til 9”; 1V4X4 til 8”; i‘/2X5 til 7”, Pianka: 2X5V2 til 7”; 2l/2XS °g 7! ?X8”. — 1, ilU, 1V2 °S 2’’ iprimac í húsgögn, hurðir og amboð. 5/8X7” dtvals og 3/4” órandsöguð bátaborð. 3X9” »prima« í árar. Allar stærðir af trjám. Viöurinn afbragðsgóBur. Verðið hvergi lægra. Nnkkrar stæröir sérstaklega ódýrar. Þsgaí/ Nirii var sökf. Frásögn skipverja. Botnvörpungurinn „Ymir“ kom til Hafnarfjarðar í gærmorgun úr Englandsför. Með honum komu 3 skipverjar af b otnvörpung'uum „Nirði“, sem sökt var. Náði Morg- unblaðið tali af einum þeirra í gær og sagði hann svo frá ferðalaginu: —- Við fórum héðan á þriðju- daginn 15. október. A föstudags- morgun, nm kl. 10, sáum við kaf- bát. Vorum við þá um 25 sjómílur suðvestur af St. Kilda. Um kl. 11 sltaut kafbáturinn fyrsta skotinu á skipið. Hæfði það þó eig-i, en við fórum þegar að týgja okkur til þess að yfirgefa skipið. En áður en við legðum frá borði hafði kafbáturinn skotið 9 skotum — en ekkert þeirra kom á skipið. Fyrsta skotið, sem hæfði, kom á aftursigluna og braut hana af. Skaut kafbáturinn nú svo að segja látlaust á skipið þangað til það söltk, en þá mun klukkan hafa verið hálf þrjú. Eftir það livari’ kafbáturinn og liöfðum við ekki tal af honum. Veður var hvast á ANA og hvesti þó enn meira um nóttina. í bátunum höfðum við nógan mat. og drykk, en allan farangur sinn mistu menn og póstur fórst þar með skipinu. — Við gerðum nú ýmist. að sigla eða róa og batnaði veðrið eftir því sem á leið. Klukkan li 4 mánudagsmorgun bjargaði okkur brezkur botnvörp- ungur, vopnaður. Vorum við þá um 25—30 mílur vestur af ír- landi. Botnvörpugurinn flutti okk- ur til Londonderry á írlandi og komum við þangað á laugardags- morgun. Þaðan fórum við með járnbrautaríest til Belfast og það- an til Fleetwood. Þangað komum við á þriðjudag, eða viku eftir að við lögðum á stað að lieiman. Botnvörpungurinn „Ýmir“ lagði á stað frá Fleetwood á laugardag- inn og með honum fóru 3 okkar, 2 koma með „Snorra Goða“ og 1 með „Jóni Forseta“. Skipstjóri, stýrimenn, fyrsti véistjóri og' tveir hásetar urðu að verða eftir í Eng'- landi vegna sjóprófa. Höfðu þeir farið tvær ferðir til Liverpool, þar sem sjóprófin voru haldin, og bjuggust við því að þurfa að fara þangað eina ferð enn. Er ekki að vita hvenær þeir muni koma heim. — Enginn skipverja hlaut nein meiðsl og enguni þeirra varð neitt meint af sjóvolkinu í bátunmn. Nokkurt tjón hafa þeir allir beðið í missi fata og annara ínuna, en gleðilegt að æfintýrið hafði ekki verri afleiðingar. Geir kominn aftur. Kom öHum vörunum á iand. Björgunarskipið Geir kom hing- að aftur í gærmorgun laust fyrir hádegi. En hann var leigður af landsstjórninni til þess að flytja kjöttmmur, salt, steinolíu og mjöl austur á Sanda. — — Með skipinu fór Guðm. Magn- ússon rithöfundur og hittum vér hann að máli í gær og báðum hann segja frá ferðinni: — Geir fór liéðan fimtudaginh 24. þ. m. Sigldi anstur með landi, en austanátt var á og sjór úfinn, svo það voru eng'in tiltök að lenda á söndunuin. Hélt því skipið til Vestmannaeyja og beið þar betra -veðurs. Voru gerðar nokkrar til- raunir að koma vörunum á land, en það tókst ekki fyr en á mið- vikudagsmorgun. Þá var öllum tumnmum varpað í sjóiim og sást það greinlega af skipinu að þær komust allar á land. í sumum tuimunum var salt, öðrum mjöl- pokar en sumar voru tómar. Þá var og 20 stemolíutmmum varpað frá skipiim og komust þær heilar á land. — Skipið lá dálítið fyrir vestan Skaftárósa. Þar vorn 10—12 menn fyrir, sem hirtu tuimuriiar jafn- óðum og' þær koinu á land. En skipverjum á Geir taldist svo til, að hver tunna hafi verið eina klukkustund á leiðinni í land. — G. M. seg'ir að alt af hafi þeir' við og við séð KötlU. Stór gos eru þar enn, en eng'in ný hlaup höfðu þeir orðið varir við.Eldglær- ingar sáust nijög miklar og greini- legar, en enginn eldur. A mánu- dag'inn sást allur jökullinn og' Katla í heiðskíru og var svo að sjá, seni gígurinn væri norðar og vestar, en Katla er afmörkuð á kortinn. — G. M. segir mjög ilt veður hafa verið í hafi, austanrok og stórsjór. Kötlugosið heldur enn áfram. í fyrrakvoíd sáust eldglæringar all- greinilega. Ösknfall var töluvert í fyrradag. fs sáu þeir engna á reki fyrir snnnan land, en mikinn ís á sandinum. Erl, simfregnir. Bretar tHkynna. London, 30. okt. Skamt frá Englefontaine, gegnt Normal-skógi, gerðu Bretar heppi- lega útrás í gær og handtóku 70 menn. Iler Debeneys er kominn til út- jaðra Guise, sem Þjóðverjar verja af mesta kappi. Sunnar hefir her hans sótt fram yfir Peron. Her Guillaumats háði harða or- ustu í gær vestan við Chateaupor- cien og handtók 850 menn. Akafar loftorustur voru háðar yfir vígstöðvnm Breta á mánudag- inn. 32 þýzkar flugvélar voru ó- nýttar og 10 hraktar til jarðar stjórnlausar. Bretar mistu 8 flug- vélar. Brezk flugdeild gerði árás á Morhange, Freisaty en Jatmetz flugskálana og á Mannheim, Tre- ves, Saarbrúcken, Longuyon, Eco- nrez og Tliionville. Herfang Breta. London, 30. okt. Franska blaðið „Le Temps“ á- lítur að Bretar einir hafi handtek- ið 140,000 menn á tímabilinu 8. á- g'úst til 10. okt. og' tekið 1600 fall- byssur að herfangi. í hernaðartilkynningu, sem kom í morgun frá Flándern, seg'ir svo: Yfirleitt hefir engin hreyting orðið á vígstöðvunum. Frá 14.—27. október hefir herinn í Flanderu handtekið 18,493 menn, þar af 331 liðsforingja. Þar af handtóku Bret- ar 6364, Belgar 7962 og Frakkar 6177. Af alls konar herfangi hafa bandamenn tekið svo mikið, að emi hefir cig'i verið hægt að kasta tölu á það. Af fallbyssum ha.fa þeir tek- ið 609 á þessum tíma og eru þar af 351 létt fallbyssa, 110 stærri fallbyssur og 48 skotbókn. Af þess- um fallbyssum tóku Belgar 247 og Bretar 211. Vélbyssur, sem teknar Iiafa verið, eru á annað þúsmid. (Tölurnar í þessn skeyti eru okki nékvæm ar.) Vínarbúar svelta París í gær. Frá Zúrieh er símað, að bin mesta lnmgursneyð ríki í Vínar- borg, þar sem allir matvælaað- flutningar séu teptir til borgarinn- ar frá Bæheimi og Ungverjalandi. Blöðin segja að áhyggjurnar út af þessu séu svo miklar, að allar stjórnmála og liernaðaráliyggjur séu hverfandi í samanburði við þær. Hlntleysingjanefndin sem Þjóðverjar »9kipuðuc. París í gær. Stjórn Hollands hefir mótmælt þýskum fregnum um nefnd full- trúa hlutlausra þjóða, er hafi rann- rsakað spellvirkin í Belgín. Spán- verjar hafa einnig mótmælt fregn- nnum fyrir sitt leyti. Sendisveitin spánverska í Brússel liefir sent frönskum blöðum yfirlýsingu um þetta, og er aðalefni liennar þetta: „Þýzk blöð hafa sagt frá því, að hlutlaus nefnd, er í séu fulltrúar Spánverja og Hollendinga í. Brús- sel, liafi verið kvödd til þess að rannsaka spellvirki unnin á svæði því, er undanhald Þjóðverja hefir farið fram á. Þessir fulltrúar mót- mæla kröftuglega þessari fregn sem algerðri staðleysu, við barón von Lanken, scm hefir eftir kröfu þeirra látið birta leiðréttingu á henni í þýzkum blöðum". Því er bætt við, að sendiherrar Spánverja 0g Holler.dinga hafi eigi tekið sér aðra ferð á hendur, en að ferðast ásamt matvælanefnd í þarfir frönsku þjóðarinnar, til þess að gera sér grein fyrir ástandinu með- al Frakka í borgum þeim, er Þjóð- verjar hafa horfið úr. Frakkar tilkynna. ‘ París í gær. Fyrir norðan Suisse liafa Frakk-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.