Morgunblaðið - 01.12.1918, Síða 1

Morgunblaðið - 01.12.1918, Síða 1
Snnrmdag 1. des. 1918 H0R6UNBLASID 6. argangr 21 tölublað Ritstj6rnarsimi nr. 500 Ritstjóri: Vilhiáimur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslnsimi nr. 500 orino Um undanfarna áratugi hafa vitrustu og beztu menn þjóðar vorrar barist fyrir viðurkenningu Dana á sjálfsögðum rétti vorum til þtess að ráða einir högum vorum. Nú er viðurkenningin fengin, svo ótvíræð að ekki verður um deilt. í dag sezt íslenzka þjóðin á bekk ineð fullvalda þjóðum heimsins. Stjórnmálabarátta vcr hefir ver- ið framsóknarbarátta í meira en heila Öld. Stig af stigi hafa leið- togar vorir fært þjóðina nær tak- markinu, sem hún nú er komin að. Verzlunarfrelsi, sérmálalöggjöf og fjárforræði, innlend stjórn, heima- fáni — alt eru þetta merkissteinar við þá braut, sem þjóðin hefir fet- að til fullveldisins. Margra er að minnast, er vér á þessum merkilegu tímamótum rennum huganum aftur til liðinna tíina. Þar blasir við sveit kapp- anna, sem ekki vissu neitt verk göfugra, en að vinna þjóð sinni gagn, sem aldrei þreyttust eða létu hngfallast, þó að við ofurefli væri að eiga. Sem trúðu á sigur rétt- læíisins og slógu aldrei af stefnu- skrá sinni. I dag mun hugur allra Islendinga þó fyrst og' fremst dvelja í lotning við minningu hans, — sem hrinti vorum hag á leið, með heillar aldar taki, — Jóns Sigurðssonar, hins göfuga braut- Tyðjanda meðal margra ágætra stjórnmálamanna vorra. Vér minn- mnst og þeirra, sem í fylkingar- brjósti stóðu fyrir 10 árum og höfnuðu þeim kostiim, sem eigi voru samboðnir þjóð vorri, og þeirra — bæði Dana og íslend- inga — sem leystu þrautina þá, að finna leið, samboðna báðinn aðil- nm, út úr stjórnmáladeilunni löngu og leiðu. I dag fellur tjaldið fyrir merki- legum þætti úr stjórnmálasögu ís- lands. í dag hefst nýr þáttur og eigi ómerkilegri í sögu þjóðarinn- ar- Hún er viðurkend fullveðja þ.jóð. En um leið áskotnast henni skyldur, sem hún að vísu hefir alt- ar haft, að eigin áliti, en eigi feng'- ið færi á að rækja, vegna forráða sambandsþjóðarinnar. í dag stönd- Um vér augliti til auglitis við heiminn sem íslendingar, e 11 ®kki sem Danir, — á eigin á- byrgð, en ekki annara. í dag fá ís- lendingar það hlutverk, að halda y*Þpi sæmd yngsta ríkisins í heim- ^bum. Og vonandi finnur öll þjóð- lr> til vandans, sem þeirri vegsemd ^dgir, til ábyrgðarhlutans, sem ^llinn er oss í skaut með sam- abd.slögunum nýju. Það er eigi ^öna um vert, að kunna að gæta íen Q8ms fjár en að afla þess. Og því er það, að svo áríðandi og mikils- vert sem oss hefir verið starf vitr- ustm og beztu manna þjóðarinnar í baráttunni fýrir réttinum, þá er hitt eigi síður vandi, að gæta rétt- arins. Aldrei hefir þjóðinni 4remur en nú riðið á að eiga vitra menn og góða til þess, að verja lífi sínu og orku í þágu þjóðar sinnarr. Og' aldrei vaknar þjóðin sjálf til með- vitundar um ábyrgðina, sem á henni hvílir, ef ekki nú. Aðrar þjóðir fórna lífi sínu fyr- ir frelsið. Frelsi þjóðar vorrar er ekki keypt fyrir blóð. En það er dýrkeypt samt. Lífsstarf beztu manna þjóðarinnar hefir verið goldið fyrir frelsið og kraftar raargra þjóðnýtra manna, sem unnið hefðu þrekvirki ef gengið hefðu í sömu átt, hafa breyzt í hita og ofstæki við núningsmót- stöðu sundurleitra skoðana. Sam- bandsmálið liefir ætíð verið aðal- mál, en nauðsynleg innanlandsmál verið í vanhirðu. Og í þeim skiln- ingi getum vér talið oss ófriðar- þjóð, að nú verðum vér að bæta það innardands, sem her þjóðar- inuar — forvígismennirnir — eigi g'at snúist við, vegna deilunnar við aðra þjóð. Það er því öðru nær en að við höfum fengið friðinn fyr- ir ekki neitt. „Herkostnaðurinn“ við stjófnmálabaráttuna hefir safn- ast fyrir í mynd vanræktra innan- landsmála og þann lierkostnað á þjóðin að borga á komandi árum. Þar bíður óþrjótandi verkefni, eigi að eins beztu og vitrustu manna þjóðarinnar', lieldur einnig hvers einstaks manns. En til eru þeir menn með þjóð- inni, sem vilja að engu liafa sam- bandslögin, er í dag ganga í gildi. Þeir neita því að vísu fæstir, að fengin sé viðurkenning fullveldis- ins, en álíta liana svo dýrt keypta, að betur hefði ógert verið. Reynzl- an ein verður réttlátur dómari um það, hvort þeir hafa rétt fyrir sér eða eigi. En þrátt fyrir þann skoð- anamun, sem orðið hefir um full- veldislögin, er fylsta ástæða til að vænta þess, að andstæðingarnir meti svo mikils heill þjóðarinnar, að þeir gangi samhuga öðrum að starfinu sem bíður, og geri sitt til að efla friðinn. Og hvað Dani snertir, þá sýn- ist svo sem að sá flokkur þeirra, er íslendingum er andvígur, sé svo fámennur að oss stafi ekki ný ó- friðarhætta úr þeirri átt. Það virð- ist vera orðin ríkjandi skoðun í Danmörku, að betra sé að þjóðirn- ar skilji, en að þær lifi saman í ósamlyndi. Og með sambandslög- unum er fenginn grundvöllur fyrir skilnaði á friðsamlegan hátt. Hins- vegar vona víst allir, bæði íslend- ingar og Danir, að sambúðin verði góð, hvort sem að hún verður löng eða stutt. ------- ísland á meiri ónotaða fjársjóðu en flest lönd önnur. Það er undir þjóðinni komið, hvort ísland verð- ur í s 1 e n z k t framtíðarland. íslendingar eiga betri menning- argrundvöll en flestar aðrar þjóð- ir. Það er undir þeim sjálfum kom- ið, hvort þar rís sú bygging, sem fortíðarmenningunni er samboðin. Hátíðahöld. Hátíðahöld verða engin í bænum önnur en þau, að stjórnarráðið hef- ir ákveðið að ríkisfáni íslands skuli dreginn upp fyrsta sinni með töluverðri viðhöfn. Hefst athöfnin kl. 11% og fer fram fyrir framan stjórnarráðs- liúsið. Hún byrjar með lúðra- blæstri. Næst heldur fjármálaráð- herra ræðu. Kl. 12 stundvíslega verður ríkisfáninn dreginn upp og leildð á horn á meðan. „Islands Falk“ mun heilsa flagginu með 21 fallbyssuskoti og danskir hermenn sýna því virðingu. Foringinn á Is- lands Falk heldur stutta ræðu og á eftir verður leikið á horn. Að síðustu segir forseti sameinaðs þings nokkur orð. Er mælst til þess að íslenzkir fánar verði dregnir up]i um leið og ríkisfáninn, víðsvegar um bæ- iini, en að bæjarmenn flaggi ekki fyr. Ráðherra mun hafa lokið ræðu sinni kl. 12 stundvíslega, og ætti fólk því að fjölmenna fyrir fram- an stjórnaráðshúsið fjórðungi stundar fyrir kl. 12. Ganga má að því vísu, að fólk mæti prúðbúið við athöfn þ'essa, enda væri annað óviðeigandi. All- • mörgum hefir verið sérstaklega boðið að vera viðstöddum athöfn- ina, þar á meðal ræðismönnum er- erlendra ríkja. Óslcað er að bæjarbúar fjöl- menni. Kappkostað verður, að at- höfnin standi stutt, svo að eigi sé neinum hætt við ofkælingu. BAÓBOHC Frá sjónarheimi heitir bók eftir dr. Quðm. Finnbogason prófessor, sem Bókaverzun Sigfúsar Eymundssonar hefir nýskeð gefið út, og á skilið að verða lesin af sem flestum. Efnið er einkennilegt, en skýrt og skemtilega með það farið, eins og höfundar er vandi. Rafljósaskilti hefir Nýja Bíó sett upp. Er það skrautlegt mjög og smekk- legt, stafirnir með lömpum úr ólituðu gleri, en umgerðin um nafnið úr ruað- um lömpum. Alls eru lamparnir 200. Yar skilti þetta pantað 1915 í Ame- ríku, en hefir ekki komist hingað fyr en nú. Gott var að fá góða birtu á þennan stað, því þar vill oft vera óróa- samt á kveldin. Og nóg er eftir af myikri í bænum samt. I gær var auglýst í blaðinu jarðar- för Hólmfríðar Benediktsdóttur, Klapparstíg 2. Hún og maður hennar, Júlíus Brynjólfsson, voru flutt í Barnaskólann vegna lungnabólgu. Hún dó þar litlu síðar, en í fyrrinótt and- aðist maður hennar einnig. Um kvefpest heitir pési eftir G. Björnson landlækni, sem nýkominn er út á landssjóðs kostnað. Er þar lýsing á inflúenzunni, varnir gegn henni, ráð þegar veikin er komin og ýmis- legt annað. Yafalaust verður pési þessi sendur út um land. Dánarfregn. Siguijón Jóhannesson frá Laxamýri er nýlátinn nyrðra. Kveldskemtun heldur Hákansson, eigandi Iðnaðarmannahússins, í kveld. Verður hún býsna íjölbreytt, sex rianna hljóðfæraflokkur undir stjórn Þórarins Guðmundssonar fiðluleikara, upplestur (Jóhann Jónsson stud. art,), ræða (Bjarni frá Vogi), söngur og smáleikurinn „Bónorð Semings", sem fólki þótti svo skemtilegur i haust. Fá þar sennilega færri en vilja góða skemtun. Arðurinn rennur allur í hjálparsjóðinn. Seglskip, danskt eða norskt, sem Manecis heitir, kom í fyrrinótt með kolafarm til landsverzlunarinnar, 3800 smálestir. Hefir það legið hlaðið í Bretlandi síðan snemma í sumar, en ekki fengið siglingaleyfi fyr en nú. Sterling fer væntanlega til hafnanna við Húnaflóa fyiri part þessarar viku. Strandferðin austur ferst fyrir, vegna sóttvarnanna á Austfjörðum. Lagar- foss liggur enn þá á Akureyri aðgerða- lans. Biskupinn messar í dómkirkjunni kl. 2 í dag. Sambandslögin í Danmörku. Fimtán landsþingsmenn kváðu hafa verið fjar- verandi þá er atkvæðagreiðsla fór fram um sambandsmálið í Kaupmanna- höfn. Eftirtekt viljum vér vekja á Liver- poolssíðunni. Þar sjá menn margt er þá vanhagar um. Erl simfregnir. Frá fréttaritara Morgunblaðsins Khöfn, 30. nóv. Konungurinn undirskrifaði sam- bandslögin kl. 10.40 í morgun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.