Morgunblaðið - 29.10.1919, Page 4
4
MORG VK KLAIÐIB
Fagurt prðfsmiði
Stóll Ásmundar,
Margir Reykvíkingar muna það
víst ennþá, að hafður var til sýnis
spegill mjög haglega skorinn eftir
Eíkarð Jónsson. Þá fór hann fulL
numi frá kennara sínum og margra
annara snillinga, Stefáni Eiríks-
syni. Síðan hefir Ríkarður lagt
stund á líkansgerð og tekist eigi
síður en við tréskurðinn. Þó hefir
hann eigi lagt tréskurðinn á hilluna
og má sjá það á því, að fyrsti læri-
sveinn hans í þeirri list útskrifaðist
í vor. Það er Ásmundur Sveinsson
frá Kolsstöðum í Dalasýslu, list-
fengur maður og ágætlega hagur,
áhugamaður og ástundunarsamur.
Fullnumasmíð hans er stóll mikill
og vandaður í íslenzkum stíl, og
fagurlega skorinn á hliðum og
brúnum og bríkum. Á bak stólsins
er skorinn bóndabær og' þar fyrir
framan smali með hund sinn, sláttu
maður með orf og Ijá og enn kona
með mjólkurskjólur. Er þar með
öðrum orðum sýnt íslenzkt sveita-
líf. En framan á stólnum neðan-
verðum er sborinn sjómaður við
bát sinn í flæðarmálinu og lítur
hann til veðurs, hvort fært sé. En
yfir og undir þessum tveimur hóp-
myndum er vísa með höfðaletri, og
er fljótséð við hvora myndina hvor
vísuhelmingur á. Yísan er svo:
Sveitin veitir sadustund,
sveitin göfgar önd og mund,
Ægir gefur glaða lund,
gulli vefur hal og sprund.
Vísan er eftir Ríkarð.
Á morgun verður byrjað að sýna
stólinn á Thorvaldsens Bazarnum
kl. 1—7. Og má telja víst að múgur
og margmenni komi til þess að
skoða liann, og sjái ekki eftir að
borga fyrir þaðnokkraauraerganga
til styrktar hinum unga listamanni
sem nú er að fara úr lndi til þess
að leita sér meiri frama og full-
komnunar.
Reykjavík 1919
Bjarni Jónsson
frá Vogi.
Ný dalarfall veiki?
þess hefir fyr verið gclið liér í
blaðinu, að í ýmsum löndum Norð-
urólfunnar liefir ný veiki verið að
stinga sér niður hingað og þangað.
Hefir hún eigi þekst áður hér í
álfu, en lík veiki hefir gert vart
við sig í Ástralíu og þess vegna hef-
ir þessi nýja veiki verið kölluð
„ástralska veikin“.
Urn veiki þ(>ssa ritar danski lækn-
írinn J. 0. Jacobsen svo í „Dagens
Nyheder" :
— Veiki þessi er að því leytí ekki ný,
að það er langt síðan hún geiði vart
viö sig og þa'S er einnig efasamt hvort
hér er uni nýja sjálfstæða veiki að ræða
það er sennilegt, að svo muni. fara um
áströlsku véiki eins og „spönsku veik-
ina“ sem rnenn fundu að eigi var ann-
að en innfluensa. Og nú þegar eru ýms-
ir á þeirri skoðun að þessi nýja veiki sé
angi af inflúenzu, sem legst aðallega á
heilann.
Meðan veiki þessi tók aðeins fáa
menn hingað og þangað, gáfu menn
henni ekki svo mikinn gaum, en nú hef-
ir hún vakið á sér mikla eftirtekt vegna
þess að hún hefir að síðustu orðið tíðari
í ýmsum löndum.
I enskum ritum hefir maður fyrir
löngu séð minnst á „the mysterius dis-
ease of Australia“. Hollenzk læknablöð
hafa einnig minnst á hana og þýzk
læknablöð hafa með venjulegri ger-
manskri nákvæinni lýst ýmsum tegund-
um inflúenzu svo sem spanskri veiki á-
samt heilaþjáningum og svefnsýki og
stjarfa. pegar í vor sem leið var mikið
rætt um veiki þessa í þýzkum læknafé-
lögum og hún nefnd „Encephalitis leth-
argica“ eða heilabólga ásaint dái. pá
var þó veikin sjaldgæf í pýzkalandi en
haf’ði víða stungíð sér tiiður í Eng-
landi, Frakklandi og Austurríki. í
pýzkal&Uíti ger&i veikin fynt vart við
r
I heildsttlu aðeins tii kaopmanna og kanpfélaga
Nýkomið með e.s. Jsland*:
IXION Snowflake og Lunch®Biscuit sætt.
Buttapat ágæta enska smjörliki.
Sissons málningavörur:
Fernisolía (Sissons Crystal pale) Black Varnish, Zinkhvíta, Blýhvíta
hvítt lakk, Kopal og G. P. lakk, duft rauð,gul og græn,Halls Distem
per, Primisize, Trélím, Botnfarfi á stál og tréskip, rauður og grár
farvi á galv. járn o. fl.
Útgorðarvörur:
Lóðartaumar, Manilla puri &
Yacht Ligtoverk, Tjargaður hampur, Skipmannsgarn.
Kristján Ú. Skagfjörð.
Sími 647.
Tundur
verður haldinn i Kaupmannafélagi Reykjavíknr fimtudaginn 30. þ. m. k
8 í Iðnó nppi.
Síjórnin.
2 stúíkur óskasf að Vífiís-
slöðum, sfrax.
Einnig 2 stúlkur til hi eingerninga í V, mánuð.
Upplýsingar í sima 101.
sig í Kiel og var þá þegar taliu í ætt
við inflúenzu.
Aðdragandi veikinnar cr með ýmsu
móti. Stundum getur hún byrjað ofsa-
lega en stundum er hún mjög hægfara.
Stundum fylgir henni mikil hitasótt og
stundum enginn hiti. Sjúklingurinn
verður áræðislaus sljór og annarlegur;
hann getur ekki staðið og hnígur óðar
út af aftur þótt hann sé reistúr upp í
ríuninu. 011 líffæri starfa treglega og
íugnn lokast ef eigi er neytt öflugra
iáða til þess að halda sjúklingnum vak-
li. pað kemur fyrir að hana sofnar
meðau hann er að matpst, og einnig á
meðan talað er við hann uni málefni,
seni hann hefir mikinn áliuga fyrir.
paö er hægt aö vekja hann og svarar
hanu þá spurniugum skýrt og glögglega
er fellur síðan í svefn aftur. Eftir
uokkra daga verða augnalokin afllaus
sjúklingurinn sér tvöfalt og fær augna-
kiampa og oft verða andlitsvöðvamir
afllausir. Meðal annarra einkenna á
vfcikinni er líkagetiðumhöfuðverk,háls-
ríg, uppsölu, hægan æðaslátt, stjarfa í
handleggjum og fótum og það sem nefnt
er „Katalepsi“, en það lýsir sér í því
að k'.ukkustundum sauian helzt limur í
hvaða stellingum sem maöur setur
hann í.
Svefninn getur haldist longi. Einn af
norslcii sjúkliugunum sem veikina fekk
upp úr inflúenzu, svaf látlaust frá 21.
janúar til 27. febrúar. Hann var 38 ára
a;í aldri. Meðan hann svaf sló siagæðin
altaf reglulega,en augnalokin vorualveg
afllaus, krampi í augunuin, aflleysi í
andlilsvöðvunuin og liálsrígur. Harm
náði sér algerlega aftur og útskrifaðist
ai' fcijúkrhúsinu 19. apríl.
Veikin er talin heilahólga, því með
uppskurði hafa rnenn fundið ýmsar
breytingar í heilavefnum og heilahimn-
nimi, þar á meðal smáhlæðingar.
Menn hafa sýkt apa, til reynslu, af
þessari veiki, og hjá þeim koin eigi að-
eins í Ijós heilahólga, heldur einnig
hólga í mænunni. í hinum veiku öpum
fundu menn síðan bacillu, sem var
reynd á marsvínum og sýkti þau á lík-
ar hátt.
Nú er spurningin sú, hvort hér sé
i:m nýja veiki að ræða. par eru skoðan-
ir manna skiftar. í influenzuai kom fyr-
ir slík svefnsýki og ennfremur vottur
af heilabólgu, sem menri kenndu influ-
enzubacillunni um. Áður hafa og þekzt
álærni um heilaþjáningarogsmáblæðing-
ar í heilavefnum, aflleysi í augnalokum
langvinnur svefn, t d. hjá forhert-
niii drykkjumönnum. Ennfremur haf'a
áður komið í ljós samskouar eíakenai
hjá mönnum, sem haí’a fengið eitrun
af pylsurn, kjöti og fislci.
Flestir þeir læknar sem hafa fengist
við það, að rannsaka veiki þessa, virð
ast telja hana heilainflúenzu og ef til
vill fer um hana eins og spönsku veik
ina, að hún verður ekki annað en inflú
enza þegar alt kemur til alls. pað er
ekkert er nýtt undir sólunni!
pað verður sennilega ekki langt
þangað til maður ljeyrir eitthvað meira
um veiki þessa og eðli hennar. Victor
Scheel yfirlæknirmunhafa rétt fyrir sér
í því, að þetta só veiki á byrjunarstigi
En það er þó altaf huggun, að það er
tiltölulega hættulaus veiki og ekki svip-
að því eins uæm og spanska veikin.
Flestir sjúklinganna ná sér fullkom-
lega aftur.
Yfiarer
f s tœrstaS
besbct
úry/aUð\
Innilegt þakklæti fytir auðsýnda híuttekningu við fráfall og jaröarför
konunnar minnar og móður okkar, Geirlaugar Eyólfsdóttnr.
Hafnarfirði 28. okt. 1919.
Ólafur Sigurðsson og bðrn.
ðrur
c
DAOBOl
Reykjavík: A kaldi, hiti 2,5.
ísafjörður: logn, hiti 0,5.
Akureyri:SSV andv. hiti 0,0.
SeyðisfjörðUr: logn, hiti -r- 2,4.
Grímsstaðir :S gola, hiti 7,0.
Vestmannaeyjar: A andv., hiti 5,0.
pórshöfn: NNA st.gola, hiti 3,0.
.1
^Huginn, skip Kveldúlfsfélagsins kom
í fyrriuótt frá Danmörku með cements-
farm.
Myrkur er nú mikið á götunum og
er ilt til þess að vita. En við því kvað
ekkert vera að gera því ákveðið hefir
verið að spara götuljós eftir mætti í
vetur.
Jún
llafði
lands.
Forséti kom inn frá veiðurn.
fiskað 1000 kitti. Fer til Eng-
Goodhop, eúskur
vegna óveðurs.
togu ri kom i nn
pýzkur togari, Fischereidirector Liib-
bert kom til Viðeyjar. Ætlaði að fá kol
o. f'L, en mun hætta við sökum dýrleika.
Kvað hann kol kosta 100 mörk í pýzka-
landi.
Islentíingasögur
bandi, vil eg kaupa.
Sigurður Kristjánsson,
á skrifst. Morgunbl.
Eitt herbergi óska tveir sænskr
vélfræðingar á leigu nú þegar. —
Uppl. hjá ritstj. Morgunbl.
Þeir sem enn eiga óteknar vörur úr Es. Geysi geri svo vel að
sækja þær tafarlaurt.
Afgreiðslan.
Vesgfóður
panelpappi, maskinupappi og strigi
f*st i Spitílaitlg 9, hjá
Agústi Markússyai,
Slmi 675.
YE6GF0DDB
fjölbreyttasta úrval i landinu,
er I Kolasunái hjá
Daníel HaUdðrsayal
Reform Maltextrakt
Og
Lageröl
nýkoijiið I
Yerzlnn 0. Ámnndasonar.
Sími 149. Laugavegi 223,
Danskur
frá 1”—4’
saumur
til sölu.
Guðm. Jónsson, Laugavegi 24.
r
verður selt eftir kl. 5 I dag í vcrz'un
Jes Zimsen
Dngleg og áreiðanleg sulka ósk-
ast til morgnnverka. Úpp'. í List-
verzluninni, Kirkjnstr. 4.
Hinar margeftirspurðu
Gúmmíkápur
fyrir dömur og herra, ern nú komnar aftur til
Si£urjóns c&éfurssonar,
Hafnarstræti 18.
Simi 137.
E
S
Island
fer héðan fimtudag 30. október kl 2. eftir hádegi til ísafjarðar, Akur-
eyrar, Seyðisfjarðar og Kaupmannahafnar. Farseðlar verða að takast I
landi.
G. Zimsee.
Nýkomið
Linoleum og góltdúkur I verzlun
Agústar Markússonar.
Timbur.
Talsverðar birgðir enn af hefluðnm og óheflnðuiö
borðum, panel, piönkum
og trjám
sem seljrst nú vegna plássleysis og til að rýma fyrir nýjum birgðuifii
með mjög sanngjörna verði.
Nic Bjarnason
Stúlka, sem gctnr kent handavinnu
og ergelspil ásamt venjulegum náms
greinum óskast á heimili nálægt
Reykjavík. A v. á.
Peningabudda fundin. Vitjist á
afgr. Morgunblaðsins.
hafi veri'S að bí'ða eftir Sterling þar á
Heyðisfirði, ætla'ð aö sigla yfir fjörö-
inn en kollsiglt.
Sl./j.s. Frézt hefir frá Seyðisfirði, að
bátur s6m var á siglingu þar yfir fjörð-
inn hafi farist og tveir inenn drukkn-
að. Fylgir það sögunni að mtnn þessir
Mýralcotsstelpan. Sjaldan eða aldrei
lef'ir sézt hér hetri myrrd en sú, er Nýja
Bíó sýnir. Hefir hcnnar verið að nokkru
getið hér í blaðinu áður, en rétt er að
ekja eftirtekt nianna á henni og þar
sem þess mun nú skamt að bíða að hún
verði tekin út af dagskrá, viljum vér
ekja eftirtekt Imvjarbúa á henni. Selma
Lagerlöf, hin fræga sænska skáldkona
er siiguna hefir sainiö, — varð svo hrif-
if myndinui að húu tárfeldi. Hvaö
mun þá öSrum verða.
verður að forfallalausn skipað upp í dag og næstu daga. Þeir, sem
sæta lægsta verðinu og kaupa á haínarbakkanum, gefi dí
fram sem tyrst.
Jón Þarláksson,
Sími 103. Bankastræri xx.
Framtíðarstaða
Abyggilegur skrifstofumaður, vanur bókfærslu, bréfaskriftum» skrifvél
og ritfær i ensku og dönsku, getur strax fengið framtíðarstöðu.
Umsókn, með launakröfu og meðmælum, sendist skr'fstofa þes^
blaðs fyrir 30. þ. m. anðkend: Korrespondance.
Kútter Iíaraldur, eign Ólafs Davíðs-
sonar í Hafnarfirði, fór héðan 15. þ. m.
kom til Grimsby á sunnudaginn var,
heilu og höldnu.
Stúdentafélag Reykjavikur
heldur fund næstk. fimtudag, 30. þ. m., kl. 9 síðd. I Iðnó (oppD*
Fundarefni:
x. Stúdentasjóðurinn Islenzki.
2. Próf. dr. Ág. H. Bjarnason: Norræna stddentasatnbafidi •
3. Síra Jóh. L. L. Jóhannesson: Islenzka orðabókin.
Allir stúdentar og dimittendar velkomnir.
stjornin.