Morgunblaðið - 20.09.1922, Síða 3
MOKljUNBLAÍiÍ
JlQkom
skófaínaður, margar fggmufir, fíf Ji v
a
ff,
* * l
bergsbræðra.
Enain útsaia
ESUlÍliailia I MHSKHiMsllŒlj!
l®j
ÍHj
0
B
0
0
0
0
E
0
0
0
0
[i
0
0
0
□!□□□
0
0
0
0
0
En komið samt og athugið
okkar fjölbreyttu vörur.
Nýkomiðs
Regnkápua', kvenna og karla,
Vinnufatnaður, Nserfatnaður,
/
Húfur, Flibbar, Hálsbindi og Slaufur.
Kveat-skófatnaður, mjög ódýr,
og margt, margt fleira.
Einnig seljum við ailskonar
mafyaru,
með lægsta verði i bænum.
1 MagiÉm s Miííds.
\
Laugaveg 44.
SBBEISiEEEiBESIallBH:
□ □!□□
Simi 657.
liirillHfiinillaiia
Ókeypis prentun!
Hver sem kaupir 4 k a s s a af hinum ljómandi fallega einkahrjefa-
pappír vcrum (í hverjum kassa eru 25 hrjefsefni cg 25 umslög) fær
prentað nafn sitt á hvorttveggja ókeypis. — Brjefsefnin eru hæði fyrir
konur og karla og þess vegna einnig hentug til tækifærisgjafa. — Til
sýnis á skrifstofu
Isafoldarprentsmiðju h.f.
Hvað viðvíkur þeirri gjöf, er
landssímastjóra var færð í nafni
símaf jelagsins á 50 ára afmæli
hans, þá virðist höf. ekki vera
svo þroskaður, að homrm geti
skilist, að menn og málefni er
ekkj óaðskiljanlegt. Finst mjer
það fremur fjelaginu til sóma,
að láta ekki misklíðarmál milli
þess o,g landssímastjórans koma til
greina við slíkt tækifæri.
Þá kemur höf að aðalástæð-
unni, skipun Eggerts Stefánsson-
ai. Og það er siðferðishliðin á
þessu máli, sú hlið, sem svo sorg-
lega illa hef'r verið skoðnð af
veitingavaldinu. Verður ekki hjá
því komist, þótt leitt sje, að minn-
ast nánar á hana en gert hefir
verið hingað til, því gre'narhöf.
reynir auðsjáanlega að draga úr
þýðingu hennar. En á henni
byggist það fyrst og fremst, að
F. í. S. hefir lýst vantrausti á
landssímastjóra, og hinsvegar, að
starfsfólk símans hefir gert og
gerir það sem hægt er, t:.l að
forða símastjettinni frá þeim
bletti, sem á hana myndi falla,
ef þessi maður tæki nú við einni
af mestu trúnaðarstöðunum við
landssímann.
Maður þessi byrjaði svo að
seg'ja starf sitt við símapn, með
því að varpa skugga á síma-
mannasjettina, þegar hann sendi
til „Norðurlands“ og Austra“ hið
svo kallaða „Falsskeyti“, árið
1909. Er þannig frá því sagt í
blöðunum frá þeim tímupi, að
hann hafi ætlað að koma sök-
inni á saklausan mann úti í bæ,
á eina af símameyjnnum, og síð-
ast mútað mannaumingja til að
segjast hafa komið með skeytið.
En samviskan hafði vaknað hjá
þeim mannaumingja seinna, svo
alt komst upp, o.g Eggert var
vikið frá símanum. Segir „Norð-
r.rland", að „tæplega geti komið
ti.i mála“, að maður þessi verði
tekinn aftur að símanum, og .gef-
ur í skyn, að það væri ónær-
gætnislega gert gagnvart síma-
fólkinu. En símastjói;nin ljet nú
tveggja mánaða burtveru nægja.
Þá var hann seinna rekinn fyrir
að falsa nafn stöðvarstjórans á
Seyðisfirði undir þjónustuskeyti,
til að koma sök af sjer yfir á
sjettarbróður sinn, sem vann moti
honum við stöðina í Rej'kjavík.
En enn var hann tekinn aðf
slmanum árið 1915. Hefir hann
unnið á skrifstofu stöðvarstjórans
á Akureyri að mestu, og verður
að álítast, að það hafi verið gert
meir af góðsemi en nauðsyn frá
landssímans hálfu, því ekki mun
vera í ráði að taka ne'nn þang-
að í hans stað.
Á síðast liðnu ári nær þessi
maður hámarkinu, er hann vegur
aftan að fjelagssystkinum sínum,
með því að senda landssímastjóra
afrit af fundargerðum fjelagsins,
er fjölluðu um misklíðarmál milti
hans og þess. Er ekki nóg með
að hann svíki þannig fjelag sitt,
heldur vekur hann grun á öll-
um þeim er fundargerðirnar höfðu
fengið, þó að þeir fljótt gætu
hreinsað sig af honum. Þori jeg
að fullyrða, en enginn símamaður
nema þessi, hefði dirfsf, að lýsa
svo djúpu vantrausti á lands-
símastjóra, að ætla honum að
virða slíka framkomu á hetrj veg.
Það er sorglegt, að þurfa að
segja svona ljóta sögu, en maður
hefir verið neyddur til þess. Og
nú veit jeg, að almenningur getur
betur skilið, hversvegna síma-
menn hafa stígið það spor, sem
nú er stigið. Og jeg þoi’i óhikað
að leggja það undir dóm hans,
þvort nokkurn tíma sje of hart
tekið á því, ef jmir, sem völdin
hafa, taka slíka menn upp á arma
sína á kostnað þjóðarinnar. Og
jcg þori óhikað að teggja það
undir dóm hans, hvort hægt er
að *ætlast til, að símamenn þoli
það, að þessi maður sje gerður
að yfirmanní við símann.
Frh.
Andrjes G. Þormar.
---;-o-----
Gamalmennahælið
Þar sem svo fjölmargir bæjar-
húar sýna í verki hvað þeim er
ant um það, teljum vjer for-
göngumennirnir skylt að tjá al-
menningi jafnóðum hvað undir-
húninginum líður, og þökkum mik-
ilsverða aðstoð dagblaðanna í því
efni. Frjettirnar ru í þetta sinn
þessar: Frú María Pjetursdóttir
verður ráðskona heimilisms; hún
var einnig ráðskona Samverjans
við matgjafirnar tvö fyrstu árin,
og' góðkunn fjölda fátæklinga frá
þeim áruin. Meðlag með gamla
fólkinu, „v:stmönnunum“ verður
fyrst um sinn ekki nema 2 kr.
á dag með sjálfbjarga og kr. 2,50
með ósjálfbjarga fólki. Yjer vitum
að það er of lágt til þess að
.greiða nauðsynlegan kostnað, en
vjer teljum æskilegt að heimil-
ísfólkið verði þess vart að það
sje umvafið af íkærleika bæj-
arbúa, og efmnst ekki um að
bæjarbúar láti hann í tje, þegar
fcersýnilegt er að hælið getur ekki
þrifist án hans.
Umsóknir um hælisvistina verða
að vera skriflegar, undirritaðar
af þeim, sem ábyrgjast meðgjöf-
ina, og verða að vera komnar
til vor fyrir 1. október. Prentuð
eyðublöð fyrir umsóknir fást hjá
undirrituðum. — Nær þetta jafnt
til þeirra mörgu, sem þegar hefir
verið beðið munnlega fyrir, sem
til annara. — Enginn verður tek-
inn, hvorki af bænum nje öðr-
um nema hann langi sjálfan til
þess. Það er eitt af aðalskilyrðum
heimilisánægjunnar að enginn
komí nauðugur. Þeir, sem bærinn
sjer um, og langar til að koma
í hælið, ættu að láta borgarstjóra-
skrifstofuna vita uin það tafar-
laust.
Vjer búumst við að .geta farið
að taka fólk seinni hluta októ-
bers og opnað heimilið alveg í
síðasta lagi 1. nóvember, ef eng-
in óvænt forföll tefja bréytingar,
sem verið er að gera í húsinu.
En margs þurfum vjer með
fyrir þann tíma: Eldhúsáhöld,
mataráhöld, húsgögn í borðstofu
og dagstofu, rúmfatnað töluverð-
an, „gluggagardínur", gólfdúka o.
s. frv., í fáum orðum alt, sem
frumbýlingur þarf að kaupa er
hann byrjar stórt heimili. Væri
vel gert, ef þeir, sem einhverju
hafa að miðla í þessum efnum,
tjetu oss vita um það, verður
það þá sótt til þeirra í næsta,
mánuði. Húsmunirnir þurfa ekki
endilega allir að vera nýjir, t.
d. eru gamlir stólar kærkomnir,
ef þeir eru hentugir gömlu og las-
burða fólki.
Á meðan fjehirðir hælisins, Har-
aldur Sigurðsson kaupm., es fjar-
verandi (um 2 daga), gegnir Júl-
íus kaupm. Árnason störfum hans.
E'ns og áður er sagt, er eng-
in einbýlisstofa í hælinu og þar
sem útlit er á, að mikið fleiri
sæki, en húsrúm leyfir að taka,
verða 4 látnir sofa í flestum
stofunum; er þess getið hjer aft-
ur svo að umsækjendur viti það
fyrirfram.
Fyrir hönd gamalmennahælisms
á Grund.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
------o--------
Söngskemtun, sem nýstárleg má
heita, ætlar Eggert Stefánsson söngv
;,ri að halda í Nýja Bíó á laugardag-
inn kemur, með aðstoð Sigvalda lækn
is broður síns. Verða á skemtiskránni
eingöngu lög eftir Sigvalda, bæði hin
gömlu og góðkurínu lög hans og svo
ýms ný, sein almenningur hefir aldrei
átt kost á að heyra fyr hjer í Reykja-
vík. Eggert hefir áður sýnt næman
skilning á rjettri og fallegri meðferð
á hinum ein’kennilega fögru lögum
Sigvalda Katdalóns, og mun því marg
i:r grípa fegins hendi tækifærið til
að heyra söngskrá, sem skipuð er
þeim lögum eingöngu. Og eigi ætti
það að spilla fyrir, að tónskáldið
leikur sjálft undir eigin lög sín, á
harmonium. Fá menn því svo náin
kynni sem yfirleitt er mögulegt að
hugsa sjer af tónskáldinu sjálfu og
því, hvern skilning hann leggur í
verk sín. Mun aðsóknina varla vanta
þegar svo sjaldgæf skemtun er í boði.
Hjónaefni. A sunnu’daginn var op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú Helga
Jóhannsdóttir frá Brautarholti og
Elís Guðmundsson kaupfjelagsstjóri.
Emil Thoroddsen heldur piano-
hljómleika á föstudaginn kemur. —
Þegar hann ‘kom heim hingað í sum-
a,- hreif hann alla áhorfendur sína
vegna frábærrar leikni og ágæts skiln
i.ngs á efni því, sem hann fór með.
Þykjast menn ekki hafa hevrt jafn-
mikið „temperament“ í leik neinna
hinna íslensku pianoleikara. Thorodd-
sen fer aftur utan með íslandi næst
til frekara náms og verður þetta ein-
asta tækifærið til að hlusta á leik
hans, áður en hann fer.
Sigurður Skagfeldt söngvari hjelt
hljómleika í gær í Nýja Bíó fyrir
nær fullu húsi áheyrenda. Var söngn
um tekig afbragðs vel og varð að
endurtaka sum lögin.
Dansleik ætla knattspyrnumenn
bæjarins að halda á laugardaginn á
Hótel ísland. Eru þeir nú hættir að
berjast á vellinum og munu láta gaml
ar erjur gleymast og skemta sjer
saman í mesta bróðerni. Gera má ráð
fyrir að þetta verði fjölsótt skernt-
un, því langt er síðan að dansleikir
hafa verið haldnir hjer.
Ljósmyndasýningu ætlar Blaðam,-
fjelagið hjer að gangast fyrir að
lialdin verði hjer í haust. Eiga ein-
göngu að verða sýndar á beiini mynd-
ir, sem þeir hafa tekið, er ekki eru
ljósmyndarar, svo kallaðar ,„ama-
tör“-myndir. Er nú orðið mikið um
þá myndatöku hjer.
Iðnskólinn. í auglýsingu um hann
i blaðinu í gær höfðu fallið úr orð-
in: og greiði; átti að standa: og
greiði skólagjaldið kr. 75.00.
Ymir kom af veiðum í fyrradag að
r.orðan; hefir hann veitt allra skipa
mest í sumar: um 10.500 tunnur af
síld.
x I
Stövenco, þýska vínsmyglunarskiþ-
if, sem hjer hefir legið í surnar, hef-
ii Gísli Magnússon útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum keypt á 15 þús. kr.
Siglingar. Borg fór hjeðan í gær
kl. 6 til Vestur- og Norðurlands,
Lagarfoss kom til Leith í gær. —
Gullfoss fer i dag frá Höfn og Goða-
foss fór þaðan í gær.
Gestur eineygði, skáldsaga Gunnars
Gunnarssonar, hefir nú nýlega verið
þýdd á ensku. Er hún gefin út af
bókaforlagi ensku í New-York, og
heitir sá W. W. Warster, er þýddi
hana. Hefir fyrir stuttu birst rit-
dómur um hana í ,Literary Rewiew“
fylgiblaði „New-York World“ og er
henni hrósað þar stórkostlega; segir
í honum, að fáum rithöfundum tak-
ist betur en Gunnai'i í þessari sögu.
Freymóður Jóhannsson málari kom
að norðan með „Þór“ frá Akureyri
Ætlar hann að halda hjer sýningu á
30—40 málverkum eftir sig næstu
daga í Goodtemplarahúsinu. Freymóð-
ur þykir vera efnilegur málari. Mynd-
irnar sem hann sýnir eru flestar af
lnridslagi á Norðurlandi, úr Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslum. Eih
^iyndin er frá Jan Mayn.
Fótbrot. Fvrir stuttu fótbrotnaði
Gnðm. Bárðarson kennari við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri. Var hann
á ferð í Þingeyjarsýslu í jarðfræðis-
rannsóknum og fótbrotnaði á sömu
slóðum og Björn Líndal í fyrra. Enn-
fremur hefir hestur beinbrotnað
þariia á svipuðum stöðvum nýlega.
Þykir mönnum sem eitthvað muni
vtra óhreint í átthögum Jónasar frá
Hriflu, er mönnum og skepnum er
svo brotgjarnt þar.
Byggingu Eyjafjarðarárbrúar á nú
að fara að framkvæma. Á að steypa.
í haust 56 stólpa, sem brúin á að
standa á, en hún verður í 3 aðal-
hlutum og margar smærri brýr að
auki.
--------o--------
för til Brænlands.
Þessi kvöld sýnir Nýja Bíó
þá mynd, sem fyrir margra
hluta sakir er þess verð, að
henni sje meiri athygli sýnd
er flestu því, sem sýnt er á kvik-
myndaleikhúsum. Kvikmyndagest-
um hjer í Reykjavík virðist að
vísu kærara að horfa á ástaræfin-
týri eða harmsög'ur en sannar
myndir af eðli og þjóðlífi ókunn-
ugra landa, því hefir það oft bor-
ið við hjer, að fræðimyndimar
hafa farið fyrir ofan garð og