Morgunblaðið - 26.01.1929, Page 2

Morgunblaðið - 26.01.1929, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Umbúðastrigi (hessian) Fiskburstar afar ódýrir. Ef þjer biðjið um PERSIL, þá gætið þess, að þjer fáið PERSIL, því ekkert er þess í gildi. REYKJAVÍK. Regnkðpur fyrir dðmnr SIMI 249. (2 línur) hjá í heildsölu: S. Jðhannesdótfur. Saltað dilkakjöt, Auælurstrœti 14. TílO, (Beint á móti Landsbsnkanum). K»fa, nýsoðin. Sfml 1887. Isindaleiðangurinn mikli til norSurpólsins 1930. Loftskipið „Zeppelin greifi' ‘ verðnr notað til fararinnar og Friðþjófur Nansen stjórnar leiðangrinum. Þess hefir verið getið í erlendum símfregnum, að til stæði að gera út vísindaleiðangur einn mikinn til Norðurpólsins árið 1930 og nota loftskipið „Zeppelin greifi“ til fararinnar. Eftir því sem síðustu erlend blöð skýra frá, er nú afráðið að fara för þessa, og á Friðþjófur Nan- sen að stjórna henni. Hann er ný- farinn til Ameríku til þess að sjá um undirbúning fararinnar. Verða alls 50 menn með í leið- angri þessum, þar af 10—12 vís- indamenn. Er það fjelagið „Aero- Arctie“, sem sjer um allan út- búnað og verða eingöngu vísinda- menn frá þeim löndum, sem geta talist til þess vísindafjelags, er fá að taka, þátt í förinni. En þau lönd eru: Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Bandaríkin, Þýskaland, England, Kússland, Holland, Belgía, Frakk- land, ítalía og Spánn. Friðþjófur Nansen er forsetí „Aero-Arctic“. Þetta verður langstærsti leiðang- urinn, sem nokkru sinni hefir ver- ið gerður út til heimskautaland- anna. Er aðaltilgangurínn með leiðangrinum sá, að rannsaka hvort unt sje að nota loftskip til reglubundinna ferða yfir pólinn og hvort hægt sje að byggja lend- ingarstöðvar fyrir loftskip á þessu svæði. Þá á að rannsaka nákvæm- lega hafsdýpið á þessu svæði, svo og strauma og íslög. ■ Aður en lagt verður á stað í leiðangurinn, verða reist möstur á Kola og Nome í Alaska, svo að loftskipið geti „lent“ þar. Rúss- land hefir lofað að reisa mastrið á Kola, en búist er við, að Banda ríkin reisi mastrið á Nome. Er gert ráð fyrir, að farnar verði aðallega fjórar rannsóknar- ferðir um pólsvæðið, auk ýmsra smærri ferða.- Fyrst verður farið frá Murmansk til Franz Josephs- lands og á bakaleiðinni verður flogið meðfram norðurströnd Grænlands. í annari ferð verður farið frá Murmansk beint til No- me í Alaska. Þar verður höfð nokkur viðdvöl, en síðan flogið frá Barrowhöfða til Norðurpólsins og þaðan til Andrejev-lands og því næst aftur til Nome. f fjórðu ferð- inni verður haldið til Nicolai II.- lands og á nákvæmlega að rann- sakast stærð landsins og lega. Svo sem áður er um getið, á Friðþjófur Nansen að stjórna vís- indaleiðangrinum í för þessari, en dr. Eckener á að stýra loftskipinu. ÚTVARPSFRJETTIR. Einvaldskonungurinn í Jugo- slafíu hefir talað við frjettaritara Reuters-frjettastofu, og sagt hon- um, að það sje óákveðið með öllu, hve lengi einvaldsskipulagið eigi að haldast í landinu. Það hafi ver- ið eina úrræðið úr því sem komið var, og því muni verða haldið uppi á meðan í landinu sjeu flokk- ar manna, sem vinni á móti sam- einingu og samvinnu þjóðarheild- arinnar. Samband Jugoslafa við útlönd breytist ekkert. Einvalds- stjórnin haldi öllum samninguro í gildi, sem fyrv. stjórn gerði. Símað er frá Bagdad, að ræn- ingjaflokkur hafi nýlega gert mik- inn usla þar í nánd. Hafi ræningj- ar fyrst ráðist á amerískan sendi- mann og trúboða, er voru á ferð austur í Arabíu, og tekið trúboð- ann af lífi. A mánudaginn var rjeðst sami flokkur á ferðamenn, er voru með úlfaldalest. Sló í bur- daga. Drápu ræningjarnir nokkra menn. Miðstjórn verkalýðssambandsins í Noregi hefir nýlega hafist handa til að reka tvo kommúnista úr stjórninni, vegna þess m. a., að þeir birtu skjöl, er stjórnin hafði áliveðið að halda skyldi leyndum. Rússastjórn hefir sem kimnugt er stungið upp á því við Eystra- saltsþjóðirnar og aðrar nágranna- þjóðir sínar, að þær gerðu eins- konar friðarsáttmála við þá í lík- ingu við Keiloggssáttmálann. Er þess getið til, að Rússar hafi stung ið upp á þessu til þess að reyna að ná áhrifum á stjórnmál rik'j- anna, og fá þau undir vernd sína. Frá Shanghai er símað, að skip hafi farist þar eigi langt undan landi um síðustu helgi. Nokkrir menn af skipshöfninni komust af í fleytu, er þeir hröktust á í tvo sólarhringa. En 40 drultnuðu. —•—-------------- StúAenlamótið 1930 FB. 24. jan. Eins og kunnugt er, þá er í ráði að efna til norræns stúdenta- móts hjer á landi árið 1930. Þareð stúdentamótsnefndin telur mikla nauðsyn fleiri stúdentasöngva, skorar hún á stúdenta, eldri og yngri, að senda nefndinni hátíða- ljóð, til söngs á mótinu, sem og önnur stúdentaljóð. Sökum þess, að í ráði er að gefa út nýja stú- dentasöngbók, væri æskilegt, að menn sendu sem flesta stúdenta- söngva- — Ljóðin sjeu komin til nefndarinnar (utanáskrift: Stú- dentamótsnefndin, Rvík) fyrir 1. » júlí í sumar. Umferðin um Suez-skurðinn. Fyrstu níu mánuði ársms 1928 fóru í gegn um Suez-skurðinn skip, sem báru samtals 23.6 milj. smálesta, og er það 2.1 milj. smál. meira en á sama tíma 1927. Tank- skip, sem voru samtals 3.3. miljon- ir smál. fóru um skurðinn (helm- ingurinn með kjölfestu aðeins). Breski kaupskipaflotinn setti met í siglingum um skurðinn á þessum tíma. Áttu Bretar 56.6% af smálestatali allra þeirra skipa, er þar sigldu í gegn, eða 13,5 milj. smál., Hollendingar áttu 2,5 milj. smálesta, Þjóðverjar 2,4 milj., Frakkar 1,4 milj., ítalir 1,3 milj., Japanar 727 þús., Bandaríkin 542 þús. og Norðmenn 507 þús. smál. Vörur, fluttar með skipum í gegn um skurðinn, voru 24.2 milj. smá- lesta, þar af 15.5 milj. smál. á norðurleið. Tambnrínar Kastagnettar, Hrossabrestur, Flexatón, Swany-flautur, Næturgalaflautur o. fl., sem menn þurfa á grímudansleiki fæst í Hljóðfærabnsinn. G.S. ISllild fer mánudagiim 28. þ. mán. kl. 6 síðdegis til ísafjarðar, Siglufjarðar og Akureyrar. Þaðan aftur sömu leið til baka. .. Farþegar sæki farseðla í dag. Fylgibrjef yfir vörur komi í dag. G. Zimsen. Nýkomið: Ný egg á 20 aura stykkið, Nýtt skyr frá Arnarholti. Hafnarstræti, Sími 211. H5 Brúarlandi fara bifreiðar frá Bifröst allan daginn í dag. Sími 2292, Austurstræti 12 (viði Austurvöll). Slplisilii I. FLOKKUR, í dag og til helgar: Nokknr pnsnnd pðr kvenna og barna- S0KKAR fyrir lítið. KVENFATNAÐUR, allskonar. HERRAFRAKKAR og KÁPDR. Gjafverð á öllu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.