Morgunblaðið - 30.07.1929, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Diðjið um
Colman’s
Fæst allstaðar.
Barneplejeaídeling.
Grundls prsktlsk 09 teoretlsk Undenrlsniní I alt htuligt Arbejde 09 Bernepleje.
Skolen udpldet - Centreloanne oneralt - Nyt Kursus besynder 4. Nopember 09 4. HeJ.
Prts 115 Kr. mdl. - Prosrom sendes. - Stetsunderstattelse kan sages
Teit sor« 102 09 44i c. Vestersaard, roremidtrindt.
Bjðrgunarstoðin í Sandgerði vígð.
Við vígsluna í Sandgerði á
sunnudaginn, var samankominn
fjöldi fólks. Voru þar bœði Hafn-
firðingar og Reykvíkingar og aðr-
ir aðkomumenn. Veður var blítt og
sólarhitinn afarsterkur.
Við komu „Þorsteins“ úr
Reykjavík, hjeldu 6 fíöggum
■skrýddir fiskibátar til móts við
hann, úr Sandgerði og fylgdu hon-
um til hafnar. Þar var liann dreg-
inn á land og meðan á vígsluat-
höfninni stóð, stóð hann undir
skrautlegum sigurboga fyrir fram-
an bátsskýlið. Var á sigurbogann
Jetrað: „Velkominn Þorsteinn,
fylgi þjer gæfan“. Skýlið er stór
járnklæddur timburskúr með stein
steyptu gólfi og dyrum á báðum
göflum. Á framhlið hússins eru
svalir og voru ræðumar fluttar
þaðan.
Vígsluathöfnin hófst kl. 2 e. h.
Var þá sungið : ,0, guð vors lands'.
Húsið vígði síra Eiríkur Brynjólfs-
son á Utskálum með snjallri ræðu
og fagnaði um leið björgunar-
bátnum. Þorsteinn Þorsteinsson af-
hrnti bátinn síðan björgunarstöð-
inni f. h. Slysavarnafjelagsins.
Ræða Þorsteins Þorsteinssonar,
varaforseta fjelagsins
Háttvirtu tilheyrendur, konur
og menn!
Enn er runninn upp, einn merk-
isdagnrinn. Hjer fer fram í dag
athöfn, sem aldrei áður hefir sjest
á þessu landi, og sem altaf hjer
eftir verður talin stórmerkur við-
burður í sögu þessarar þjóðar.
Merkisviðburður er þetta meðal
annars fyrir það, að hjer er í dag
saman kominn múgur og marg-
menni til þess að færa guði þakkir
fyrir það, að Slysavarnafjelag ís-
lands hefir í dag sent hingað þenn-
an dýrgrip, björgunarbátinn „Þor-
stein“ og fyrir það annað, að fje-
lagið lætur í dag vígja og af-
henda til notkunar hjer fullkomna
björgunarstöð, þá fyrstu sem stofn
uð hefir verið hjer á landi, en
björgunarstöð þessi samanstendur
af björgunarbátnum „Þorsteini",
sem var vígður af biskupi landsins
þ. 26. maí sl. að viðstöddum fleiri
þúsundum manns í Reykjavík, og
jkessu nýja húsi, sem verið var að
vígja áðan af sjera Eiríki Brym-
jólfssyni, einni línubyssu og öllum
þeim fylsta útbúnaði, sem björg-
unarbát á að fylgja.
Þessi björgunarbátur á nú eftir
athöfnina að setjast inn: í þetta
nývígða hús, þar sem hann á að
standa hjer eftir með öllu sem
honum á að fjdgja altilbúinn til
stórræða, og ef verkast vill til
svaðilfara, á hverri mínútu, sem
kallið kann að koma.
Hversvegna er þessi fyrsta björg
unarstöð sett á stofn einmitt í
Samdgerði? Það er engin tilviljun
að svo er gert, því þótt nafnið
Sandgerði láti lítið yfir sjer, þá
er þetta þorp þó í mestum upp-
gangi og fiskveiðarnar stundaðar
hjer af langmestum krafti af öll-
cm fiskiveiðaplássum landsins,
þegar tekið er tillit til mannfjöld-
ans sem hjer er, en þetta gerir
það að verltum, að lijer verður
altaf nokkuð margt fólk heima
i'ið, allan ársins bring.
Auk þess er önnur veigamikil
ástæða fyrir því að fyrsta björg-
unarstöðin á hjer að vera, og hún
er sú, að hjer í kring liafa orðið
lang tíðust ströndin. Það er upp-
lýst að á svæðinu frá G-erðum í
Garði til Grindavíkur, hafa strand-
að 62 skip og druknað 94 menn
f'rá síðustu aldamótum.
Þriðja ástæðah er sú, að Jijer
er eina örugga bátahöfnin á öllu
svæðinu frá Vogavík til Vest-
mannaeyja, sem gerir það að verk-
um að svo lengi sem útsjór er
annars fær bátunum, getur hann
altaf komist út hjeðan úr Sand-
gerðishöfn.
Þessi bátur er meistaraverk, það
þarf langan tíma til þess að læra
að þekkja innrjetting hans alla,
það þarf líka mikla æfingu til
þess að læra til fulls að nota bát-
inn í vondu veðri.
Englendingar hafa notað róðr-
arbáta til björgunar í yfir 100 ár,
og bjargað þúsundum mannslífa.
Þeir hafa allan þennan langa tíma
verið að endurbæta þá, og þessi
bátur er árangur af því starfi
þeirra, lengra hafa þeir enn ekki
komist. Fullkomnari róðrarbát til
björgunar en þennan, hafa þeir
enn ekki getað búið til, enda er
ekki að furða þótt langan tíma
þurfi til þess að finna upp smíði
og alla innrjetting á bát eins og
þessum. Báturinn er svo vandaður
að smíði og öllu efni og frágangi
að lengra verður ekki komist.
Hann tæmir sig samstundis þótt
hann fylíi, hann rjettir sig undir
eins þót.t honum hvolfi, hann týnir
ekki úr sjer neinu af farviðnum,
ekki svo mikið sem einum tolla
eða einni ár þótt honum hvolfi, og
ef rjett er með alt farið og öll
handtök rjett, þá á enginn af á-
höfn bátsins að Josna við hann
þótt honum hvolfi. Þetta er meist-
aralegur útbúnaður.
Það hefði verið gaman að þessi
bátur hefði verið við hendina suð-
ur á Stafnnesi, þegar „Jóns for-
seta' ‘ slysið varð þar, því menn-
irnir sem þar voru við og horfðu
upp á það sorglega slys, fullyrða,
að á svona bát liefði mátt t.akast
að bjarga öllum mönnunum. Hví-
líkur þjóðargróði hefði það ekki
verið að bjarga þarna 15 manns-
lífum?
Sje það rjett sem hagfræðing-
arnir liafa verið að reikna út, að
þjóðin tapi 50—60 þús. kr. minst
>ið tap hvers manns á besta skeiði
lífsins, þá vantar ekki svo mikið
upp á miljónina við dauða þess-
ara 15 manna af „Jóni forseta“.
eða með öðrum orðurn: Ef þessi
björgunai'Stöð li.j.erna bjargar að
eins tveimur möninim á hverjuin
25 árum, þá fær þjúðin greiddau
kostnað allan við stöðina á sama
tíma.
Línubjörgunaratöðvar verða nú
þegar settar upp tvær, byssur með
öllu tilheyrandi, trossum, blökk-
um, björgunarstól m. m. Önnur
þessara stöðva verður líklega sett
á Stafnnes og hin á Stokkseyri.
Svo verðum við að fara að hugsa
fvrir næsta björgunarbát, því eins
og fjelagið hefir fengið þennan
bát gefins, eins getur einhver vak-
ist upp til þess að gefa þann næsta
eða. einhvern skerf í þann næsta.
Þess er ennfremur vænst., að þeir
menn sem láta í tje erfiði sitt til
þess að kynnast bátnum og fara
með hann, bæði á landi og á sjón-
um, í æfingum o. s. fry., gæti sem
mest hófs í kröfum sínum um borg
un fyrir ])á fyrirhöfn. Aftur á
móti mun enginn sjá eftir að borga
vel fyrir allar björgunartilraunir,
bvort sem þær hepnast eða ekki;
þá leggja menn ef til vill lífið í
hættu til ]>ess að bjarga öðrum.
Sandgérði er lánsamt lijerað, að
bafa fengið til umráða og notkun-
ar fyrstu björgunarstöðina á þessu
landi. Og ekki er jeg í neinum
vafa um það, að þegar Islendingar
hafa með æfingum lært að fara
með bátinn í góðu og vondu veðri
óg brimi, þá verða þeir engir eftir-
bátar Engleninga, þegar á þarf
að hakla að b.jarga drnknandi
mönnum úr sjávarháska, þótt á
opnum róðrarbát sje; það mun
sýna sig þegar á reynir.
Þegar fram líða stundir, veröur
lögð áhersla á það að allir, sem
á bátnum eiga að vinna, verði
syndir eins og selir.
Jeg vil þá láta hjer staðar num-
ið að sinni, en afhendi hjer með
fyrir hönd Slysavarnafjelags Is-
lands björgunarstöð þessa, —en
björgunarstöð kallast þetta hjer —
björgunarbáturinn „Þorsteinn“ og
vagninn sem hann stendur í, með
öllu tilheyrandi og ennfremur línu-
byssa með öllu henni tilheyrandi,
sem bátnum á að fylgja, og svo
þetta hús.
Alt þetta afhendist hjer með
þessu bygðarlagi, Sandgerði, til
varðveitslu, viðhalds og notkunar
í þarfir alþjóðar.
Jeg óska svo af heilum hug
fyrir hönd konn minnar og okkar
allra, að ef eimhverntíma kynni
það óhapp að henda sjófarend-
ur, hverrar ]>jóðar sem eru
að lenda af einhverjum stæðum
við strönd þá hina skerjóttu og
brimasömu er báturinn ætti að
geta náð til, að þá mætti liann
verða til þess með hinni hraustu
íslensku áhöfn, að geta hjálpað
hinum nauðstöddu skipbrots-
mönnum.
Og við óskum þess öll, að þeir
menn sem velja sjer það fegursta
hlutskifti að berjast við ofur-
efli hafrótsins á litlum róðrarbát,
til ]>ess að bjarga lífi meðbræðra
sinna, lánist altaf áform sitt. Við
vonum og óskum enmfremur að
þeir megi bera gæfu til þess að
verða hinni íslensku þjóð að sem
mestu liði í starfi síuu.
Að ræðunni lokinni talaði síra
Eiríkur Brynjólfsson aftur og
mintist hjónanna í Þórshamri, og
loks talaði Magmis Jónsson bæjar-
fógeti í Hafnarfirði. Á milli ræð-
anna söng söngflokkur undir
stjórn Matthildar Finnsdóttur
nokkur lög, þ. a. m. kvæði sem
Ágúst Jónsson hafði ort fyrir
þetta tækifæri. Að ræðunum lokn-
um var björgunarbáturinn dreg-
inn inn í slcýli sitt og fólkið alt
þyrptist suður á flatirnar, sunnan
við Sandgerði. Þar voru veitinga-
tjöld og danspallur. Kl. 5 hjelt síra
Brynjólfur Magnússon prestur í
Grindavík guðsþjónustu undir ber
um himni. Síðastur talaði Jón Berg
sveinsson og mintist þeirra hjón-
anna Þorsteins Þorsteinssonar og
konu hans og tóku menn undir
orð hans með þreföldu húrrahrópi.
Var hrifning mildl, meðal manna
yfir hinni nýju björgunarstöð.
Sly* á Aknreyri.
Kona bíður bana af brunasárum.
Fyrra mánudagsmorgun, snema
var kona á Akureyri að kveikja
eld úti í þvottahúsi. Ætlaði hún
að lífga eldinn með því að skvetta
í hann olíu ög greip olíubrúsa,
seili þar var. En um leið og hún
skvetti úr honum í eldinn, læstist
eldurinn í brúsann og spraklc hann
i höndunum á henni, með ógur-
lcgum gný, en eldhaf ljek um hana
,cg brendist hún háskalega á hönd-
nm, andliti og brjósti, en hár og
klæði loguðu. Hljóp hún þá út
og magnaðist við ]iað eldurinn í
klæðum hennar. Heyrðust hljóðin
í lienni víða mn bæinn og eins
sprengingin. Þustu menn þegar að
og var konan flutt í sjúkrahús.
Lá hún þar við ógurleg harm-
kvæli í þrjú dægur og andaðist á
þriðjudagskvöld. x
Hún lijet Guðbjörg Guðmunds-
dóttir frá Lómatjörn, og var 25
ára að aldri. Var húm gift Bjarna
Pálssyni frá Hrísey, bróður Hreins
Pálssonar söngvara. — Jarðarför
hennar fer fram í dag.
Önnur kona, sem var hjá henm
inni í þvottahúsinu, brendist mikið
á höndum, er hún reyndi að
slökkva eldinn 'Og er búist við að
hún verði frá verkum í alt sumar.
Þriðja kona, sem kom þar að,
fjekk smávegis hrunasár, en ekki
er talið að þau muni verða henni
að meini.
*•
__ ÍSLANDS
Boðafoss
ii
fer hjeðian annað kvöld kl. 8
(miðvikudagskvöld) til ísa-
fjarðar og norðurlandsins.
Farseðlar óskast sóttir fyr
ir hádegi á morgun. Skipið
fer hjeðan 7. ágúst til Hull
og Hamborgar.
„Brúarfoss"
fer hjeðan 6. ágúst til Leith
og Kaupmannahafnar.
fla
M.s. Dronning
Alexandrine
fer til Kaupmannahafnar um
Yestmannaeyjar og Færeyj*
ar miðvikudaginn 31. þ. m.
kl. 8 síðd.
Farþegar sæki farseðla í
dag.
C. Zimsen.
Ösknkassar
úr galvaniseruðu já» ni
eru komir aftur
Ludvig Storr,
Laugaveg 11.
Ferðajakkar og
Buxur.
Sportsokkar og Vefjur.
Sportskyrtur,
ljósar og dökkar.
Ferðahúfur.
Svefnpokar.
Bakpokar.
„Primus“-hitunartæki.
ódýr og hentug.
„Meta“ eldiviður
er ómissandi.
Ferða-Áttavitar
afar þægilegir o. fl.
^ssEssk