Morgunblaðið - 29.06.1930, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
o
Tttorgunbkifctí)
Útcef.: H.f. Árvakur. Keykjavlk
Rltatjórar: Jón Kjartansaon.
Valtýr Stefánaaon.
Rltstjórn Og- afgrjiCsla:
Austurstrœtl 8. — Slml 500.
Auglýalngastjórl: E. Hafberg.
Auglýsingaskrlf atof a:
Austurstrætl 17. — Sfml 700.
HelJaiimar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskrlftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánutii.
Utanlands kr. 2.50 á mánuOi.
1 lausasölu 10 aura eintaklB,
20 aura metJ Leibök.
Crlendar sfmfregnlr.
London (UP) 28. júní FB.
Erjur milli Rússa og Japana.
Ominato: Frégn barst um það
hingað, að eitt af varðskipum
rússnesku ráðstjórnarinnar hafi
skotið aðvörunarlaust á japanska
fiskiskútu. — Einn skipsmanna
heið bana, en fjórir særðust. —
Rússar handtóku hina skips-
mennina. Japanar hafa sent beiti
skipið „Matsukasi“ til Kams-
jatka, en þar gerðist fyrnefndur
atburður.
Alsherjarverkfall á Spáni?
Madrid: Innanríkisráðherrann
hefir sent símskeyti til allra
fylkisstjóra á Spáni og beðið
þá að gera nauðsynlegar var-
úðarráðstafanir, þar sem horf-
ur sjeu á því, að alsherjarverk-
fall verði hafið í öllum hjeruðum
Spánar á morgun.
Þiððmlniasafnið
og forngripirnir frá Danmörku-
Einn af viðburðum þeim, sem
merkur verður talinn í sam-
bandi við Alþingishátíðina, er
heimkoma íslensku forngrip-
anna frá Danmörku, sem getið
hefir verið um hjer í blaðinu.
„Vandi fylgir vegsemd
hverri“, segir máltækið. Þegar
hinir dýru íslensku gripir koma
hingað, er það fyrsta spurning-
in, hvernig fyrir þeim er sjeð
hjer heima. Þeim verður „hrúg-
að“ upp á hanabjálkaloft Lands
bókasafnsins, þar sem þjóð-
minjasafn vort er. Loftið getur
brunnið. Munirnir eru ekki
tryggilega geymdir þar. Al-
menningur hefir ekki hálft
gagn af þeim vegna þröngra
húsakynna. Meðan svo er, er
vafasamur gróði að því, að seil-
ast eftir, að íslenskir munir
komi heim. Heimkoma hinna
dýru gripa bindur okkur þá
skyldu á herðar, að koma upp
á næstunni eldtryggu, rúmgóðu
þjóðminjasafni.
Þýska tónskáldið Max Raebel
hefir gefið Alþingi í tilefni af
Alþingishátíðinni vatnslitamynd
af Almannagjá. Ennfremur hef-
ir hann gefið Landsbókasafni
Islands eitt eintak af lagi sínu
„Islandia“. Raebel hefir radd-
tt nokkur íslensk þjóðlög fyr-
ir hljómsveit. Lög þessi ætlar
hann að leika í radio í Bergen
22. júlí n. k., ennfr_emur lag sitt
„Islandia". Fer hann hjeðan til
Þýskalands 3. júlí’ og ætlar að
halda þar nokkra fyrirlestra um
Alþingishátíðina, en fer síðan til
Bergen. Hingað kemur hann
aftur að ári.
Dagbók.
I. O. O. F. 3 = 1126308.
Messur í dag. I dómkirkj-
unni kl. 11 f. h. síra Bjarni
Jónsson; kl. 5 sí'ra Jónas A.
Sigurðsson frá Vesturheimi.
Athyglisverður hljómleikur. —
Hljómsveit sú er ljek á Alþingis-
hátíðinni efnir til hljómleika í
Gamla Bíó annað kvöld. I hljóm-
sveit þessari eru 43 menn og
meðal þeirra margir ágætir, svo
sem meðlimir konunglegu hljóm-
sveitarinnar. Meðal viðfangsefn-
anna eru tvö lög eftir Fr. Schu-
bert, sem eru yndi allra hljóm-
listarvina og hverjir eru það
sem ekki telja sig meðal þeirra?
Stjórnandi er Dr. Franz Mixa
frá Vínarborg, sem verið hefir
hjer í vetur og æft hljómsveit-
ina. Hefir hann að verðleikum
getið sjer góðan orðstír hjer og
væri það skaði ef ekki yrði hægt
að njóta leiðsögu hans lengur.
Hljómsveit Reykjavíkur vinnur
að auknu sjálfstæði í hljómlist,
að við í framtíðinni, getum stað-
ið sem mest óstuddir í þeirri
grein. Hljómleikur þessi varðar
miklu um framtíð hennar, þær
vonir hennar sem við hana eru
bundnar, mega ekki bregðast, um
það ættu allir hljómlistarvinir að
verða samtaka.
Hátíðarblað Morgunblaðsins
(84 blaðsíður með rúmlega 200
myndum) fæst á afgreiðslu blaðs
ins í Austurstræti 8 í Reykjavík.
Allir hinir mörgu hátíðargestir,
sem hafa pantað blaðið, eru
beðnir að vitja þess þangað hið
fyrsta. Þeir, sem ekki koma til
Reykjavíkur aftur frá Þingvöll-
um, geta fengið blaðið sent með
fyrstu póstferð, ef þeir senda
afgreiðslunni kr. 1.25 í frímerkj-
um. Þeir, sem ekki geta flutt
blaðið með sjer án ]>ess það
skemmist, geta fengið það sent
í pósti, ef þeir greiða andvirði
]>ess fyrir fram, annað hvort á
afgreiðslunni á Þingvöllum eða
afgreiðslunni í Reykjavík.
Stauning forsætisráðh. Dana
hjelt miðdegisveislu í gærkvöldi
sendiherrabústaðnum, og bauð
þangað ýmsum höfðingjum.
Útilegan á Leirunum. Hing-
að til bæjarins hafa heyrst
undanfarna daga ýmsar sögur
um misjafna líðan bæjarbúa í
tjaldborginni á Leirunum. Fjöl-
margir þeir bæjarbúar, sem
höfðust þar við alla hátíðisdag-
ana, láta mjög vel yfir veru
sinni þar, segja, að tjaldveran 1
hinni miklu tjaldborg hafi ver-
ið hin skemtilegasta.
Breska herskipið „Rodney“
getur almenningur fengið að
skoða í dag og á morgun kl.
21/2—6 e. m. En þeir sem þang-
að vilja fara, verða að sjá sjer
sjálfir fyrir bátum.
Hljómsveit af „Rodney“, 24
manna, mun sennilega spila á
Austurvelli í kvöld kl. 6—8.
A. B. Vaslev, danskur blaða-
maður, sem hjer var um tíma
í haust sem leið, hefir nýlega
gefið út bók um Island, er hann
nefnir ,Tusindaarsriget Island'.
Bókin er 111 síður að stærð og
fjallar að mestu leyti um fram-
farir síðustu ára hjer á landi.
Knattspyrnumót fslands. —
Annað kvöld kl. 814 keppa
Fram og Víkingur.
Frú Dóra Sigurðsson syngur
annað kvöld kl. 71/2 í Nýja
Bíó. Á söngskránni eru m. a.
þessi lög: Hvar eru fuglar, eft-
ir Svbj. Svbj., Kirkjuhvoll, Nótt
eftir Á. Th„ Gígjan og Drauma-
landið eftir Sigf. E„ tvö lög eft-
ir Pál ísólfsson, 4 lög eftir Þór-
arinn Jónsson o. m. fl. Þarf ekki
að efa, að húsfyllir verður á
þessari söngskemtun, því vafa-
laust er frú Dóra best menta
söngkonan, sem hjer hefir látið
til sín heyra.
Kri.stileg samkoma á Njáls-
götu 1 kl. í' kvöld. Allir vel-
komnir.
V
Hjalti Jónsson framkvæmda-
stjóri hefir verið viðurkendur
pólskur konsúll í Reykjavík.
„Stella Polaris“. Nic. Bjarna-
son afgreiðslumaður bauð í gær,
f. h. Bergenska fjelagsins,
blaðamönnum og pokkrum öðr-
um um borð í hið skrautlega og
fagra skip „Stella Polaris“. —
Þegar um borð kom, söfnuðust
gestir aftur á þilfari og fengu
hressingu; framkvæmdastjóri
Bergenska bauð gestina vel-
komna, en Hjalti Jónsson þakk
aði fyrir þeirra hönd. Síðan
skoðuðu menn skipið og dáðust
mjög að skrautinu og öllum frá-
gangi þar um borð.
75 ára er í dag Jón Einars-
son, Nýjabæ, Garði.
Bragi Ólafsson hefir opnað
lækningastofu í húsi frú Berg-
mann í Hafnarfirði; sjá augl. í
blaðinu í dag.
Einar E. Markan syngur í
Gamla Bíó kl. 3 í dag. Á söng-
skránni eru bæði íslensk og er-
lend lög.
Stórstúka fslands heldur
aukafund á morgun í' Góðtempl-
arahúsinu til að taka á móti
erlendum heimsækjendum.
Danski fáninn að Lögbergi..
„Best er að segja hverja sögu
eins og hún gengur," segja
menn. Frá því var skýrt laus-
lega hjer í blaðinu í fyrradag,
að mistök hafi orðið í því, er
draga skyldi hinn danska fána
að hún að Lögbergi. Þó atvikið
væri í sjálfu sjer lítilfjörlegt,
þótti almenningi lejtt, að ein-
mitt þessi urðu mistökin. En
fæstir munu vita með sannind-
um. hvernig á þessu stóð.
í gistihúsinu Valhöll voru
geymdir fánar allra þeirra
þjóða, sem fulltrúa sendu á há-
tíðina. Meðal þeirra var og fáni
Austurríkis, vegna þess að há-
tíðanefnd átti von á því fram til
þess síðasta, að þaðan myndu
koma fulltrúar. En menn þeir,
sem tóku til fánana, aðgættu þá
ekki nákvæmlega og tóku aust-
urríska fánann fyrir þann
danska. Er hægt að villast á því
þegar fánarnir eru saman vafð-
ir, því báðir eru rauðir og hvít-
ir, og báðir með hvítu röndinni
eftir miðju að endilöngu.
FulHrúar ftala, þeir er komu
hingað á Alþingishátíðina, fóru
hjeðan á miðvikudagskvöld, áð-
ur en hátíðin byrjaði. Eigi gerðu
'ieir neitt viðvart um brottför
sína, ljetu ekki einu sinni kon-
súl sinn vita. En maður sá, sem
hjer var þeim til aðstoðar og
eiðbeiningar, innti þá eftir,
hvort hin skyndilega brottför
þeirra stafaði af því, að þeir
væru óánægðir með viðtökumar
hjer, og þvertóku þeir fyrir, að
svo væri.
Annar þeirra var lasinn og
mun lítt hafa treyst sjer til að
dvelja á Þingvöllum.
Frá lögreglustöðinni á Þing-
völlum fjekk Mgbl. þær fregn-
ir seinnipartinn í gær, að eng-
'nn maður hefði verið settur í
varðhald þar eystra, meðan á
hátíðinni stóð, og mjög hefði
lítið borið á háreysti eða óspekt-
um. — Aftur á móti hefir á því
borið, að stolið hefir verið ýmsu
fjemætu þar eystra, og hefir
jafnvel borið á vasaþjófnaði,
eftir því sem Mgbl. heyrði ann-
arsstaðar að.
Almannagjá og hátíðin. Öldr-
uð kona amerí'sk, sem var á Al-
þingishátíðinni, spurði eitt sinn
fólk, er hún hitti í Almanna-
gjá, hvort gjáin hefði verið bú-
in til fyrir hátíðina(I).
Fornritafjelagið hefir fengið
að gjöf frá Hans Hátign Krist-
jáni konungi X. 15 þús. kr. —
Mjög er það bagalegt, að fje-
lagið skuli ekki hafa getað
komið neinni af Islendingasög-
um út nú í sumar. Dráttur 4 út-
gáfunni stafar m. a. af því, að
prófessor Sigurður Nordal var
lengi veikur í vetur. Allmargar
staðamyndir vantar fjelagið enn
af þeim, sem auglýst var eftir í
fyrra.
Stúdentar frá 1913 komi sam
an niðri í Háskóla kl. 1 í dag
til að ræða um sameiginlegan
gleðskap.
Sýning á áburðarefnum, gras
fræi o. þessh., er í húsi Búnað-
arfjelagsins um þessar mundir.
Ættu bændur þeir, sem koma
til bæjarins um þessar mundir,
að gefa sýningu þessari gaum.
Trúlofun sína opinberuðu á
Þingvöllum á föstudag ungfrú
Helga M. Kristinsdóttir, Sam-
komugerði í Eyjafirði, og Jó-
hann Valdimarssan frá Möðru-
völlum.
Á sýningu Guðmundar Ein-
arssonar í Listvinahúsinu hafa
selst nokkrar raderingar og 3
málverk: „Frá Fiskivötnum
eystri“, „Karlsdráttur við Hvít-
árvatn“ og „Á Moldbrekkum“.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 10—9.
I Alþingishúsið eru fulltrúar
erlendrá ríkja kvaddir til fund-
ar í dag kl. 4.
Engin Lesbók kemur út í dag
vegna þess að frí' hefir verið að
mestu í prentsmiðjunum und-
anfarna 3 daga. Myndir hafa
engar fengist í blaðið, vegna
þess, að prentmyndagerðin hef-
ir verið lokuð.
Færeyskur legsteinn hefir
verið reistur á leiði þeirra, sem
dóu af bruna á færeyska fiski-
skipinu „Acorn“. Hann verður
afhjúpaður í dag kl. 31/4.
Forstöðunefnd Landssýning-
arinnar í Mentáskólanum biður
konu þá, sem var með ensku
konunum tveim, er keyptu nál-
húsið á sýningunni í gær (sem
skorið er úr beini í lúðulíki), að
koma til viðtals í Mentaskólann
þegar í stað.
Prúðmannleg framkoma al-
mennings á Alþingishátíðinni,
vakti aðdáun margra erlendra
manna og óblandna ánægju ís-
lenskra. Það var auðsjeð, að
það var sameiginlegt áhugamál
alls þorra manna, er hátíðina
sótti, að engin yrðu þar hátíða-
spjéll.
I tjaldborginni á JÞingvöllum
var m. a. tjald fyrir læknavörð
og spítala. Re.vndist full þörf
fyrir hvorttveggja. Á fimtudag-
inn voru 16 sjúklingar á spítal-
anum, á föstudag ca. 10 en í
gær ekki nema 1. En auk þeirra
sem á spítalanum lágu, leituðu
margir aðrir læknis, ýmist til
þess að fá skifti á sáraumbúð-
um eða læknisráð við smákvill-
um. — Yfirlið voru mjög tíð og
einnig kramnar, sjerstaklega
þegar mannsöfnuðurinn var aíl-
ur í gjánni. Var hitasvækjan
þar mjög mikil og loftþrýsting-
urinn óbærilegur, sjerstaklega
kvenfólkinu. Slys urðu fá, eitt
fótbrot og önnur minni háttar
fótarmein.
Fjalla-Eyvmdur verður leik-
inn í kvöld kl. 8 í Iðnó.
*Takið vel eftir!
Kaffistell fyrir 12 manns 22.00.
do. fyrir 6 manns 12.90.
Vaskastell, 5 hlutir 11.50.
Matarstell, danska postulíns-
munstrið.
Skeiðar og gafflar, alp. 0.75.
Teskeiðar alp. 0.40.
Skeiðar og gafflar alm. 0.25.
Teskeiðar alm. frá 0.05.
Skeiðar og gafflar 2 turna 1.60.
Kökuspaðar 2 turna. 2.25.
Teskeiðar 6 stk. 2 turna 2.90.
Ferðasett, skeið, hnífur og gaff-
all 1.50.
Diskar emal 0.65.
Drykkjarkönnur emal. 0.70.
Vaskaföt emal. 1.25.
Myndarammar,
Leikföng.
Snyrtiáhöld.
Silfurplettvörur.
Brauðhnífar 0.50
og alt eftir þessu.
Versl. )öns B. Helgasonar
Laugaveg 12.
Frá Flugfjelaginu. Fjelagið
tilkynnir, að reglubundnar flug-
ferðir hefjist á morgun mbð
langflugi til Austfjarða. Fl'ogið
verður á hverjum mánudejgi
þessa leið; hjeðan til Stykkin-
hólms, Sauðárkróks, Siglufjarð-
ar, Akureyrar, Þórshafnar,
Seyðisfjarðar, Norðfjarðar og
til baka aftur. Ein ferð verður
farin á viku til Vestfjarða og
önnur til Vestmannaeyja.
120 manns fluttu flugvjel-
arnar milP Reykjaví'kur og
Þingvalla um hátíðardagana.
Enski flugbáturinn flaug til
Þingvalla í gær en hafði þar
skamma viðdvöl.
Frk. Thora Friðriksson fæ»ði
konunginum • að gjöf, meðan
hann dvaldi hjer í bænum, eínn
af Alþingishátíðar-„plöttum“
þeim, er hún hefir látið gera.
Var „plattinn“ í skrautlegri
blárri öskju, silkifóðraðri og
var á Jokinu miðju kóróna.
Nýja Bíó sýnir í kvöld 1«-
landsmynd Lofts Guðmundsson-
ar í aukinni og endurbættri út-
gáfu.
Á Derby
veðrdðunum síðustu sem íram
fóru 4. júní síðast varð skjótastur
hestur austurlenska höfðingj'ane
Aga Khans. Næstur honum ehm’
hestlengd á eftir var hestur Tatter
salls en þriðji var hestur sá sem
flestir höfðu veðjað á, hestur Hugo
Herst. Veðmálin fjellu þannig aÞ
á sigurvegarann komu 18:1, hest.
Tattersalls 25:1 og Hirst 11:4. 17
hestar tóku þátt í veðreiðunum.
Um Atlantshaf
efru væntanlegar nokkrar flug-
ferðir í sumar, nyrðri leiðina. 1
vor barst hingað lausafregn um að
Ahrenberg væri farinn að undirbúa
annan leiðangur um Grænland til
Ameríku, en síðan hefir ekkert frá
honum heyrst. — 3 júlí leggur
enskur leiðangur af stað til Græn-
lands til þess að koma þar upp
loftferðastöð og rannsaka mögu-
leikana fvrir Atlantshafsflugi
nyrðri leiðina.