Morgunblaðið - 11.06.1931, Qupperneq 3
k.ORGUNBLAÐIÐ
iiimiiiiimiiimmiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiimin|
Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavlk =
Rltatjörar: Jön KJartaneeon.
Valtýr Stefkneeon.
Rltatjörn og afgreltiela: =
Aueturatrœtt 8. — Slml 600. s
Auglýeingaatjört: E. Hafberg. =
Auglýalngaskrifstofa:
Austurstrætl 17. — Slml 700. S
Helmaslmar:
Jön Kjartansson nr. 74Z.
Vattýr Stefánsson nr. 1220. =
E. Haíberg nr. 770.
Áakrlftagjald:
Innanlands kr. 2.00 & mánuSi. =
Utanlands kr. 2.50 á mánuBi. =
f lauaasölu 10 aura elntakiS.
20 aura meö Lesbök. =
nuiHiiiEiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiumiiiiiiiiiiii 1
Irlend kúgun
— innlend kúgun.
• -
Sjálfstæðisbarátta fslendinga
hefir til þessa tíma eingöngu ver-
ið háð gegn erletndu váldi. Þar
áttu íslendingar lengi við ramman
reip að draga, því að kúgun er-
lends valds var látin sjúga allan
merg úr þjóðinni. Þjóðin var
hnept í niargs konar fjötra', en
sjálfsbjargarviðleitni landsmanna
•«kki vöknuð. Loks hófst vakninga-
tímabilið undir forystu afburða-
manna, og úr því vann þjóðin
hvern sigurinn af öðrum í sjálf-
stæðisbaráttunni.
Stærstu sigrarnir í sjálfstæðis-
baráttunni voru þessir: Árið 1845
var ráðgefandi Alþingi stofnsett,
1874 fekk þjóðin löggjafarvald í
sjermálum, 1904 lfom innlend þing
ræðisstjórn í sjermálum og 1918
var fullveldi íslands viðurkent.
Þessir sigrar gnæfa hæst í sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinnar .
Fullveldisviðurkenningin 1918
færði fslendinga næst markinu. En
takmark þjóðarinnar í sjálfstæðis-
baráttunni hefir jafnan verið - og
er enn: Fullkomið frelsi lands og
þegna. — Að þessu marki verða
keppt uns sigurinn er feirginn. Og
sá sigur hlýtur að fást fyrr en
síðar, því að ]>að er nú algerlega
á valdi þjóðarinnar sjálfrar að
:ná síðasta áfanganum í sjálfstæðis-
baráttunni.
En íslenska þjóðin hafði ekki
fyrr sigrað liið erlenda vald, en
nýtt kúgunarvald kemur til sög-
mnnar. Og nú er það innlent kúg-
unarvald.
Þetta innlenda kúgunarvald reis
upp af leifum hins erlenda kon-
ungsvalds. Stjórn Framsóknar-
flokksins, sem hjer hefir setið við
völd síðustu fjögur ár, var kvödd
fyrir dómstól Alþingis 14. apríl síð
astliðinn. Þar átti.hún að gera Al-
þingi, í áheyrn alþjóðar, grein
fyrir ráðsmensku sinni á þjóðar-
búinu. En stjórnin flýr af hólmi.
Hún flýr á náðir konungs í fjar-
lægu landi, konungs, sem er ekjt-
■ert. annað en leifar gamals kúg-
unarvalds, og fær hann til að
leysa upp Alþingi mitt í störfum
’ þess.
Þingrofsboðsk’apur konungs var
laugljóst þingræðisbrot. Um það
eru allir sammála. En konungs-
boðskapurinn var meira. Hann var
einnig skýlaust. stjórnars'krárbrot,
þar sem Alþingi var slitið. án
þess að fjárlög væru afgneidd.
Stjórnin fekk leifar hins erlenda
konungsvalds í lið með sjer, til
;að ráða niðurlögum Alþingis ög
tók sjer einræðisvald í landinu.
flvarptil kiosanda.
Andstæðingar okkar eru nú að dreifa „kosningabrjefum“ út
um bæinn.
Við höfum ekki hugsað okkur að senda kjósendum neitt slíkt
brjef að þessu sinni, sakir þess að oss virðist sem aðatlínur þeirra
mála, sem úrslitum eiga að ráða, Sjeu svo glóggar', að enginn þurfi
að vera í efa.
Má nefna nokkur skýr dæmi þessu til sönnunar.
1. Stjórnin, sem setið hefir með styrk Framsóknarmanna og
Jafnaðarmanna hefir framið þau afbrot, sem enginn ærlegur
maður getur afsakað eða þolað. Má þar íil nefna lögleysur,
hlutdrægni og óhóflega fjársóun, svo að nú er landið svo sokk-
ið í skuldir, að það beinlínis hlýtur að komast undir eftirlit
og forræði erlendra lánardrottna sinna, ef Framsóknarstjórnin
svonefnda fær að halda völdum áfram.
2. Stjómin framdi fyrir tveim mánuðum það gerræði, sem
Reykvíkingum mun vera i fersku minni, er hún braut stjórnar-
skfána, smánaði þingið og traðkaði þjóðræðinu með því að rjúfa
Alþingi og taka sjer einræðisvald. Þetta \efir hún svo varið með
tilstyrk nokkurra danskra sjálfboðaliða.
3. Gerræði þetta segist stjórnin hafa framið til þess, að koma
í veg fýrir, að fram næði að ganga breyting á stjórnarskránni, er
gerir mögulegar umbætur á kjördæmaskipuninni og kosningatil-
högun. En fáist ekki þær umbætur, og nái Framsókn að koma
vilja sínum fram, er höfuðstaðurinn gerður um ófyrirsjáanlegan
tíma að hornreku í þjóðfjelaginu, enda þótt liann verði að bera
mestan þungann af rikisgjöldunum. Og í annan stað ætla þeir að
sjá svo um, að Sjálfstæðisflokkurinn, lang fjölmennasti flokkur
landsins, sje drepinn fyrir fult og alt, útitokaður frá því að geta
ráðið úrslitum mála, hversu mikið fylgi, sem hann hefir á meðal
kjósenda.
Þetta tekst þeim auðvitað ekki. En þessari pólítísku morð-
tilra/un við stærsta flokk landsins, eiga kjósendur nú að svara
á morgun við kjörborðið.
Sjálfstæðismenn!
Fjölmennið á kjörfund!
Fellið Framsóknarmennina, óhappamenn alls landsins og óvini
Reykjavíkur.
Fellið Jafnaðarmenn, sem hafa stutt þá til valda og bera því
ábyrgð á því, hvernig komið er.
Helmdallnr.
Fundnr í Varðarhúsinu ki. 87a í kvölð.
Rætt verður um kosningarnar.
Fjölmennið. STJÓRNIN.
Hvað er úað sem þeir vilja?
Kjósið D-listann!
Frambjóðendur D-listans.
Nú standa kosningar fyrir dyr-
um. íslenska þjóðin á nú að svara;
því, hvort það sje að hennar vilja
að innlent kúgunarvald tekur við
af liinu erlenda.
Á Trampe Þórhallsson að, vera
áfram einræðisherra á íslandi?
Þessu s’varar þjóðin á morgun.
Enskur kafbátur ferst.
i
Bifreiðar og mótorhjól. Samkv.
skýrslu, er vegamálastjóri hefir
samið eftir bifreiðaskattskrám,'
var t'ala bifreiða á öllu landinu
1930 1434, þar af 772 í Reykjavík.
Auk þess voru talin 105 mótorhjól,
þar af 69 í Reykjavík. Voru bif-
reiðar þá í öllum sýslum landsins
nema- Barðastrandarsýslu.
London, 9. júní.
United Press. FB.
Flotamálaráðuneytið tilkynnir,
að kafbáturinn Poseidon liafi sokk
ið eftir árekstur við kaupskip 21
mílu vegar fyrir norðan Wei-hei-
wei í Kína. Tveir biðu bana, átján
vantar, en þrjátíu og einum hefir
verið bjargað.
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins
biður alt það fólk, sem beðið liefir
verið um að aðstoða við kosning-
arnar -og svo aðra, er vilja að-
stoða, að mæta í Varðathúsinu
(nppi) kl. 10 árdegis á morgun.
Hvað er það sem Framsóknar'
mennirnir hugsa sjer að gera, ef
stjórn þeirra, með einliverjum ráð-
um gæti lafað við völdin áfram?
Það er ekki svo að skilja-, að nokkr
ar líkur sjeu tiLþess, að svo verði.
Framsókn er að öllum líkindum
einmitt: nú að syngja sitt síðasta
vers á valdabraut sinni. En það
má Tímaklíkan eiga, að hún ætlar
ekki að sleppa völdunum, fyrri en
í fulla hnefana. Tímamenn um alf
land hamast og bölsótast til þess
að reyna að ha*lda þeim þingsæt-
1 um, seni flokkurinn nú liefir, og
jafnvel að vinna ný. — En þetta
! mistekst.
Og tilgangurinn með þeim hama
gangi hlýtur vitanlega að vera sá
að reyna að varðveita „saltabrauð
ráðherrastólanna1 ‘.
En hvað hugsa þeir herrar svo
lengra? Ekki ætla þeir sjer að
lialda verklegúm framkvæmdum á-
fram í landinu. Það sýndu þeir
með fjárla-gafrumvarpinu, sem þeir
lögðu fyrir síðasta Alþingi. Þar
! skiluðu þeir blönku. Ekkert átti að
j vinna að verklegum framförum á
árinu 1932. Landsstjórnin sýndi
J þjóðinni-þá, meðan hún var þrí-
höfðuð, niður í tóman ríkissjóðinn.
Og þó Framsókn liafi ætlað «jer
að fleyta* sjer fram á lánum, þá
liljóta allar vonir í þeim efnuin að
hafa kulnað út í fyrra. haust, þeg-
ar Jónas var í Löndon og.varð
þar, eftir því sem ha-nn sagði síðar
sjálfur frá, að ljúga út ókjaralánið
í Hambrosbanka, með því loforði
að sýna sig ekki þar aftur á „lána-
buxunum* ‘.
I Ekki getur Framsókn ætlað sjer
að vinna að „viðreisn sveitanna“
næstu árin, því reynslan hefir kent
henni, að ekkert fje að ráði getur
hún fengið í Búnaðarbankann.
Tæplega geta þeir Framsóknar-
menn ætlað sjer það í alvöru, a-ð
stjórn þeirra geti bætt rjettarfar,
eða siðgæði í landinu, eftir að
dómsmálaráðherra þeirra, liinn
margstimplaði. hefir ráðið lijer og
rexað unda-nfarin ár, leikið sjer
að því, að þverbrjóta og fótum.
troða laudslögin í smáu sem stóru,
og fengið sjálfur hvern dóminn á
sig á fætur öðrum, mútað og sóað,
eftir því sem hann hefir frekast
getað, og látið sjóðþurðir og ann-
að „svínarí“ dafna, undir liandar-
jaðri sínum, í öruggu skjóli flokks.
hagsmuna og einkavinskapar.
Uppeldismálin ? Ætli Framsókn
haldi að hún geti komið þar að
gagni? Með því að troða fleiri
kommúnistum í kennara- og skóla
stjórastöður, en þegar eru þangað
komnir? Með því að gera fleiri
skóla landsins en nú eru, að gróðr-
arstíum þeírrá „hugsjóna.“, sem
eiga rót sína að rekja til hins rús»-
neska skrílsæðis?
Nei. Ætlunarverk þau sem Fram
sókn hefir nú framundan, eru ekki
finnanleg í neinum þeim málaflokk
um, sem þegar hafa verið nefndir.
Hvað er það þá sem þeir vilja?
Því verður fljótsvarað. — þeir
geta ekki hugsað sjer að skilja
við hið skítuga stjórnarhreiður
sitt. Þeir víta að atha.fnir þær sem
þeir í skjóli valda sinna hafa
framið, eru svartar sem samviska
þeirra sjálfra. í lengstu lög
spyrna þeir broddunum gegn því,
að hægt. verði að krefja þá til
reikningsskapar á gerðum þeina.
Þess vegna hamast þeir í kosning-
unum, og siga öllum sínum kosn-
ingasmölum á kjósendur, og öllu
sínu málaliði, öllum þeim aragrúa
af fólki, sem fengið hefir lífsupp-
eldi sitt hin síðarifár, af beinajötu
Tímastjórnarinnar, og sem nú á
það yfirvofandi yfir höfði sjer, að
missa ranglega fengin veraldar-
gæði.
Enskusr togari, frá Grimsby kom
hingað í gær frá Englandi, hafði
mist skipsbátinn. Skipstjóiinn er
íslenskur, búsettur í Hull, hann
heitir Bergsteinn Sigurðsson, ætt-
aður úr Mýrdal.
K jörseðill
við hlnibnndiiar alþingiskosningar i Reykjavik 12. júni 1931.
Alisti
Hjeðinn Valdimarsson frv.stj.
Sigurjón Á. Ólafsson afgr.m.
Ólafur Friðriksson ritstjóri.
Jónína Jónatansdóttir frú.
B-listi
Guðjón Benediktsson verkam.
Ingólfur Jónsson bæjarstj. Isaf.
Brynjólfur Bjarnason, kennari.
Rósinkranz Ivarsson sjómaður.
C-listi X D-listi
Helgi Briem bankastjóri. Jónas Jónsson, alþm. Björn Rögnvaldsson byggingam. Pálmi Loftsson forstjóri. Jakob Möller, bankaeftirlitsm. Einar Arnórsson, prófessor. Magnús Jónsson próf. theol. Helgi H. Eiríksson skólastjóri.J
Þannig lítur kjörseðillinn út eftir að llsti Sjálfstæðisflokksins hefir verið kosinn.
*
Sjálfstæðismenn og konur! Munið að setja krossinn fyrir framan D-listann, eins og hjer er sýnt, en hvergi
annars staðar.