Morgunblaðið - 18.08.1931, Blaðsíða 3
MORGUN BLAÐIÐ
3
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniju
S K.I. Áryaknr. a«jkJ».Tlk =
= JUtatJfirar: Jön Kjartnnaaon.
Valtýr Stalknaaon.
= Klt»tJ6rn og afgrelBala:
▲uaturatratl t. — Blml 100. =
= ▲ualýalnKaatJörl: M. Hafbera. =
= ▲uBl^alnKaakrltatota:
Auaturatrntl 17. — Blml 700. =
= Kalaaaalaaar:
Jön KJartanaaon nr. 741.
Valtýr Stefánaaon nr. 1110. =
B. HafberK nr. 770.
= ÁakrlftaKjald:
= Innanlanda kr. 2.00 á aaánuOl. =
= Utanlanda kr. Z.S0 á aaánuBl. =
= 1 lauaaaölu 10 aura alntaklö.
10 aura aaaB Laabðk. =
filiiiiiliiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiinirf
í lug Gronau yfir Græn-
landsjökla.
Khöfn, 15. ág. Mótt. 16. ág.
United Press. PB.
von Gronau lagði af stað frá
íScoresbysund áleiðis til Godthaab
M. 2.11.
Khöfn, 17. ágúst.
(Frá frjettaritara FB.).
Gronau lenti við Sukkertoppen
uni tólfleytið á laugardagskvöld,
■■eftir tíu klukkustunda flug frá
•Scoresbysund.
Khöfn, 17. ágúst.
TTnited Press. FB.
Loftskeyti frá varðskipinu Hvid-
björnen herrnir, a.ð Gronau hafi
verið að þrotum kominn með ben-
sin, er hann lenti við Sukkertopp-
■en. Flytuj- Hvidbjömen honum
bensín.
Þrír menn úr Courtaulds-
Watkins-leiðangrinum komn-
ir til Hafnar.
Khöfn, 16. ágúst.
TJnited Press. FB.
Scott, Stephenson og Lindsay,
•sem voru þátttakendur í breska
Grænlandsleiðangrinum, komu
hingað í gærmorgun. Hjeðan fara
þeir innan skamms áleiðis til Lond
•on. —
Sparnaðarráðstafanir Breta.
London, 15. ágúst.
United Press. FB.
Vegna ákvarðana ríkisstjórnar-
innar um að leggja áherslu á að
líoma á jafnvægi í ríkisbúskapn-
nm, liækkaði sterlingspund lítils
háttar á kauphöllinni í New York.
— Embættismenn í fjármálaráðu-
neytinu hafa nú til athugunar
hvernig haganlegast verði að fram
Itvæma tillögur sparnaðarpefndar-
annar.
Sundprðf í
Reykjanesslauginní.
fsafirði, 17. ágúst. FB.
Sundpróf í Reykjanesi fór fram
7 gær og var óvenjulega margt
fólk þar saman komið, er talið að
um 800 manna hafi verið þar við-
staddii'. Esja flutti hjeðan og af
Vestfjörðum rúmlega 500 manns.
Fóm fram ræðúhöld, sund og leik-
fimi. Námskeiðið hefir staðið yfir
í rúmar fimm vikur. Nemendur
■sextíu. Nýr sundskáli var reistur
í Beykjanesi í vor, er rúmar 60
—70 manns. Miðstöðvarhítaleiðsla
frá hverunum.
Sigluijarðarkirkja.
Hornsteinn Iagður
Siglufirði, 15. ágúst, 1931.
Komu Dettifoss seinkaði svo að
frestað var lagningu hornsteins
kirkjunnar til kl. 4. Mætti þá vjð
hina nýju kirkju fjöldi manns, en
hún er nú komin það á veg,
að veggir, gólf og loft er full-
steypt og turnbyggingin það langt
komin, að eftir er að steypa þriðj-
ung efstu hæðar. Sophus Blöndal
konsúll lýsti athöfnina setta og
las upp skjal það sem sett var í
blýhylki í hornstein kirkjunnar og
svo hljóðar: Hornsteinn þessi er
lagður að Siglufjarðarkirkju 15.
ágúst 1931. Byrjað var að grafa
fyrir grunni kirkjunnar 15. maí
sanm ár og byrjað að steypa 3.
júní. Sóknarnefndinni var kunn-
ugt um að biskup landsins, dr. .Jón
Helgason, mundi verða lijer á ferð
í águstmánuði og var því lagningu
hornsteinsms frestað þar til nú,
að biskupinn er hjer staddur og
leggur hann sjálfur steininn.
Kirkjan kostar, undir þak kom-
in, um sjötíu og sex þúsund krón-
ur og mun því verki lokið í sept-
ember næstkomandi. Fullgerð mun
hún kosta rúmar 100.000 krónur
o’g er búist við að hún verði það á
næsta ári. Prjedikunarstóll, bekk-
ir, pípuorgel, Ijósakrónur, hitunar-
tæki, klukkur og annað þess hátt-
ar mun þess utan kosta að minsta
kosti 40.000. Kirkjan er að nokkru
bygð fyrir. samskotaf je, en að lang-
mestu leyti er hvín reist fyrir til-
lög úr bæjarsjóði. Til byggingar-
innar fengust vilyrði fyrir alt að
25.000 króna láni úr sameiginleg-
um kirkjubyggingarsjóði og er
þegar fengið það 20.000 króna lán
til þess að fullgera kirkjuna að
innan. En biíist við ag nægilegt
f.je fáist með samskotumi innan
safnaðarins. — Stjórn Sparisjóðs
Siglufjarðar liefir látið það boð út
ganga, að sparisjóðurinn, að
fengnu leyfi landsstjórnar gefi
10.000 krónur til pípuorgelsins.
íbúar Siglufja.rðarkaupstaðar voru
2030 við síðustu áramót.
Áætlað er að kirkjan taki um
500 manns í sæti, en megi bæta
þar við síðar.
Þá- var upptalning í skjalinu á
stjórn iands og kaupstaða.r og á
helstu mönnum bæjarins og nú-
verandi sóknarnefnd: Sophus
Blöndal, Þormóður Eyjólfsson,
Þorsteinn Pjetursson, Tryggvi
Kristinsson og Guðm. Bíldahl. —
Uppdrætti að kirkjunni hefir gert
Árni Finsen. Bygginguna fram-
kvæma Einar Jóhannsson múrara-
meista.ri og Jón Guðmundsson
húsameistari frá Akureyri. Yfir-
smiður er Sverre Tynes. Raflagnir
annast Ásgeir Bjarnason raffræð-
ingur. Eftirlitsmaður með verkinu
er Páll Jónsson húsasmiður.
Þá söng blandaður kór undir
stjórn Tryggva Kristinssonar, sálm
inn Guð hæst í hæð. — Biskup
flutt-i því næst fir kirkjudvmnum
snjalla ræðu og hjartnæma og
lagði að því búnu blýhvlkið í steiu
inn og lýsti blessun drottins yfir
húsið og söfnuðinn. Þá söng Karla
kórinn „Vísir“ ljóð sem Hannes
skáld Jónasson hafði ort fyrir tæki
færið. Þá flutti síra Bjarni Þor-
steinsson prófessor ræðu. Því næst
talaði bæjarfógeti og hvatti bæj-
arbúa til a.ð taka höndum saman
og lúka við hið fagra og veg-
lega minnismerki þeirrar kynslóð-
ar sem nú starfaði, sem hún hjer
væri ag reisa sjer. Að lokum söng
karlakórinn „O, Guð vors lands“.
Atliöfnin fór hið prýðilegasta. fram
enda veður ákjósanlegt, sólskin og
blíða. Kirkjan stendur ofarlega á
brekkunni ofan við Siglufjarðar-
eyri rjett norðan við kirkjugarð-
inn og lokar fyrir vestari enda
aða.lgötu bæjarins og gnæfir turn
hennar, þegar fullgerður er, hátt
yfir allan bæinn. Umhverfis kirkju
garðinn er nú verið að setja vand-
aða steinsteypugirðingu og um
völlinn, sem kirkjan er bygð á,
mun síðar sett vönduð girðing og
hann lagaður og skreyttur eftir
föngum.
Eitt af óstjórninni í heilbrigðis-
málum vorum er það, hve lítið er
gert til þess að bæta algengasta
sjúkdóminn, sem nálega hvert
maamsbarn hefir við að stríða:
tannskemdirnar.
Hversu verður þá úr þeim bætt?
Það er von þó menn spyrji.
Ráðin eru tvö, og þau nægja ef
vel væri á þeim haldið.
Hið fyrra er að verja menn fyrir
tannskemdum, ekki síst börn og
unglinga. Þessi gáta sýnist nú að
miklu leyti ráðin.
Hið síðara er, að gera við skemd
ir í tæka tíð eða smíða gervitenn-
lir, ef skemdir eru of miklar.
Hvernig er þá auðið að koma
þessu í framkvæmd?
Það yrði of langt mál í þetta
sinn að útlista það hversu verjast
meg'i tannskemdunum, en minna
má á það, að fyrir nokkrum manns
öldrum voru tannskemdir tiltölu-
lega fátíðar bæði hjer og erlendis.
1 Svíþjóð er til dæmis talið, að
tannátan hafi frá elstu tímum vax-
ið úr 8% upp í 90% eða. þar yfir.
Orsök þesssa er mestmegnis ó-
hentugt matarhæfi.
Þá er hitt atriðið, hversu allur
landslýður geti fengið gert við
tennur sínar og smíðaðar gervi-
tennur, ef þess þarf með, og það
á sem bestan og ódýrastan hátt.
Sem stendur eru það nálega ein-
göngu kaupstaðabiiar, sem geta
auðveldlega leitað tannlæknis.
Mikil bót væri að því, ef lækn-
nm væri rækilega kent að gera
við allar einfaldar tannskemdir.
Það hefir ekki verið unt vegna
fjárskorts o. fl. að gera þetta svo
vel sem skyldi. Gervitennur ættu
lielst ekki aðrir að smíða en tann-
læknar, og þeirra þarf ekki með
á hverjum degi.
Annars hafa Svíar og Ameríku-
menn fundið þjóðráð til þess að
gera almenningi t.iltölulega a.uð-
velt og ódýrt að fá gert inð tenn-
ur sínar, og jafnvel Smíðaðar
gervitennur. Þeir hafa komið á
fót umferðatannlækningum í strjál
bygðu hjeruðunum. Flutti jeg er-
indi um þetta á síðasta lækna-
fundi, — en heilbrigðisstjórnin
sva.f og hraut og blöðin þögðu.
Það er til nokkurs að gefa mönn-
um góð ráð!
Svíar (Rauði krossinn) hafa hag-
að þessu þannig, að þeir keyptu
amerískan vagn sem bíll dró, og
tannlækningaáhöld fyrir 1248
sænskar krónur (stórkaupaverð).
Yar þeim komið fyrir á hagan-
legan hátt í vagninum. Síðan
rjeðu þeir duglegan tannlækni og
aðstoðarstúlku. Lækninum guldu
þeir 30 kr. (sænskar og ósvikn-
ar) á da.g (10 kr. á helgidögum)
og stúlkunni 15 krónur á mánuði.
Síðan var læknirinn sendur í vagn-
inum út um sveitirnar til þess
að gera við tennur ma.nna og þá
fyrst og fremst barna og unglinga.
Dvaldist hann svo nokkra daga
á ákveðnum stöðum, svo sjúkling-
ar þurftu ekki að fara út úr
sveitinni til þess að fá gert við
tennur sínar, og það af æfðum
tannlækni.
í sveitunum önnuðust sveita-
stjórnir eða sjerstaka.r nefndir um
allan undirbúning undir komu
læknisins, sáu fyrir húsnæði ljósi
og hita svo og fæði handa lækni
og aðstoðarstúlku. Þær rjeðu og
mestu um hvar lækningarnar færu
fram.
Fyrir hvert barn sem aðgerða
þurfti voru borgaðar 3—5 ltrónur,
en einföld skoðun og útdráttur
á smábrotum kostaði 1 krónu. —
Fvrir fátæklinga var borgað úr
sveitarsjóði en ekki var það talinn
fátækrastyrkur. Hverju bami var
gefinn tannbursti og fræðslublað
um tannkvilla og hirðingu tanna.
Þó þessi gjöld væru miklu lægri
en gerast hjá sænskum tannlækn-
um, þá hrukku þau langt til þess
að greiða kostnaðinn.
Svíar hafa nú reynt þetta skipu-
lag í nokkurn, tíma, og gefist það
ágætlega. Þó þótti þeim ameríski
vagninn þungur í vöfum og hafa
látið smíða bíl af ljettari gerð.
Áhöldunum er komið fyrir í bíln-
um, og hafa verið endurbætt og
fylgir þeim dálítið Röntgenáhald
(Philips) til þess að taka Rönt-
genmyndir af tönnum. Nú stendur
til að kaupa fleiri bíla til þessara
nota, því að sveitirnar vilja allar.
a.ð tannlæknar komi til sín.
Það er enginn vafi á því, að slík
umferðatannlækning hentaði hvergi
betur en hjer. Telst mjer svo til,
að ötull tannlæknir kæmist yfir
eina meðalstóra sýslu á mánaðar-
tíma eða svo, þó aðsókn væri í
besta. la.gi. Með 3—5 króna gjaldi
að melðaltali fyrtr hvern sem
lækninga nyti, ætti fyrirtækið að
geta borið sig að mestu leyti, þó
fátt verði fullyrt um það, að öllu
óreyndu. Til þess að byrja með
kæmi ekki til tals að ka.upa nema
eiun bil og læra svo af því hversu
honum farnaðist.
Heilbrigðisstjórn og Alþingi
hefði verið í lófa lagið að koma
1>essu í kring, — ef ekki væru
„pólitísku“ álögin á öllu þeim
megin. Líklega hefði tannlæknir-
inn og' aðstoðarstúlkan þurft að
vera með því rjetta flokksmarki
og blessað sveitafólkið hefði þurft
að fá alla lækninguna ókeypis, ef
ekki þóknun fyrir að flytja börn-
in til læknisins.
En þingið hefir fundið annað
ráð til þess að bæta úr skák. Það
vill koma upp tannsmiðum til þess
að búa til gervitennur. Ef það
væri ekki Jón í Stóradal frændi
minn, sem flytti frumvarp í þessa
átt. þá grunaði mig að einhver
tannsmiður, með því rjetta marki,
þyrfti að fá atvinnu og ætti síðan
að nota hann til þess að flytja
tannlausa fólkinu þann rjetta pólit
íska boðskap.
En hvað segir Björgúlfur lækn-
ir og konungur á Bessastöðum?
Væri þetta ekki tilvalið verkefni
fyrir Rauða. krossinn hjer? Hann
á ljettara um vik. því ekki er hann
í neinum álögum.
G. H.
Nautilus í Tromsö.
Tromsö, 16. ágúst.
United Press. FB.
Na.utilus kom liingað í. gær. Bú-
ast menn við, að hann muni halda
áfram norðurförinni á morgun.
Hfnám
atvinnuleysisstyrkja
í Bretlandi.
Tillaga borin fram af verk-
lýðsfjelögunum.
London. 17. ágúst.
United Press. FB.
United Press liefir fengið upp-
lýsiugar um það frá áreiðanlegum
heimildum, að verkalýðsfjelögin,
en frá þeim hefir ríkisstjórnin
aðal kosninga.fylgi- sitt, muni
leggja fast að stjórninni að bera
fram á þingi tillögur í samræmi
við ályktanir þings verkalýðsfje-
laganna um afnám atvinnuleysis-
styrkja í þeirri mynd, sem þeir nú
eru, en stofna í þeirra stað sjóð
til að framfleyta þeim, sem vegna
atvinnuleysis hafa ekki nóg sjer
til lífsviðurværis. Lagt er til að
fje í sjóð þenna fáist með álagn-
ingu á laun manna. frá 1% og upp
í £ 250.
Dagbúk.
Veðrið í gær. Loftþrýsting er
lægst um Norðúrsjóinn, en mest
yfir Grænlandi. Yindur yfirleitt
NA og fremur hægur hjer á landi
og á liafinu milli fslands og Skot-
la.nds. Snnnanlands og vestan er
þurt- og bjart veður. en þokusúld
í útsveitum nyrðra og á Austur-
landi. Hiti 8 stig á Hesteyri og
Raufarhöfn. þar sem kaldast er,
en 14—17 á Suðvesturlandi.
Yeðurútlit í Reykjavík í da.g:
N-gola. Ljettskýjað (sennilega þó
skúraleiðingar með fjöllum).
Dánarfregn. Á laugardagskvöld
andaðist úr taugai-eiki frú Guðrún
Kjartansdóttir, kona Stefáns
bónda Guðmundssona.r ; Skipholti.
Fní Guðrún var dóttir Kjartans
heit. prófasts í Hruna og konu
hans Sigríðar Jóhannesdóttur. Frú
Guðrún var tæplega þrítug að
aldri, framúrskarandi efnileg' kona.
og livers manns hugljúfi. Hún
Ijest. frá fjórum börnum, öllum
á unga aldri.
89 ára varð 16. þessa mánaðar
Kristín Guðmuudsdóttir, t’lðins-
götu 21.
Útvarpið í dag.- Kl. l'9,30 Veður-
fregnir. Kl. 20,30 Hljómleikar. Kl.
20,45 Þingfrjettir. Kl. 21 Veður-
spá og frjettir. Kl. 21.25 Grammó-
fónhljómleikar (Piano-sóló).
Pjetur Á. Jónsson heldur söng-
skemtun í Gamla Bíó á fimtudag.
Þessi vinsæli söngvari er á för-
um af landi burt, svo að þetta
verða. al-síðustu forvöð til að heyra
hann á þessu sumri. Munu söng-
vinir að sjálfsögðu ekki sitja sig
;úr færj að hlusta. á Pjetur.