Morgunblaðið - 19.03.1933, Síða 3
#Q*<5UNBLArf *
—
JpRorðttttUaMft
H.f. Arvakur, BarUtTlk,
JUtatjðr&r: Jön KJ&rtnnaaon.
ValtJ-r Stcf&naaoau
BUtatJörn ok afKralOala:
Auaturatrœtl 8. — Blaal 1(00.
AUKl^alnK&atJörl: H. H&fbarK.
AUKttaloK&akrlfatofa:
Auaturatrntl J7. — Blaal 8700
Halaa&alaa&r:
Jön KJart&naaon nr. 8741.
V<ýr Stefánaaon nr. 4180.
BJ. H&fberK nr. 8770.
Áakrift&KJ&Id:
Inn&nl&nda kr. 8.00 A niinlL
Ut&nl&nda kr. 1.60 A aaAnnBl,
t l&uaaaölu 10 &nr& aint&klV.
80 &ur& maö Leobök.
öengið.
* Alþýðublaðið befir nokkurum
isinnum verið með einskonar hnút-
nr í garð þessa blaðs, út af því,
-að við höfnm ekki, að dómi sósíal-
ista tekið nægilega djúpt í árinni
í kröfunum um það, að halda
gengi íslensku krónunnar í því
horfi sem það er nú.
Morgunblaðið hefir altaf haldið
því fram, að genginu beri að halda
uppi, og forðast beri gengislækkun
í hlutfalli við sterlingspund, svo
framarlega sem þess sje nokkur
Trostur. Því það er tvímælalust
þjóðartjón, ef gengi krónunnar
lækkar, gagnvart sterlingspundi.
Yrði of langt mál að rekja
'hjer þær margvíslegu afleiðingar
’þjóðinni til miska er af því leiddi.
En við þá sósíalistanna verður
þess að geta, að ef þeir vilja að
gengi íslensku krónunnar haldist
trygt í hlutfalli við sterlingspund-
ið, og sje þessi auglýsti vilji þeirra
annað en orðagjálfur og raus, þá
ættu þeir sannarlega, að sýna vilja
-sinn í verki með því,
aið vinna að því, að samræmi
fálst mílli framleiðslukostnaðar á
útflutningsvörum okkar og af-
urðaverðinu,
aið kaupmáttur krónunnar hjer
innanlands verði í samræmi við
gengi hennar,
að ríkisútgjöldum verði stilt
svo í hóf, að hin opinbera evðsla
«yði ekki káupmætti krónunnar,
svo leiði til gengishruns.
Vilji sósíalistar sýna trygð síná
við stöðugt gengi, með því að vinna
að þessum málum, þá eru orð
þeirra í samræmi við verk þeirra.
En það er lítill vinningur og
vafasamur stuðningur fyrir geng-
ið, þó sósíalistar gali eins . og
hanar á haug um það, að þeir vilji
ékki gengislækkun, meðan öll
stefna þeirra í verki og alt þeirra
starf miðar að því, að veikja
kaupmátt og sannvirði krónu
vorrar.
•••« «—
Mac Donald
os: Sir John Simon
ráðgast við Mussolini um
vandræðamálin.
Genf 18. mars.
United Press FB.
Bresku ráðherrarnir Ramsaý Mae
Donald og Sir John Simon lögðu
af stað hjeðan áleiðis til Róma-
borgar á miðnætti í nótt, til þess
að ræða við Mussolini nm afvopn-
unarmálin og ástandið í álfunni
yfirleitt.
S.jómannastofan. Samkoma 5
Varðarhúsinu í kvöld kl. 81/2 (ekkí
kl. 6). Allir velkomnir.
Búnaðarþingið.
Búnaðarþing var sett í gær í
Baðstofu Iðnaðarmanna. — Allir
fjórtán fulltrúr voru mæattir:
Þessir eiga sséti á búnaðarþingi:
Páll Stefánsson, Asólfsstöðum.
Guðm. Þorbjarnarson, Stóra-Hofi.
Magnús Finnbogason, Reynisdal.
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum.
Þórhallur Jónasson, Breiðavaði.
Jón H. Þorbergsson, Laxamýri.
Ól. Jónsson framkvstj., Akureyri.
Jón Sigurðsson, Reynistað.
Jakob H. Lþidal, Lækjamóti.
Jón Fjalldal,, Melgi’aseyri.
Kristinn Guðlaugsson, Núpi.
Magniis Friðriksson frá Staðarfelli
Jón Hannesson, Heildartungu.
Magnús Þorláksson, Blikastöðum.
Á þessum fyrsta fundi voru
skipaðar fjórar nefndir þingsins
samkv. tillogum forseta.
í fjárhagsnefnd: Jón Sigurðs-
son, Guðm. Þorbjarnarson, Sveinn
Jónsson, Kristinn Guðlaugsson,
Jón Hannesson.
í jarðræktarnefnd: Ólafur Jóns
son, Jón Fjalldal, Magnús Þor-
láksson.
í búfjárræktarnefnd: Jón H.
Þorbergsson, Páll Stefánsson,
Magniis Finnbogason.
í allsherjarnefnd: Magnús Frið-
riksson, Þórhallur Jónasson, Jakob
Líndal.
Formaður Búnaðarfjelags ís-
lands, Tryggvi Þórhallsson, er for-
seti þingsins.
Næsti fundur er á morgun kl. 5.
Hóskóla fyrirlestrar
H. Olsen sendikennara.
í gær flutti docent Alfred Olsen
síðasta fyrirlestur sinn í Kaup-
þingssainum. Hann fór hjeðan
heimleiðis í gærkvöldi með Drotn
ingunni.
Alls. flutti hann hjer sex fyrir-
lestrar um þjóðfjelagsmál, eins og
í upphafi var tilætlast, og var
hinn síðasti um hinn rússneska
bolsivisma.
Allir voru fyrirlestrar hans hver
öðrum fróðlegri, enda var salurinn
þjettskipaður áheyrendur í hvert
sinn. Er það almannarómur, að
varla hafi nokkur þeirra dönsku
liáskólakennara er hingað hafa
komið til að halda fyrirlestra,
fengið jafn almennar og góðar
undirtektir sem dr. Alfred Olsen.
Frá Keflavík.
Keflavík, 18. mars FB
Aðfaranótt þriðjudags s.i. reru
bátar hjeðan og úr Ytri Njarð-
víkum, en flestir sneru aftur, því
að mikill sjór var. Tveir eða þrír
bátar lögðu og misti einn þeirra,
v.b. Bragi úr Ytri Njarðvíkum, út
mann, og drukknaði hann. Var
hann einn uppi og vita menn eigi
livernig þetta bar til. Maðurinn
hjet. Jónas Brynjóifur Gunnarsson,
ættaður frá Sauðárkróki, en for-
eidrar hans munu nú búsettir í
Hnífsdal. Jónas var um þrítugt.
Undanfarna 3—4 daga hefir
ekki verið róið, því að gæftir hafa
hamlað. Síðast er farið var til
fiskjar, var afli misjafn.
ICFrá Houu
Nova kom til Siglufjarðar um
miðjan dag í gær. En ekki var
farið að afferma hana í gærkvöldi,
er blaðið frjetti síðast.
Fundur var í gær í fjelagi
verkamanna þar, og rætt um af-
greiðslu Novu. Þar var samþykt
tillaga þess efnir, að fjelagið ljeti
afgreiðslu skipsins afskiftaiausa,
ef skipstjóri á Novu lofaði því, að
vörur þær, sem til Akureyrar áttu
að fara, yrðu ekki hreyfðar,
hvorki þar nje á öðrum höfnum
nema samkomulag fengist milli
bæjarstjórnar og kommúnista á
Akureyri.
Þessi orðsending var send skip-
stjóra. En hann hafði ekki svarað
er blaðið frjetti síðast,
Stórhríð á Sigiufirði í gær.
Framboð á fiski í London.
Billingsgate 18. mars.
United Press. F. B.
Svo mikill afli barst á land í
Billingsgate, að menn muna vart
annað eins. Var mikið af aflanum
sem á land barst í gær, óseldur í
morgun. Hefir því verið ákveðið,
að sum skip sem leggja upp afla
í Billingsgate, leggji upp í Grims-
by á mánudag.
Sclveiðamönnum bjargað.
LudO - (SDII)
mjög; ódýr.
Guðm. llsbiörnsson.
LauKaveg 1. Sími 4700.
Afvopnunarmálin.
Óslo 16. mars.
Norski selveiðarinn ,Storis‘, kom
til Tromsö í dag með áhöfnina
af öðrum norskum selveiðara, sem
farist liafði í ísnum. Komust menn
irnir nauðulega á jaka og höfðust
þar við í tvo daga í 20 stiga frosti
áður en .Storis' kom þeim til
hjálpar. Selveiðamennirnir kváðu
selveiði vera framúrskarandi
mikla 5 norður-höfum og hefðu
skipverjar á ,Storis‘ náð 1200
kópum fyrsta daginn, sem þeir
voru að veiðum, enda þótt rúss-
nesk skip hefðu verið við veiðar
á sömu slóðurn marga daga á
undan. FÚ
Viðskiftastríð
milli Þlðflverja 09
Tjekkóslóvaka.
Berlín 17. mars.
TJnited Press. FB.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að
hefja viðskiftastríð við Tjekkósló-
vakíu og hefir verið fyrirskipað
að stöðva allar greiðslur þangað,
en ferðamönnum er að eins leyft
að hafa meðferðis þangað fimtíu
ríkismörk. Að undanförnu hafa
verið miklar deilur milli Þýska-
lands og Tjekkóslóvakíu um við-
skiftamál og nýlega gerði stjórn-
in í Tjekkóslóvakíu ráðstafanir,
sem þýska stjórnin taldi miða að
því, að draga úr innflutningi frá
Þýskalandi. Greiþ þýska ríkis-
stjórnin þá til þeirra ráða, að
banna oþinberlega skrásetningu
tjelcknesku krónunnar á kauphöll-
inni í Berlín, en er það hafði eigi
tilætluð áhrif var gripið til þess
ráðs að hefja viðskiftastríð við
Tjekkóslóvaka.
Dusken, flutningaskip, fór lijeð-
an í gær með saltfarm til Vest-
mannaeyja.
Genf 16. mars.
United Press. FB
Ramsay MacDonald hefir hald-
ið ræðu á afvopnunarráðstefnunni
og gert' grein fyrir afvopnunartil-
lögum bresku ríkisstjórnarinnar,
en þær eru í höfuðatriðum þess-
ar: Ákveðið verði, að næstu fimm
iái’ verði dregið úr vígbúnaði að
vissu marki og jafnframt gerðar
ráðstafanir til þess, að dregið
verði frekara úr vígbúnaði, þeg-
ar þessu tímabili er lokið, en
loks að alþjóðaeftiliti verði komið
á með vígbúnaði þjóðanna o. s.
frv.
Á ráðstefnunni hefir komið fram
nefndartillaga þess efnis, að frest-
að verði smíði allra stórra her-
skipa til ársins 1935 fyrst um sinn,
takmörkuð verði framleiðsla hreyf
anlegra fallbyssa, sem ætlaðar eru
tilnotkunar í landhemaði, takmörk
uð verði framleiðsla skriðdreka
(tanks), dregið verði úr herafla
þjóðanna á meginlandinu um einn
þriðja, bannað verði að varpa
sprengjum úr loftskipum og flug-
vjeluin á borgir og loks, að eft-
irtöldum ríkjum verði leyft að
hafa. 500 flugvjelar hverju: Bret
landi, Frakklandi, Bandaríkjum,
Japan, ítalíu og Rússlandi.
Næstu Olympsleikar.
Þær sögur hafa verið birtar í
ýmsum blöðum nú undanfarið, að
þýsku Olympíuleikanefndin myndi
ekki sjá sjer fært sökum fjár-
skorts að halda næstu Olymps
leikana í Berlin, eins og þegar
hafi verið ákveðið, en þeir mundu
í þess stað verða haldnir í Róm. Nú
hefir þýska Olympsleikanefndin
lýst yfir því, að nægilegt fje sje
fengið til þessa að halda leikana
í Berlín, og muni Hindenburg rík-
isforseti verða verndari leikanna.
Best að seffa
undir lekann.
Það er kallað í sveitinni „að
setja undir lekann“, þegar komið
er í veg fyrir eitthvað, t. d. mis-
skilning eða misendi. — Mjer er
sagt, að í blaði hjer í borginni sje
látið í veðri vaka að jeg mnni
verða staddur á væntanlegum fyr-
irlestri Sigurðar Eina.rssonar í dag,
til þess að kappræða þar við hann.
Um þetta er það að segja, a.ð jeg
liefi engan kost gefið á slíku og
mun alls ekki gefa, Ágreiningur
okkar S- E. um bókmentaleg efni
og mannfjelagsmál verður ekki
útkljáður frammi fyrir þeim söfn-
uði, sem skipar sjer umhverfis
þenna rithöfund og ræðumann. Og
í annan stað liirði jeg ekki um að
deila við hann um mig.
Guðmundur Friðjónsson.
BEITTUSTU
ÞYNNSTU
BESTU BLOÐIN.
FÁST ALLSTAÐAR,
Heildsölubirgðir
H. ÓLAFSSON & BERNHOFT
GrammóYónplðtur
oq nútar
teknar upp í gær.
Speak to me of Love.
Zigeuner du hast mein Herz ge-
stohlen.
Es war einmal ein Musikus.
Comedian Harmonists plötur.
Ymsar nýjar plötur.
Menuhin-Levitzski plötur o. fl.
Album ,Picli up‘ ‘ nálar.
Straussvalsar og ýmsar nótur.
Nokkrir His Masters Voiee ferða-
grammófónar, sem kosta frá 75 kr.
Hljóðfaeraverslnn
Helga Haiigrfmssonar.
Sími 3311.
Brœnlandshappilrœttl.
Hinn 1. október næstkomandi
er útrunninn leyfistími ,Kolonial‘-
happdrættisins danska, og befir
dr. Lauge Koch farið fram á það
við ríkisþingið, að upp úx þ\d
verði stofnað nýtt happdrætti, sem
heiti Grænlandshappdrætti. TaKð
er, að %appdrættið muni gefa af
sjer um 200 þúsund krónur ár-
lega og fer dr. Lauge Koch fram
á að því fje verði varið tíl jarð-
fræðisrannsókna í Grænlandi.
Þess er getið í sambandi við
þessa frjett, að kryolitnámurnar
í Grænlandi, sem danska Græm
landsstjórnin liefir mest, grætt á,
að undanförnu, muni vera tæmdar
eftir 20—30 ár. Þess vegna þurfti
nú að atliuga hvort ekki finnist
fleiri auðugar námur í Grænlandi.
Bethajiía. Samkoma í kvold kk
8y2. Allir velkomnir. Smámeýja-
deildin hefir fund kl. 3VÍ> sdðd.
Allar smámeyjar velkomnar.