Morgunblaðið - 12.09.1935, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ílmtudaginn 12. sept. 1935.
Kaldar kveðjur.
Eins og- kunnugt er, er Krist-
mann Guðmundsson rithöfundur
nýkominn heim til ættjarðar sinn-
ar, eftir margra ára avöl í útlönd-
um. Hann fór þangað umkomu-
laus og allslaus, en er nú frægur
maðnr um hehn allan.
Einnig hefir hann frægt þjóð
vora og' áukið kynni manna á
íslandi í hókum sínum.
Enginn hefir lagt honum það
til lasts í íitlöndum, en þegar
íhjer heim er komið, skortir ekki
að hinir öfundsjúku lítilmenni
geti ekki haldið sjer í skefjum.
Hefðu þeir nú aðeins kjaftað úlf-
úð sinni í náungann, þá hefði það
^verið sök sjer en þeir þurfa endi-
lega að hlaupa í blöðin, og í Áh
þýðublaðinu er altaf rúm fyrir
slíkan skæting, og ber það íítt
:með sjer að ritstjórinn sje smekk-
maður.
Halldór Halldórsson lieitir hann
víst, sá sem ætlaði að slá sjer upp
á kostnað Kristmanns í Alþbl. s.
3. sunnudag. Þeim manni hefði
verið betra að þegja- Hann mun
vera bróðir Armanns þess er hefir
þýtt nokkrar af bókum Krist-
■manns. En meira liygg jeg skrif
hans af lians eigin. lítilmensku
:sprottin, en að hann sje að „taka
upp hanskann“ fyrir bróður sinn.
Oi'und hans og illgirni í garð Krist
::manns er svo mögnuð, að jeg ef-
.-ast um að hann hefði ekki ausið
út sínum andlega óþverra, þótt
hann hefði sjeð, að bróðir hans
kallaði sjálfur í brjéfi, þýðingu
sína á Björtum nóttum „frámuna-
legt hrákasmíði“. —
En það er eitthvert nagdýrs-
-eðii í þessum Halldóri. Hann er
•einn af þeim sem ekkert mikið,
nje frægt mega sjá, án þess að liann
vumhverfist af öfund og hinni rottu
le'gu löngun til að naga. Og það
■ er það, sem hann gerir.
Hann er af veikum mætti að
reyna að narta í frægð Krist-
ananns Guðmundssonar. Skáldið
sjálft lætur auðvitað slíkt sem
vind um eyrun þjóta, en aumir
mættu landar hans vera, ef þeir
liðu það orðalaust, að hann yrði
fyrir atkasti lítilmenna.
Finst yður virkilega, Halldór,
að rithöfundurinn liefði átt að
segja, bækur þær, sem þýddar
hafa verið á önnur mál, færri en
þær eru?
Finst yður það vera mont að
segja sannleikann? Ef svo er, vú’ð
ist mjer þjer vera eitthvað afkára
legur á sálinni, og gersamlega
■óhæfur til þess, að gagnrýna gerð-
ir eins af vorum fremstu rithöf-
undum.
Þjer ætlið máske að verða fræg-
ur af þessu bulli yðar, og þjer
verðið það — að endemum. —
Það er yður víst nóg. En væri rit-
:smíð yðar þýdd á 20 tungumál,
segjum 10, aðéins yðar vegna,
um það úti um heim hvernig
gæti hún gefið dágóða hugmynd
kveðjur menn leyfa sjer að viðhafa
um syni íslands, sem hafa frægt
það erlendis, og eru komnir heim.
Þjer hljótið að kunna að skamm
ast yðar, góði Halldór, og þá vona
jeg að þjér hafið vit á að þegja
í framtíðinni. Því að það er altaf
skömm fyrir þjóðina, þegar slíkir
menn sem þjer fara að vaða elg
Mánudaginn 26. ágúst dvöldum
við í Oberhausen. Fyrir hádegi
fóru nokkrir okkar í sundhöll
borgarinnar, sem er mjög falleg,
með einni laug, 10x20 m. Yatnið
var 17—18° heitt. Þarna voru
voru margir unglingar að synda,
og kennari méð þeim, og furðaði
okkur, hve strákarnir voru röskir
á skriðsundinu. Sundlaug er við
hliðina á íþróttavelli bæjarins, en
ekki skoðuðum við hana. Eftir
hádegi var farið með okkur út að
kolanámu einni, sem rekin er í
sambandi við járnbræðslu og stál-
smiðju; heitir fyrirtækið Grosse
Hoffnungshutte og er eitt hið
stærsta sinna tegundar í Þýska-
landi, og vinna 30-000 manns hjá
þessu fyrirtæki í Oberhausen
einni. Var farið með okltur niður
í kolanámu, 600 metra niður í
jörðina; þar var kvikmyndasalur
og sýnt á kvikmynd kolavinslan,
en ekki eru kol unnin lengur í
þessum hluta námunnar. Þótti
okkur allur þessi útbúnaður hið
mesta furðuverk.
Þriðjudaginn 27. ágúst var hald
ið a.f stað kl. 9,40 og komið til
Hamborgar laust e^itr kl. 2- Var
dagurinn notaður til hvíldar, sem
ekki veitti af, því að flestir voru
orðnir mjög slæptir af öllu ferða-
laginu hjer í landi, sem nú er á
énda; höfum við farið samtals um
2500 km. í járnbrautarlest á 2
vikum, og er von, að menn óvanir
slíkum ferðalögum verði nokkuð
þreyttir eftir. í gærmorgun, 28.
ágúst, laust fyrir hádegi, var tek-
ið á móti okkur í ráðhúsi borgar-
innar af fulltrúum senatsins og
ýmsum öðrum fyrirmönnum. Var
okkur sýnt ráððhúsið, sem er gríð-
arstórt og forkunnar fagurt, og
segjast Hamborgarar eiga falleg-
asta ráðhús í lieimi. Að loknum
miðdegisverði hvíldu menn sig,
þangað tú farið var út á knatt-
spyrnuvöllinn. Voru þar um 5000
áhorfendur, og meðal þeirra víst
allir íslendingar í borginni og
skipshöfnin af Dettifossi með skip-
stjórann Einar Stefánsson í broddi
fylkingar. Kappleikurinn fór
þannig, eins og' kunnugt er, að AÚð
töpuðum enn á ný, gerðum 1 mark
gegn 3. Mótstöðumennirnir voru
úrvalslið úr Gau Nordmark, en
það er Hamborg, Holstein og fleiri
hjeruð hjerna nálægt. Keppendur
í blöðunum. Sjálfs síns vegna og
þjóðarinnar ættu þeir að halda
sínum afar lágu hvötum frá papp-
írnum. Jeg efast ekki um það að
þjer leggið út á ritvöllinn aftur,
er þjer sjáið þessar línur. En jeg
vara yður við því, því að það er
leiðinlegt fyrir yður að verða oft-
ar en einusinni til minkunar á
stuttum tíma, enda mun jeg eigi
eiga frekari orðaskifti við yður,
eða aðra potentáta af yðar sauða-
húsi.
J. B.
voru víst allir úr Hamborg, nema
markvörðurinn; hann var frá Kiel.
Fýska liðið var talið veikara held-
ur hin liðin, sem við keptum við,
og var okkur sagt, að hægt væri
að setja saman betra lið hjer í
Hamborg, en þó mundi helmingur
Iiðsins altaf verða tekin í sterk-
asta úrvalslið borgarinnar. Kunn-
ingi okkar Ludeke átti að keppa
á móti okkur, en var lasinn og
treysti sjer ekki til þess. Kapp-
leikurinn var mjög jafn og harð-
sóttur, og mátti lengi ekki í milli
sjá, og voru liðnar 32 mín. af
seinni hálfleik, þegar Þjóðverjar
skoruðu 2. mark sitt, og hið 3.
skömmu síðar. Var þá farið að
skyg-gja, og eftir það hríðdimdi
svo, að dómarinn sleit leiknum
nokkrum mínútum áður en rjett
var, og sagði hann, að hann teldi
of hættulegt að halda áfram, því
að stórslys gæti af því hlotist, ef
keppendur sæju ekki nógú vel til-
Okkar menn stóðu sig vel, og var
auðsjeð, að þeir voru farnir að
venjast grassverðinum; ennfremur
var veður svalt, eftir því sem
hjer hefir verið að undanförnu-
Hafði dr. Erbach, sem liefir horft
á alla leikina, orð á því, að þeir
liefðu lært mikið á þessari ferð og
að nú þekti hann. aftur snerpuna
og' kjarkinn, sem hann hefði sjeð í
Reykjavík. Mörkin fjellu þannig,
að eftir 17 mín. gerðu Þjóðverjar
mark, en Jón Magnússoú kvittaði
eftir 40 mín. 1 2. hálfleik komu
svo hin mörkin, eins og' áður er
sagt. Áhorfendur voru allir á okk-
ar bandi og klöppuðu óspart þeg-
ar okkar menn voru í sókn. Kepp-
endur ljeku allir betur en áður, en
ef ætti að benda á einhverja, sem
skarað hafi fram úr, þá verður að
nefna Björgvin Schran, bakverð-
ina báða (Ólaf og Gísla) og Her-
mann markvörð. Blöðin fara mjög
lofsamlegum orðum um frammi-
stöðu oltkar og segja, að íslend-
ingar hefðu átt fyllilega skilið að
ná jafntefli.
Um kvöldið bauð senatið okltur
til kvöldverðar í Ulilenlioi’ster
Fáhrhaus, og voru þar margir
gestir, fulltrúar borgarinnar,
st j órnarf lokksins, íþróttamálanna
og íslenska ræðismannsins, allir
keppendur (þar á meðal Liideke
og Stúrgk, sem var varamaður)
og loks stjórn Islendingafjelags-
ins og Einar Stefánsson skipstjóri.
Senator v. Ahvorden stýrði sam-
sætinu og hjelt ágæta ræðu til
okkar, um gildi íþróttanna fyrir
friðsamlegt samstarf þjóðanna.
Þakkaði hann okkur fyrir komuna
og fyrir drengilegan leik. Enn-
fremur ávarpaði senatorinn Ein-
ar Stefánsson skipstjóra og þakk-
aði honum fyrir björgun 14 þýskra
sjómanna af togaranum Liibeek,
fyrir *3 árum. Á meðan setið var
að borðum, var skotið flugeldum
úti á Alstervatninu, en veitinga-
húsið stendur við vatnið, og var
farið upp á þak til þess að horfa
Hvítur hákarl hefir
veiðst hjer við land
fyrir 40 árum.
Nýlega var sagt frá því í Morg-
unblaðinu að veiðst liefði hvítur
hákarl nokkrar sjómílur undan
New Jersey. Þar sem þetta er
talinn sjaldgæfur viðburður,
finst mjer rjett að geta þess, að
hjer við land hefir einnig veiðst
slíkur hákarl fyrir mörgum árum.
Það var vor eitt, er jeg var
stýrimaður hjá Sigurði sál. Símon-
arsyni, skipstjóra á skonnortunni
„Geir“, eign Geirs Zoega kaup-
manns að við lágum fyrir há-
karli um 20 sjómílur vestur af
Snæfellsjökli og á nær 150 faðma
dýpi.
Veður var bjart og lygnt, en
fislrur (hákarl) tregur. Jeg átti
vörð á dekki, svonefnda löugu-
vakt og tók jeg starf við fram-
vaðinn. Eftir dálitla stund varð
jeg var við að hákarl var nnair
og von bráðar gaf jeg ofan í
hann sóknina (öngulinn). —
Hákarlinn Ijet mjog illa og
ætlaði jeg varla að geta
dregið liann einn, en þó dró held-
ur af honum eftir því sem ofar
kom.
Heldur brá okkur í brún er há-
karlinn kom upp úr sjónum, að
sjá að liann var snjóhvítur allur.
Jeg Ijet nú samt færa í hann og
draga hann upp með skipshliðinni.
Hákarlinn var ekki mjög stór, á
að giska tveir metrar á lengd.
Sigurður sál. skipstjóri liafði
orðið var við að eitthvað nýstár-
legt, var á ferðinni á þiljum g
kom nú upp. Og er hann sá
hinn livíta hákarl bað hann mig
fyrir alla muni að skera hann af
önglinum og sleppa honum síðan.
Jeg helt að ekki mætti minna
vera en að jeg’ fengi úr honum
lifrina fyrir alt erfiðið. Skar jeg
síðan úr honum lifrina, sem var
fremur lítil, því fiskurinn var
magur. Einnig skar jeg af honum
sporðinn og geymdi.
Sigurði skipstjóra líkaði þetta
miður og ljet þau orð falla, að
varla myndi jeg langlífur úr
þessu, þar sem slíkur fiskur hefði
komið á færi mitt. Því öll þau ár,
sem hann hefði stundað sjó,
hefði hann hvorki sjeð nje heyrt
getið um slíka undraskepnu.
Síðan þetta skeði eru liðin full
40 ár.
Þegar við komum til Reykja-
víkur, fór jeg með sporðinn af
liákarlinum og sýndi Benedikt
sál. Gröndal, því hann var þá
manna fróðastur hjer um fisk-
tegundir allar. Sagðist hann ekki
vita til að hvítur hákarl hefði
veiðst í norður höfum áðiu*. ’
Reykjavík, 11. ágúst 1935.
Bergur Jónsson.
á flugeldana. Voru þeir svo fall-
egir, að undrun sætti og voru
margir alveg orðlausir yfir allri
þessari dýrð. Ekki voru þessar
flugeldar til virðingar við okkur
sjerstaklega, því að þeim er skotið
á hverju miðvikudagskvöldi, en
því var stilt svo til, að kvöldverð-
urinn væri þar sem við gætum sjeð
flugeldana. —
P. S.
5 1
Áhugi fyrir grænmet-
isneyslu fer vaxandi
úti um land.
Frk. Helga Thorlacius
hefir haldið þrjú mat-
reiðslunámskeið í sumar,
á Akureyri og Bfldudal.
Frk. Helga Thorlaeius mat-
reiðslukona er löngu kunn orðin
fyrir áhuga sinn og kostgæfni
við að kenna íslenskum hús-
mæðrum að notfæra sjer inn-
lendar ætijurtir.
I sumar hefir hún haldið nám
skeið, í tilbúningi íslenskra æti-
jurta, á þrem stöðum, utan
Reykjavíkur, á Akureyri, vestur
á Bíldudal og austur í Flóa.
Voru námskeið þessi haldin fyr-
r tilhlutun „íslensku vikunnar".
Frk. Thorlacius er nýkomin
til bæjarins. Hitti Mbl. hana
að máli í gær og spurðist frjetta
af ferðinni:
Á Akureyri hjelt hún tvö
námskeið, frá 15. júlí til 1.
ágúst. Sóttu þau als tuttugu og
sex konur, og komu sumar á
bæði námskeiðin.
Eftir námskeiðin hjelt ,,ls-
lenska vikan“ samsæti, og sátu
það læknar og blaðamenn bæj-
arins, nefndarmenn „íslensku
vikunnar“, og fleiri bæjarbúar.
Þá hjelt frk. Thorlacius eitt
námskeið á Bíldudal, og sóttu
það átta nemendur.
Að því loknu var haldin mat-
arveisla fyrir um tuttugu
manns. Var þar á borð borinn
fimmrjettaður miðdegisverður,
búinn til úr ýmsum hjerlend-
um jurtum, eftir tilsögn frk.
Thorlacius, svo sem fjallagrös-
um, njólablöðum, geitnaskóf-
um o. fl. Var almenn ánægja
yfir rjettunum. Ljetu menn í
Ijós þá ósk, að Helga Thorla-
cius kæmi hið allra fyrsta
vestur aftur, svo að fleiri
fengju að njóta tilsagnar henn-
ar. Mikill áhugi er þar vestra
fyrir að koma á almennum not-
um íslenskra manneldisjurta.
Frá 3. til 6. þessa mánaðar
dvaldi frk. .Thorlacius loks
austur í Hraungerði og kendi
prestsfrúnni, frú Stefaníu Giss-
urardóttur, að matreiða fjölda
rjetta úr íslenskum jurtum og
grænmeti. Þóttu rjettirnir á-
gætir og sumir afbragðsgóðir.
Margir, sem ekki höfðu vanist
grænmeti áður, neyttu þeirra
með bestu lyst. Frú Stefanía
hefir mikinn hug á, að koma á
aukinni notkun grænmetis og
íslenskra jurta meðal sveitunga
sinna, enda eru ágætis skilyrði
til þess þar eystra.
Yfirleitt er frk. Thorlacius
ánægð yfir förinni. Hefir hún
alstaðar mætt góðum vilja og
áhugasemi, og menn verið henni
þakklátir fyrir kensluna.
En frk. Thorlacius lætur hjer
ekki staðar numið. Eftir næstu
helgi byrjar hún aftur nám-
skeið hjer í bænum. Verða þau
haldin í Kirkjustræti 8, og höfð
með svipuðum hætti og hin fyrri
námskeið hennar hjer í vor.
Gefst nú reykvískum hús-
mæðrum tækifæri til þess að
sýna áhuga sinn í þessum efn-
um.
Þýskalandsför knatf-
spymnmannanna.
Brot úr ferðasðga
Pfeturs Sigurðssonar.
Um dvölina og kappleikinn í Hamborg.